Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 Hittu strax á rétta tóninn, Esther Guðmundsdóttir, formaður Kvenréttindafélags íslands rifjar upp í viðtali upphaf og störf KRFÍ á 75 ára afmælinu sem enzt hefiir í 75 ár Kvenréttindafélag ísiands er 75 ára. Stofnað 27. janúar 1907. Nú þegar umræða um réttindi kvenna er svo ofatlega á baugi vegna komandi sveitarstjórnarkosninga og framgangur kvenna í sveitarstjórnum og á alþingi svo mjög í sviðsljósinu, er ekki ófróðlegt að rifja upp 75 ára baráttu KRFÍ og líta yfir farinn veg. í tilefni afmælisins er formaður Kvenréttindafé- iagsins, Esther Guðmundsdóttir, tekin tali. Áður en langt er liðið á samtalið, er okkur báðum Ijóst hversu glöggskyggnar og ótrauðar þessar konur voru, sem fyrir 75 árum stofnuðu KRFÍ, mótuðu stefnuna og hófu bar áttuna. Eða eins og Esther segir: — Þær hittu strax á þennan sama tón, sem enst hefur í 75 ár. Síðan markið var sett, hafa konur fengið lagalega sömu réttindi og karlar, sem við nýtum okkur svo kannski ekki. Raunverulegt jafnrétti hefur hins vegar ekki náðst, svo segja má að markmiðið og baráttumál- in séu enn hin sömu. — íslenzkar konur voru mjög snemma á ferðinni, miðað við kvenréttindakonur í öðrum lönd- um, var það ekki Esther? — Jú, við vorum snemma á ferðinni, svarar Esther. Fyrsta fé- lagið sem hafði pólitísk réttinda- mál kvenna á stefnuskrá sinni, var Hið íslenzka kvenfélag, sem stofn- að var 1894 undir forystu þeirra Ólafíu Jóhannsdóttur og Þor- bjargar Sveinsdóttur. En þegar þær féllu frá, breytti þetta félag störfum sínum í átt við verkefni hefðbundnu kvenfélaganna. — Þegar Briet Bjarnhéðins- dóttir var svo á ferð um Norður- lönd 1904, kynntist hún konum sem voru að vinna að réttindamál- um kvenna þar. Alþjóðasamtök kvenréttindafélaga, sem stofnuð höfðu verið í Berlín 1903, voru með aðalfund sinn í Kaupmannahöfn 1906 og var Briet mjög hvött til að sækja hann. M.a. lagði fyrsti formaður þessara alþjóðsamtaka Carrie Chapman Catt mjög að henni í bréfi. Briet hafði ekkert félag á bak við sig, en fékk samt full réttindi sem fulltrúi og fór á fundinn. En hún sá að við svo búið mátti ekki standa. Áður en Briet fór á fundinn sneri hún sér til Hins íslenzka kvenfélags og fór þess á leit að aftur yrði tekið þar upp fyrra markmið, að berjast fyrir pólitískum réttindum ís- lenzkra kvenna. En það vildu kon- urnar ekki. Sögðu að hagur félags- ins hefði batnað mjög frá því að þær lögðu pólitíkina á hilluna. Briet sá þá að annað hvort yrði málið lagt á hilluna eða þá að stofna yrði nýtt félag. Hún kallaði saman 15 konur í Þingholtsstræti 18 þann 27. janúar 1907. Konurnar tóku þeirri málaleitan vel, eftir að hún hafði skýrt fyrir þeim hvernig slíkum málum væri komið í öðrum löndum, svo sem í Bandaríkjunum og á Norðurlöndum, og sagt frá stofnfundi alþjóðasamtakanna í Berlín og fundinum í Kaupmanna- höfn. Var kosin bráðabirgða- stjórn, sem svo var endurkosin 20. marz á fundi í Iðnó. Briet var formaður, en aðrar í stjórn voru Sigríður Hjartardóttir Jenson, Guðrún Pétursdóttir, Sigríður Björnsdóttir og Laufey Vil- hjálmsdóttir. Félagið var skýrt Hið ísl. kvenréttindafélag, en fyrir beiðni Hins íslenzka kvenfélags var því síðar breytt í Kvenrétt- indafélag íslands. — Var ekki Briet þá þegar farin að hafa afskipti af réttindamálum kvenna? — Jú, hún var farin að skrifa um kvenréttindamál í Kvenna- blaðið, sem hún gaf út og stýrði í mörg ár. Skrifaði þar mikið um uppeldismál og menntun kvenna. Esther rifjar upp fyrstu lög fé- lagsins, en drög að þeim lagði bráðabrigðastjórnin fram á fund- inum í Iðnó. I annarri grein segir: Markmið félagsins er að vinna að