Morgunblaðið - 31.03.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.03.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982 23 Myndasafn frá Teigarhorni í Bogasal Þjóðminjasafnsins hefur verið sett upp stórmerk sýning á ljósmyndum Nicoline Weywadt og frænku hennar Ilansínu Björnsdóttur á Teigar- horni við Berufjörð. Nicoline Weywadt (1848—1921) varð fyrst ís- lenzkra kvenna til að nema ljósmyndaiðn í Kaupmanna- höfn á árunum 1871—72 og starfaði hún að iðn sinni fram að aldamótum eða í um 30 ár. Hún var næstelst dætra Niels- ar P.E. Weywadt, faktors hjá verzlun Örum & Wulff á Dúpa- vogi, og Sophie Brochdorf, dóttur Morten Hansen Tvede sýslumanns, í S-Múlasýslu. Hansína Björnsdóttir (1884—1972) var systurdóttir Nicoline, dóttir Súsönnu Weywadt og Björns Eiríksson- ar trésmiðs, er var lærður í Kaupmannahöfn. Þriggja ára gömul var hún sett í fóstur að Teigarhorni til Nicoline og móður hennar, er héldu saman heimili eftir fráfall Weywadt árið 1893. Hansína mun hafa lært undirstöðuatriði ljós- myndunar hjá Nicoline en sigl- ir 1902 til frekara náms í greininni. Hún kom aftur 1903 og naut góðs af þeirri aðstöðu sem Nicoline hafði búið sér en kom sjálf með eina nýjung í malnum, sem var málað bak- tjald. Ferill Hansínu í faginu varð sýnu styttri en frænku hennar því að hún hætti að mestu að taka ljósmyndir eftir að hún gifti sig 1911, Jóni Lúð- víkssyni, sem var lærður hús- gagnasmiður frá Noregi. I upphafi ljósmyndaferils Nicoline tíðkuðust svokallaðar votar plötur (wetplate). Klór- silfrið var þá borið á plötuna rétt fyrir notkun og hún var enn rök þegar henni var komið fyrir í véiinni. Nauðsynlegt var að framkalla plötuna strax. Plöturnar voru seinvirk- ar og myndirnar því teknar á löngum tíma. Notuð voru því svokölluð hnakkajárn til að skorða höfuð fyrirsæta meðan á myndatöku stóð. Að sjálfsögðu var mynda- takan mikið vandaverk við þessar aðstæður og fékk Nicol- ine það orð á sig, að hún væri svo vandvirk að áður en hún yrði ánægð væri fólk órðið þreytt á að sitja fyrir. Nicoline sigldi til Kaupmannahafnar aftur árið 1888 til að kynnast Myndlist Bragi Asgeirsson Ljósmynd af Nicoline Weywadt eftir J. Holm Hansen. Ljósmynd af Hansínu Björnsdótt- ur talin eftir Nicoline Weywadt. nýjungum í faginu og breytir þá um aðferð og tekur eftir það myndir á þurrar plötur. Þetta var í samræmi við tækni- nýjungar tímanna en ljós- myndastofa Sigfúsar Ey- mundssonar hafði einmitt tek- ið þurrar plötur í notkun fimm árum áður. Það kom mér mjög á óvart hve vel myndirnar eru teknar og af næmri tilfinningu fyrir myndbyggingu í landslagi en þau atriði hafa sjálfsagt verið kennd um leið og fagið. Þó ber að athuga að Nicoline var ein- ungis eitt ár ytra við nám sem þætti ekki mikið nú á tímum, þrátt fyrir allar tækni- nýjungarnar. Nicoline hefur þannig ótvírætt haft næmt auga fyrir myndrænu hliðinni auk þess að bera mikla virð- ingu fyrir handbragðinu enda verklagni fjölskyldu hennar annáluð. Það er óhætt að taka undir orð Þórs Magnússonar í sýn- ingarskrá: „Ljósmyndir Nicol- ine Weywadt og frænku henn- ar Hansínu Björnsdóttur á Teigarhorni við Berufjörð eru einstæðar frá sinni tíð. Bæði er, að Nicoline varð fyrsta ís- lenzka konan til að læra ljós- myndaiðn, og svo hitt, að myndir þeirra eru yfirleitt með afbrigðum vel teknar og myndefnið valið af slíkri kost- gæfni, að myndirnar mega kallast frábærar að gæðum. Og enn kemur svo til hið mikla heimildargildi þeirra um fólk, mannvirki og umhverfi þar eystra á þessum tíma." Þór segir ennfremur: „Þess- ari sýningu er einkum ætlað að lýsa, á hve háu stigi ljósmynd- un var hér á landi á þessum tíma, en einnig vill Þjóðminja- safnið minnast þannig eins af frumherjum þessarar merku iðn- og listgreinar hérlendis." Þess má svo geta hér, að frumbernska ljósmyndunar á Islandi stóð í heil 20 ár og er fyrst vitað um að Helgi Sig- urðsson prestur á Jöfra hafi fengist við þessa iðn árið 1846. Henni lýkur svo árið 1866 er Sigfús Eymundssen tekur til starfa, en veruleg fjölgun varð ekki í