Morgunblaðið - 07.06.1991, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.06.1991, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991 Vestmannaeyjar: Skólaslit Stýri- mannaskólans Vestmannaeyjum. Stýrimannaskólanum í Vest- mannaeyjum var slitið fyrir skömmu. Var þetta í 25. sinn sem skólanum var slitið en hann er reyndar tveimur árum eldri þar sem starfsemi hans féll niður tvö ár um gos. Friðrik Asmundsson, skólastjóri, rakti starf skólans í skólaslitaræðu sinni. Hann bauð í upphafi sérstak- lega velkomna menn úr fyrstu skóla- nefnd skólans, sem var boðin til skólaslitanna í tilefni þess að 25. árgangurinn útskrifaðist nú frá skó- lanum. Friðrik sagði að þau ár sem skólinn hefði starfað hefðu orð Ár- sæls heitins Sveinssonar, sem sæti átti í fyrstu skólanefndinni, svo sannarlega ræst. Ársæll sagði ætíð að það væri verk skólanefndarinnar að fá unga og hrausta stráka víðs vegar að af landinu í skólann en stelpurnar myndu síðan sjá um að halda þeim þar kyrrum. Sagði Frið- rik að nú byggju í Eyjum um 30 íjölskyldur sem hefðu orðið til á þennan hátt. Friðrik minntist velunnara skól- ans. Sérstaklega gerði hann að um- talsefni stuðning Björns Guðmunds- sonar við skólann í gegnum tíðina. Björn og bróðir hans Tryggvi stofn- uðu fyrir mörgum árum sjóð til minningar um foreldra sína og skyldi fé úr sjóðnum varið til að styrkja efnalitla nemendur til náms. Sagði Friðrik að Björn hefði sífellt verið að gefa í sjóðinn og væri skemmst að minnast stórgjafar hans á af- mæli hans síðastliðið sumar en þá gaf Björn hálfa milljón í sjóðinn. Minningarsjóðurinn stendur nú í 1,5 milljónum og sagði Friðrik að Björn hefði málgað það við sig í vetur að koma þyrfti honum í 2 milljónir og væri nú búið að ganga frá því að svo yrði. Að lokinni ræðu Friðriks voru nemendur útskrifaðir. 28 luku námi frá I. stigi og var meðaleinkunn 8,2. Hæstu einkunn hlaut Haraldur Þorsteinn Gunnarsson, 9,19. Annar varð Guðmumdur Tómasson með 9,05 og þriðji Jón Halldór Sigur- björnsson með 9,0, en hann útskrif- aðist sama dag með stúdentspróf frá Framhaldsskólanum í Eyjum. 12Tiemendur luku prófí af 2. stigi og var meðaleinkunn 7,64. Hæstur var Njáll Kolbeinsson með 8,88. Annar varð Hinrik Haraldsson með 8,52 og þriðji Ágúst Kárason með 8,33. Ýmsar viðurkenningar voru veitt- ar nemendunum. Kristjana Þorfínns- TIL SÖLU Pontiac Trans Am G.T.A. árg. ’88. Ekinn 105 þús. km. Einn eigandi frá upphafi. Litur steingrár. Glæsilegur bíll. Verð ca 2,3 millj. eða tilboð. Upplýsingar í síma 91-23227 milli kl. 18-24 næstu daga. GARÐASTAL Lausn á steypuskemmdum .. ... ■ --- --— = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 ;y Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Nemendur sem útskrifuðust af 2. stigi ásamt Friðrik Ásmunds- syni, skólastjóra, og Sigurgeir Jónssyni, kennara en á innfeldu myndinni sést Dúxinn, Njáll Kol- beinsson, _ ásamt föður sínum, Kolbeini Olafssyni, en hann var í fyrsta hópnum sem útskrifaðist frá skólanum. dóttir afhenti fyrir hönd sína og eig- inmanns hennar, Finnboga Friðf- innssonar, Ragnari Waage Pálma- syni viðurkenningu fyrir reglusemi og góða ástundun. Bragi I. Olafsson afhenti, fyrir hönd Rotaryklúbbs Vestmannaeyja, Ágústi Kárasyni viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku. Sigurgeir Jónsson veitti Ágústi Kárasyni og Njáli Kolbeinssyni við- urkenningu fyrir góðar ritgerðir. Og Njáll sópaði til sín viðurkenning- unum, því hann fékk viðurkenningu frá Útvegsbændafélagi Vestmanna- eyja, fyrir hæstu einkunn í siglinga- fræðigreinum. Sigurður Einarsson afhenti Njáli viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunnina og einnig fékk hann gullúr frá Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi fyrir hæstu meðaleinkunnina. Þá hlutu Njáll og Ágúst Kárason viðurkenn- ingu frá Bjarna Jónassyni fyrir best- an árangur í veðurfræði. Guðjón Ármann Eyjólfsson, fyrsti skólastjóri skólans og núverandi skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík, flutti stutt ávarp og minntist upphafsára skólans. Hann færði síðan skólanum að gjöf tvær bækur í bókasafn skólans. Á skólaslitunum var einnig skýrt frá að Kolbeinn Ólafsson og Marý Njálsdóttir, foreldrar dúxins Njáls, hefðu gefið 25.000 krónur í Stein- grímssjóð, sem var stofnaður til minningar um Steingrím Arnar sem lengi kenndi við