því að íslenskar konur fái full stjórnmálaleg réttindi á við karl- menn, kosningarétt og kjörgengi. Einnig rétt til embætta með sömu skilyrðum og þeir. í öðru lagi að efla þekkingu og glæða áhuga ís- lenzkra kvenna á málefnum þess- um með fundum, fyrirlestrum og blaðaskrifum. Og í þriðja lagi að efla félagsskap og samvinnu með- al íslenzkra kvenna, með því að stofna sambandsdeildir víðs vegar um land, sem allar vinni að sama markmiði, hlýti sömu lögum og standi í sambandi við aðaldeild- ina, sem er í Reykjavík. Briet ferð- ast síðan 1908 um allt land og stofnar 6 sambandsdeildir. — Og allt er þetta í góðu gildi enn, bæði markmið og aðferðir? — Já, nema hvað sambands- deildirnar úti á landi lognuðust smám saman út af. Og á lands- fundi 1944 er Kvenréttindafélagið gert að landsfélagi. Þá eru tekin þau ákvæði i lög þess, að þau félög sem hafi kvenréttindanefndir inn- an sinna vébanda geti orðið aðilar. En félagið sjálft starfar með að- ildarfélögunum, sem nú eru orðin 45. Auk þess sem 350 einstakl- ingar eru í félaginu. 1972 var svo samþykkt að karlar megi engu síð- ur en konur ganga í Kvenréttinda- félagið og þeir eru nú nálægt 20 talsins. Hefur fjölgað á seinustu árum. — Þá má geta þess að fyrsti landsfundurinn var haldinn 1923 og síðan hafa verið haldnir slíkir fundir á fjögurra ára fresti. Fund- urinn 1942 féll að vísu niður vegna stríðsins, en var haldinn 1944. 100 ára kosningaréttur — Nú er orðið nokkuð langt síð- an sum af réttindamálunum kom- ust í höfn, svo sem kosningarétt- urinn? Og eru ekki flest lagaleg réttindi fengin? — Konur fengu kjörgengi og kosningarétt 1908 til sveitar- stjórnar og 1915 til alþingis. Raunar höfðu ekkjur og aðrar ógiftar konur, sem stóðu fyrir búi eða á einhvern annan hátt áttu með sig sjálfar, eins og það er orðað, fengið árið 1882 rétt til að kjósa í hreppsnefnd, sýslunefnd og á safnaðarfundum ef þær væru orðnar 25 ára. Við erum því í rauninni í ár að minnast 100 ára afmælis fyrsta kosningaréttar kvenna á íslandi. Á þeim tima sem liðinn er síðan, höfum við fengið lagalegt jafnrétti til menntunar og til starfa og ættum þvi að hafa jafnan rétt við karla í þjóðfélag- inu. Og samkvæmt lögum ættu konur og karlar nú að fá sömu laun fyrir sömu vinnu. En meðan litið er á karlmenn sem aðalfyr- irvinnu, eru búin til starfsheiti eða þeim ákveðin yfirvinna eða eitthvað þess háttar, til að hægt sé Þingholtsstræti 18, þar sem 15 konur komu sam- an 27. janúar 1907 í þeim tilgangi að stofna félag, sem varð Kvenréttindafé- lag íslands. Esther Guðmundsdóttir, formaður Kvenréttindafé- lags íslands. að greiða karli hærri laun en konu. Upphafið á samþykkt frá landsfundi Kvenréttindafélagsins 1980, sýnir kannski hvar við stöndum. Þar segir: „Markmið Kvenréttindafélags íslands hefur frá upphafi verið að vinna að jafn- rétti og jafnri stöðu karla og kvenna á öllum sviðum þjóðlífs. Með setningu laga nr. 78/1976 um jafnrétti karla og kvenna voru mörg af stefnumálum félagsins lögfest. Raunverulegt jafnrétti hefur hins vegar ekki náðst og leggur félagið megináherslu á að konur og karlar fái sömu aðstöðu og tækifæri til að njóta hæfileika sinna." — Nú fóru konur vel af stað 1908, eftir að þær fengu kosn- ingarétt og ruddu braut inn í bæj- arstjórn. En nú er Snorrabúð stekkur. Hvað er í veginum? — Það er rétt. Strax 1908 buðu konur úr Kvenréttindafélaginu fram 4 konur í bæjarstjórnrkosn- ingum í Reykjavík og komust þær allar að. Nú eru konur aðeins 6,1% af sveitarstjórnarfulltrúum á ís- landi, meðan hlutföllin eru 29,8% í Svíþjóð, 22,9% í Noregi, 18,2% í Finnlandi og 17,7% í Danmörku, skv. þeim tölum nýjustum, sem ég