Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987 15 Kjarval — Sumarsýning Myndlist Bragi Ásgeirsson í Kjarvalssal á Kjarvalsstöðum stendur nú yfír sumarsýning á verk- um sjálfs meistarans, sem salurinn og byggingin heita í höfuðið á. Báðir gangamir og veggir kaffi- stofu hafa og verið lagðir undir framkvæmdina. Að þessu sinni hefur áherslan verið lögð á áður ósýnd verk Kjarvals, þótt eldri og góðkunn séu með í bland, og er það vel til fallið og hárrétt staðið að verki. Mikið er um verk, sem Kjarval sýndi aldr- ei, uppköst og frumdrætti, sem hann lagði til hliðar og geymdi eða jafnvel gleymdi, en mikið samsafn af slíku kemur iðulega í leitimar að listamönnunum gengnum. Kannski er það rétt, að þetta séu myndir, sem hann málaði fyrir sjálf- an sig og sýndi aldrei, en orðanna hljóðan er þó ekki alveg rétt, eða öllu heldur, þá er öll sagan ekki sögð með þessari framsetningu, og því auðvelt að misskilja hana. Að sjálfsögðu mála allir skapandi mál- arar, sem standa undir nafnbótinni, allar myndir sínar fyrir sjálfan sig að vissu marki, sjálfíð er ávallt í fyrirrúmi, hvert sem myndefnið er og hvort sem það er sjálfsprottið eða ákveðið, bundið verkefni. Ekk- ert er í þessum myndum, sem Kjarval þurfti að fela fyrir um- heiminum, engin pólitísk ádeila né bylting í stílbrögðum, hér var það einfaldlega þannig, að Kjarval vissi, að lítið þýddi að sýna þessar mynd- ir, sem voru þó óaðskiljanlegur hluti vinnubragða hans og listar um leið. í eðli sínu var Kjarval það, sem á fagmáli nefnist „artisti", og er afar vont að þýða orðið, svo að meiningin skiljist rétt, en ég hef oftar en einu sinni skilgreint, hvað hér er átt við í umfjöllunum mínum um einstakar sýningar á list hans. Og það er einmitt þannig, að með- vitað eða ómeðvitað hefur verið lögð áhersla á þennan þátt í listsköpun Kjarvals að þessu sinni, og var löngu komin tími til, því að það er einmitt hér sem bestu eiginleikar hans komu fram, og þegar þeir fá að njóta sín til fulls, rís list hans hæst. Horft til eilífðarinnar Myndlist Bragi Ásgeirsson „Horft til eilífðarinnar" nefnist allsérstæð sýning eða réttara sagt uppákoma í Galleríi Gangskör. Höfundurinn er ung listspíra er lauk námi úr málunardeild MHÍ á síðastliðnu ári, Helgi Valgeirsson að nafni. Helgi hefur aldeilis tekið sýningarhúsnæðið í gegn og m.a. klætt gólfíð túnþökum, fyllt eitt homið af hvítum plastmálum, stað- sett eina drykkjartunnu á miðju gólfí og í innra herbergi situr mak- ráð mannvera og horfír á_ sig (og eilífðina) í stórum spegli. A veggj- unum eru svo nokkur málverk, svona til uppfyllingar og tónband gengur á fullu. Með þessu sýnir Helgi mikinn og þakkarverðan vilja til að hrista upp í frekar einhæfu sýningarstússi hérlendra myndlistarmanna og gengur til verks af mikilli og fijórri athafnasemi. En þessi athafnasemi einkennist onn sem komið er af því að ganga í mál annarra og heims- þekktra listamanna, og taka sitt lítið frá hveijum og fella í eina heild. Þegar á heildina er litið verð- ur manni helst hugsað til Edvards Kienholz (f. 1927 í Fairfeld, Los Angeles), sem á þessu sviði er hreinn snillingur — en einnig ýmissa annarra. Svona uppákomur voru og mjög algengar fyrir 15 árum eða svo og eru enn í fullu gildi víða og þá eink- um ef upphafsmennimir eiga í hlut. En það sem máli skiptir varðandi framtak Helga er, að hann sýnir hér ótvíræðan vilja til átaka á vett- vangi myndlistarinnar og yfir uppátæki hans er viss ferskleiki æskunnar. Með tíð og tíma kann svo getan að fylgja í kjölfarið. Að því hlýtur að koma, að þessi þáttur í lífí Kjarvals verði krufínn sérstaklega og hér er tilvalið efni í doktorsritgerð fyrir metnaðar- gjaman listsagnfræðing. Og ekki síst vegna þess, að þessi þáttur list- ar hans er nútímalegastur og höfðar því meira til samtíðarinnar en aðrar hliðar listar hans. Hann er hér um sumt ekki langt frá nýja málverkinu svonefnda, hvað útfærslu snertir, þótt hugmyndin að baki sé önnur og fagurfræðilegri á svipaðan hátt og Munchs, en við fengum einmitt hingað ágæta sýningu á verkum Munchs á sl. ári, sem sett var í samband . við nýja málverkið. Kjarval gat auðvitað ekki alfarið málað eins og hann lysti, því að hér var hann háður tímunum, sem hann lifði á, aldarfari og