Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
4;
Ivar Orgland
Ljóð íslenskra
skáldkvenna
gef in út
á norsku
Ljóð íslenskra skáldkvenna
hafa verið gefin út á norsku í
þýðingu Ivars Orgland. „Dikt av
islandske kvinner" nefnist bókin,
en í henni er kynning á íslenskum
skáldkonum frá 1700 til dagsins
ídag.
Skáldkonumar eru 60 talsins,
meðal þeirra eru Vatnsenda-Rósa,
Theodora Thoroddsen, Gréta Sig-
fúsdóttir, Jakobína Sigurðardóttir,
Nína Björk Ámadóttir, Þómnn
Magnea, Elísabet Þorgeirsdóttir
o.fl.
Ivar Orgland er norskt ljóðskáld,
sem bjó hér á landi í áratug, og
var m.a. kennari í norsku við HI.
Bókin er tileinkuð frú Vigdísi Finn-
bogadóttur forseta Islands, og gefín
út af Fonna Forlag Oslo. Bókin er
347 blaðsíður.
CöRONA
BETRI
OG
ÓDÝRARlí
Corona tölvumar em betur
frágengnar en flestar aðrar
PC samrœmdar tölvur,
skjárinn er staerri og
skirari, lyklaborðið betur
útfœrt, innbyggðir teikni-
möguleikar og nauðsyn-
legir tenglar fylgja.
Þær eru toppurinn þegar þú
berð saman frágang, verð
og gæði. Veldu skynsam-
lega. Veldu Corona.
MlCROTÖL¥Ai
SífiumOla 8 - Símar 8J040 og 83519
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Kínamenn á
Kjarvalsstöðum
IVyndlist
Valtýr Pétursson
Þessa viku gefur að líta sérlega
merkilega sýningu á Kjarvalsstöð-
um. Því miður stendur sýning þessi
aðeins í fáa daga, og er það mjög
miður, þar sem um stórviðburð er
að ræða í menningarlífí okkar hér
í Reykjavík. Það er sýning á kín-
verskri myndlist, sem ég á hér við,
og er hún á vegum menntamála-
ráðuneytisins og sendiráðs Kína hér
á landi, og vil ég byija þessar línur
á að þakka þessum aðilum fyrir
þessa merku sýningu.
Það væri hlægilegt að fara að
benda á einstök verk á þessari sýn-
ingu, þar sem allt er í þeim gæða-
flokki, að ekki verður deilt um list-
rænt gildi þess. Kínamenn eiga sér
aldagamlar hefðir í myndlist og
hafa stundað myndgerð, allt frá
því sögur hófust í því stóra landi.
Þeir eru miklir snillingar á þessu
sviði og hafa haft mikil og merk
áhrif á myndlist vesturlandabúa,
ekki aðeins á gengnum öldum,
heldur einnig á líðandi stundu. I
stuttu máli má með sanni segja,
að þeir eru meistarar í meðferð
vatnslita og teikning þeirra á sér
ekkert líkt hér á vesturlöndum.
Allt er byggt á langþróaðri hefð,
sem nútíma listamenn þeirra austur
þar byggja verk sin á enn í dag,
og þegar aðrar þjóðir leggja aðalá-
herzlu á áróður fyrir stjómmála-
stefnum og heimta slíkt af lista-
mönnum sínum, teikna þeir í Kína
með bleki og vatnslit umhverfí sitt,
landslag, blóm og fugla í endumýj-
uðum nútimastíl, sem á rætur sínar
í aldagömlum hefðum myndlistar.
Það mætti nefna mörg dæmi um
áhrif kínverskrar listar á myndlist
okkar hér í Evrópu, ég skal ekki
orðlengja um þá hluti, en bendi
aðeins á teikningar van Goghs í
þessu sambandi.
Það er ekki ofsögum sagt af
þessari sýningu — hver einasta
mynd, sem sýnd er nú á Kjarvals-
stöðum, er stórkostlegt listaverk.
Þama má greina persónuleg viðhorf
hvers og eins af þeim listamönnum,
sem sýna, en þeir em ellefu talsins,
og áttatíu em listaverk þeirra.
Þarna er auðsjáanlega valinn maður
í hveiju plássi, og ber sýningin þess
vitni, að vandað hefur verið til
hennar í hvívetna.
Eins og ég sagði í upphafí, er
hér um mjög merka sýningu að
ræða, og ég legg eindregið til, að
enginn, sem áhuga hefur á góðri
myndlist láti hana framhjá sér fara.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um kínverska menningu hér,
en þeir, sem eitthvað vita í veraldar-
sögunni, vita, að aldrei verður fram
hjá henni gengið í menningarsög-
unni. Þessi sýning á Kjarvalsstöðum
færir okkur sannarlega heim sann-
inn um þessa fullyrðingu, og ég
vona, að sem flestir sjái þessi dá-
samlegu verk og njóti. Að lokum
vil ég færa mínar beztu þakkir öll-
um þeim, er stuðlað hafa að þessari
sýningu, og læt skrifínu lokið með
fullri lotningu fyrir frábæmm verk-
um, sem prýða Kjarvalsstaði þessa
vikuna.
