Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 32
& ^Sí'óridukBLA&iB' ATVINWÁ/RAÖ/SWIÁSnyíX;-, 11. JÚLí‘l993 ATVIN N MMAUGL YSINGAR Sjúkrahúsið á Egilsstöðum vill ráða sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga til starfa, bæði til afleysinga og í fastar stöður. Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra í síma 97-11073 eða hjúkrunarforstjóra í síma 97-11400. Löglærður fulltrúi óskast á lögmannsstofu. Hlutastarf kemur til greina. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Fulltrúi - 3900“. Hallgrímskirkja óskar að ráða starfsmann til líknar- og öldr- unarþjónustu í söfnuðinum frá 1. sept. nk. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu á þessu sviði. Um er að ræða 80% starf. Umsóknir sendist fyrir 20. júlí til Hallgríms- kirkju, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Heilsugæslustöð Suðurnesja, Keflavík Hjúkrunarfræðing vantar í 50% starf við skólahjúkrun frá 1. september 1993. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri, sími 92-20500. BORGARSPÍTALIMN Deildarlæknir Staða deildarlæknis eða reynds aðstoðar- læknis við endurhæfinga- og taugadeild Borgarspítalans er laus til umsóknar. Staðan tengist þátttöku í bráðavöktum spít- alans í taugalækningum og veitist frá 1. októ- ber 1993. Umsókn sendist fyrir 15. ágúst nk. til Ás- geirs B. Ellertssonar yfirlæknis, sem veitir nánari upplýsingar í síma 696710. Sjónvarpið Ríkisútvarpið óskar eftir að ráða fulltrúa hjá innkaupa- og markaðsdeild Sjónvarpsins frá og með 1. ágúst 1993. Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsyn- leg svo og góð almenn menntun og reynsla í skrifstofustörfum. Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk. og ber að skila umsóknum til Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1, eða Sjónvarpsins, Laugavegi 176, á eyðu- bíöðum sem fást á báðum stöðum merktum „ST-IMD". © Kennarar Kennara vantar að Kirkjubæjarskóla næsta skólaár. Gott húsnæði. Leikskóli á staðnum auk allrar almennrar þjónustu. Upplýsingar gefur Hanna Hjartardóttir, skólastjóri, í síma 98-74635. Stykkishólmskirkja Organisti Organisti óskast við Stykkishólmskirkju. Nánari upplýsingar veitir Róbert Jörgensen, formaður sóknarnefndar, í síma 93-81410. Kennarar - kennarar Laus staða kennara við Grunnskólann á Súðavík. 20% launauppbót. Höfuð áhersla lögð á kennslu bóklegra greina á elsta stigi Grunnskólans. Aðstoðum við að útvega húsnæði á sann- gjörnu verði. Gott vinnuumhverfi. Umsóknarfrestur er til 18. júlí nk. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri (Donald) í símum 94-4924 og 94-4961. „Au pair“ vantar sem fyrst til að gæta tveggja telpna, 8 og 10 ára, í Kaupmannahöfn. Tilvalið tækifæri til að kynnast Danmörku. Þarf að hafa bílpróf og má ekki reykja. Vinsamlega skrifið til: Elísabeth Mayer Topsee, Frplichsvej 42a, 2920 Charlotten Lund, Danmörku. Ameríska sendiráðið - bílstjóri Laus er til umsóknar staða bílstjóra. Starf hans felur í sér m.a. viðhald á bílum og að undirbúa skýrslur. Góð enskukunnátta er nauðsynleg auk nokk- urrar tölvuþekkingar. Óskum eftir að ráða í starfið fyrir 16. ágúst nk. Umsóknir sendist á ensku til Ameríska sendi- ráðsins Laufásvegi 21, 101 Reykjavík, fyrir 16. júlí nk. Kennarar 25 nemendur í 1.-8. bekk Grunnskóla Borg- arfjarðar eystri vantar nú kennara. Skólinn er samkennsluskóli og starfar innan FÁNÁ - Samtaka fámennra skóla á Héraði og nágrennis. Flutningsstyrkur greiddur. Lág húsaleiga. Góður leikskóli. Umsóknarfrestur er til 20. júlí. Upplýsingar gefur Bergljót Njóla Jakobs- dóttir, skólastjóri, sími 97-29932. Umsóknir berist skólastjóra. Fóstra Það vantar fóstru í leikskólann okkar í Þykkvabæ. Við erum aðeins 100 km frá Reykjavík. Upplýsingar í síma 98-75613. Fax 98-75611. Oddviti Djúpárhrepps. Lögmaður - lögmannsstofa Lögmaður óskast í hlutastarf á lögmanns- stofu. Góð skilyrði til sjálfstæðrar starfsemi að hluta. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Lögmaður - 3855“. „Au pair“ - Ósló Læknafjölskylda með 3 börn óskar eftir „au pair“ frá 15. ágúst í eitt ár. Reyklaus og bílpróf skilyrði. Helst ekki yngri en 20 ára. Upplýsingar í síma 90-47-22 14 29 83 (ís- lensk stúlka á heimilinu) eða skrifið til Grete Berild, Kristianiasvingen 73, 0391 Ósló. Skólastjóri óskast Skólastjóra og kennara vantar í grunnskól- ann á Suðureyri. Ýmis hlunnindi í boði. Upplýsingar gefa formaður skólanefndar í hs. 94-6250 og skólastjóri í hs. 91-653862. Lopapeysur - umboðssala Tökum vel prjónaðar lopapeysur í umboðssölu. íslensk ull sf., Þingholtsstræti 30, (gegnt Borgarbókasafninu), sími 622116. Heilsugæslustöðin Stykkishóimi Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarforstjóri óskast! Staða hjúkrunarforstjóra heilsugæslustöðvar er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 31. júlí nk. Um er að ræða 80% stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. Upplýsingar veita Kristín Árnadóttir, hjúkrun- arforstjóri, og Róbert Jörgensen, fram- kvæmdastjóri, í síma 93-81128. Metsölublað á hvetjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.