Morgunblaðið - 18.01.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.01.1980, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980 17 fHtrijiimlííaíjiiiííí hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakið. Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ríkisstjórn undir forystu marxista á íslandi!!? 01íuráðherra“ þjóðarinnar, Svavar Gestsson, gerir um þessar mundir tilraun til að mynda ríkisstjórn á Islandi og í gær hófust viðræður undir hans forsæti um myndun vinstri stjórnar sömu flokka og hrökkluðust frá völdum í byrjun októbermánaðar og sömu flokka og gáfust upp við að mynda stjórn um jólaleytið. Þjóðviljinn hefur tekið það óstinnt upp, að bent var á það í grein hér í Morgunblaðinu, að Sjálfstæðisflokkurinn mundi að sjálf- sögðu ekki taka sæti í ríkisstjórn undir forsæti Alþýðu- bandalagsins. Það er ástæðulaust fyrir Þjóðviljann að firrtast við því. Miklu fremur ættu þeir Þjóðviljamenn og Alþýðubandalagsmenn að meta það, þegar stjórnmálaand- stæðingar koma fram við þá af fullri hreinskilni og segja: það kemur ekki til greina, að mynduð verði ríkisstjórn á Islandi undir forsæti Alþýðubandalagsins. Auðvitað kemur það ekki til greina — að marxístísk bylting verði gerð án byltingar! Eða er Alþýðubandalagið kannski orðið borg- aralegur flokkur? Hvorki Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar- flokkur né Alþýðuflokkur geta tekið sæti í ríkisstjórn undir forsæti Svavars Gestssonar eða nokkurs Alþýðu- bandalagsmanns. Munurinn á Sjálfstæðisflokknum og hinum flokkunum er hins vegar sá, að Sjálfstæðismenn segja það hreint út. Þar með vita Alþýðubandalagsmenn, að hverju þeir ganga í hugsanlegum samtölum við Sjálfstæðismenm Það er engin tilraun gerð til að blekkja þá eða aðra. Hins vegar er bersýnilegt, að Framsóknar- menn og Alþýðuflokksmenn ætla að haga sér á sama veg og sumarið 1978. Nú eins og þá taka þeir þátt í viðræðum að þessu sinni undir forystu Svavars Gestssonar, en þá undir forsæti Lúðvíks Jósepssonar og láta ekkert uppi um það, hvort þeir geti samþykkt hann sem forsætisráðherra. Nú eins og þá hlýtur það að koma í ljós á síðari stigum viðræðna, að hvorugur flokkurinn getur gengið til stjórnarsamstarfs undir forsæti Alþýðubandalagsins. En hvorugur flokkurinn hefur þá hreinskiptni til að bera að segja Svavari Gestssyni það strax. Enginn lýðræðisflokkanna þriggja getur tekið þátt í ríkisstjórn undir forsæti Svavars Gestssonar eða annars Alþýðubandalagsmanns, í fyrsta lagi vegna þess, að Alþýðubandalagið er flokkur, sem stefnir að því að gjörbylta því þjóðskipulagi, sem við búum við. Þeir Alþýðubandalagsmenn eru í algerum minnihluta meðal þjóðarinnar með þau áform, og jafnvel innan Alþýðu- bandalagsins er fólk sem tæki ekki þátt í slíku. En það kemur auðvitað ekki til greina, að flokkur, sem hefur slíkt stefnumark, að koma á fót marxísku þjóðskipulagi hér á landi, verði kallaður til forystu í þjóðmálum Islendinga. í öðru lagi er nánast útilokað, að þessir þrír flokkar fallist á forsæti Alþýðubandalagsins vegna þess, að það yrði meiriháttar áfall fyrir þjóðina í samskiptum við aðrar þjóðir. Alþýðubandalagið er í grundvallaratriðum andvígt utanríkisstefnu íslendinga. Það er andvígt aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu. Það er andvígt