Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 2
2 B HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ SVIÞJOÐ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992 Morgunblaðið/Bjarni Valsmennlrnlr Ólafur Stefánsson, ti vinstri, og Dagur Sigurðsson eftir fyrsta leikinn gegn Egyptum í Laugardalshöll á laugardag — en það var einmitt fyrsti landsleikur beggja með A-liði íslands. Ólafur gerði tvö mörk í fyrsta leiknum, eitt á sunnudaginn og fjögur í gærkvöldi, er hann var besti maður liðsins. Kærkomin æfing - sagði ÞorbergurAðalsteinsson landsliðsþjálfari um leikina við Egypta Stefán Stefánsson skrífar Við lékum vömina mjög framar- lega, allavega framar en við höfum gert að undanfömu. Varnar- leikurinn gekk vel og markvarslan var góð,“ sagði Þorberg- ur Aðalsteinsson, eftir fyrsta leikinn við Egypta á laugardaginn, sem ís- land vann örugglega 27:18. „Við vomm kannske heldur miklir klaufar að ná ekki boltanum oftar í byijun og nýta okkur hraðaupphlaupin, en það kom síðar og við gerðum níu mörk úr hraðaupphlaupum. Eftir að staðan var orðinn ömgg fengu flest- ir yngri leikmennimir að spreyta sig. Egyptamir reyndu að komast framar á völlinn og við áttum ágæt svör við því en það er alltaf erfitt að leika gegn þjóðum frá löndum eins og Egyptalandi, Suður-Kóreu og Alsír. Þetta var kærkomin æfíng. Nýliðam- ir komu vel út en það var að vísu lítill undirbúningur, en þeir klára þetta alveg ágætlega," sagði Þor- bergur Aðalsteinsson. íslendingar bám sigurorð af Egyptum í öðmm leik liðanna á sunnudagskvöldið í Laugardalshöll- inni, 25:21. Það var aðeins frábærri markvörslu Bergsveins Bergsveins- sonar að þakka að sigur vannst, en hann lokaði nánast markinu síðustu tíu mínúturnar. Leikurinn bar öll ein- kenni vináttu- og æfíngaleiks; nýir leikmenn reyndir og kerfi æfð en samt stefnt á sigur. Þorbergur setti reynt lið inná í byijun og allt gekk upp hjá íslending- um í sókninni á meðan vömin lak svolítið. Eftir um tuttugu mínútur komu Dagur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson inná fyrir Gunnar Gunn- arsson og Magnús Sigurðsson, en þeim tókst ekki að halda taktinum og Egyptar náðu naumu forskoti rétt fyrir leikhlé. í síðari hálfleik beittu Egyptar sterkri pressuvöm mjög utarlega sem sló íslendinga útaf laginu og gestimir juku forskotið sem sýndi að þegar bmgðið var útaf hefðbundn- um íslenskum handknattleik var fátt um svör. Liðið lék þá meira eins og hver fyrir sig en ekki sem lið. Um miðjan hálfleik leit út fyrir ósigur en þá tók Bergsveinn sig til í mark- inu og varði sem berserkur svo Egyptar náðu aðeins að gera eitt mark á móti átta mörkum íslendinga svo staðan breyttist úr 17:20 í 25:21. „Leikurinn fór mjög hægt af stað og við áttum í vandræðum með þá vamarlega séð, við náðum ekki í þá og vomm ekki að framkvæma það sem við höfðum ákveðið fyrir leik því við ætluðum að stoppa þá með því að brjóta en lentum alltaf skrefí á eftir," sagði Þorbergur Aðalsteins- son. „Síðan lagast þetta í seinni hluta seinni hálfleiks, þá náðum við í þá og náðum að bijóta. Það vantaði marga fastaleikmenn því við vorum að prófa nýja leikmenn. Kerfín gengu mjög vel upp í fyrri hálfleik og þau opnuðu gífurlega en í seinni komu Egypar meira út og náðu að stoppa okkur. Það skar sig enginn úr nema kannski Bergsveinn í lokin og af nýliðum kom Ólafur Stefá'nsson best „Ekkert til að hrópa húrra fyrir“ „Þetta var ekki erfítt líkamlega, frekar andlega og var kannski ekk- ert til hrópa húrra fyrir. Egyptar spila náttúmlega öðmvísi handbolta en Svíar og þessar þjóðir,“ sagði nýliðinn Ólafur Stefánsson. „Erum að prófa leikmenn" „Þetta var í lagi sem undirbún- ingsleikur, við emm einnig að prófa leikmenn og laga kerfin en ég held að við höfum lært eitthvað af þessum leik, Asem El Sadany, þjálfari Egypta. „íslendinga þekkjum við vel - þeir era með sterkt lið og em nú að prófa nýja leikmenn eins og við. Þeir eru að undirbúa sig og eiga eftir að lagfæra marga hluti fyrir heimsmeistarakeppnina en ég tel ís- lenska landsliðið eitt það besta í heiminum.. í íslenska liðinu fannst mér bestir númer 10 [Magnús Sig- urðssonj og númer 6 [Gunnar Gunn- arsson] sera stjómaði mjög vel, þeir vora okkur hættulegastir. Það er mjög gott að’ leika gegn sterku liði eins og íslandi á undirbúningstíman- um og vonandi eigum ■ við eftir að lærá mikið áf þessum leikjum.