Morgunblaðið - 13.03.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.03.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 23 Gerö látinn Budapest, 12. marz, AP. LÁTINN er Ernö Gerö, leiðtogi ungverska kommúnistaflokksins þegar byltingin var gerð í land- inu 1956. Hann var 82 ára. Gerö var rekinn úr flokkn'um sakaður um að bera ábyrgð á ólöglegum réttarhöldum á Stalíntímanum. Ungverska fréttastofan Mti gat um andlát Gerös í aðeins fjög- urra lína skeyti og sagði að hann hefði látist úr hjartaslagi. Ekki teflt Velden, 12. marz, AP. PETROSIAN fyrrum heims- meistari í skák tók sér í dag frí og var því biðskák í einvígi hans og Korchnois um réttinn til að skora á Karpov, núverandi heimsmeistara, ekki tefld. Skák- in verður til lykta leidd á morgun og fjórða skákin hefst á laugardag. Bankarán í Freiburg mistókst Basel. 12. marz, AP. TILRAUN tveggja manna til að ræna banka í Freiburg í Vestur- Þýzkalandi í dag fór út um þúfur og gáfust ræningjarnir upp á flótta undan lögreglu, en þá hafði eltingaleikurinn borist til Sviss. Þegar ræningjarnir létu til skarar skríða í bankanum skömmu eftir opnun í morgun tókst bankastarfsmanni að gera lögreglu viðvart og fyrr en varði hafði lögreglan umkriiigt bank- ann og lokað nærliggjandi göt- um. Tóku ræningjarnir bankamær í gíslingu og hótuðu að myrða hana ef þeim yrði ekki leyft að komast undan. Eftir þriggja klukkustunda samningaþóf leyfðu lögregluyfirvöld ræningj- unum að yfirgefa bankann og létu þeir bankameyna aka bif- reiðinni. Héldu þeir fyrst norður á bóginn en síðan suður í átt að landamærum Sviss. Var fylgst vel með ferðum þeirra. Á undankomunni óku ræningj- arnir í gegnum vegartálma á landamærunum í bænum Weil, en eltingaleiknum lauk í Basel er sprakk á hjólbarða hjá þeim. Fundið lík Nieder- mayers Beliast, 12. marz, AP. Lögregluyfirvöld skýrðu frá því í dag að mannsleifar sem fundist hefðu á öskuhaug i borginni í gær væru af líki vestur-þýzka iðnjöfursins Thom- as Niedermayer, sem hryðju- verkamenn úr IRA eru sagðir hafa rænt fyrir sex árum. Nied- ermayer var forstöðumaður Grundig-verksmiðjanna í Bel- fast og ræðismaður V-Þýzka- lands á Norður-írlandi. Honum var rænt við heimili hans 27. desember 1973. Carter og Reagan vinna stórsigra í Suðurríkjunum RONALD Reagan, frambjóðandi repúblikana, og Jimmy Carter, frmabjóðandi demókrata, unnu stóra sigra yfir mótherjum sínum í forkosningum flokkanna á þriðjudag í Suðurríkjunum Alabama, Flórída og Georgia. Reagan sagði, þegar úrslit voru kunn, að sér kæmi á óvart, hversu miklu munaði á honum og George Bush í Flórída. Þega 90% atkvæða í Flórída voru talin, hafði Reagan hlotið 57% atkvæða og Bush 30% en Flórída var eina ríkið þar sem Bush hafði lagt sig fram í kosningab- aráttunni. Hann sagðist ekki vita, hvernig á þessu stæði, en hann myndi halda baráttu sinni ótrauður áfram. Edward Kennedy lagði litla áherzlu á kosningarnar í þessum Suðurríkjum. Georgia er heima- ríki forsetans og Alabama og Flórída eru íhaldssöm ríki, og Kennedy átti þess vegna litla von um að standa sig vel þar. Jody Powell, blaðafulltrúi for- setans, gagnrýndi Kennedy fyrir þetta, og sagði Carter ekki hafa forðast Nýja England þótt það væru heimaslóðir Kennedys. Kennedy stóð sig bezt meðal Gyðinga í Flórída. Þeir hafa enn ekki fyrirgefið Carter mistök, sem ríkisstjórn hans urðu á í Sameinuðu þjóðunum fyrir rúmri viku. Þá samþykktu Band- aríkin tillögu þess efnis, að ísrael bæri að