Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 13 Ameríkuhótelið Ameríkuhótelið Nafn i frummáli: Hótel des Amériques. Stjórn: André Téchiné. Handrit: André Téchine og Gilles Taurand. Kvikmyndataka: Bruno Nuytten. Hljóó: l'aul Lainé. Leikmynd: Jean-Pierre Kohut-Svclko. Tónlist: Philippe Sarde. Listahátíð/ 84/ Regnboginn Patrick Dewaere er einn þessara undramanna sem ætíð stela senunni jafnvel þegar stórstirni á borð við Catherine Deneuve standa þar eigi allfjarri. Kannski eru það augun sem dáleiða áhorfandann, en De- waere hefur þetta sérkennilega blik í auga sem prýddi James Dean. En þeir sem guðirnir elska deyja ungir, Dean ekki nema hálffimmtugur þegar hann ók sportbíl á tré af slíku afli að ekki þarf að spyrja að leiks- lokum og Dewaere lítið eldri þegar hann féll fyrir eigin hendi. Fróðir menn hafa tjáð mér að slíkum hörmungaratburðum fari ætíð fjölgandi í kreppu. Ekki var að sjá að kreppti að í lífi Patrick Dewaere þá hann kastaði sér fram af hengi- fluginu því hann hafði aldrei haft meira að gera, önnum kafinn við að greypa ímynd sína í kvikmyndasög- una í myndum á borð við „Plein Sud“ sem Luc Béraud stýrði og „Un Mauvais fils“ sem Claud Sautet gerði á því herrans ári ’82. En kannski var Dewaere ekkert að látast í þessum myndum, þar sem hin draumlyndu augu lýsa á víxl ör- vinglun og ljúfsárum trega, fremur en í „Hótel des Amériques" þar sem hann er í hlutverki ungs manns er hefir þann starfa í sumarleyfisborg- inni í Biarritz syðst á Atlantshafs- strönd Frakklands að vísa túristum um nálæga merkisstaði. Líf þessa unga manns er svo sem slétt og fellt á yfirborðinu, en við kynnumst brátt því helvíti sem hann í raun gistir. Það er einsog hann nái hvergi fótfestu og virðist alfarið á valdi hins ópersónulega túrhests, sem er aðeins bundinn stutta stund við hestasteininn. Kannski er þessi rót- lausi ungi maður afsprengi túr- hestasamfélagsins, þar sem menn mála himnaríki á veggi danssalar? Þó nær hann um stund sambandi við Héléne (Deneuve) sem starfar um stundarsakir á spítala staðarins. En takið eftir, aðeins um stundar- sakir, því fyrr en varir er Héléne horfinn í átt til Parísar og hinn ungi maður stendur einn eftir fyrir fram- an myndina af himnaríki — túr- hestavertíðinni er lokið það árið. Samt ber ekki að skilja þetta svo að ástarævintýri unga mannsins og hjúkrunarkonunnar hafi verið í ætt við Costa del Sol ævintýri slík sem margir hérlendir kannast við. Hél- éne vildi bindast hinum unga manni, en sorgin kom í veg fyrir að traust tengsl mynduðust milli þess- ara ógæfusömu persóna. Svo er mál með vexti að Héléne hafði nýlega misst ástmann sinn í faðm hafsins og var því ófær um að bindast á ný tilfinningaböndum. Sannarlega dap- urleg mynd: Hótel des Amériques, en ber ekki kvikmyndahátíð að gefa sannferðuga mynd af lífinu eins og því er lifað á filmu? Skeifan 3h - Sími 82670 Eigum ávallt til afgreiðslu af lager öryggisskó og stígvél með stálplötu í sóla og stálhettu * . ' a ta. 4 4 iji*- Kvikmyndahátíö Listahátídar Fliótandi himinn Kvikmyndír Ólafur M. Jóhannesson Nafn á frummáli: Liquid Sky. FramleiðandkSlava Tsukerman 1983. Handrit: Slava Tsukerman, Anne Carlisle, Nina Kerova. Listahátíð / 84 / Regnboginn í kynningu Listahátíðarnefnd- ar á kvikmynd Slava Tsuker- man: Liquid Sky eða Fljótandi himinn