Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 293. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983 Prentsmiöja Morgunblaðsins Kinn stríðsmanna Arafats kveður dóttur sína áður en hann heldur til skips, sem flutti hann frá Trípólí. Fimm grfsk skip fluttu Arafat og 4000 stuðnings- menn hans frá borginni og nutu þau verndar franskra herskipa. Liðsmenn Arafats á burtu frá Trípólí Trípólí, 20. desember. AP. JjL YASSER Arafat, leiðtogi PLO, og 4.000 stuðningsmenn hans voru fluttir í dag frá líbönsku borginni Tripoli á fimm grískum skipum. Frönsk herskip voru skipalestinni til verndar. Að sögn mun Arafat halda til Túnis þar sem hann setti upp höfuðstöðvar eftir að hafa hrakist burt frá Beirut. ítalir hafa ákveðið að fækka í gæsluliði sínu í Líbanon. Tæplega sex stundum eftir að fyrstu skæruliðarnir stigu um borð létti síðasta skipið akkerum og hélt út úr höfninni í Tripoli undir vernd franskra herskipa. Arafat sagði við fréttamenn áður en hann fór til skips, að barátt- unni væri ekki lokið. „Við munum ekki unna okkur hvíldar fyrr en í Jerúsalem, höfuðborg okkar pal- estínska ríkis," sgði hann. Menn hans báru myndir af leiðtoga sín- um og gerðu sigurmerki með fingrunum þótt verið væri að flytja þá eins konar hreppaflutn- ingi öðru sinni á rúmu ári. í fyrra hrökkluðust þeir frá Beirút undan fsraelum en að þessu sinni frá Trípólí undan sínum eigin bræðr- um og fyrrum bandamönnum, uppreisnarmönnum innan PLO og Sýrlendingum. Mörg hundruð líbanskra lög- reglumanna höfðu eftirlit með brottflutningnum og tóku í sína vörslu mikið af hergögnum, sem skæruliðarnir urðu að skilja eftir. Líbönsku lögreglumennirnir tóku einnig stjórn borgarinnar i sínar hendur en liðsmenn stærsta einkahersins í borginni, „Islömsku einingarinnar", þustu um stræti borgarinnar á bílum og létu ófrið- lega. Borgarbúar óttast nú að þessi samtök og önnur, sem Sýr- lendingar styðja, taki nú til við manndrápin að Palestínumönnum frágengnum. Giovanni Spadolini, varnar- málaráðherra Italíu, tilkynnti í dag, að fækkað yrði í italska Pólland: Vilja ekki sýna „Dag- inn eftir“ New York, 20. desember. AP. FKÉTTIR bárust um það í dag, að pólska sjónvarpið hefði keypt til sýn- ingar kvikmyndina „Daginn eftir“, sem fjallar um afleiðingar kjarnorku- styrjaldar, og hefðu Pólverjar þá orðið fyrsta austantjaldsþjóðin til að sjá myndina. Þessi frétt hefur nú verið borin til baka. Talsmenn ABC-sjónvarpsstöðvar- innar bandarísku, sem gerði mynd- ina, sögðu, að vegna einhvers mis- skilnings hefði verið talið, að pólska sjónvarpið hefði fallist á að kaupa sýningarréttinn. Svo væri þó ekki og engar horfur á að hún yrði sýnd þar i náinni framtíð. Á Vesturlöndum hafa margir, ekki síst friðarhreyfingafólk, áhuga á að fólki f kommúnistaríkjunum verði einnig gefinn kostur á að sjá „Dag- inn eftir" en flestum finnst þó ólík- legt, að stjórnvöld þar kæri sig um það. Fulltrúar sovéska sjónvarpsins hafa að vísu fengið nokkur eintök til athugunar en engin svör hafa borist þaðan. gæsluliðinu í Líbanon en hann lagði jafnframt áherslu á, að ítalir myndu áfram taka þátt i gæslunni þar til horfur væru á fríði i land- inu. Sagði hann að engar ákvarð- anir hefðu verið teknar um hve mikil fækkunin yrði en í italska gæsluliðinu eru 2.100 menn þótt samkomulagið við Líbanonsstjórn kveði aðeins á um 1.100. AP Díana hjá slösuðum dreng Díana, prinsessa af Wales, og Karl prins vitjuðu í gær þeirra, sem slösuðust í sprengingunni fyrir framan stórverslunina Harrods sl. laugardag. Það voru IRA-menn, sem stóðu að baki hryðjuverkinu en í því biðu fimm manns