varnarsamningi okkar við Bandaríkin. Þar af leiðandi er óhugsandi, að það geti tekið að sér forstöðu ríkisstjórnar sem fylgir þessari utanríkisstefnu. Aðrar þjóðir sem samskipti eiga við íslendinga mundu ekki treysta slíkri ríkisstjórn. Og forsætisráðherra getur ekki verið í andstöðu við utan- ríkisstefnu stjórnar sinnar. Raunar er óskiljanlegt, að Alþýðubandalagsmenn sjálfir skuli geta hugsað sér að taka við forsætisráðuneytinu við slíkar aðstæður. Þetta þýðir ekki, að samstarf hinna flokkanna þriggja við sósíalista í ríkisstjórn sé útilokað. Slíkt samstarf hafa allir flokkarnir átt við sósíalista og varð Sjálfstæðisflokk- urinn raunar fyrstur til þess. En það er óhugsandi, að þátttaka Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn geti orðið með þeim hætti, að Alþýðubandalagsmaður gegni embætti forsætisráðherra eða utanríkisráðherra, a.m.k. ef nokkur vitglóra er eftir í íslenzkri pólitík. Þess vegna hlýtur tilraun Svavars Gestssonar til stjórnarmyndunar aðeins að vera formsatriöi. Hvorki hann né annar Alþýðubanda- lagsmaður mynda næstu ríkisstjórn á íslandi, nema við séum gjörsamlega heillum horfin. Það er líka íhugunarefni að samkvæmt Brezhnev- kenningunni telja Rússar sig hafa leyfi til afskipta af innanríkismálum þeirra þjóða, sem eru undir marxískri stjórn. — Menn ættu að gera sér grein fyrir því — og leika sér ekki að eldi. Markaðir fyrir kisiljárn góðir: „Ætla má að verksmiðjan skili hagnaði þegar á næsta ári“ segir Jón Sigurðsson forstjóri Islenzka járnblendifélagsins „MIÐAÐ við að þær áætlanir standist sem við höfum gert í dag, þ.e. að seinni bræðsluofninn verði kominn í gagnið næsta haust, má ætla að verksmiðjan verði farin að skila hagnaði þegar á næsta ári,“ sagði Jón Sigurðsson forstjóri Islenzka járnblendifélagsins á fundi með fréttamönnum að Grundartanga i gærdag. „A síðasta ári var hins vegar allnokkur halli samkvæmt fyrstu tölvuspá sem við höfum gert. Þar er gert ráð fyrir því að halli verksmiðjunnar verði um 1250 milljónir króna, en þetta á að vísu eftir að breytast við ýmsar loka- færslur, s.s. vegna gengisuppgjörs og uppgjörs milli byggingar og rekstrar. Eru þá 725 milljónir færðar til afskrifta og lager á kísiljárni um áramót færður til tekna á framleiðsluverði. Mismun- ur framleiðsluverðs og líklegs söluverðs á þessum lager er hins vegar áætlaður um 600 milljónir króna þannig að við erum þokka- lega ánægðir með útkomuna, það var alltaf búist við einhverjum rekstrarhalla fyrStu árin meðan aðeins annar ofninn væri í notk- un,“ sagði Jón ennfremur. Samkvæmt upplýsingum Jóns varð framleiðsla kísiljárns á árinu rúmlega 16600 tonn, en gert hafði verið ráð fyrir að framleiða 17 þúsund tonn. Af þessum 16600 tonnum voru um 12500 tonn flutt út fyrir áramót og um 1900 tonn fóru út rétt eftir áramótin, þannig að alls seldust um 14400 tonn á árinu. Það er því aðeins eðlilegur lager eftir. Aðspurður sagði Jón að mark- aðirnir hefðu verið góðir á s.l. ári og ef ekki kæmi til mikil breyting á stáliðnaðinum almennt væri reiknað með því að sama staða héldist á þessu ári. Jón Sigurðsson forstjóri islenzka járnblendifélagsins. Ljósmynd Mbl. Kristján Þá kom fram hjá Jóni að búist væri við því að tap félagsins yrði á næsta ári á bilinu 2—3 þúsund milljónir, en það væri í samræmi