Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1982
23
Brjóstvasi borg-
arfulltrúans
rúmar skurðgröfu
ÉG GÆTI verið með öll mælitæki,
sem menn nota við sprungumæl-
ingar hérna í brjóstvasanum, sagði
Sigurður Tómasson, borgarfulltfui
Alþýðubandalagsins, þegar sprungu-
svæðin við Rauðavatn voru fyrst til
umræðu í borgarstjórn 30. apríl
1981. Lét Sigurður drjúgt yfír því að
hann, sem væri hálfgildings jarð-
fræðingur, og félagar hans hlægju
nú að svona.
Þessi ummæli Sigurðar voru
rifjuð upp í ummælum á síðasta
borgarstjórnarfundi, þegar
jarðfræðingur borgarinnar hafði
unnið þarna að rannsóknum að
beiðni borgarverkfræðings og
gert sprungukort af svæðinu, þar
sem reyndust allt niður í 50 m
milli sprungna.
Þegar þetta var upplýst, kom í
ræðustól Davíð Oddsson, borgar-
fulltrúi sem er orðheppinn maður
sem kunnugt er, og las upp úr
greinargerð jarðfræðingsins:
Grafnar voru sex prufuholur eða
skurðir með Atlas-gröfu á mis-
munandi stöðum á svæðinu, þar
sem talið var að finna mætti
sprungur. Og hann bætti við:
— Jarðfræðingurinn virðist
skv. þessu hafa þurft 20 tonna
gröfu til að geta leitað að sprung-
unum. Það er nú meiri brjóstvas-
inn, sem borgarfulltrúi Sigurður
Tómasson hefur, ef Atlas-skurð-
grafa rúmast þar með meiru.
Nýja ferjan jafnvel tek-
in 1 notkun um rniðjan júní
„ÞAÐ ER ekki enn búið að ganga
alveg frá peningamálunum, en ég á
von á að lokaákvörðun um kaup á
nýju ferjunni verði tekin á aðalfundi
Skallagríms hf., sem haldinn verður
bér á Akranesi í dag,“ sagði Helgi
Ibsen framkvæmdastjóri þegar
Morgunblaðið innti hann eftir kaup-
um á nýrri ferju í stað Akraborgar.
Helgi sagði að með bjartsýni
mætti reikna með að nýja ferjan
kæmi til landsins uppúr miðjum
júní og yrði hún þá strax tekin í
notkun. „Það er ákaflega mikið að
gera hjá okkur, nema hvað fólk
hefur ekki áttað sig almennilega á
kvöldferðunum, sem eru á föstu-
dags- og sunnudagskvöldum,
klukkan 20.30 frá Akranesi og
klukkan 22.00 frá Reykjavík."
Frá sýningu á munum eftir eldri borgara I Reykjavik sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Sýningunni lýkur á
sunnudagskvöld. Moreuiibladr«(.uíljón.
„Ævintýri líkast“
— segir ellimálafulltrúi borgarinnar um sýningu á munum eldri borgara
„ÞAÐ ER ævintýri líkast að sjá hvað
komið hefur út úr starfi þessa fólks í
vetur,“ sagði Geirþrúður Hildur
Bernhöft ellimálafulltrúi Reykjavík-
urborgar í samtali við Morgunblaðið
en nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum
sýning á ýmsum munum, sem unnir
hafa verið í vetur af öldruðu fólki,
sem tekið hefur þátt í félagsstarfi
eldri borgara í Reykjavik.
Þar hefur verið boðið upp á fé-
lagsstarf ýmiss konar, námskeið,
handavinnu og margvíslega þjón-
ustu. Hafa þessi félagsstörf verið
fjölsótt. Sem dæmi má nefna að
um 40 þúsund manns tóku þátt í
félagsstarfinu veturinn 1980. Er
nú afraksturinn af starfi eldri
borgara til sýnis á Kjarvalsstöð-
um.
„Sjón er sögu ríkari,“ sagði
Geirþrúður Hildur. „Þessi sýn-
ing,“ sagði Geirþrúður ennfremur,
„sýnir það betur en annað að hjá
þessu fólki, sem komið er á eftir-
launaaldurinn, koma fram hæfi-
leikar, sem viðkomandi hefur ekki
haft hugmynd um sjálfur að hann
hefði.“
Það er fólk frá sjötugsaldrinum
upp í nírætt sem á muni á sýning-
unni en hún var opnuð sl. föstudag
með því að Lúðrasveit Laugar-
nesskóla lék fyrir utan sýninguna.
Sýningin verður opin frá kl. 14.00
til 22.00 laugardaginn 15. og
sunnudaginn 16. maí. Sala á mun-
um unnum í félagsstarfinu verður
að Norðurbrún 1, laugardaginn 15.
maí og sunnudaginn 16. maí, frá
kl. 13.00 til 18.00 báða dagana.
tíslandsmótið 1. deild
Laugardalsvöllur
í dag kl. 2
Leikur
Valur
sinn fyrsta heimaleik í sumar við
K.A.
REYKMVÍK SÍMI 85333
VARPSBÚDIN
NEC
FINLUX
FISHERI Ö5 SAMSUNG
ASKUR