bana. Litli drengurinn, sem brosir svo fallega til Díönu, heitir Rajan Parmar en hann slasaðist á fæti, sem betur fer þó ekki alvarlega. Afganistan: * Arásir á sovéskar herbúðir Nýju Delhi, 20. desember. AP. AFGANSKIR skæruliðar réðust fyrr í mánuðinum á stöðvar afganska stjórnarhersins og Sovétmanna í Kabúl. Talið er, að með árásunum hafi Afganarnir ekki sist verið að minna á, aö nú eru fjögur ár liðin síðan Sovétmenn lögðu Afganistan undir sig með hervaldi. Eftir heimildum er haft, að 10. desember sl. hafi skæruliðar gert eldflaugaárás á Bala Hissar-virkið í Kabúl, eina helstu bækistöð afganska stjórnarhersins, og um svipað leyti ráðist á sovéskar herbúðir i útjaðri borgarinnar og þá beitt léttum stórskotaliðsvopn- um. Talið er, að árásirnar á þessar stöðvar séu undanfari aukinna að- gerða skæruliða í landinu. Fréttir eru um harða bardaga við borgina Jalalabad, suðaustur af Kabúl, og segja sjónarvottar frá miklum liðs- og hergagna- flutningum Sovétmanna til stuð- nings stjórnarhermönnum í borg- inni. Sovétmenn réðust inn í Afganistan 27. desember 1979 og hafa þar nú rúmlega 100.000 manna herlið. Kafbátar sjást enn Stokkhólmi, 20. desember. AP. ÓKUNNIR kafbátar hafa gert sig heimakomna í sænskri lögsögu á síð- ustu mánuðum. I skýrslu, sem yfirmaður sænska heraflans hefur skrifað, segir, að smákafbátar hafi 16 sinnum verið á ferð í skerjagarðinum skammt frá Stokkhólmi frá því í september sl. Sænsk stjórnvöld hafa ákveðið af verja 150 milljónum dollara auka- lega á næstu tíu árum til kafbáta- varna. Enginn vinsælli í Danmörku en Schluter forsætisráðherra Kaupmannahófn, 20. deuember. Frá fréttaritara Mbl., Ib Björnbak. POUL Schliiter, forsætisráðherra Dana, nýtur nú meiri vinsælda en gerst hefur með forsætisráðherra eða aðra danska stjórnmálamenn í langan tíma. í skoðanakönnunum kcmur fram, að rúmur helmingur þjóðarinnar vill að hann verði áfram forsætisráðherra að loknum kosningunum 10. janúar nk. Skoðanakannanir, sem gerðar hafa verið fyrir dagblaðið Börsen, sýna, að 50,4% Dana vilja að Schluter myndi stjórn að nýju eftir kosningarnar en 30,8% taka Anker Jörgensen fram yfir hann. Ef aðeins er tekið tillit til kjós- enda borgaraflokkanna sex kem- ur í ljós, að nærri 90% þeirra vilja engan annan en Schlúter. Vinsældir forsætisráðherrans eru raunar svo miklar, að hann óttast, að likleg fylgisaukning Hægriflokksins muni bitna ekki síst á samstarfsflokkunum í rík- isstjórn, Vinstriflokknum, mið- demókrötum og Kristilega þjóð- arflokknum. Þess vegna hefur Schlúter einnig skorað á kjósend- ur að styðja þessa þrjá flokka og þykir sú áskorun nokkrum tíðind- um sæta. Schlúter er ekki aðeins vinsæll meðal landa sinna því að þegar erlendir fréttamenn í Danmörku komu saman til að kjósa „Dana ársins" eins og þeir eru vanir þá voru þeir ekki í neihum vafa um hverjum bæri titillinn, Schlúter náttúrulega. Sjálfur kvaðst for- Paul Schliiter sætisráðherrann hafa verið viss um, að fyrirliði danska landsliðs- ins í knattspyrnu yrði útnefndur, en hitt væri svo aftur rétt, að hann væri líka fyrirliði fyrir harðsnúnum hóp, sjálfri ríkis- stjórninni. í Danmörku hefur verið mikið rætt um líklegan eftirmann Ank- ers Jörgensens sem leiðtoga jafn- aðarmanna enda er mikil óánægja með hann innan flokks- ins. Poul Schlúter segist hins veg- ar ekki vera í neinum vafa um að Jörgensen muni verða í forsvari fyrir jafnaðarmönnum í mörg ár enn og segist telja víst, að hann muni taka við embættinu úr hendi sér hvort sem það verði eft- ir eitt, tvö, þrjú eða fjögur ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.