brauð- striti, jafnvel þótt hann hirti lítt um það síðasttalda. Og vafalítið var artistinn það, sem menn minnst kunnu að meta framan af, þótt hann komi raunar fram á einhvern hátt í hverri einustu mynd, sem hann málaði. Enginn getur t.d. málað endalaust smádoppur í myndir án þess að ofhlaða þær og drepa nema að vera artisti, og hér var Kjarval á heimavelli. Það er t.d. eins og hin fræga mynd Kjarvals af Flosagjá (Fjallamjólk) hafí orðið til af sjálfu sér og fyrir- hafnarlaust. Komið sem fljótandi á fjöl, eins og sagt er, áreynslulaust og eðlilega. Og það er sama áreynslulausa listfengið í flóknum myndum og einföldum og laufléttum, Kjarval þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að töfra fram hrifmiklar stemmn- ingar, ein hönd var alveg nóg, ef svo bar undir, eins og myndimar nr. 97 og 98 eru til vitnis um. Slík tök á línunni sér maður ein- ungis hjá þrautþjálfuðum meistur- um líkt og Matisse og Picasso, og eins og þeir og aðrir miklir málarar hafði hann tilfinninguna í sjáaldr- inu, hafði hæfíleikann til að hugsa og finna til með augunum. Ljósið og birtugjafinn var honum alltaf íhugunarefni, og norræn heiðríkja er ávallt nálæg í myndum hans eins og í myndum Munchs og Haralds Sohlberg, sem hann dáði svo mjög strax á unga aldri, er hann var við nám í Kaupmanna- höfn. Ég minnist þess að málararnir August Macke og Paul Klee voru saman á ferð í Túnis árið 1914 og uppgötvuðu þar líkt og fleiri málar- ar einstæðan leik ljósbrigða á þessum stað í Norður-Afríku, sem varð þeim sem opinberun. Og Kjarval hefði getað tekið undir það, sem Klee skrifaði í kompu sína: „ .. . litirnir taka mig fanginn. Ég þarf ekki að leita þeirra. Þeir eiga mig að eilífu, ég veit það. Það er stund hamingjunnar, andi: ég og litimir eru eitt. Ég er málari." Það er stór stund í lífi sérhvers manns, þegar hann uppgötvar Fígúra áþreifanlega að hann er málari, slíkir skilja og skynja umhverfí sitt í gegnum litinn, þannig að samein- uð hughrifin eru þeim allt. Klee var meistari þess að túlka hughrif, og lögmál lita uppgötvaði hann í nátt- úranni og síðan í þeim sjálfum, þetta atriði að setja lit við lit þarf tilfinningar við og verður ekki num- ið af bókum. Svipað var þetta með Kjarval, hann upplifði litinn og það gerir myndir hans einmitt svo ferskar, það að lesa á túpumar og vera hér fluglæs, er alls ekki nóg. Þeir félagar Klee og Macke vora sem bergnumdir og gerðu 25—50 framriss (skissur) á dag og lágu í sæluvímu í sólinni og átu spergil, eins og þeir skrifuðu heim. Og myndir beggja þaðan era heims- þekktar. Það ganga þjóðsögur um afköst Kjarvals, hann átti m.a. að hafa málað ellefu málverk á Þingvöllum á einum degi, og hér má koma fram, að eftir að van Gogh seldi sína fyrstu og einu mynd um dagana greip hann slík sigurvíma og vinnu- gleði, að hann málaði vel á sjötta tug málverka, á fáum mánuðum og allt heimsþekkt úrvalsverk. Svona gengur þetta til hjá málur- unum, þeir verða gripnir lífsfögnuði við vinnu sína undir vissum kring- umstæðum, er þeir skynja nýtt landnám í list sinni og þá halda þeim engin bönd. Og hver einasta mynd, sem menn mála, á að vera nýtt landnám, ný lifun, ný opin- beran og þannig var það með Kjarval, um leið og fangamark hans er í pensiláferðinni í hverri einustu mynd og ljóðræn línan sálræn fram- lenging handa hans og tilfínn- inga... NÚ FER AD HiTNA / KOLUNUM Paö er tilhlökkunarefni að byrja grillveislurnar aftur. Góöur matur, fjör og útivera. Þig vantar kannski hitt og þetta í grillið: kol, vökva, áhöld, bakka eöa jafnvel sjálft grilliö. Leitaöu ekki langt yfir skammt. Á næstu Essostöð finnur þú allt sem þarf . . . nema grillmatinn! Grillkol 2,3 kg Grillkol 4,5 kg Grillvökvi 0,51 Grillvökvi 1,01 Grill 225 kr. 434 kr. 75 kr. 120 kr. frá 2076 kr. Grillahöld og grillbakkar I úrvali. 4 L Mallorkatilboð ^ Fjórir saman í ferð ofarþegi borgar fullt, aoborgar 80% ,3 a borgar 60% og L-u]o borgar aðeins 40%. Sértilboðið gildir fyrir 25. júlí i þrjár vikur óháð aldri farþega!! Nú er að grípa tækifærið og bregða sór til Mallorka á „klassa“ hótelin okkar. OTKMTK, Ferðaskrifstofa. I&naðarhúsinu, Hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580 AUK hf 15 157/SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.