Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 1
96 SIÐUR
273. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Pólland:
Hafna hafrétt-
arsáttmála SÞ
London, 4. desember. Al*.
MALCOLM Kifkind. aðstoöarutanrík-
isráðherra Bretlands, hefur skýrt svo
frá, að brezka stjórnin muni ekki und-
irrita hafréttarsáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Aður hafa Bandaríkjamenn
hafnað sáttmálanum, sem lokið var við
hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir 8 mán-
uðum.
Rifkind skýrði frá ákvörðun
brezku stjórnarinnar í umræðum í
neðri deild brezka þingsins fyrir fá-
einum dögum. Sagði hann þar m.a.,
að Bretar gætu ekki samþykkt haf-
réttarsáttmálann í núverandi mynd,
því að skilmálar hans væru byggðir
á óæskilegum reglum og gætu skap-
að óheppileg fordæmi. Mörg vina- og
bandalagsríki Breta væru einnig
sama sinnis.
Hafréttarsáttmálann á að stað-
festa í Kingstown á Jamaica 10. des-
ember nk.
Líðan gervi-
hjartaþeg-
ans fram-
ar vonum
Jaruzelski bodar að
slakað verði á klónni
Varsjá, 4. desember. Al\
JARUZELSKI hershöfðingi og leið-
togi hcrstjórnarinnar í Póllandi
sagði í ræðu í gær, að hann hefði
Líbanon:
Enn barist í
miðhálendinu
Beirút, 4. desember. Al\
KKISTNIR hægrimenn og vinstrisinn-
aðir Drúsar börðust áfram í fjalllend-
inu sem Israelar hafa á valdi sínu suð-
austur af Beirút i dag, samkvæmt upp-
lýsingum ríkis- og einkarekinna út-
varpsstöðva.
hvatt þingið til að leggja drög að því
að aflétta herlögum. Hann réðst
jafnframt mjög harkalega á Banda-
ríkjastjórn og hótaði því að tak-
marka verulega öll samskipti milli
þjóðanna.
Jaruzelski lét þessi orð falla í
ræðu, sem hann flutti á hátíðis-
degi námaverkamanna í Suður-
Póllandi, en hann hefur ekki setið
fundi pólska þingsins, sem kom
saman sl. föstudag. A því er verið
að ræða efnahag landsins, sem er í
rúst, og annan samkomudag
þingsins, 13. desember nk., en
embættismenn hafa margir gefið í
skyn, að þá verði nokkuð slakað á
herlögunum.
Þessi mynd var tekin við messu í Gdansk sl. sunnudag og er Lech Walesa,
leiðtogi Samstöðu, fyrir miðri myndinni. Kirkjan er sameiningartákn þjóðarinn-
ar og á meiri itök í hjörtum Pólverja en aðrar þjóðfélagsstofnanir.
Banatilræðið við páfa:
Salt Lake City, l'tah, 4. desember. Al\
HEILSA gervihjartaþegans er nú betri
en nokkur þorði að vona, hann er far-
inn að sitja uppi og spjalla við eigin-
konu sína og svo virðist sem honum
fari stöðugt fram, að því er haft er eftir
læknum hans í dag.
Sjúklingurinn, Barney Clark, sem
er 61 árs að aldri, er fyrstur manna
til að þiggja gervihjarta úr áli, en
læknar sáu ekki aðra lausn á kvilla
hans. Líðan hans mun vera eftir at-
vikum góð og læknir hans sagði í
dag: „bað eru engin ákveðin einkenni
sem við erum að bíða eftir núna, við
óskum honum einungis vaxandi
styrkleika."
Igræðsla gervihjartans fór fram
aðfaranótt fimmtudags og tók hún
sjö klukkustundir. Hann er fyrstur
manna til að þiggja gervihjarta til
frambúðar, en áður hafa gervihjörtu
af svipaðri gerð og þetta verið grædd
í menn meðan þeir hafa beðið eftir
hjartaflutningi.
Læknir hans sagði í dag, að hjart-
að gengi „sérlega vel“ og var hjart-
sláttur Clarks um 85 slög á mínútu.
