Morgunblaðið - 27.08.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.08.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1982 31 Sigurmarkið skorað með síðustu snertingunni „ÞAÐ ER varla hægt að segja annað en það hafi verið huggulegt að sjá á eftir boltanum í netið. Ég ætlaði að fara að hvetja mina menn til að berj- ast áfram er ég gerði mér grein fyrir því að leikurinn var búinn,“ sagði Halldór Arason, eftir að hann hafði skorað sigurmark Fram gegn ís- landsmeistunim Víkings í 1. deild- inni á Laugardalsvellinum i gær- kvöldi. Halldór skoraði gott skalla- mark aðeins einni sekúndu fyrir leikslok eftir sendingu frá Valdimar Stefánssyni. „Næsti leikur okkar, við ÍBÍ hér í Reykjavík verður algjör úrslitaleikur fyrir okkur og það þýðir ekkert að halda að við séum örugg- ir“ sagði Halldór. Það voru Víkingar sem voru miklu meira með boltann í leikn- um en þeir náðu ekki að skapa sér nein afgerandi færi. Sverrir Her- bertsson fékk gott færi strax á fyrstu mínútunni en hann skaut framhjá af markteig. Meira var ekki um afgerandi færi í hálf- leiknum nema er Heimir Karlsson átti þrumuskot naumlega yfir af 25 m. færi. Sverrir Herbertsson var aftur á ferðinni á fyrstu mín. síðari hálf- leiksins er hann skallaði rétt framhjá eftir fyrirgjöf. Heimir átti síðan gott skot rétt yfir en • Guðmundur Torfaaon fagnar hér hinu stórglæsilega marki sinu af mikilli innlifun. Með honum á myndinni er Trausti Haraldsson. Ljósm. Emilía. ekki vildi boltinn inn. Stuttu síðar þurfti Ögmundur að taka á honum stóra sínum í Víkingsmarkinu er hann sveif eins og köttur og bjargði skalla frá Viðari Þorkels- syni framhjá stönginni. Víkingar náðu forystunni á 62. mín. er Gunnar Gunnarsson skall- aði mjög fallega í markið. Ómar Torfason óð upp hægri kantinn og sendi háan bolta inn á teig. Gunn- ar var staddur utarlega í teignum og skallaði rakleiðis í markið án þess að Guðumundur næði að verja. En aðeins fimm mín. síðar höfðu Frammarar jafnað. Og hví- líkt mark. Þeir fengu aukaspyrnu rétt utan vítateigs fyrir miðju marki. Guðmundur Torfason tók spyrnuna og skoraði með stór- glæsilegu þrumuskoti framhjá veggnum. Frammarar hresstust mikið við markið og lifnaði mjög yfir leiknum. Nokkru síðar kom fyrir mjög umdeilt atvik. Ómar Torfason náði þá að skora eftir hornspyrnu af miklu harðfylgi en Eysteinn dómari dæmdi markið af. „Það var greinilega hendi á hann. Hann vippaði boltanum með sér eftir að hann kom út ur þvögunni," sagði Eysteinn eftir leikinn. En Ómar var ekki á sama máli. „Þetta var sko ekki hendi. Þetta var fáránlegur dómur. Svo vildum við fá vítaspyrnu er Marteinn hrinti Heimi inni í teignum í lok- in. Við erum mjög óhressir með úrslitin, en það þýðir ekkert að gefast upp. Ég tel okkur með jafn- asta og besta liðið í dag og við stefnum markvisst að því að vinna deildina," sagði Ómar. U.þ.b. tíu mín. fyrir leikslok fór Halldór Arason mjög illa með gott færi fyrir Frömmurum er hann skaut lélegu skoti frá teig í stað þess að gefa á Einar Björnsson, sem nýkominn var inn á fyrir Árna Arnþórsson, en Einar var í mjög góðu færi inni í teig. En á lokasekúndunni bætti Halldór það svo sannarlega upp er hann skor- aði sigurmarkið eins og kom fram í byrjun. Landsliðshóparnir kynntir: Tveir leikir við Hollendinga Á blaðamannafundi hjá KSÍ í gær voru íslensku landsliðin í knatt- spyrnu fyrir leikina gegn Hollend- ingum í Evrópukeppninni í næstu viku tilkynnt. Þá var einnig birtur hollcnski hópurinn, en þeir koma ekki til með að velja lið sín fyrr en þeir koma til landsins á mánudag- inn. Landslið þjóðanna undir 21 árs leika í Keflavík kl. 18.30 á þriðju- dag, og A-landsliðin leika síðan á Laugardalsvellinum á miðvikudag kl. 18.30. Hollendingar eru nú að byggja upp nýtt lið fyrir heimsmeistara- keppnina 1986, en þeir léku til úr- slita í HM 1974 og 1978 eins og kunnugt er. Síðan komust þeir ekki í úrslitakeppnina á Spáni í ár, og vildu margir kenna því um að leikmenn væru orðnir of gamlir. Þekktustu leikmennirnir sem koma með liðinu hingað til lands eru tvímælalaust Simon Taham- ata og Willy Van der Kerkhof. Islenski A-landsliðshópurinn lítur þannig út, landsleikjafjöldi í svigum fyrir aftan. Markverðir: Guðmundur Baldursson, Fram( 8) Þorsteinn Bjarnason, ÍBK (14) Aðrir leikmenn: Arnór