hef. Óneitanlega erum við þarna langt á eftir kynsystrum okkar á Norðurlöndum og sárafáar konur þar sem ákvarðanir eru teknar í sveitarstjórnum og á alþingi. Hvað er í veginum? Ætli það séu ekki konurnar sjálfar. í fyrsta lagi eru konur t.d. yfirleitt verr menntaðar en karlar á íslandi. Það er ekki fyrr en á síðari árum að konur fara að afla sér mennt- unar í ríkari mæli. Konum hættir til að velja styttra nám, þótt það sé nú mikið farið að breytast. Og svo kemur til þetta tvöfalda hlut- verk konunnar, að hún sér að mestu um heimilið þótt hún vinni úti. Það er líka mikið að breytast hjá yngra fólki. 4ra ára áætlun — Á aðalfundi Kvenréttindafé- lagsins 1980 var samþykkt að að- alverkefni félagsins næstu fjögur árin, yrði að vinna að því að fjölga konum á alþingi og í sveitar- stjórnum og aukinn hlutur kvenna við ákvarðanatöku í samfélaginu, heldur Esther áfram. Og að því erum við að vinna núna. Þar erum við bæði með langtímasjónarmið í huga og einnig að gera átak til að konum fjölgi í sveitarstjórnum í kosningunum í í vor. Við verðum ekki ánægðar nema konur í sveit- arstjórnun verði 20% eftir næstu kosningar. Og svo verði auðvitað framhald þannig að í næstu al- þingiskosningum verði hlutur kvenna verulega miklu meiri. — Nú eru uppi raddir um að konur eigi að skilja sig frá körlun- um og bjóða fram sér. Þið í Kven- réttindafélaginu haldið samt enn sömu stefnu um að karlar og kon- i ur starfi samhliða eða hvað? — Við stefnum ennþá á jafn- rétti á öllum sviðum, að konur vinni við hlið karla og karlar við hlið kvenna. Nú eru að koma fram kvennaframboð. Konur eru orðnar þreyttar á því að konur hafa ekki haft brautargengi, telja að þetta sé eina ráðið til að fjölga konum í bæjarstjórn í Reykjavík og á Ak- ureyri. Það er vissulega ein leið til að fjölga þar konum, ekki hægt að líta fram hjá því. Kvenréttindafé- lagið mun hins vegar ekki taka af- stöðu með eða móti þessum kvennaframboðum. — En hver er þín persónulega skoðun? — Ég tel sérframboð kvenna ekki réttu leiðina. Vil að konum fjölgi í framboðum innan flokk- anna og þær komi inn gegnum þá. Þótt ég hafi trú á því að konur geti unnið saman, bæði pólitískt og þverpólitísk, þá er þetta miklu stærra mál en það eitt að koma konum að. Því þegar komið er t.d. inn í borgarstjórn þarf að taka af- stöðu til miklu fleiri mála en ein- hverra afmarkaðra málaflokka. Og konur eru alveg jafn pólitískar í eðli sínu sem karlar og hljóta að taka afstöðu eftir sinni sannfær- ingu. Hvernig ætla þær þá að fara að því að standa saman? Þótt þær gætu komið 1—2 konum, þá vakn- ar á eftir þetta pólitíska spursmál, sem ég veit ekki hvernig ætti að leysa. Þess vegna er lang eðli- legast að konur vinni með sinum skoðanasystkinum innan flokk- anna. En ekki verður því neitað að kvennaframboðið hefur þegar gert gagn, þar sem flokkarnir keppast nú um að setja konur á listana. Ég held að tími kvenna hljóti að fara að koma, að þær taki við þjóð- þrifastörfum í samfélaginu. — Ertu bjartsýn á að áhugi sé að glæðast á baráttumálum Kvenréttindafélagsins? — Frá því félagið var stofnað hefur áhuginn gengið í bylgjum, komið lægðir í starfsemina. Áhug- inn hefur farið stöðugt vaxandi eftir 1968. Að vísu kom dálítil lægð í baráttuna eftir Kvennafrí- daginn 1975, en þá voru allir svo bjartsýnir. Síðan 1979 hefur áhug- inn aftur glæðst og nú hefur fólk streymt inn í félagið. Á sl. ári gengu 50 einstaklingar í félagið. Við höfum á undanförnum árum haldið ráðstefnur, sem hafa verið vel sóttar. Þar nefni ég ráðstefn- una Konur og kosningar í haust og Konur í sveitarstjórnum 1980, sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.