Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI _ TIL FOSTUDAGS ir óskaplegt að leiða aðra afvega. Jesús Kristur sagði um þann sem það gerir: „Betra væri hon- um að kvarnarsteinn lægi um háls honum og að honum væri varpað í hafið en að hann hneyksli einn af þessum smæl- ingjum." Gætir þú, Velvakandi góður, fengið upplýst hve margar fóst- ureyðingar voru framkvæmdar hér á liðnu ári og af hvaða ástæðum? Einnig hverjar þær „félagslegu ástæður" eru sem fólk ber fyrir sig? Og samanburð frá árinu áður?“ Velvakandi leitaði svara hjá Sigríði Vilhjálmsdóttur hjá Landlæknaembættinu og sagði hún að tölur fyrir árið 1983 lægju ekki fyrir en bráðabirgða- tölur fyrir framkvæmdar aðgerð- ir á árinu 1982 væru 615. Sigríður sagði að á árinu 1980 hefðu 523 fóstureyðingar verið framkvæmdar. Þar af hefðu 445 aðgerðir verið framkvæmdar af félagslegum ástæðum, 42 af læknisfræðilegum ástæðum og 31 af félagslegum og læknis- fræðilegum ástæðum. Ótil- greindar ástæður voru í fimm tilfellum á árinu 1980. Á árinu 1981 voru alls fram- kvæmdar 597 fóstureyðingar. Þar af voru 525 af félagslegum ástæðum, 45 af læknisfræði- legum ástæðum og alls voru 26 fóstureyðingar framkvæmdar af læknisfræðilegum og félagsleg- um ástæðum. Á sama ári var ein aðgerð framkvæmd án þess að tilgreindar væru ástæður. Hvað spurningu „lesanda" varðar, um hverjar þær félags- legu ástæður væru sem fólk bæri fyrir sig, benti Sigríður á lög um fóstureyðingar frá árinu 1975, en þar segir í 9. grein að fóstureyð- ing sé heimil af eftirfarandi fé- lagslegum ástæðum: a) að konan hafi alið mörg börn með stuttu millibili og skammt sé liðið frá síðasta barnsburði, b) ef konan býr við bágar heimil- isástæður vegna ómegðar eða al- varlegs heilsuleysis annarra á heimilinu, c) geti konan ekki, vegna æsku og þroskaleysis, annast barnið á fullnægjandi hátt, d) öðrum ástæðum, séu þær fyllilega sambærilegar við ofangreindar ástæður. í 11. grein sömu laga segir ennfremur að áður en fóstureyð- ing megi fara fram skuli liggja fyrir skriflega rökstudd greinar- gerð tveggja lækna, eða læknis og félagsráðgjafa, sé eingöngu um félagslegar ástæður að ræða. Annar þessara lækna skuli vera sérfræðingur í kvensjúkdómum eða almennum skurðlækningum við sjúkrahúsið þar sem aðgerð- in fer fram. Grjónavellingur: Ekki mæli- kvarði á fátækt Kona í Kópavogi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég horfði á þáttinn „Skiptar skoðanir" síðastliðið þriðju- dagskvöld og ég varð mjög hneyksluð á orðum sem Ásmund- ur Stefánsson lét frá sér fara. Þegar hann talaði um að fólk væri farið að leggja sér grjóna- velling til munns, eins og hann væri eitthvert óæti, til að spara svo endar næðu saman, varð ég vægast sagt hneyksluð. Á mínu heimili erum við ekki láglaunafólk, samt sem áður borð- um við oft þennan graut og okkur þykir hann góður. Eg tel að það sé ekki mælikvarði á fátækt, að hafa velling og annan góðan íslenskan mat á borðum. Hann virðist þó vera að hverfa af borðum ís- lenskra heimila og víkja fyrir rán- dýrum „pakkamat". Kristilegt efni í sjónvarpið Sverrir Sigurðsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: - Ég er með fyrirspurn til sjónvarpsins. Þannig er að á síðastliðnum vetri voru þættir í sjónvarpinu sem hétu „Lokið upp ritningunum", sem séra Guð- mundur Þorsteinsson sá um. Mig langar til að vita hvort áætlað sé að hafa eitthvert framhald á slík- um þáttum. Lítið hefur heyrst frá kirkju- fólki um þetta og ég hef grun um að forstöðumenn hjá sjónvarpinu telji viðbrögðin það daufleg, að ekki sé ástæða til að hafa fleiri þætti af þessari gerð. Má vænta þess að sjónvarpið verði með til dæmis skýringar- þætti úr Biblíunni? Ég veit að margir sem reyna að lesa Biblíuna eiga mjög erfitt með að skilja það sem í henni stendur. Laun