hverfa frá nýb- yggðum sínum á herteknum Arabasvæðunum. Kennedy von- ar, að þetta mál hjálpi honum einnig í New York 25. marz, en verulegur hluti kjósenda þar eru Gyðingar. Garter vann 183 fulltrúa af 208 í þessum þremur Suðurríkjum. Hann hefur nú 267 fulltrúa á landsþingi demókrata í sumar, en 1666 er þörf til að vinna útnefningu flokksins. Kennedy hefur nú 135 fulltrúa. í næstu viku verður kosið um 179 full- trúa í Illinois. Kennedy hefur eytt miklum tíma og peningum í kosningabaráttuna þar og einnig í New York, sem heldur forkosn- ingar vikur síðar. Hann vonast til að standa sig vel í báðum ríkjunum, en hefur ekki fengizt til að segja, að hann þurfi að vinna til að halda baráttunni áfram. Skoðanakannanir New York Times og CBS sjónvarpsstöðvar- innar sýndu í fyrsta sinn á þriðjudag í langan tíma, að þeir sem eru óánægðir með fram- mistöðu Carters, sem forseta, eru fleiri en hinir sem eru ánægðir. Hann þykir ekki standa sig sem skyldi í utanríkismálum og innanríkismál eru í hinum mesta ólestri. Þetta ætti að hjálpa Kennedy, en svo er þó ekki. Hann þykir ekki búa yfir þeim mannkostum, sem forseta hæfir, og því hallast æ fleiri demókratar að Repúblikönum og þá einna helzt John Anderson. Vænta má, að slæm frammi- staða Bush í Suðurríkjunum ýti frekar undir framboð Geralds Ford, fv. forseta. Hann hefur sagt, að hann sé eini repúblikan- inn, sem getur sigrað Carter í forsetakosningunum. > Skoðan- akannanir í síðustu viku sýndu að 54% kjósenda myndu styðja Ford gegn Carter, sem hlaut 44% stuðning aðspurðra. í kosn- ingu á milli Reagans og Carters fengi Carter hins vega 58% en Reagan 40%. Ford og Reagan börðust harðri baráttu um út- nefningu repúblikanaflokksins 1976 og þá munaði ekki nema 54 fulltrúum á þeim á landsþingi flokksins. Til að eiga möguleika nú, þarf Ford að gera upp hug sinn fyrir 20. marz, því þá rennur fresturinn út til að kom- ast á lista í Ohio, sem kýs 77 fulltrúa og heldur forkosningar 3. júní. Samkvæmt skoðanakönnun- um, sem gerðar voru um helgina, verður John Anderson sigurveg- ari forkosninganna í heimaríki sínu, Illinois, á þriðjudag. Reag- an verður annar og Bush þriðji. Samvkæmt sömu könnunum mun Carter vinna stóran sigur yfir Kennedy, jafnvel þótt borg- arstjóri Chicago, Jane Byrne, hafi lýst yfir stuðningi við Kennedy og lofað honum öllum fulltrúunum sem kosnir verða þar í borginni. AB 400,000 tonna olíuskip sökk á 40 sekúndum Las Palmas. 12. mars. AP. SPÆNSKT oliuskip sökk undan ströndum Vestur-Afríku i gær- kvöldi og fórust með þvi a.m.k. 36 manns af 43 manna áhöfn skips- Tító hrakar Ljubljana. 12. marz, AP. LÆKNAR Títós forseta sögðu í dag, að heilsu forsetans hrakaði verulega. Lungnabólgan hefði ágerst og hjartað sýndi meiri veikleikamerki. Væri líðan for- setans „mjög alvarleg“, sagði í tilkynningu læknanna. 1978 — Suður-Mólúkkumenn taka rúmlega 70 gísla í Essen, Hollandi. 1967 — Blóðugar bændaóeirðir í Kína. 1957 — Samningur Breta og Jórd- aniumanna frá 1948 rennur út. 1939 — Þjóðverjar setja Tékkósló- vakíu úrslitakosti. 1938 — Austurríki innlimað í Þýzkaland. 1930 — Fundur reikistjörnunnar Plútó kunngerður. 1920 — Kapp-byltingartilraun í Berlín. 1900 — Liðsafli Frederick Roberts tekur Bloemfontein, S-Afríku. 1881 — Alexander II Rússakeisari ráðinn af dögum og Alexander III tekur við. 1858 — Tilræðismaðurinn Felice Orsini tekinn af lífi í Frakklandi. 