Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987 Sátt í deilu við verk- taka Fjölbrauta- skóla Suðurlands SeifoMÍ. SAMKOMULAG hefur tekist milli eignaraðila Fjölbrautaskóla Suðurlands og Sigfúsar Kristins- sonar, aðalverktaka nýbygging- ar skólans, i deilu sem kom upp milli þeirra á lokastigi bygging- arinnar vegna aukareikninga, tafa á verkinu, galla og óiokinna verka. Samkomulagið hljóðar upp á það, að eignaraðilar greiði Sigfúsi Krist- inssyni krónur 6,039,015,- vegna aukaverka, vaxta og verðbóta og geymslufjár. Sigfús greiðir aftur vegna galla, ólokinna verka, dag- sekta og annars kostnaðar krónur 3,288,312,-. Mismunurinn er krón- ur 2,750,703,- sem eignaraðilar greiða Sigfúsi og er verkinu þá lok- ið af hans hálfú. Þessi sátt var undirrituð 14. des- ember af báðum aðilum með fyrir- vara. Byggingamefnd skólans samþykkti sáttina og hún var síðan staðfest í skólanefnd með tveimur mótatkvæðum og hjásetu eins full- trúa. Það var verktakinn, Sigfús Krist- insson, sem bað um gerðardóm í deilunni, en áður hafði verið reynt að ná sáttum við hann á mörgum fundum með hönnuðum, fulltrúa byggingamefndar skólans og bygg- ingarstjóra. Samkomulag náðist ekki og eins og verksamningur gerði ráð fyrir var skipaður gerðar- dómur. í honum sátu Friðgeir Bjömsson, Bjöm Ólafsson og Ragn- ar Ingimarsson. — Sig. Jóns. Þegar afgreiðslu Jólalögin sungin unblaðið/Gunnar Lárusson STARF barnakóra er aldrei líflegra en fyrir jólin. Kór Bamaskólans í Mosfellssveit brá sér í bæjarferð fyrir skömmu og söng jólalög fyrir starfsfólk og viðskiptavini Múlaútibús Lands- bankans við góðar undirtektir. Stjómandi kórsins er Guðmundur Ómar Óskarsson. ríkisfjármála lýkur á Alþingi: Ríkisstjórnin þarf að grípa til víðtækra efnahagsráðstafana - segir Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra JÓN Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra segir að í ljósi þess að snögg umskipti hafi orðið til hins verra varðandi starfsskilyrði at- vinnuveganna, og þá sérstaklega fiskvinnslu, undanfama 2 mánuði, þurfi ríkisstjomin að taka á því máli þegar afgreiðslu ríkisfjármál- anna lýkur á Alþingi. Einnig verði stjómin að taka á vandamálum varðandi kjarasamninga og finna nýjar leiðir til stjómar peninga- mála. Hann segir að þessar aðgerðir verði að miða að minnkun þenslu og Ijóst sé að í komandi kjarasamningum verði þeir sem notið hafa verulegs launaskriðs undanfama mánuði að taka á sig meiri byrðar en aðrir. Morgunblaðið/Ól.K.M. Jólapottarn- ir komnir upp Jólapottar Hjálpræðishersins era hluti af jólaundirbúningi höfuð- staðarbúa svo langt aftur sem elstu menn muna. Þá var vígorð hjálpræðishermanna: Látið sjóða í pottinum. Fyrir nokkra vora þeir settir upp á nokkrum stöð- um í bænum samkvæmt venju. Hófst þá jafnframt sala jólablaðs Hjálpræðishersins, Herópsins. Hlutverk jólapottanna er hið sama og í gamla daga að hjálpa til að gleðja aðra um'jólin. Fjármálaráðherra sagði í ræðu á Alþingi aðfaranótt fimmtudags að ástandið væri þannig nú að það kallaði á umtalsverðar efnahagsað- gerðir. Þegar Morgunblaðið spurði fjármálaráðherra hvað hann ætti