við þær áætlanir sem gerðar voru í upphafi, hins vegar væri búist við rekstrarafgangi strax á næsta ári eins og áður er getið. Það væri búist við að framleiðsla fyrirtæk- isins yrði á bilinu 25—33 þúsund tonn, en það færi að mestu eftir því hversu mikil orka fæst afhent, en á seinni hluta síðasta árs gat Landsvirkjun ekki annað orkueft- irspurn verksmiðjunnar. Þá kom að síðustu fram hjá Jóni að frumrannsóknir hafa þegar farið fram á því hvort heppilegt kunni að stækka verksmiðjuna enn frekar eftir að ofnarnir tveir eru komnir í notkun, þá annað hvort um einn eða tvo ofna. Það væri hins vegar ekki hægt að segja neitt frekar um málið á þessu frumstigi. Járnblendiverksmiðjan að Grundartanga. Ljósmynd Mbl. Kristján. FULLTRÚAR fjögurra stærstu greina kristinnar kirkju á Islandi sameinast um guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni á sunnu- daginn klukkan 14. Samstarfs- nefnd kristinna trúfélaga á tslandi gengst dagana 18. —25. janúar fyrir bænaviku, sem reyndar er alþjóðleg. en aðilar að nefndinni eru auk Þjóðkirkj- unnar rómversk-kaþólskir, hvítasunnumenn og aðventist- ar. Séra Þórir Stephensen, dóm- kirkjuprestur, þjónar fyrir altari í guðsþjónustunni á sunnudag, en honum til aðstoðar verða David West, æskulýðsfulltrúi aðventista, og Daniel Glad, trú- boði Hvítasunnusafnaðarins. Séra Ágúst Eyjólfsson, nývígður Kaþólskur prestur predikar í Dómkirkjunni á sunnudag Fulltrúar Þjóðkirkjunnar, kaþólskra, aðventista og hvítasunnumanna sameinast um guðsþjónustu prestur við Dómkirkju Krists konungs í Landakoti, stígur í stól og prédikar. Er það í fyrsta skipti, sem það gerist á íslandi, að kaþólskur prestur prédikar í lúterskri kirkju. Séra Þórir Stephensen sagði í samtali við Mbl. í gær, að kristin kirkja skiptist í margar deildir og þær væru býsna fjarri hver annarri. Kristnir menn í heimin- um eru taldir vera liðlega 1.2 milljarðar og skiptast þeir þann- ig, að rómversk-kaþólskir eru 705 milljónir, grísk-kaþólskir 150 milljónir og mótmælenda- trúar 350 milljónir. Markmið alþjóðlegu bænavikunnar 18.— 25. janúar er eining hins dreifða kristindóms. Alkirkjulegt eða ekumenískt starf hefur vaxið mjög síðustu árin, sagði séra Þórir í gær. — Ég get nefnt, að er ég var við framhaldsnám í Þýzkalandi 1964—65 sótti ég samkomu í Augsburg þar sem saman voru komnir fulltrúar margra kirkju- deilda og þeirra á meðal Bea kardináli. Þetta vakti mikla at- hygli mína og hef ég síðan reynt að vekja áhuga á þessu hér á landi. Er samstarfsnefnd krist- inna trúfélaga á Islandi var stofnuð ákvað ég að efna til guðsþjónustu með fulltrúum fjögurra stærstu greina krist- innar kirkju á Islandi. — Ég leitaði fyrst til Hinriks van Frehen, biskups kaþólskra á Islandi, sem sagði að kaþólska kirkjan væri reiðubúin að taka þátt í slíkri guðsþjónustu. Full- trúar aðventista og hvítasunnu- manna tóku þessu einnig mjög vel. Guðsþjónustan verður síðan á sunnudag klukkan 14 og er um svokallaða lesmessu að ræða, þar sem skiptist á lestur prests og safnaðar. Dómkórinn syngur við guðsþjónustuna og Martin H. Friðriksson leikur á orgel Dóm- kirkjunnar. — Þetta er í fyrsta skipti, sem slíkt gerist á íslandi og er um kirkjusögulegan tímamótavið- burð að ræða. Ég held að aðilar allra fjögurra kirkjudeildanna séu jafn ánægðir