starfsmanna í Straumsvík: Villandi tölur Þorsteinn Magnússon hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég var að lesa í Velvakanda grein frá konu sem er gift starfsmanni hjá ÍSAL. Ég vinn sjálfur í Straums- vík og mér þætti gaman ef Sverrir Hermannsson færði sönnur á þau orð sem hann er að mæla í þinginu um laun starfsmanna í Straums- vík. í álverinu eru ekki eins marg- ir hátekjumenn og af er látið, meðal annars í Morgunblaðinu. Þegar verið er að ræða um laun okkar starfsmanna í Straumsvík, eru gefnar upp tölur sem eru mjög villandi. Það er kannski tekið meðaltal af öllum launagreiðslum og þar með talin laun forstjóra og fleiri hálaunaðra manna. Daginn sem vinna var felld niður í álverinu, þann 27. janúar, kom blaðamaður frá Morgunblað- inu suðureftir og fylgdist með því sem gerðist. Ég vil færa honum bestu þakkir fyrir fréttaflutning- inn. Sverrir Hermannsson leggi fram launaseðla __ • » # «-A Ciioeri H®r- Alda Gialadóttir hringdi og' hafði eftirfarandi að segja: — Þannig vill til að ég er gtft manni sem er flokksstjóri hjá ÍSAL og veit þess vegna að þser tölur, upp á 32.000 króna mánað- arlaun, sem Sverrir Hermanns- aon hefur nefnt, geta ekki stað- isL Það getur verið að þeir sem eru 1 æðri stöðum hjá þessu fyrirtæki hafi þessi laun, en það er óréttlátt að segja að hinn al- menni verkamaður þar fái þessi laun greidd. Nú vil ég skora á Sverri Her- mannsson að leggja fram launa- seðla sina þannig aö almenning- ur geti séð hversu há „sulUr- laun“ hans eru. Þannig vill til að kona sem er ^ Kvennalistanum minntist á 70.000 króna mánaðarlaun hjá þingmönnum og þingmennirnir virðast heidur vilja fitna en hor- ast, 8VO óliklegt er að þeir herði sultarólina mikið hjá sjálfum sér. Ég þakka fyrir birtmguna. Byggingovörur ó gó6u veröi MILLIVEGGJAPLÖTUR Milliveggja-vikurplötur 5 x 50 x 50 cm. fm. kr..............................-. . . 216,- 7 x 50 x 50 cm. fm. kr.................. 228,- 10 x 50 x 50 cm. fm. kr................. 300,- Holsteinn: 9 x 20 x 40 stk. kr..................... 22,- EINANGRUN EINANGRUNARPLAST: Allar mögulegar þykktir fáanlegar t.d.: 1" fm. kr............................ 79.00 2" fm. kr........................... 137.00 3" fm. kr........................... 245.40 10% magnafsláttur SUPERFOSS-GLERULL 2" glerull fm. kr.................... 57.50 3" glerull fm. kr.................... 86.20 4" glerull fm. kr................... 115.00 GÓLF OG VEGGFLÍSAR ÞÝSKU BUCHTAL FLÍSARNAR ÚTI OG INNI: Tobacco-Rustic 15 x 20 cm. á gólf og veggi, fm. kr.................... 1.280,- Patsican-Red, 11.5 x 24 cm. fm. kr. . . 1.280,- Porto-Antik 947 11.5 x 24 cm., fm. kr. . 1.220,- Flísalím-Coipol 10 Itr. vegglím .... 640,- TEPPI WESTON NOVA LANE Dönsk slitsterk nælonteppi: Breidd 400 cm, margir litir fm. kr. 785.00 Stigateppi (nylon) frá fm. kr...... 450.00 Kínversk og indversk handofin ullarteppi í mörgum stærðum. Ódýr Axminster ullarteppi frá Belgíu. MÁLNINGARVÖRUR HVI'T SADOLÍN MÁLNING (SÆNSK) 2.5 Itr........................ 175,- 5.0 Itr........................ 335,- 10.0 Itr....................... 650,- HREINLÆTISTÆKI SÆNSK IFÖ HREINLÆTISTÆKI: Salernisskál: .............. 6.485,- Handlaug í borö 62 x 44 cm.. 3.104,- Baðkar 170 x 70 cm.......... 4.623,- Sturtubotn 80 x 80 cm....... 1.768,- GOSWIN BLÖNDUNARTÆKI: (handlaug .................... 1.416,- I baðkar ................... 1.963,- JL-GREIDSLUKJÖR Stofnaður er viðskiptareikningur, 10. hvers mánaðar er úttekt fyrri mánaðar yfirfarin, 20%greidd í peningum, en afgangurinn 80% settur á sex mánaða skuldabréf. Þannig er þetta framkvæmt koll af koili. JL-byggingarvörur gerir húsbyggjendum kleift að byggja með fyrsta flokks vörum á sérstökum JL-greiðslukjörum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.