við, sagði hann að síðan ákvarðanir voru teknar á miðju sumri um til dæmis að frysta hluta af uppsöfn- uðum söluskatti vegna sjávarútvegs hefði efnahagsástandið snúist til hins verra og nú væri ljóst að bæta þyrfti starfsskilyrði atvinnuveg- anna og sérstaklega fískvinnslunn- ar. Jón Baldvin sagði að þáttur í lausn þessa vanda væri traustur ríkisfjárhagur, en einnig þyrfti að koma böndum á fjármagnsmarkað- inn og koma á hóflegum raunvöxt- um. Ríkisstjómin gæti stuðlað að því með því að afnema hallarekstur Um er að ræða eina 450 fer- metra hæð f Austurstræti 11 sem var sameign Landsbankans og Seðlabankans, og tvær 356 fer- metra hæðir í Hafnarstræti 10-12 sem Landsbankinn átti fyrir, en Seðlabankinn hafði afnot af. Að sögn Karls B. Guðmundssonar, yfir- manns skipuiagsdeildar Lands- bankans, er það ýmis skrifstofu- starfsemi sem mun flytja í hið nýja húsnæði, einkum á flármálasviði og í verðbréfaviðskiptum. Landsbankinn er búinn að segja ríkissjóðs. Einnig kæmi til greina að hætta að binda ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna í byggingarlána- sjóðum ríkisins og ef það fé færi án skuldbindinga á fjármagnsmark- aðinn myndi framboð á lánsfé aukast og vextir minnka. Hann sagði síðan að endurskipuleggja þyrfti verðbréfamarkaðinn sem nyti ýmissa forréttinda umfram banka- kerfið. Jón Baldvin sagði að einnig yrði að taka til endurskoðunar sjálf- virkar vísitöluviðmiðanir, eins og lánskjaravísitölu, og það hefði lengi verið rætt að tímabært væri að af- létta slíku af t.d. skammtímaskuld- um og áhættufjármagni, þótt verðtryggingin hefði verulegt gildi þegar um væri að ræða vel tryggð- ar langtímaskuldbindingar, t.d. vegna fasteignakaupa. Ríkisstjórnin var tilbúin til að ræða endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts í tengslum við kjara- samningaviðræður í vetur. Þegar Jón Baldvin var spurður hvort svig- rúm ríkisstjómarinnar varðandi kjarasamninga væri ekki að minnka þar sem sjávarútvegurinn vildi nú fá þennan söluskatt greiddan vegna rekstrarerfiðleika, sagði hann að svigrúmið væri e.t.v. lítið. Afstaða ríkisstjómarinnar væri þó óbreytt varðandi þátttöku í þríhliða viðræð- um og menn yrðu að meta heildar- myndina sameiginlega. „Enn er svigrúm til að grípa til ýmissa ráðstafana sem gætu komið í veg fyrir kollsteypu sem myndi kippa fótunum undan atvinnuveg- unum og fóma þeim kaupmáttar- ávinningi sem náðst hefur. En hefð- bundin gengisfelling er ekki ein af þeim,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson. fbúöir aldraðra viö Víðilund: Nefnd skipuð til að hraða framkvæmdum Landsbankinn bætir við sig 1150 fermetrum LANDSBANKI íslands hefur tekið við um 1150 fermetra húsnæði, sem Seðlabanldnn hafði áður. Landsbankinn mun eitthvað minnka við sig annað húsnæði, en þó er Ijóst að um mikla aukningu á heildar- húsnæði bankans er. að ræða. upp leiguhúsnæði sínu að Austur- stræti 10, en að sögn Karls var víða orðið þröngt um starfsemi bankans, og hún orðin dreifð í leigu- húsnæði hér og hvar. Það hefði veríð iila búið að sumum deildum bankans, og það væri mikil hagræð- ing að því að færa