stendur meðal annars: Hún er gróflega opinská og á all- an hátt óvenjuleg í stíl, byggingu og efnismeðferð, enda er efnivið- urinn sjálfur ekki það sem mað- ur á almennt að venjast í amer- ískri kvikmynd: kynlífi, eitur- lyfjaneyslu, pönkrokki og vís- indaskáldskap er blandað saman á svo furðulegan hátt að líklega er ekki of sterkt til orða tekið þótt sagt sé að slíkt hafi ekki sést í amerískri kvikmynd fram til þessa. „Lítum nánar á þessa staðhæfingu. Ég er ekki alveg sammála því að myndin sé gróf- lega opinská. Að vísu er þar gengið beint til verks, en frábær myndataka og stórkostleg tón- list hefja mynd þess yfir gróf- leikann, nær væri að kalla hana ljóðræna, þótt munnsöfnuður leikaranna sé ekki ætíð eftir kokkabókum skáldanna. Hvað efnið varðar þá er illgerlegt að skilja kynlífið, eiturlyfjaneysl- una, pönkið og vfsindaskáld- skapinn eins og þessu er súrrað saman í myndinni. Er raunar næsta vonlaust að flokka þann veruleika sem þarna birtist og líma á hann aðskiljanlega merkimiða — veruleika þessarar myndar verður nefnilega aðeins lýst með einu orði — þar ríkir FIRRING. Liquid Sky lýsir þeirri firringu sem virðist að finna í ríkum mæli meðal listmenna stórborga N-Ameríku. Þannig er listmenn- inu, sem í þessu tilviki er pönk- módel, stillt upp fyrir framan myndavélar kaupahéðna eins og hverri annarri söluvöru. Ekki skortir dópid þá listmennið múðrar og krefst stærri skerfs af kökunni. Og hvað kynlífið áhrærir, verður listmennið að leggjast undir hvaða umba sem vera skal — önnur leið er ekki fær á toppinn, sem í þessu tilviki er heróínvíma. Ekki furða að listmennið fagni geimálfunum, sem í myndinni sækja í ópíum eins og býflugur hunang, en slíkt efni ku myndast í heila manns á sælustundum ástalífsins. Þannig losa geimálfarnir listmennið við allar afæturnar — umboðs- mennina, tískuljósmyndarana leiklistarkennarana, leik- stjórana. Þeir njóta sælustunda í faðmi listmennisins sem liggur undir þeim einsog sérhönnuð gína keypt í Kínabúð. Er sérlega áhrifaríkt lokaat- riði myndarinnar þegar list- mennið klæðir sig í brúðarkjól og vafrar uppá þak penthússins þar sem hinar listrænu pönk- myndatökur eiga sér stað. Þar bíða geimálfarnir í fljúgandi diskinum og hið ófullnægða listmenni rekur heróínspraut- una í handlegg — þá fyrst finnur það þá sælu sem umboðsmenn- irnir, tískuljósmyndararnir, 1984 leiklistarkennararnir og leik- stjórarnir hafa lofað og telja sig geta veitt hinu unga listmenni í krafti peninga og aðstöðu — en á samri stundu og heróníð ertir heilastöðvarnar hverfur list- mennið í hóp umbanna inní disk- inn fljúgandi. Listmenninu er sum sé alls ekki ætlaður staður í heimi listarinnar. Ætli sé annars nokkuð farið að fyrnast yfir lýsingu Voltaire á hlutskipti leikkvenna einsog hann lýsir því í Birtíngi: „ ... útá landsbyggðinni er siður að bjóða þeim í veitíngahús; í París er þeim sýnd virðíng ef þær eru laglegar og þeim er kastað í skolpræsin þegar þær eru dauð- ar.“ í Liquid Sky er listmenninu unga að vísu ekki kastað í skolpræsi heldur upp í fljótandi disk, þar nýtur það máski þeirr- ar virðingar sem á skorti í hinu lifanda lífi. STIGIÐ SKREF FRAM TIL MEIRA ÖRYGGIS Opwtil kl.19 mánudaga þriðjudaga miðvikudaga fimmtudaga TT A ri TT ATTD Skeifunni 15 XI ilU 1 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.