Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 45 Yngsta kynslóðin áhugasöm Skák Margeir Pétursson GÓÐ þátttaka var á íslands- móti barnaskólasveita um helgina og komu sveitir víðs vegar að af landinu. Hóla- brekkuskóli sigraði eftir auka- keppni við Æfingaskóla Kenn- araháskóla íslands. Nemendur 1.—7. bekkjar tóku þátt á mót- inu, en um næstu helgi fer fram Islandsmót grunnskóla og keppa þar nemendur alveg frá fyrsta upp í tíunda bekk. Margar stúlkur eru nú að ná sér vel á strik í skákinni og skólaskákmót stúlkna var vel sótt. Það er bæði gömul og ný reynsla að þegar áhugasamir umsjónarmenn eru til staðar til að leiðbeina og skipuleggja skák- starf barna og unglinga, myndast strax góður hópur sem fer að tefla reglulega bæði sér til ánægju og til að taka þátt í keppnum. Það er löngu viðurkennt að taflmennska hefur góð uppeldis- leg áhrif og nýlega setti New Jersey-ríki í Bandaríkjunum lög þess efnis að skákkennsla mætti fara fram í skólum ríkisins á kostnað þess. Búist er við að fleiri ríki fylgi í kjölfarið og er þetta mikil viðurkenning því alkunna er að í Bandaríkjunum er lítill vilji fyrir að opna buddu hins opinbera nema til nauðsynleg- ustu þjóðþrifamála. íslandsmót barnaskólasveita Aukakeppni þurfti á milli Hólabrekkuskóla og Æfinga- skóla Kennaraháskóla íslands og sigruðu þeir fyrrnefndu, 5—3. I sigursveitinni voru þeir Davíð Guðnason, Guðjón Valgarðsson, sem vann allar sjö skákir sínar, Ingibjöm Ingibjörnsson, Magnús Magnússon og Valtýr Njáll Birgisson. I sveit Æfíngaskólans voru þeir Bragi Þorfinnsson, Bjarni Kolbeinsson, Héðinn Bjömsson og Magnús Björn Ólafsson. Þessi keppni hóf göngu sína 1990. Fyrstu þijú árin sigraði Æfinga- skólinn en Hólabrekkuskóli hefur nú borið sigur úr býtum tvö ár í röð. Norðurlandamót bamaskóla- sveita fer fram hér á landi í haust og er líklegt að Hólabrekkuskóli og Æfingaskólinn verði báðir með. Úrslit: 1. Hólabrekkuskóli, A sv. 23 v.+ 5 2. Æfingaskóli KHÍ, A sv. 23 v. + 3 3. Breiðagerðisskóli I8V2 v. 4. Lundarskóli, Akureyri 17 v. 5. Borgarholtsskóli, Húsavík 17 v. 6. Seljaskóli, A sv. I6V2 v. 7. Ártúnsskóli, A sv. 16 V2 v. 8. Mýrarhúsaskóli, Seltjn. 16 v. 9. Digranesskóli, Kópavogi 16 v. 10. Sandvíkurskóli, Selfossi 16 v. 11. Breiðholtsskóli 15 v. 12. Melaskóli, A sv. 14 V2 v. 13. Holtaskóli, Keflavík 14'/2 v. 14. Fossvogsskóli, A sv. 14‘A v. 15. Hvassleitisskóli 14‘/2 v. 16. Myllubakkaskóli, Keflavík 14 v. 17. Rimaskóli 14 v. 18. Hjallaskóli, Kópavogi 14 v. 19. Miðskólinn 14 v. 20. Varmárskóli, Mosfellsbæ 14 v. 21. Seljaskóli, B sveit 13'/2 v. 22. Melaskóli, B sveit 13'/2 v. 23. Grandaskóli 13'/2 v. 24. Fossvogsskóli, B sveit 13 v. 25. Kársnesskóli, Kópavogi 13 v. 26. Engidalsskóli, Hafnarf. 