þá starfsemi undir eitt þak. Hann sagði að hið nýja húsnæði yrði væntanlega tekið að fullu í notkun í febrúar eða mars á næsta ári, en endumýja þyrfti raflagnir og fleira áður en hægt væri að flytja inn. EFTIR ýtarlegar umræður í bæj- arráði og við Félag aldraðra hefur bæjarstjóm Akureyrar kosið nýja framkvæmdanefnd sem hafa á umsjón með bygging- um aldraðra á Víðilundarsyæð- inu, en framkvæmdum þar hefur seinkað mjög. Kosin var sex manna nefnd, fimm fulltrúar bæjarins og einn fulltrúi til- nefndur af Félagi aldraðra. Bæjarstjórn kaus Sigurð Ringsted formann nefndarinnar. Auk hans era í nefndinni: Sigurð- ur Hannesson, Ingólfur Jónsson, Stefán Jónsson og Heimir Ingi- marsson. Félag aldraðra hefur enn sem komið er ekki skipað fulltrúa sinn i nefndina. Sigurður J. Sjgurðsson bæjarfulf- trúi sagði í samtali við Morgun- blaðið að um þetta mál og um hlutdeild Félags aldraðra í því hefðu orðið miklar og heitar umræður og bæjarstjóm sökuð um seinagang. Með skipun nefndarinnar væri hins- vegar komin fram pólitísk ábyrgð bæjarstjómar á verkinu. Hann sagði að hugsanlega hefði verið hægt að hafa nefndina fimm eða sjö manna, en þá hefði fulltrúi frá Félagi aldraðra og minnihlutaflokk- amir í bæjarstjóm getað haft meirihluta í nefndinni, sem ekki þótti góðs viti. Þijátíu íbúðir hafa verið auglýst- ar til sölu við Víðilund, en 45 manns sóttu um. Sigurður sagði að næsta skrefið í málinu værí að semja út- hlutunarreglur og úthluta íbúðum í fyrra húsinu af tveimur, en aðeins hafa sökklar verið steyptir þar. Hugmyndin er að ljúka fram- kvæmdum að mestu við húsið á einu ári og fá kaupendur af íbúðun- um sem fyrst inn í myndina. Þá er í bígerð að kanna áhuga manna á að ráðast líka í framkvæmdir við fjölbýlishús, sem rísa á við hliðina á því sem nú er í byggingu þar sem áhuginn virðist þetta mikill sem raun ber vitni. „Bygging íbúða fyr- ir aldraða við Víðilund hefur verið f umræðunni í þijú til fjögur ár og menn voru famir að missa trúna á að nokkuð yrði gert. Því var hafist handa við að grafa fyrir húsinu og steypa sökkla til að sýna fólki fram á að full alvara væri með þessu. Það er ef til vill of mikil bjartsýni að hægt sé að flytja inn í íbúðimar að ári liðnu, en vorið 1989 held ég að sé ekki fjarri lagi,“ sagði Sigurð- ur. Gjaldeyriskaup: Lágmarkskostnaður 80 kr. LÁGMARKSKOSTNAÐUR vegna gjaldeyriskaupa af bönk- um er 80 krónur en auk þess rennur 1% andvirðis viðskipt- anna til ríkissjóðs. Þetta kom fram er könnuð var gjaldskrá banka vegna gjaldeyris- viðskipta, í framhaldi af frétt blaðsins á föstudag, um viðskipti ungs Reykvíkings sem keypti 1 bandaríkjadal í Búnaðarbankanum- og þurfti að greiða, auk andvirðis dalsins sem nam 36.30 krónum, 80.40 krónur f kostnað. Landsbankinn og Búnaðarbank- inn taka að jafnaði 1,5%, en þó aldrei minna en 40 krónur, af sölu- andvirði gjaldeyris í þóknun vegna slíkra viðskipta við almenning. Auk þess leggst 1% ofan á verðið og rennur það gjald til ríkissjóðs. Þá er fast gjald bæði Búnaðar- og Landsbankans vegna kostnaðar við gjaldeýrissölu 40 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.