Jónas Guðvarðsson sýnir
Fimmtíu og fjögur verk em á
sýningu Jónasar Guðvarðssonar,
sem nú stendur yfír í ASÍ-safninu
við Grensásveg. Það em skúlptúrar,
sem mynda þungamiðju þessarar
sýningar. Þó em á sýningunni fleiri
verk af því tagi, sem höfundurinn
kallar myndverk og em lágmyndir,
gerðar úr ýmsu efni og hanga á
vegg.
Jónas hefur dvalið langdvölum í
sólinni suður á Spáni. Eftir að hafa
lokið undirbúningsnámi hér heima
í Myndlistaskólanum í Reykjavík
stundaði hann myndlistanám bæði
í Barcelona og Palma, enda má
glöggt merkja í þessum verkum
Jónasar nokkur áhrif frá spánskri
list, og vantar mig orð til að geta
heimfært betur þessa fullyrðingu
mína. Einkum og sér í lagi koma
þessi áhrif fram í lágmyndum hans,
og gera þau þessi verk nokkuð sér-
stæð í íslensku umhverfi.
Skúlptúrinn aftur á móti á ætt
að rekja til heimalandsins, og þar
má greinilega merkja sterk áhrif
frá Siguijóni heitnum Ólafssyni, og
er þá ekki leiðum að líkjast. Jónas
hefur þó töluvert annað viðhorf en
Siguijón gagnvart skúlptúmum.
Hann skreytir verk sín með lituðu
gleri, og yfírleitt er í öllum verkum
hans nokkur ofhleðsla. Siguijón lék
aftur á móti á strengi einfaldleikans
og styrk hins heillega forms, og
einmitt að því leyti skilur að með
þessum listasmiðum, því að enginn
getur neitað því um þá Jónas og
Siguijón, að báðir kunna að tálga
spýtu.
Mér fannst nokkuð þröngt á
sumum þessara verka, það var eins
og þau fengju ekki að njóta sín til
fulls, og ég er viss um, að útkoman
hefði verið betri í heild, ef valið
hefði verið betur og hveiju verki
komið þannig fyrir, að það fengi
meira rými, meira svigrúm.
Það er mikill dugur í þessari sýn-
ingu, og hún er gott dæmi um
vinnubrgð Jónasar Guðvarðssonar,
sem hefur haldið margar einkasýn-
ingar og tekið þátt í nokkrum
samsýningum allt frá árinu 1968.
Jónas er sem sé enginn byijandi á
sínu sviði, en þetta mun vera átt-
unda einkasýning hans.' Ég óska
honum til hamingju með þennan
áfanga.
WAGNtFT-----
sjálfstýringar |
tateý m
%r;
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskaö er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niöur í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auðveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verö og
greiösluskilmálar.
Atlas hf
"Eíorgartún 24 — Sími 26755.
Póathólf 493, Raykjavfk
Sýálfstæðisfélögin
í Njarðvík
Samkvæmt ákvörðun fulltrúaráðs
við að viðhafa prófkjör um skipan
framboðslista til bæjarstjórnar-
kosninga í vor, auglýsir kjörnefnd
hér með eftir frambjóðendum í
prófkjörið.
Frambjóðandi skal hafa meðmæli
minnst 10 flokksbundinna sjálf-
stæðismanna í Njarðvík sem eru
kjörgenguir á kjördegi. Hver fé-
lagsmaður getur aðeins stutt 3
frambjóðendur.
Framboðum ber að skila til undirritaðra
fyrirkl. 20.00 þriðjudaginn 25. febrúar.
Fyrir hönd kjörnefndar, Arndís Tómas-
dóttir, Höskuldarkoti.
Breskur sál-
fræðingur held-
ur námskeið
BRESKI sálfræðingurinn Terry
Cooper heldur námskeið í Vaxta-
ræktinni Dugguvogi 7 dagana 22.
og 23. febrúar milli kl. 9.00 og
17.00 báða dagana.
í fréttatilkynningu frá Vaxta-
ræktinni segir, að á námskeiðinu
verði reynt að samhæfa tilfínninga-
líf, hugsun og líkama í eina heild.
Leiðrétting
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
af þyrluflugi Landhelgisgæzlunnar
vestur á Vattames í A-Barða-
strandarsýslu er Páll Halldórsson
flugstjóri rangfeðraður. Velvirðing-
ar er beðist á mistökunum.
Cterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ptflir&twMatoí*
4