“ Ystad tapadi Drott og Skövde em efst og jöfn með 10 stig eft- ir sex umferðir í sænsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik. Drott malaði Váxjö 27:17 á útivelli og Skövde vann Kristjanstad 33:21. Ystad, sem leikur gegn FH í Evrópu- Svemn keppninni, tapaði á útivelli fyrir Irsta skrifarfrán 29:32‘ SMtan Toni Hedin gerði 8 Svíþjóó mörk fyrir Ystad og Per Carlen skor- aði 5 af línunni. Carlen » . . • Elverun á sigurbraut Elvemn, sem Þórir Hergeirsson þjálfar,■ sigraiðj Fjellhamar 27:1 l.í norsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Elveran hefur kom- ið mjög á óvart og ef nú í_öðru sæti eftir firam umferðir með 8 stig. _______ Stavanger, sem Valur sló út í Evrópukeppnihni, ,vann. Runar um hetgina 21:2,0 og er efst. með tíú stig og er FráErlingi eina liðið sem ekki hefur tapað leik. * íNrTenT^' Jakob Jónsson var márkahæstur með 8 mörk er Vik- ing tapaði fyrir Urædd, 22:21. Viking hefur 5 stig eftir fimm leiki. Siguiiás og LeifurGeir í Stjömuna Sigurlás Þorleifsson var um helgina ráðinn þjálfari 2. deildarliðs Stjömunnar frá Garðabæ í knattspymu fyrir næsta keppnistímabil. Sigurlás þjálfaði lið ÍBV síðustu ár, en hætti um mitt sl. sumar. Þá var gengið frá því að fram- heijinn Leifur Geir Hafsteinsson leiki einnig með Stjömunni næsta sumar, en hann hefur verið einn aðal markaskorari ÍBV undanfar- ið og hlaut t.d. bronsskó Adidas í fyrra, er hann varð þriðji marka- hæsti maður 1. deildar með 12 mörk. NOREGUR KNATTSPYRNA Örebro áfram í deildinni AIK með aðra höndina á meistara- bikarinn Hlynur Stefánsson og félagar í Örebro tryggðu sér um helg- ina sæti i sænsku úrvalsdeildinni „Alsvenskan" að ári Sveinn með 1:0 siKri á Agnarsson ' Halmstad á heima- skrifar frá velli. Bæði liðin hafa Svíþjóð 25 stig og leika því f úrvalsdeildinni á næsta keppnis- tímabili en baráttan um hin sætin tvö, sem gefa sjálfkrafa rétt til þátt- töku í Alsvenskan er afar hörð. Brage er í þriðja sæti með 23 stig eftir 1:1 jafntefli við Djurgárden. Hácken er í 4. sæti með 22 stig og Djúrgárden hefur 21 stig. Þá gæti GAIS einnig blandað sér í baráttuna því liðið hefur 17 stig og á inni leik. í meistarakeppninni stendur slag- urinn sem fyrr á milli þriggja liða; AIK, Norrköping og Öster. Þegar ein umferð er eftir er AIK efst með 31 stig og hin með 29 stig. AIK og Norrköping mættust áJaugardag í skemmtilegum leik. AIK fór á kost- um fyrstu 50 mín. leiksins og gerði þá tvö mörk, en gestimir jöfnuðu 2:2_ áður en yfír lauk. Á sunnudag léku Trellborg og Öster og með sigri gat Öster skotist á toppinn. Fyrirfram var veðjað á sigur gestanna enda möluðu þeir Trelleborg 6:1 fyrri í sumar. En nú var annað upp á teningnum. Trelle- borg gerði tvö mörk rétt fyrir hálf- leik. Oster byijaði síðari hálfleik af miklum krafti og minnkaði strax muninn og gerði rétt á eftir mark sem var dæmt af vegna rangstöðu sem þótti harður dómur. Litlu síðar komst Trelleborg í sókn, markvörð- ur Öster, Pál Lundin, þaut út úr markinu og hugðist hreinsa frá en skaut beint í framheija Trelleborg sem lék á Lundin og skoraði. Við markið féllust gestunum hendur og Trelleborg lék á alls oddi og gerði fjögur mörk á næsta stundaríjórð- ungi og lokatölur 7:2 og næst stærsti ósigur Öster í úrvalsdeildinni varð staðreynd. í þriðja leik meistarakeppninnar sigraði Gautaborg lið Malmö 2:0. Gautaborg er nú aftur farið að leika eins og meistumm sæmir og Iiðið þykir nú sigurstranlegt gegn Lech Posnan i Evrópukeppninni á morg- un. í síðustu umferðinni leikur AIK við Malmö á útivelli, Öster við Gautaborg og Norrköping tekur á móti Trelleborg. AIK nægir jafn- tefli til að vinna sinn fyrsta meist- aratitil í 55 ár vegna þess hve markamunur liðsins er mikið betri en hinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.