með að þetta skuli geta gerzt, en þetta hefði verið ómögulegt fyrir nokkrum áratugum síðan. Kristnir menn eru að vakna til meðvitundar uxn, að það er miklu meira, sem sameinar þá, heldur en það sem aðskilur þá og það er miklu nauðsynlegra fyrir þá að verja hin sameiginlegu vé heldur en að efna til ágreinings. Því hinn sameiginlegi óvinur er hin guð- lausa efnishyggja, sem lætur æ víðar til sín taka á þjóðfélags- legu sviði, sagði séra Þórir Stephensen að lokum. Rafmagnsveitur ríkisins: Mikill raforkuskortur fyrir- sjáanlegur veturinn 1980—81 — fimm ára framkvæmdaáætlun TAP Á rekstri Rafmagns- veitna ríkisins á árinu 1979 var rúmar 500 millj. kr. Stafar sá halli mestmegnis af síauknum fjármagns- kostnaði. Áhvílandi lán eru nú um 20 milljarðar kr., 40% af þeim lánum eru vísitölutryggð og bera um 60% vexti og verðbætur. Farið verður þess á leit, að ríkissjóður styrki í auknum mæli þann hluta af fram- kvæmdum Rariks sem óarð- bær er til að ekki þurfi að draga úr framkvæmdum og til að takast megi að draga sem mest úr dísilvinnslu og olíunotkun. Rafmagnsskort- ur hefur verið nokkur á þessum vetri og talið er að ástandið verði mun verra veturinn 1980—81. Þetta kom fram á frétta- mannafundi með stjórnar- formanni Rariks, Pálma Jónssyni alþm., og Kristjáni Jónssyni rafmagnsveitu- stjóra í gær, þar sem kynnt var ný fimm ára fram- kvæmdaáætlun Rariks og fjárhagsstaða fyrirtækisins. Framkvæmdaáætlunin gild- ir fyrir árin 1980-1984. Verðlagsforsendur hennar eru miðaðar við verðlag á miðju ári 1979 að viðbættum 35%. Heildarútgjöld skv. áætluninni eru um 69 millj- arðar kr., þar af 25,4 millj- arðar til almennra fram- kvæmda, 7,6 milljarðar til styrkingar rafdreifikerfi í sveitum, 23,1 milljarður til byggðalínuframkvæmda og 12,8 milljarðar til Kröflu- virkjunar. Pálmi Jónsson sagði, að áætlunin hefði verið samin með það að markmiði að hægt yrði á áætlunartíma- bilinu að fullnægja eftir- spurn eftir raforku á orku- veitusvæðum Rariks. M.a. væri miðað við, að á þessu tímabili gæti raforka að mestu eða öllu leyti tekið við af olíu til upphitunar þar sem jarðvarma nýtur ekki við. Hann sagði einnig, að það væri ákaflega þýð- ingarmikið, að Alþingi og upp á 69 milljarða kr. lögð fram Kristján Jónsson, rafmagnsveitustjóri, t.v. og Pálmi Jónsson, formaður stjórnar Rarik, á fréttamannafundinum í gær. Ljósm. Mbl. RAX. stjórnvöld fengju glögga mynd af því hvað hér væri um að ræða. „Vilji stjórnvöld fara hægar í sakirnar en framkvæmdaáætlunin grein- ir, verða þau að reikna með því að bera ábyrgð á, að ekki verði unnt að tryggja af- hendingu raforku með eðli- legum hætti til notenda og að ekki takist að útrýma olíuupphitun húsnæðis á áætlunartímabilinu,“ sagði Pálmi. Rafmagnsvéitustj óri, Kristján Jónsson, gerði síðan grein fyrir helstu fyrirhug- uðum framkvæmdum skv. áætluninni. Má þar m.a. nefna styrkingu rafdreifi- kerfa í sveitum, s.s. veru- legar endurbætur á Suður- landslínu, lagningu sæ- strengs yfir Eyjafjörð, lagn- ingu Vesturlínu o.m.fl. Einn- ig er fyrirhugað í áætluninni að lagning hringtengilínu verði lokið 1983 og mun tilkoma hennar gerbreyta ástandi í raforkumálum á Austurlandi og Suðausturl- andi. í umræðum um fjár- hagsstöðu Rariks kom fram, að heimilistaxti rafmagns frá Rarik er nú 55% hærri en hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Sagði Pálmi, að því misrétti yrði að linna. Það væri að margra dómi rétt- látt, að landsmenn allir greiddu lagningu byggðalína á sama hátt og kostnaði við lagningu vegakerfisins væri jafnað á allra herðar. Af 50 þúsund notendum rafmagns frá Rarik til heimilisnota búa um 26 þús. í þéttbýli en 24 þús. í sveitum. Sagði Pálmi, að nú þegar hefði fengist nokkur viðurkenning á þessari þörf Rariks, því við afgreiðslu lánsfjáráætlunar ríkissjóðs hefði 600 millj. kr. verið veitt til óarðbærra framkvæmda Rariks, en meira þyrfti til, ef vel ætti að vera. Kristján sagði að orku- skortur hefði verið nokkur á þessum vetri og beita hefði þurft skömmtunum, s.s. til álversins, varnarliðsins og fleiri aðila. Fyrirséð væri, að ástandið yrði mun verra á næsta vetri. Tilkoma Hraun- eyjafossvirkjunar myndi þó bæta hér úr. Það kom einnig fram á fundinum, að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Rar- iks tókst ekki að afla fjár til þess að bora tvær vinnslu- holur fyrir Kröfluvirkjun á þessu ári. Raskar það fram- kvæmdaáætluninni um upp- byggingu Kröfluvirkjunar á árunum 1980—1981 og gerir horfur á orkuskorti á kom: andi vetri mun dekkri. í framkvæmdaáætluninni er lagt til, að boraðar verði þrjár vinnsluholur við Kröflu 1980 og a.m.k. tvær þeirra tengdar það ár. Síðan verði boraðar fjórar holur 1981 og fjórar holur á ári úr því, þar til fullum afköstum virkjunarinnar verði náð. Yfirlýsing VSÍ: Dylgjum um mót- sagnakennda af- stöðu vísað á bug Vinnuveitendasambandið hef- ur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla framkvæmdastjóra Al- þýðusambands íslands. Yfirlýs- ing VSÍ, sem undirrituð er af Þorsteini Pálssyni, framkvæmda- stjóra, er svohljóðandi: „Framkvæmdastjóri ASÍ full- yrðir, að VSÍ hafi reynt að tefja fyrir viðræðum um endurnýjun kjarasamninga. Það rétta í því máli er sú staðreynd, að VSÍ mótaði kröfur sínar um miðjan október 1979 og hefur verið reiðu- búið til viðræðna síðan. ASÍ félög- in hafa á hinn bóginn ekki komið sér saman um kröfugerð og hafa í nokkra mánuði staðið í innbyrðis átök'um þar um og enn er kröfu- gerð þeirra ekki lokið. Fullyrð- ingar um tafir af hálfu VSÍ eru algjörlega út í hött. Það er Al- þýðusambandið, sem ekki hefur verið í stakk búið til að hefja viðræður og skyldi því varast að kasta grjóti úr glerhúsi. VSÍ hefur lýst sig reiðubúið til viðræðna á grundvelli þeirrar stefnumcrkunar er fyrir liggur af þess háifu. Öllum má hins vegar vera ljóst, að vonlaust er að hefja viðræður á grundvelli kröfugerðar ASÍ-félaganna, þar sem hún er ekki nema að hluta til komin fram í dagsljósið. Öllum dylgjum um mótsagna- kennda afstöðu VSÍ í þessum efnum er því vísað á bug.“ Biskup vígður í Grænlandi FYRSTI grænlenski biskupinn verður vígður 17. íebrúar n.k. í Godthaab í Grænlandi og fram- kvæmir hana Ole Bertelsen Kaupmannahafnarbiskup. Heit- ir hann séra Chemnitz og mun hafa sömu stöðu og Færeyja- biskup — vísibiskup. Kaupmannahafnarbiskup mun annast alla stjórnsýslu embættisins, en Grænlandsbisk- up annast vígslur og aðra bisk- upsþjónustu heima fyrir. Bisk- upi Islands, hr. Sigurbirni Ein- arssyni hefur verið boðið að vera viðstaddur vígslu sr. Chemnitz.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.