13 v. 27. Vesturbæjarskóli 12 Vi v. 28. Hólabrekkuskóli, B sv. 12 v. 29. Ártúnsskóli, B sv. 12 v. 30. Flataskóli, Garðabæ 11 Vi v. 31. Gerðaskóli, Garði 11 v. 32. Langholtsskóli 9 v. 33. Æfingaskóli KHÍ, B sv. 6V2 v. Ef annað er ekki tekið fram eru skólarnir úr Reykjavík. Um- hugsunartíminn var 20 mínútur á skákina. Skákstjórar voru Ólaf- ur H. Ólafsson, Ríkharður Sveinsson og Svava Bjarney Sig- bertsdóttir. íslandsmót grunnskólasveita Mótið fer fram dagana 29. apríl til 1. maí í Skákmiðstöð- inni, Faxafeni 12. Það hefst föstudaginn 29. apríl kl. 19, en á laugardag og sunnudag hefst taflið kl. 14. Þátttaka tilkynnist til Skáksambands íslands í síma 91-689141. Skólaskákmót stúlkna Skólaskákmót stúlkna, ein- staklingskeppni, fór fram laugar- daginn 16. apríl. Keppt var í tveimur aldursflokkum, fyrir 12 ára og eldri og 11 ára og yngri. 30 keppendur mættu til leiks, þrátt fyrir að sama dag færi fram hraðskákmót í Háskólabíói í til- efni af sýningu myndarinnar „Leitin að Bobby Fischer“. í bíó- inu tefldu rúmlega 200 böm og unglingar, þar af fjölmargar stúlkur. Yngri flokkur, fæddar 1982 og síðar: 1. Þorbjörg Elsa Ingólfsdóttir, Kóp., 6 v. af 7 2. Aldís Lámsdóttir, Reykjavík, 5 v. 3. Álfheiður Óladóttir, Rvk, 5 v. 4. Ingibjörg Birgisdóttir, Rvk., 5 v. 5—8. Unnur Johnes, Rvk., Rut Guðmundsdóttir, Kóp., Sigurlaug Sigurðardóttir, Kóp. og Elva B. Hermannsdóttir, Rvk., 4 v. o.s.frv. Eldri flokkur, fæddar 81-91 1. Berta Ellertsdóttir, Akranesi, 6 v. af 6 2. Anna Björg Þorgrímsdóttir, Rvk., 4 v. 3. Harpa Ingólfsdóttir 4 v. 4. Hrefna Jóhannesdóttir 4 v. 5—7. Hmnd Jörundsdóttir, Rvk., Margrét Bragadóttir, Rvk. og Katrín Þórhallsdóttir, Rvk., 3l/2 v. Kasparov tók upp leik Lánið hefur ekki leikið við Gary Kasparov frá því að hann og Nigel Short ollu klofningi innan alþjóðaskáksambandsins FIDE fyrir rúmu ári með því að tefla heimsmeistaraeinvígi sitt á eigin vegum. Kasparov vann Short að vísu örugglega, en FIDE lýsti Karpov heimsmeistara eftir að hann vann Timman í einvígi. Um áramótin tókst Kasparov og félögum hans í PCA, samtökum atvinnumanna, að ná stærsta samningi í söguskáklistarinnar við tölvufyrirtækið Intel. Á þessu ári hefur allt gengið á afturfótunum hjá Kasparov. Hann var langt á eftir Karpov á stórmótinu í Linares og á Intel- útsláttarmóti í Moskvu um helg- ina sló Kramnik hann út í fjórð- ungsúrslitum. Fleira hefur orðið Kasparov til álitshnekkis. Það þykir nú sannað með skoðun á myndbandsupptöku að hann hafi tekið upp leik gegn Júdit Polgar í Linares. Eftir 36. leik hvíts kom upp þessi staða. Bæði voru þau í tímahraki: Svart: Gary Kasparov a b c d • I gh Hvítt: Júdit Polgar Svartur á peði meira og unnið tafl, en nú tók Kasparov upp ridd- arann á d7 og setti hann á c5. Ef svartur léki 36. — Rc5? á hvítur 37. Bc6 sem snýr skákinni við. Myndbandsupptaka af skák- inni hefur ekki verið sýnt opin- berlega, en samkvæmt traustum heimildum aðila sem hafa skoðað það, þá staðfestir það þá fullyrð- ingu Júditar að Kasparov hafi sleppt riddaranum á c5-reitnum. Það varaði þó ekki nema ör- skamma stund, fjórðung eða fimmtung úr sekúndu, því Kasp- arov greip manninn aftur og lék honum til f8. Júdit tók eftir þessu og leit á dómarann, Carlos Falcon, sem sýndi engin viðbrögð og þá hélt hún áfram skákinni. Skákin var síðan tefld til enda og eftir að Júdit