skólann, en Kol- beinn var í fyrsta hópnum sem út- skrifaðist frá skólanum árið 1964. Fjölmenni var við skólaslitin og að þeim loknum þáðu allir kaffi og meðlæti í boði kvenna úr slysavama- deildinni Eykyndli. Grímur Grensássókn: Safnaðarferð Safnaðarferð verður farin frá Grensáskirkju við Háaleitisbraut kl. 9.30 nk. sunnudag. Farið verð- ur upp á Akranes og tekið þátt í messu í Akraneskirkju kl. 11.00. Sr. Björn Jónsson þjónar fyrir altari en sr. Halldór S. Gröndal prédikar. Eftir messu verður snæddur létt- ur hádegisverður í safnaðarheimil- jnu og munu kvenfélagskonur Akr- aneskirkju sjá um veitingarnar. Að máltíð lokinni verður minja- safnið að Görðum skoðað, en að svo búnu verður ekið heim aftur og þá farið sunnan við Akrafjall. Ferðin kostar 1.200 kr. og er allt innifalið. Allir eru hjartanlega velkomnir og vinsamlegast mætið tímanlega. Dansleikir á Hótel Borg hefjast á ný DANSLEIKJAHALD hefst á ný á Hótel Borg Iaugardags- kvöldið 8. júní eftir nokkrar breytingar á húsinu. Samkvæmt fréttatilkynn- ingu frá Hótel Borg er ætlunin með breytingunum að endur- vekja andrúmsloft stríðsár- anna. í Skuggasal verður stemning bannáranna rifjuð upp og leikinn lifandi jass. Einnig verður í húsinu kvik- myndakrókur þar sem boðið verður upp á fjölbreytt efni. Þeir Björgólfur Thor Björgólfs- son, Bjarni Þór Bjarnason og Skúli Mogensen reka Hótel Borg í sumar eins og síðastlið- ið sumar. Tækniskólanum slitið Fyrstu iðntæknifræðingarnir sem útskrifast frá Tækniskóla íslands ásamt Guðbrandi Steinþórssyni, rektor og Aage Steinssyni, deildar- stjóra. TÆKNISKÓLA íslands var slitið laugardaginn 25. maí og að þessu sinni var 76 nemendum afhent prófskírteini. Flestir luku prófi frá raungreina- deild, 33 talsins. Byggingatækni- fræði luku 7 og Iðnaðartæknifræði 12. Byggingaiðnfræði luku 4, einn lauk prófi í útvegstækni, fimm í iðnrekstrarfræði. Fjórir luku 1. árs prófi í véltæknifræði og tíu 1. árs prófi í raftæknifræði. Tveir áratugir eru liðnir frá því fyrstu byggingatæknifræðingarnir brautskráðust frá skólanum og hafa nú 306 byggingatæknifræðingar útskrifast þaðan. Byggingadeildin hefur til þessa dags verið eina deild- in sem hefur útskrifað tæknifræð- inga með lokapróf. Iðntæknifræð- ingar voru nú í fyrsta sinn útskrif- aðir frá rekstrardeild og luku 12 námi af þessari nýju braut, sem er skipulögð með tilliti til þarfa ís- lensks atvinnulífs og í nánu sam- starfi við það. í ávarpi Guðbrands Steinþórs- sonar, rektor skólans, kom fram að á síðastliðnum vetri voru unnin drög að þróunaráætlun skólans til aldamóta og minntist rektor einkum á tvennt í þeirri áætlun. í fyrsta lagi tillögu að frambúðarlausn á húsnæðismálum skólans og í annan stað á hugmynd um aukna starf- semi á svið hagnýtra þóunar- og rannsóknarverkefna til að auka tengsl skólans við atvinnulífið. Rektor lýsti þeirri skoðun sinni að þeir byggingatæknifræðingar, sem lokið hefðu námi við skólann síðustu tvo áratugi, hefðu skilað samfélaginu arði af því fé sem það hefði lagt til menntunar þeirra og kvaðst vænta þes að sama myndi gilda um þá sem nú og framvegis útskrifast af hinni nýju námsleið í iðnaðartæknifærði. Tækniskólinn hefur starfað í 27 ár og þar er í boði nám til B.S.- prófs í byggingatæknifræði, iðnað- artæknifræði, meinatækni og rönt- gentækni auk styttra náms í ýmsum greinum. í véladeild og rafmagns- deild er í boði eins árs tæknifræði- nám en því námi ljúka nemendur í Danmörku. Frá upphafi hafa 3.600 nemend- ur hafið nám við skólann og rúm- lega 2.500 hafa lokið prófi. A nýlið- inni önn voru um 500 nemendur við skólann. Fulltrúar 10 og 20 ára bygginga- tæknifræðinga og þeir sem luku prófi frá raungreinadeild fyrir 20 árum, voru við skólaslitin. 20 ára tæknifræðingar færðu • skólanum málverk að gjöf. Ný málmskoðun- arsmásjá var sýnd, en hún var m.a. keypt fyrir fé sem Tæknifræðinga- félag íslands, Iðnfræðingafélag ís- lands, nemendaráð og Félag Tækni- skólakennara gáfu í minningu Helga Gunnarssonar, deildarstjóra véladeildar, en hann lést á síðasta ári. Helgi var einn þeirra sem áttu frumkvæði að stofnun tækniskóli hér á landi og starfaði við skólann frá stofnun hans til dauðadags. dovcs (ORSANIC) Vörur úr hfrænt ræktuðu komí - betra getur það varla verið Heildsöludreíflng: Faxafell hf. símí 51775

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.