1781 — Sir William Herschel finnur agsins hafði það í dag eftir einum þeirra sjö, er björguðust, að skipið María Alejandra, sem er 400.000 smálestir, hefði sokkið á innan við 40 sekúndum eftir að margar sprengingar urðu í því. Fulltrúinn sagði, að svo stórt Tító hefur verið á sjúkrabeði í tvo mánuði, eða frá því að hann var lagður inn á sjúkrahús vegna blóðrásartruflana í vinstra fæti. Fóturinn var tekinn af 20. janúar og upp úr því gáfu nýrun sig og hjartað. Þá var skýrt frá því 23. febrúar, að forsetinn hefði fengið lungnabólgu, en 4. marz var sagt að honum væri að batna af henni, en í dag er sagt að honum hafi enn elnað sóttin. reikistjörnuna Uranus. 1758 — Halastjarna Halleys í sól- nánd — eins og Halley spáði 1682 (birtist næst 1986). 1714 — Ósigur Svía í orrustunni um Storkyro leiðir til rússneskra yfir- ráða í Finnlandi. 1567 — Margrét af Parma, ríkis- stjóri Niðurlanda, beitir þýzkum málaliðum til að útrýma 1,000 kalvínistum. 1552 — Hinrik II af Frakklandi gerir innrás í Lothringen — Tyrkir gera innrás í Ungverjaland. Afmæli. Jósef II keisari (1741—1790) — Hugo Wolf, austurrískt tónskáld (1860—1903) — Joseph Priestley, enskur vísindamaður (1733—1804). Andlát. 1901 Benjamín Harrison, stjórnmálaleiðtogi — 1979 Per Hækkerup, stjórnmálaleiðtogi. Innlent. 1828 Víg Natans Ketilsson- skip þyrfti venjulega talsvert lengri tíma til að sökkva. Sökum þess hve hratt skipið sökk, gafst áhöfninni ekki tóm til að senda út neyðarkall. Skipið kom í síðustu viku úr umfangsmikilli klössun sem fram fór í borginni Algeciras á Suður- Spáni. Var það á leiðinni til Persaflóa til að sækja hráoliú- farm, en þangað hefur skipið sótt olíufarm með reglulegu millibili síðan því var hleypt af stokkunum í apríl 1977 og jafnan verið þrjár vikur í ferðum. Skipið sökk um klukkan 12:30 að íslenzkum tíma, en það var ekki fyrr en 10 klukkustundum seinna ar — 1833 Landlæknir flyzt til Reykjavíkur samkvæmt konungs- úrskurði — 1808 d. Kristján VII — 1831 f. Guðbrandur Vigfúson — 1867 — Hvalur laskar bát frá Flateyri — 1897 Tillaga Einars Benediktssonar um hvítbláa fánann í „Dagskrá" — 1939 Þjóðverjar tilkynna að Luft- hansa ætli að senda menn hingað til að undirbúa flug til íslands — 1947 Fjórir fórust í flugslysi í Búðardal — 1963 Vantraust á Viðreisn fellt — 1974 Áætlun um „græna byltingu" í Reykjavík kynnt — 1979 Dæmt í Grjótjötunsmáli og ákært í Lands- bankamáli — 1881 f. Jónas Tómas- son tónskáld — 1888 f. Jón Sigurðs- son alþm. á Reynistað. Orð dagsins. Vondur friður er verri en alls enginn friður — David Lloyd-George, brezkur stjórnmála- leiðtogi (1863-1945). að eigendur skipsins fengu fregn- irnar um slysið er norskt olíuskip tilkynnti-um slysið. Akureyri -2 alskýjað Amsterdam 9 rigning Aþena 15 skýjað Berlín 4 skýjað BrOssel 9 rigníng Chicago -1 snjókoma Dytlinni 12 rigning Feneyjar 11 heiðskírt Frankfurt 7 rigning Gent 10 heiðskirt Helsinki -2 skýjað Jerúsalem 14 heiðskírt Jóhannesarborg 22 skýjað Kaupmannahöfn 2 skýjaö Las Palmas 20 iéttskýjað Lissabon 20 heiðskirt London 11 rigning Los Angeles 21 skýjað Madríd 17 heiöskírt Malaga 19 heiðskírt Mallorca 14 lóttskýjað Miami 28 skýjað Moskva -8 heiðskírt New York 6 heiðskfrt Osló 0 skýjað París 9 skýjaó Reykjavík -2 snjókoma Rio de Janeiro 36 heíóskfrt Róm 11 skýjað Stokkhólmur 0 snjókoma Tel Aviv 18 heiðskírt Tókýó 10 heiðskirt Vancouver 8 skýjað Vínarborg 5 helóskírt íns. Fulltrúi Lloyd's tryggingafél- Þetta gerðist 13. marz

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.