undirritaði skor- blaðið var orðið of seint að kæra og það kom því aldrei til neins dómaraúrskurðar. Júdit gaf þá skýringu að hún hefði ekki lagt út í deilumál á sínu fyrsta Linar- es-móti og verið hrædd um að af henni yrðu dæmdar refsimín- útur ef kæran reyndist röng. Kasparov og dómarinn héldu því báðir fram eftir á að ekkert at- hugavert hefði gerst. Lok skákarinnar urðu: 36. - Rf8 37. Re4 - R8d7 38. Rxf6n— Rxf6 39. Dxb6 — Rg4 40. Hfl - e4 41. Bd5 - e3! 42. Bb3 — De4 43. Bxc2 — Dxc2 44. Hd8 — Hxd8 45. Dxd8+ — Kh7 46. De7 — Dc4 og hvítur gafst upp. Það er auðvitað umdeilanlegt hvort atvikið segi neitt til um innræti Kasparovs, en hann á ófáa óvini og öfundarmenn og það hefur orðið tilefni nýrra árása á hann. Linares-mótið styrkti hins veg- ar stöðu Karpovs gífurlega. Þar sem hann er ekki sá eini sem gerir kröfu til heimsmeistaratitils- ins er hann yfírleitt titlaður sem „FIDE-heimsmeistarinn“. Það vekur athygli hér heima að bæði Tímaritið skák og fréttastofa rík- issjónvarpsins hafa nýlega titlað hann heimsmeistara án þess að gera nokkum fyrirvara. Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Breiðholts Nú er lokið vortvímenningi félagsins. Efst urðu eftirtalin pör: Lilja Guðnadóttir - Magnús Oddsson 759 Stefanía Sigurbjd. - Ari Már Arason 694 ÓskarÞráinsson-EinarGuðmss. 689 María Ásmd. - Steindór Ingimundars. 678 Óli Bj. Gunnarss. - Valdimar Elíasson 674 Guðm. Grétarss. - Guðm. Baldurss. 660 Næsta þriðjudag, 3. maí verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Bridsfélag kvenna SI. mánudag lauk hrað- sveitakeppninni hjá félaginu með sigri sveitar Höllu Ólafs- dóttur, en ásamt henni spiluðu Ingunn Bernburg, Guðlaugur Sveinsson, Lárus Hermanns- son og Erlendur Jónsson. Lokastaðan varð annars þessi: Sveit stig Höllu Ólafsdóttur 2517 Lovísu Jóhannsdóttur 2502 Karolínu Sveinsdóttur 2489 Sigrúnar Pétursdóttur 2477 Öldu Hansen 2443 Elínar Jóhannsdóttur 2355 Næsta keppni félagsins verður þriggja kvölda tvímenn- ingur sem jafnframt verður lokakeppni starfsársins, pör geta skráð sig í síma 32987, (Ólína), 10730 (Sigrún) og hjá B.S.Í. í síma 619360. Bridsdeild Barðstrendingafélagsins Nú er lokið Barómeter- keppni deildarinnar með sigri þeirra Þórarins Árnasonar og Gísla Víglundssonar sem skor- uðu 414 stig. Næst á eftir komu: Halldór B. Jónss. — ÓlafurJóhanness. 270 Friðj. Margeirss. - Valdimar Sveinss. 262 BirgirMagnússon-ViðarGuðmss. 144 Eðvarð Hallgrss. - Valdimar Jóhannss. 102 Bestu skor 25.4.: ÞórarinnÁmason-GísliVíglundsson 112 BjömÁmason-RúnarGunnarsson 101 Friðjón Margeirss. - V aldimar Sveinss. 80 SkarphéðinnLýðss.-Guðbj.Eiríksson 78 KristjánJóhannss.-ÁmiEyvindsson 56 Opið í kvöld frá kl. 22 Skagfirsk sveifla með Geirmundi Valtýssyni ______Sími 686220____________ n:öi 'm.il if:::ri.,.1 ,r,H . ..níjr .