Guðjohnsen, Lokeren ( 9) Atli Eðvalds., F. Dússeldorf (27) Janus Guðlaugs., F. Köln (24) Karl Þórðarson, Laval (14) Pétur Ormslev, F. Dusseldorf (13) Marteinn Geirsson, Fram (63) Sævar Jónsson, C.S. Brúgge ( 9) Trausti Haraldsson, Fram (17) Viðar Halldórsson, FH (17) Sigurður Lárusson, ÍA ( 7) Lárus Guðm., Waterschei ( 7) Ómar Torfason, Víkingi ( 7) Gunnar Gíslason, KA ( 3) Örn Óskarsson, ÍBV (21) Landsliðið undir 21 árs er skip- að eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: Ögmundur Kristinsson, Víkingi Friðrik Friðriksson, Fram Aðrir leikmenn: Hafþór Sveinjónsson, Fram Ómar Rafnsson, UBK Þorsteinn Þorsteinsson, Fram Ólafur Björnsson, UBK Erlingur Kristjánsson, KA Jón Gunnar Bergs, Val Sigurjón Kristjánsson, UBK Ragnar Margeirsson, IBK Aðalsteinn Aðalsteinsson, Víkingi Trausti Ómarsson, UBK Sigurður Grétarsson, UBK Óli Þór Magnússon, IBK Helgi Bentsson, UBK Valur Valsson, Val Forsala aðgöngumiða verður við Útvegsbankann á þriðjudag, frá kl. 12.00—18.00 og síðan á mið- vikudag á sama stað og á Laug- ardalsvelli frá kl. 12.00. Víkingar voru mun meira með boltann í leiknum en þrátt fyrir það náðu þeir ekki að skapa sér nógu góð færi. Þeirra bestu menn voru Heimir Karlsson, Ómar Torfason og Stefán Halldórsson. Frammarar léku upp á það að halda boltanum og byggja síðan á skyndisóknum og heppnaðist sú leikaðferð bærilega í gærkvöldi. Ekki mátti þó tæpara standa. Við sigurinn skutust þeir í 6. sætið eft- ir að hafa verið neðstir fyrir leik- inn. Ekki munar þó nema einu stigi á þeim UBK og Val annars vegar og neðstu liðunum þremur hins vegar. Sverrir og Marteinn ásamt Guðmundi Torfasyni voru bestu menn liðsins í leiknum. Ekki hefði verið ósanngjarnt þó Víkingar hefðu sigrað en þeir geta sjálfum sér um kennt. Þeir eiga nú eftir að leika við KA á Akureyri og síðan lokaleik mótsins gegn Skagamönnum í Reykjavik, þann- ig að allt getur gerst ennþá þó Víkingarnir standi best að vígi í deildinni. —SH. • Hér er greinilega ekkert gefið eftir frekar en fyrri daginn. Heimir Karlsson og Ómar Torfason Víkingar eiga hér í höggi við Þorstein Þorsteinsson, hinn unga bakvörð Fram, í leiknum í gær. Ljósm. Emilía. Lási tryggði ÍBV sigur Sigurlás Þorleifsson tryggði Eyja- mönnum sigur á Keflvíkingum í Keflavík i gærkvöldi í 1. deildinni. Hann skoraði eina mark leiksins á 8. mín. er hann komst inn i sendingu til Þorsteins markvarðar og skoraði örugglega. Stuttu síðar munaði minnstu að Eyjamenn endurtækju Leikirnir sem eftir eru Leikirnir sem eftir eru í 1. deild- inni eru þessir: 4. september: ÍBK—KR Fram—ÍBÍ ÍA—ÍBV KA—Víkingur 6. september: Valur—UBK 11. september: KR-Valur ÍBÍ-ÍBK ÍBV-Fram UBK-KA 12. september: Vikingur—ÍA þetta er einn þeirra komst aftur inn i sendingu til markvarðarins en þá var skallað yfir. Eftir sigurinn eru Eyjamenn komnir aftur í 2. sætið. Annars rná telja þá heppna að fara með sigur af hólmi því heimamenn sóttu nær látlaust allan seinni hálfleikinn. Sá fyrri var ekki sér- staklega vel leikinn og var þá mik- ið um langspyrnur sem ekki röt- uðu rétta leið. Leikurinn fór fram við erfiðar aðstæður, mikill vindur var og léku Vestmanneyingar und- an vindinum í fyrri hálfleik. Eins og áður sagði var um nær algera einstefnu að ræða að marki Vestmanneyinga í síðari hálfleik, en Páll Pálmason varði allt sem á markið kom og var hann besti maður vallarins að þessu sinni. Fyrir utan tvö mjög góð skot Einars Ásbjarnar Ólafssonar voru öll skot ÍBK máttlaus eða þá að leikmenn liðsins þvældust hver fyrir öðrum inni í teig. Vestmanneyingar lágu í vörn mestallan hálfleikinn og voru ánægðir með sitt. Þeirra bestur var Páll eins og áður sagði og einnig áttu Sigurlás og Örn Óskarsson góöan leik. Einar Ás- björn var bestur af útileik- mönnum ÍBK og þá var Þorsteinn góður í markinu. I stuttu máli: Keflavíkurvöllur 1. deild: ÍBK-ÍBV 0-1 (0-1) Mark ÍBV: Sigurlás Þorleifsson á 8. mín. Dómari: Þorvarður Biörnsson _______________— OT/—SH Staðan EFTIR leikina í gærkvöldi er staðan i 1. deild þannig: Víkingur 16 6 9 1 23—17 20 ÍBV 16 7 4 5 19—15 18 KR 16 4 10 2 13—12 18 ÍA 16 6 5 5 21—18 17 Valur 16 5 5 6 16—14 15 Fram 16 4 7 5 17—17 15 UBK 16 5 5 6 16—19 15 KA 16 4 6 6 16—18 14 ÍBK 16 5 4 7 14—19 14 ÍBÍ 16 5 4 7 23—29 14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.