stéttinni fyrr en eftir 1895, enda er þá kominn nokk- ur festa í myndatökur og um það leyti eru opnaðar ljós- myndastofur er reyndust lífs- seigar í stærstu bæjum lands- ins. Fyrir 1895 er vitað um 36 einstaklinga er tóku myndir hérlendis gegn greiðslu og voru 5 þeirra útlendingar sem nýttu aðeins ferð sína hingað og tóku myndir til tekjuauka. Af þeim 31 ljósmyndara sem eftir stendur var tæpur helm- ingur, eða 14, búsettir á Aust- fjörðum! Þetta var sem sagt sviðið er hin vandvirka valkyrja Nicol- ine Weywadt starfaði að iðn- grein sinni og það er vissulega heillandi að virða fyrir sér þann hluta ævistarfs hennar er getur að líta í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Væntanlega þarf ekki að hvetja fólk til að sjá þessa ein- stæðu sýningu en menn athugi jafnframt, að sýningin er ein- ungis opin á hefðbundnum opnunartíma Þjóðminjasafns- ins. Myndlistarmönnum, sem og öðrum skal sérstaklega bent á myndina af Jóni Þórarinssyni og konu hans Ólöfu Finnsdótt- ur með börn sín Karl Rikharð, Finn, Önnu, Björn og Georg. Mjög eiguleg sýningarskrá hefur verið gefin út í tilefni sýningarinnar og eru heimild- irnar í þessum pistli sóttar í hana. Ur helmyrkri sorgar og sekt ar í heiðríkju vonar og vilja Bókmenntir Guðmundur G. Hagalín Ragnar I ngi Aöalsteinsson: Kg er alkóhólisti. Útgefandi: Ljóðhús, 1981. Höfundur þessarar bókar er ekki alger nýgræðingur á sviði bókmenntanna. Árið 1974 kom frá honum ljóðakverið Hrafnkela, og þremur árum síðar annað, sem heitir Undir Hólmatindi. Um báð- ar þessar bækur skrifaði ég nokk- ur orð í Morgunblaðið, fann að þeim, en taldi þær bera því vitni, að höfundur þeirra hefði til brunns að bera skáldgáfu. Það mun svo hafa verið sumarið 1978, sem hann dvaldi tímakorn í húsi Guðmundar heitins Böðvarssonar. Þá kom hann til mín og sat á tali við mig góða stund. Auðvitað ræddum við þá um gamlar og nýj- ar bókmenntir, og þótti mér hann furðu fróður í þeim efnum og bera gáfulegt skyn á þau mál. Siðan hef ég ekkert frá honum heyrt, en annað veifið hefur mér orðið hugsað til hans. Datt mér helst í hug, að hann hefði lagt skáldskapinn á hilluna, en þó sveif það að mér, að hann hefði ef til vill ráðizt á því sviði á form og efni, sem krefðist mikillar vinnu og umhugsunar. Svo var það þá fyrir fáum dög- um, að ég fékk frá honum litla bók og bréf, þar sem hann óskar þess mjög eindregið, að ég riti um bók- ina í Morgunblaðið. Bréfið er skrifað á Staðarfelli í Dölum, þar sem er framhalds þjálfunarstöð handa drykkjusjúklingum. Bókin heitir og Eg er alkóhólisti, og kápu- myndin er fjögur staup, samstillt þannig, að þau mynda kross! Bókin er einungis 48 blaðsíður og aðeins eitt erindi á hverri síðu. Hún er fljótlesin, en hver skyn- samur lesandi hygg ég að lesi hana oftar en einu sinni. Skáld- skapur? Hvort er ekki sá maður gæddur skáldgáfu, sem lýsir jafn- átakanlega og þarna er gert þeirri lítt túlkanlegu kvöl, sem örvona, en þó leitandi áfengissjúklingur verður að þola, þar sem hin ofsa- lega hvöt til víndrykkjunnar tekst á við samvizku, ást og guðstrú Ragnar Ingi Aðalsteinsson manns, sem með þrátt fyrir allt óspilltu eðli þráir að losna úr viðj- unum og hlýða röddum þessara mannlífsverðmæta?. Mörg íslenzk skáld hafa sungið áfenginu lof, en samt eru þau fleiri en eitt og fleiri en tvö og ekki þau sízt listfengu, sem vín hefur leitt á banabeð fyrir aldur fram. En vissulega þarf þrek og manndóm tii að segja frá sam- skiptum sínum við Bakkus eins bert og af jafndjúptækri einlægni og höfundur þessa ljóðaflokks ger- ir. Og sov er það þá von mín, ég vildi helzt segja vissa, að þessi djarfa hreinskilni láti það á höf- undinum sannast, sem segir í ein- asta erindi þessa átakanlega játn- ingarrits: Ég er alkóhólisti, — nú er brautin bein. Nú birtist mér hin undurfagra sjón, er Ijómar dagsins dýrð á hverri brún. Dásamlegt að vinna verk og þiggja líf í laun. Þú sem handan broksins bíður mín, með bros í augum kem ég heim til þín. Mýrum, 23. marz.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.