Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 1
132. tbl. 75. árg. Kosið á Ítalíu: Kommún- istumspáð stórsigri ÍTALIR g-anga I dag og á morg- un að kjörborðinu og er búist við því að flokkur kristilegra demókrata tapi miklu fylgi. Á miðvikudag var siðasta skoð- anakönnun fyrir þingkosning- arnar birt og samkvæmt henni fá kristilegir 26,4 prósent at- kvæða og Kommúnistaflokkur- inn 27,6. Gæti því farið svo að kristilegir demókratar verði í stjórnarandstöðu fyrsta sinni frá því heimsstyijöldinni síðari lauk. Ciriaeo De Mita, leiðtogi kristi- legra demókrata, sagði í viðtali, sem birtist í dagblaðinu Awenire í gær, að kosningamar gætu markað tímamót í ítölskum stjóm- málum og vinstri menn hefðu aldrei verið jafn sterkir og nú. Kommúnistar hafa aldrei setið í stjóm á Ítalíu frá stríðslokum. Gera þeir sér nú vonir um að kosn- ingaspár gangi eftir og þeir taki við kristilegum demókrötum sem stærsti flokkur landsins. Boðað var til kosninganna ári áður en kjörtímabilið átti að renna út eftir að slitnaði upp úr stjómar- samstarfí kristilegra demókrata, sósíalista og þriggja smáflokka. Kosningabaráttunni lauk form- lega á föstudagskvöld og skomðu stjómmálaleiðtogar á kjósendur að neyta atkvæðisréttar síns þar sem mikið væri í húfí. Brazilía: Lumbrað á verðbólgu- draugnum Brazilíu, Reuter. STJÓRNVÖLD í Brazilíu hafa kynnt neyðarráðstafanir, sem þau hyggjast grípa til í því skyni að takast á við „gífurlegan efnahagsvanda landsins". Þar á meðal eru verðstöðvun, frestun stórframkvæmda og gengis- lækkun. Jose Samey forseti sagði í sjón- varpsávarpi til þjóðar sinnar, að ráðstafanimar væm óumflýjan- legar, ef koma ætti efnahag landsins á réttan kjöl. Eríendar skuldir Brazilíu nema 111 milljörðum dollara og þar geisar óðaverðbólga (23% í maí- mánuði einum), auk þess sem vextir em háir og iðnaðarstarf- semi, t.d. bílaiðnaður, hefur dregist saman. Ekki var þess getið, hversu mikil gengisfellingin yrði, en heim- ildarmenn í herbúðum stjómarinn- ar tala um 10% í því sambandi. Verðstöðvunin á að standa í 90 daga. 96 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovétríkin: Pastemaks kemur út ánæstunni Moskvu, Reuter. ÆVISAGA rússneska rithöfund- arins Boris Pasternaks, sem kallaði yfir sig vanþóknun sfjóm- valda með frægri skáldsögu sinni Dr. Zhivago, kemur út í Sov- étríkjunum á vegum sonar hans, að því er fréttastofan Tass greindi frá i gær. Fréttastofan sagði, að Yevgeny Pastemak, sem er bókmenntafræð- ingur, hefði unnið að bókinni í 25 ár. í henni em m.a. bréf föður hans til rithöfundarins Maxims Gorky og skáldsins Önnu Akhmatovu, auk yfir 150 myndskreytinga. Bókin kemur út'hjá forlaginu Sovietsky Pisatel í Moskvu innan skamms. „Boris Pastemak var alla tíð maður þegnskaparins, íbestu merk- ingu þess orðs," hefur Tass eftir syni rithöfundarins. „í því sambandi nægir að minnast samúðar hans með skáldinu Osip Mandelstam og sorglegum örlögum hans,“ sagði hann og vísaði þar til dauða Mand- elstams i þrælkunarbúðum í stjóm- artíð harðstjórans Jóseps Stalíns. „í þessari bók, sem er heimilda- rit, hef ég leitast við að draga upp mynd af þessum skapgerðarein- kennum hans.“ Pastemak hlaut bókmenntaverð- laun Nóbels árið 1958, eftir útkomu Dr. Zhivago — ástarsögu, sem rituð er með bolsévíkabyltinguna 1917 í bakgrunni. Stjómvöld í Moskvu for- dæmdu bókina og sögðu hana andsovéska. Pastemak var neyddur til að hafna Nóbelsverðlaununum og lést í ónáð yfírvalda árið 1960. Pasternak, sem þekktastur er sem skáld heima fyrir, hefur fengið að njóta sannmælis eftir að menn- ingarþíðunnar í tíð Mikhails Gorbachevs fór að gæta, og verður bókin Dr. Zhivago gefin út í Sov- étríkjunum á næsta ári. Hús Pastemaks í þorpinu Pered- elkina fyrir utan Moskvu, þar sem jarðneskar leifar skáldsins hvíla, verður gert að minjasafni. Sovétmenn æfír vegna ræðu Reagans við Berlínannúrinn Morgunblaðið/RAX Sjómenn, til hamingju með daginn í dag er sjómannadagurinn haldinn í fyrsta skipti samkvæmt lagaboði Alþingis um ftídag og er B-blað Morgunblaðsins að þessu sinni helgað efni um sjómenn. Viðtöl eru við sjómenn frá ýmsum sjávarplássum landsins, en myndin var tekin um borð í Þóri frá Homafirði þar sem báturinn lá við bryggju á Siglufirði. Nokkrir skipveijanna voru á dekki og þeir tóku sér stund frá verkum til þess að ræða við blaðamenn Morgunblaðsins. Eins og sjá má á svip þeirra félaga var líf í tuskunum. PRAVDA, málgagn sovéska kommúnistaflokksins, gagnrýndi í gær ræðu Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta við Berlínarmúrinn harka- lega. í ræðu, sem Reagan hélt í Vestur-Berlin á föstudag, skoraði hann á Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, að rífa niður múrinn. í Prövdu sagði að ræða Reagans hefði verið hræsnisfull tilraun til hylma yfir þær ástæður, sem lágu að baki því að múrinn var reistur. Sagði að forsetar Bandaríkjanna litu á Berlín sem eins konar Mekka og teldu að þeir þyrftu að koma þangað reglulega. „ Að sama skapi hefur þessi helgi- siður breyst í reiðilestur og austur tilfinninga fyrir opnum tjöldum. Þar ber því miður hæst fjandsamleg ummæli í okkar garð og skýlausa andstöðu gegn Sovétríkjunum," sagði í málgagni kommúnista- flokksins. „í gær [föstudag] kom forseti Bandaríkjanna fram á stað einum í Vestur-Berlín skammt frá Brand- enborgarhliðinu og hafði uppi hræsnisfull köll um að rífa niður „Berlínarmúrinn" og „opna hliðið“. Með öðrum orðum hvatti hann til þess að ráðist yrði yfir landamærin að hinu þýska ríki verkamanna og bænda.“ Því var bætt við, að „hlið- ið“ væri lokað vegna stefnu Reagans í afvopnunarmálum. í blaðinu sagði að það hefði ver- ið bein afleiðing stefnu Bandaríkja- manna og bandamanna þeirra að múrinn var reistur. Frá Vestur- Berlín hefðu vestræn ríki beint spjótum sínum að Austur-Þjóðverj- um og reynt að koma lagi á alþýðulýðveldið. Austur-Þjóðveijar hófust handa við að reisa múrinn árið 1961. Vest- ræn ríki halda því fram að tilgangur hans hafí verið að stöðva straum Austur-Þjóðveija til vesturs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.