(ytl(|ii-i9ilJmcm5) iiu>ltonniI(>inli go muliqaJoisJ 'iú ií Deildin sendir spilurum um allt land bestu sumaróskir. Opna afmælismótið hjá Skagfirðingum Enn eru nokkur sæti laus í Opna afmælismótinu sem Skagfirðingar í Reykjavík gangast fyrir laugardaginn kemur, 30. apríl. Mótið verður með Mitchell fyrirkomulagi, tvær umferðir og hefst spilamennska kl. 11 árdegis. Spilalok verða um kl. 19.30. Verðlaun eru: 1. vl.: 40. þús. kr., 2. vl.: Ferð til Akur- eyrar, 3. vl.: Ferð til Akur- eyrar. Auk þess er spilað um silfur- stig. Spil verða tölvugefin og útskrift spila dreift að lokinni spilamennsku. Keppnisgjald er aðeins kr. 2.200 pr. spilara og innifalið frítt kaffi alit mótið. Skráð er hjá skrifstofu BSÍ (Ella), Ólafi Lárussyni s: 16538 og Hjálmari Pálssyni s: 76834. Lokað verður á skráningu 42-46 para. Spilað verður í Drangey við Stakkahlíð 17. Allt spilaáhugafólk velkomið til leiks. Vakin er sérstök at- hygli á að þetta er eitt síðasta mótið sunnan heiða næstu mánuði, þar sem silfurstig eru í boði. Keppnisstjóri er Olafur Lárusson. Bridsfélag SÁÁ 26. apríl sl. var spilaður Mitchell-tvímenningur á 10 borðum. Efstu pör urðu: N/S Gestur Pálsson — Egill H. Egilsson 256 Bjöm Bjömss. - Nicolai Þorsteinsson 250 KristinnÓskarss.-ÓskarKristinss. 241 A/V GrétarArnaz-ÞórirFlosason 241 BirgirGuðmss. - Þorsteinn Karlsson 229 Guðm.Vestmann-SiguijónHólm 223 Spilað er á þriðjudögum kl. 19.45 stundvíslega. Bridsfélag Hreyfils Vetrarstarfinu lauk mánu- daginn 25. apríl, þegar spilaðar voru lokaumferðirnar í Bord a Match-keppni félagsins. Tvær sveitir urðu jafnar að stigum og réðust úrslit af innbyrðis viðureign. VAGNHOFÐA N, REYKJAVIK, SIMI 685090 Gömlu og nýju dansarnir í kvöld frá kl. 22-3 Hljómsveitin Túnis leikur bs Miða- og borðapantanir í simum 685090 og 670051. nn i Óskar Sigurðsson 224 Birgir Kjartansson 224 Kári Siguijónsson 207 Birgir Sigurðsson 203 Stjórn félagsins vill þakka spilurum fyrir góða þátttöku og vonast til þess að sjá alla aftur að hausti. Paraklúbburinn Nú er lokið vetrarstarfi Para-klúbbsins. Úrslit í Para- sveitakeppni sem lauk sl. þriðjudag eru: Sv. Esterar Jakobsdóttur 252 Svennasveitin 232 Sv. Hjördísar Siguijónsd. 218 Sv. Erlu Siguijónsdóttir 208 Sv. Gróu Eiðsdóttur 203 Aðalfundur „Para-klúbbs- ins“ verður haldinn 7. maí í Húsi verslunarinnar kl. 19.30. Skráning er hjá Erlu Sigur- jóns, s: 642450. Við óskum öllum í Paraklúbbum gleðilegs sumars. Bridsfélag Akureyrar Nú hafa verið spilaðar 14 umferðir af 21 í Alfreðsmótinu. Staða efstu para er sem hér segir: AntonHaraldsson/PéturGuðjónsson 95 HaukurHarðarson/HaukurJónsson 88 ReynirHelgason/Sigurbj.Haraldsson 79 KristjánGuðjónsson/SveinnPálsson 77 ÁsgeirStefánss./HermannTómass. 66 BjörgvinJónsson/SigfúsHreiðarsson 44 Mótinu lýkur næsta þriðju- dagskvöld. Tíu pör spiluðu í Sunnuhlíð síðastliðið sunnudagskvöld. Sigurvegarar urðu Hans Viggó og Gissur Jónasson en í öðru til þriðja sæti komu svo Stefán Ragnarsson og Sveinbjörn Sig- urðsson annars vegar og Soffía Guðmundsdóttir og Frímann Frímannsson hins vegar. — Þorvaldur Halldórsson G unnamTryýíj vason ná upp goori sSSmmningu Þœgilegt umftverfi I - ögrandi vinningar! OPIÐ FRÁ KLUKKAN 19:00 - 03:00 , ÖibUiJ'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.