Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 21 STJORNUHALANN Stjörnufræöingar áttu von á mikilli Ijósadýrö á himni yfir Evrópu og Noröur- Ameríku af völdum loftsteina í gær og dag er jörðin fer í gegnum braut Swift-Tuttle halastjörnunnar. Braul hala- JÉ’ Rykbelti: Sólvindar knýja stjörnu- hala ætíö frá sólu. Halinn er lengstur þegar stjarna er næst sólu og getur oröiö alll að 100 milljónir km langur. Heimild: Space Allas, Dorling Kindersley Eklglæringar á himni af völdum halastj ömu JÖRÐIN átti í nótt að fara í gegn- um loftagnaský sem Swift-Tuttle halasljarna skildi eftir sig á hringferð sinni um sólu. Stjörnu- fræðinga greindi á um áhrifin. Sumir spáðu að miklar eldglær- ingar yrðu á himni yfir Evrópu og norðanverðri Ameríku á mið- nætti er lofsteinum rigndi yfir gufuhvolfið á 210.000 kílómetra hraða á klukkustund. Aðrir sögðu að einungis yrði um lítils- háttar neistaflug að ræða þar sem jörðin færi í gegnum jaðar agnaskýsins. Von væri á meiri eldglæringum á næsta ári er braut jarðar lægi í gegnum miðju skýsins. Jörðin fer árlega inn í slóð Swift- Tuttle halastjörnunnar sem fer hring um sólu á 130 árum. Þá á sér stað svonefnt Perseifs-loft- steinaregn er ís- og grjótögnum úr halanum rignir yfir gufuhvolfið. Með nokkurra áratuga millibili get- ur orðið um miklar eldglæringar að ræða á himni, eins og flugeldum rigni yfír, þegar jörðin fer í gegnum agnaský frá halastjömum. Síðast átti slíkt sér stað í nóvember 1966 er svonefndum leonítum rigndi inn í gufuhvolfið. Venjulega eru agnirnar á stærð við sandkorn en þar sem halastjarn- an fór fram hjá jörðu sl. gamlárs- kvöíd í fyrsta sinn frá árinu 1862 hafa nýjar stóragnir á borð við tenn- isbolta bæst í slóð hennar. Þess vegna hefur verið álitið að mikil JORÐIN INN I ast af hala Swift-Tuttle í yfirstand- andi hringferð halastjörnunnar um sólu sé enn of nálægt stjömunni og geti því tæplega verið um það að ræða að þeim rigni inn í gufu- hvolf jarðar að þessu sinni. Hætt við geimskot Bandaríska geimferðastofnunin NASA hafði afráðið að senda geim- feiju á loft í byrjun ágúst en ákvað fyrir skömmu að taka enga áhættu og hætti við geimskot. Ottast var að feijan skemmdist á leið sinni í gegnum rykskýið er agnir, sem ferðast með 75 kílómetra hraða á sekúndu, skyllu á gluggum og byrð- ing hennar. Þótti ekki veijandi að senda feijuna upp við þessar að- stæður þar sem hún kostar jafn- virði 140 milljarða króna. Vegna þess hraða sem agnirnar koma á inn í segulsvið jarðar er talið að þær geti valdið miklum skaða á gervitunglum sem kunna að verða á vegi þeirra. KOIVINIR Kr. 40.000 staðgreitt VISA ARMULA 8 • SÍMAR 91-812275 & 91-685375 Ijósadýrð yrði á lofti þegar jörðin færi í gegnum agnaskýið. Reyndar halda sumir vísinda- menn því fram að agnir sem hrist- Þorskveiðar við austurströnd Kanada SPflRIÐ ÞUSUNDIR KRONA. ÖLL GÓLFEFNIÁ EINUM STAfi. DÚKAR - FLÍSAR - PARKET - TEPPI - MOTTUR - AFGANGAR. TAKIfi MÁLIN MEfi. t Bann til aldamóta? SVO kann að fara að kanadísk stjórnvöld ákveði að tveggja ára þorskveiðibann við austurströnd landsins, sem sett var í fyrra, verði framlengt til aldamóta. Rannsóknir benda til þess að þorskstofninn hafi aldrei verið í jafn mikilli lægð og nú er. Þetta kemur fram í nýjasta hefti fréttatímaritsins The Economist. Að mati vísindamanna hefur stofn- inn minnkað þrátt fyrir bannið, og telja þeir ástæðuna vera ofveiði, auk þess sé mikið af sel, sjávarhiti hafi verið undir meðallagi og selta auk- ist. Þeir hafa verið tregir til að nefna sökudólg, en smábátasjó- menn segjast ekki í vafa um að ástæðuna megi rekja til mikillar veiði úthafsskipa, sem stundi smá- fiskadráp. UMSATUR SERBA UM SARAJEVO Radovan Karadzlc, leiðtogi Bosníu-Serba, hefur lofað öllu fögru um brottflutning serbneskra hersveita frá Igman-fjalli en í gær höfðu þær sýnt á sér lítið fararsnið. Fjallið gnæfir yfir Sarajevo-borg og flugvöllinn. ins í Bosníu. Við slíkar aðstæður myndu loftárásir NATO hrekja Serba frá helstu stöðvum sínum en aðeins um stundarsakir. Verði þeim ekki fylgt eftir með aðgerðum fjöi- menns herliðs á landi, geta þær orð- ið til að kynda undir átökunum og á því munu engir hagnast meira en Serbar. Loftárásir á Belgrad? Embættismenn hjá NATO telja, að ekki dugi minna en 30.000 manna landher til að tryggja árangur af loftárásunum og það lið yrði að vera tilbúið til að beijast af sömu hörku og Serbar. Það mætti því búast við miklu mannfalli í beggja röðum. Annar kostur er að hætta að trúa þeirri lygisögu, að Serbar í Bosníu og Serbar í Serbíu séu sitt hvað. Ef hótað yrði árásum á samgöngu- mannvirki og orkuver í Belgrad og annars staðar í Serbíu gæti verið, að Slobodan Milosevic forseti teldi vænlegast að koma böndum á Bos- níu-Serba. (Heimildir: The Daily Tele- graph, Reuter). 15-50% 20-50% ?tsa\* *tsa\* 15-70% tffs aV& 15-30% 12-20% *ts aV* 20 30% *tsaV* *tst\\ 11. man. AFGANGAR MEÐ ALLT AÐ 70% AFSLÆTTI 18 mán. kredit raðgreiðslur TEPPABUÐIN SUÐURLANDSBRAUT 26 • SÍMAR 68I950 - 814850 L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.