Morgunblaðið - 14.02.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.02.1982, Blaðsíða 1
Sunnudagur 14. febrúar Bls. 49-80 Þórsteinn Bjarnason í Körfugerðinni, eins og hann er gjarnan nefndur Útiveran bjargaði mér Kvikur maður í spori, stórskorinn í andliti, með mikið grátt hár. þannig hafa Reykvíkingar í áratugi séð l>órstein Bjarnason á ferðinni í Vesturbæjarlaugina, á skíðum uppi í Jósepsdal, en einkum þó á leið frá heimili sínu á Holtsgötunni og upp í Körfugerð í Ingólfsstræti eða í snúningum fyrir blinda körfugerðarmenn eða nemendur í skóla blindra hér áður fyrr. Á ferðinni og önnum kafinn frá morgni til kvölds. I»að var einmitt hálfrar aldar afmæli Klindravinafélags Islands, sem minnti okkur á I>órstein. l>ví þetta tvennt er svo samofið frá upphafi, að varla er annars getið, svo hitt komi ekki í hugann. Á leið upp Ármannsfell. Þórsteinn gengur aftastur Á skriðjöklinum í Karlsdrætti Viðtal við Þórstein Bjarna- son, hjálpar- hellu blindra í hálfa öld gerð. Var fyrst á Hverfisgötu 18 og flutti svo á Skólavörðustíg 3 eftir 4 ár og opnaði þar sölubúð. En 1932 fiutti ég körfugerðina í Bankastræti 14. — í ársbyrjun 1928 varð Sveinn Ólafsson, fyrrum bóndi að Hvammi í Mýrdal, fyrir því mikla óláni að verða blindur. Sveinn var eljumaður hinn mesti, þjóðhaga- smiður og sívinnandi, en varð nú að sitja auðum höndum, hann bjó þá á Baldursgötu 31. í aprílmán- uði sama ár bauðst ég til að kenna honum körfugerð og var það vel þegið. Þegar ég fór að kenna Sveini, iðraði mig þess að hafa ekki kynnt mér blindrakennslu, eins og mér hafði þó flogið í hug. En nemandinn var með afbrigðum námfús og handlaginn og eftir rúmt ár var hann farinn að búa til ýmiskonar körfur, sem konan hans seldi. Vorið 1929 kenndi ég fleirum körfugerð, þeim Kristni Jóhannssyni í Suðurgötu 8, Hall- dóri Brynjólfssyni í Hafnarfirði og Bjarna Kolbeinssyni á Hverf- isgötu 96. Og um sumarið bættist enn einn blindur maður frá Akra- nesi við, Þorkell Sigurðsson. Og Þórsteinn er jafngamall öldinni, fæddur 3. desember árið 1900 í Þingholtsstræti 16 í Reykjavík, þar sem þá bjuggu foreldrar hans, Bjarni Jónsson frá Vogi og Guð- rún Þorsteinsdóttir frá Álfgeirs- völlum. En hann ólst upp á Sauð- árkróki til 21 árs aldurs. Þegar foreldrar hans skildu á árinu 1905, hafði yngri bróðir hans, Eysteinn, strax farið í fóstur til frænda Guðrúnar, Pálma kaupmanns Pét- urssonar á Sauðárkróki og frú Helgu. Og hálfu ári seinna hélt móðir hans líka norður með hin börnin, Þórstein og Sigríði. Hún gerðist barnakennari, segir Þór- steinn. En þegar fræðslulögin nýju komu, varð hún að hætta þar sem hún hafði ekki kennara- menntun. Þá setti hún upp sauma- stofu, en hélt áfram að kenna handavinnu, var með kjólasaum og tók stúlkur jafnhliða í nám í saumaskap. — Aðdragandinn er langur, segir Þórsteinn, þegar farið er að spyrjast fyrir um tildrög þess að hann tók að vinna körfur og að- stoða blinda. — Ég fékk kíghósta tveggja ára gamall og berkla upp úr því, var m.a. fimm mánuði á Vífilsstaðahæli þegar ég var 11 ára gamall, og fór þangað aftur 1918 og 1921, en lenti svo af tilvilj- un í Danmörku. Jónas Kristjáns- son læknir hafði verið þar á ferð og útvegaði mömmu pláss fyrir mig á Finsens Lys Institut og hún dreif sig út með mig 1922. Þá var ígerð í eyra að drepa mig, hafði verið að búa um sig síðan 1910. Komið var æxli, sem óx inn. Eyrað var því skorið af og höggvið í bein- ið og lá ég milli heims og helju. En þarna fékk ég bata, var í 3 ár í Kaupmannahöfn. Að vísu ekki nema mánuð á stofnuninni, en gekk svo að heiman í ljósin, og kom heill heilsu til íslands. Sam- hliða heimangöngu í sjúkrahúsið fór ég að læra körfugerð. Það var móðir mín sem átti hugmyndina. Hún var svo bjart- sýn og útsjónarsöm og hvatti mig til að læra þetta, þar sem ég gat gert það jafnframt því sem ég sótti spítalann. Erfitt? Fjárhags- legum erfiðleikum vissi ég lítið af. Mamma vann fyrir okkur með saumum í Höfn og Sigríður systir mín, sem þá var farin að vinna í Landsbankanum, sendi okkur stundum peninga. En það er rétt, það var erfitt fyrir ungan dreng að vera svona heilsulaus. Þó man ég það, að við strákarnir vorum eitthvað að metast á, og kom upp spurningin um það hvað við vild- um gera, ef við mættum byrja lífið upp á nýtt. Ég sagðist ekki mundu vilja lifa aftur, nema mega fá sömu reynslu og ég hafði þegar fengið. Þá var ég 15 ára gamall. Þetta var mér í rauninni gagnleg reynsla fyrir lífið. Kennsla blindra í körfugerð — Síðasta sumarið, sem ég dvaldi í Kaupmannahöfn við iðn- nám, kynntist ég af tilviljun blindum pilti, sem einnig var að nema körfugerð í blindraskóla í Kaupmannahöfn, segir Þórsteinn, þegar hann er spurður um hvernig körfugerðin svo tengdist blindum á íslandi. — Ég spurði um ýmis- legt frá þessum skóla og varð strax snortinn af þessari hjálp- arstarfsemi, fór að spyrja sjálfan mig hvað væri gert heima fyrir blinda og fláug óðara í hug ótal margt sem mætti gera þeim til hjálpar. Það væri sannarlega þörf fyrir slíka hjálparstarfsemi þar eins og annars staðar. Ég fór svo heim haustið 1925 og fór að vinna fyrir mér með bursta- og körfu- um áramótin 1929—’30 tók ég að kenna Málfríði Jónasdóttur frá Kolmúla. — Gerðirðu þetta allt á eigin spýtur? Komu nemendurnir í þitt verkstæði? — Nei, ég fór heim til þeirra sem voru í bænum og hjólaði tvisvar í viku til Hafnarfjarðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.