ísraelar munu hafa stöðvað alla
umferð til héraðanna, en ekki var
ljóst hvort um manntjón var að
ræða. Sex manns létu lífið í bardög-
um á sömu slóðum á föstudag.
Meira en 90 manns hafa nú látið
lífið í bardögum Drúsa og kristinna
hægrimanna á síðastliðftum fimm
vikum.
Þessir síðustu bardagar brutust út
í kjölfar beiðni líbanskra stjórn-
valda um aukinn erlendan liðsstyrk í
friðargæslusveitirnar til að bardag-
ar á miðhálendinu verði stöðvaðir og
til að aðstoða stjórnvöld við brott-
flutning ísraelskra, sýrlenskra og
palestínskra hermanna úr landinu.
Eiie Salem utanríkisráðherra Líb-
anon bað í gær sendiherra Brasilíu,
Portúgal og Columbíu að senda tvö
þúsund manna liðsauka í friðar-
gæslusveitirnar, en stjórnvöld höfðu
þegar farið fram á það við stjórnir
Frakklands, Bandaríkjanna og Ítalíu
að þær sendu aukinn liðsstyrk.
„Fyrirhugað er stórt en um leið
varkárt skref í átt til eðlilegs
ástands," sagði Jaruzelski og eru
þau orð hans túlkuð þannig, að
herlögum verði aflétt „til bráða-
birgða" á pólskum vinnustöðum en
verkamenn hafa verið undir her-
aga í heilt ár til að koma í veg
fyrir verkföll. Haft er eftir heim-
ildum í pólska þinginu, að 13. des-
ember verði tilkynnt, að herlögin
gangi úr gildi um áramót. Mál-
gögn kommúnistaflokksins hafa
hins vegar varað við því, að slakað
verði á klónni og segja, að eins víst
sé þá, að herlögum verði að koma
á aftur.
í ræðu sinni hellti Jaruzelski sér
yfir Bandaríkjastjórn vegna af-
stöðu hennar til herstjórnarinnar,
sakaði hana um „ofbeldisfullar
ofsóknir" og efnahagslegar refsi-
aðgerðir, sem gerðu pólskum ráða-
mönnum lífið leitt.
Italskir lögreglumenn
leita annars Búlgara
Kóm, 4. desrmber. AP.
ÍTALSKA lögreglan hefur gefið út handtökutilskipun á fyrrverandi
starfsmann búlgarska sendiráðsins í Róm vegna banatilræðisins við Pál
páfa í maí í fyrra. Það var ítalska fréttastofan Ansa, sem greindi frá
þessu, og í gær, föstudag, staðfesti talsmaður lögreglunnar fréttina.
Hér er um að ræða annan
Búlgarann, sem ítalska lögregl-
an grunar um þátttöku í morð-
tilræðinu við páfa, en í fyrri viku
handtók hún stöðvarstjóra búlg-
arska ríkisflugfélagsins á flug-
vellinum í Róm, Sergei Ivanov
Antonov að nafni. Að sögn lög-
reglunnar átti hann mikinn þátt
í skipulagningu árásarinnar á
páfa.
Ansa-fréttastofan hefur það
eftir ónafngreindum embættis-
mönnum, að Búlgarinn, sem nú
er sóst eftir, heiti Vassiliev Juel-
io Kolev og hafi hann starfað í
búlgarska sendiráðinu fyrir
misseri. Ekki var þess getið
hvaða stöðu hann gegndi. Fréttir
eru um, að hann sé nú kominn til
Búlgaríu.
Italska lögreglan hefur nú
sakað sjö menn um að hafa verið
í vitorði með Ali Agca, Tyrkjan-
um, sem skaut á páfa, en hann
heldur því fram, að hann hafi
verið einn að verki. Fimm þess-
ara manna eru Tyrkir.
Búlgarska sendiráðið í Róm
mótmælti í fyrri viku handtöku
Antonovs en hefur ekkert látið
frá sér fara að þessu sinni.