Morgunblaðið - 08.11.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.11.1988, Blaðsíða 12
TENNIS KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Spurs kaupir enn einn miðvörðinn Verður Pétur úti í kuldanum? Spurs sigraði Lakers SAN Antonio Spurs bœtti enn einum miðverði í hópinn á fimmtudag þegar liðið keypti Mike Smrek frá Los Angeles Lakers. Smrek, sem er 2.13 metrar á hæð, kom til Lakers þegar Pétur spilaði þar, en var síðan lítið notaður eftir að Mychal Thompson byrjaði að spila hjá Lakers. Pétur var í byrjunarliði Spurs á laugar- dag gegn Lakers, en óljóst er hvort hann mun verða það ívetur. Frank Brickowski, sem var aðal miðvörður liðs- ins í fyrra, hefur enn ekki samið við Spurs um laun. Ef hann kemur aftur inn í liðið er ekki víst að Pétur spili meira en á sl. keppnistíma- bili. Ef Pétur leikur vel nú í upphafi keppnistímabilsins er þó líklegt að hann fái að leika meira með liðinu. San Antonio Spurs lék sinn fyrsta leik á keppnistímabil- inu gegn Los Angeles Lakers á laugardag á heimavelli. Spurs gerði sér lítið fyrir Gunnar og sigraði nokkuð Valgeirsson örugglega skrífar 122:107. Stiga- hæstir leikmanna Spurs voru bakvörðurinn Alvin Robinson og Greg „Cadillac“ And- erson með 30 stig, en hjá Lakers var „Magic" Johnson stigahæstur með 23 stig. Pétur gerði sjö stig í leiknum. Góður slgur Lakers NBA-deildin hófst á föstudags- kvöld. Fyrsti stórleikurinn var milli Dallas og Los Angeles La- kers í Reunion Arena í Dallas. Undirritaður fylgdist með þessum leik í sjónvarpi og ljóst að leik- menn Lakers koma sterkir til leiks í vetur. Leikurinn var jafn og skemmtilegur allan tímann og mjög vel leikinn miðað við leik í fyrstu umferð. Það var „Magic“ Johnson sem tryggði Lakers sigur í þessum leik, 116:113, með tveim- ur vítaskotum þegar örfáar sek- úndur voru eftir. Besti maður vallarins var Rolando Blackman hjá Dallas. Hann skoraði 28 stig og var stigahæstur Dallas, en hjá Lakers byijaði James Worthy þar sem hann endaði síðasta keppn- istímabili, átti stórleik og var stigahæstur hjá Lakers með 24 stig. Orlando Woolridge lék vel í liði Lakers, en hann kom frá New Jersey í sumar. Annars var lítið um óvænt úr- slit í tveimur fyrstur umferðunum. Boston átti í miklum erfiðleikum með New York, en knúði fram sigur í framleingingu. Þá töpuðu nýju liðin frá Charlotte og Miami stórt eins og við var búist. Ursllt/B11 Reuter Boris Becker sigraði á opna Stokk- hólsmótinu. AuðveK hjá Becker „MEIÐSLIN háðu mértil að byrja með og ég átti í erfiðleik- um, en fljótlega birti til. Leikur minn var fjölbreyttur og því vonast ég til að þurfa ekki að hvíla of lengi vegna ökklans," sagði Boris Becker eftir sigur- inn á opna Stokkhólmsmótinu um helgina. Becker, sem meiddist í undanúr- slitum, sigraði Peter Lundgren frá Svíþjóð í úrslitaleik 6-4, 6-1 og 6-1. Viðureignin stóð aðeins yfir í 97 mínútur og voru yfirburðir Beckers miklir. „Ég byijaði ágæt- lega, en síðan gekk allt á afturfót- unum,“ sagði Lundgren, sem fór hindrunarlaust í úrslitin. Becker er fyrsti Vestur-Þjóðveij- inn, sem sigrar á opna Stokkhólms- mótinu. Þetta var 18. sigur hans á ferlinum og sá sjötti á árinu. Sigur- launin voru um 650 þúsund íslenskra króna. ÍÞRÚMR FOLK ■ STEVE Butler frá Bretlandi sigraði í einliðaleik karla á opna kanadíska meistaramótinu í bad- minton sem fram fór í Calgary um helgina. Hann sigraði Sze Yu frá Ástralíu, 7:15, 15:10 og 15:5 í úrslitaleik og vann þar með fyrsta stórmót sitt í badminton. Li Dienu frá Kina sigraði í einliðaleik kvenna. Hú sigraði í löndu sína, Zheng Baojun, 11:5 og 11:6. ■ ICUK Sugiarto frá Indonesíu er efstur á heimslistanum í badmin- ton karla með 1.465 stig. Morten Frost frá Danmörku er í öðru sæti með 1.185 stig og Jens Peter Nierhoff frá Danmörku er þriðji með 1.060 stig. Li Lingwei frá Kína er efst í kvennaflokki með 1.320 stig. Han Aiping frá Kína er í öðru sæti með 1.180 stig og Young Suk Lee frá Suður-Kóreu með 875 stig. Kristin Larsen frá Danmörku er efst norðurlandabúa í 5. sæti með 815 stig. ■ MARK Hateley, enski lands- liðsmaðurinn hjá Mónakó, mun leika fyrsta leik sinn á tímabilinu með Mónakó gegn belgíska liðinu Brugge í Evrópukeppni meistara- liða á morgun, miðvikudag. Hate- ley hefur verið meiddur í tvo á hálfan mánuð en er nú loks búinn að ná sér. Hann verður líklega í byijunarliðinu gegn Brugge, sem vann fyrri leikinn, 1:0, í Belgiu. ■ TERRYButcher, enski lands- liðsmaðurinn sem leikur með Glas- gow Rangers í Skotlandi, hefur verið sektaður um 500 pund (42.000 þúsund íslenskar krónur) af skoska kanttspymusambandinu fyrir að sparka í hurð í búnings- klefa dómarans eftir leik Rangers og Aberdeen í síðasta mánuði. Pétur Guðmundsson gerði sjö stig er San Antonio Spurs sigraði La- kers. Lið hans hefur nú keypt enn einn miðvörðinn og því er mikil pressa á Pétri. Reuter Kurt Rambls sem lék lengi með Lakers er nú kominn til nýliðanna Char- lotte Homets. Hér á hann í baráttu við Bill Laimbeer hjá Detroit Pistons. GETRAUNIR: X 1 X 1 1 X 122 X21 LOTTO: 21 25 29 32 33 + 28

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.