Morgunblaðið - 17.04.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.04.1996, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson HÓPUR að störfum vegna samstarfs Kjalamess- og Húnavatnsprófastsdæma 31. mars sl. á Staðaflöt í Hrútafirði. Standandi f.v.: Karl Sigurgeirsson, Örn Guðjónsson, dr. Sigurður Árni Þórðarson, Jóhann Pétur Herbertsson, sr. Bragi Friðriksson, sr. Baldur Rafn Sigurðsson og sr. Bjarni Þór Bjarnason. Sifjandi f.v.: Sr. Sigríður Óladóttir, sr. Guðni Þór Ólafsson og Björk Jóhannsdóttir. Samstarf prófasts- dæma í Húnaþingi Hvammstanga - Nú er í undirbún- ingi samstarf milli prestakalla í Kjalamess- og Húnavatnsprófasts- dæma en stefnt er að miklum sam- skiptum milli einstakra safnaða á þessu ári og því næsta. Hugmyndin kom fram hjá sr. Braga Friðriks- syni, prófasti og presti í Garðabæ og var kynnt á Héraðsfundi Húna- vatnsprófastsdæmis á liðnu hausti. Undirbúningsvinna hófst fyrri hluta vetrar og nú eru hugmyndir að taka á sig mynd. Prestaköll hafa- verið valin saman og vinna þannig saman prestaköllin á Hólmavík og í Njarðvík, á Hvammstanga og í Grindavík og loks Melstaðarpresta- kall og Bessastaða- og Brautar- holtsprestakall. Verkefnið nýtur að- stoðar frá fræðsludeild þjóðkirkj- unnar og fjárhagslegan stuðning frá Héraðssjóðum. Skipulögð eru eftir- talin verkefni. Vordagar. Dagskrá í nokkra daga, fyrir börn frá 3-4 ára aldri og allt að fermingu. Hefð er fyrir vordögunum í Kjalamessókn, en ætlunin er að kynna starfið hér nyrðra með heimsóknum og blöndun þátttakenda. Dagskráin verður syðra í 1. viku júní, e'n í 2. viku júní nyrðra. Unglingaskipti: Ungmenni frá báðum prófastdæmum heimsækja hvor aðra og vinna að verkefnum, bæði verklegum og bóklegum. Reiknað er með að í hópana bland- ist nokkur skosk ungmenni. Verk- efnið verður um miðjan júlí. Heimsóknir 'eldri borgara: Eldri borgarar að sunnan munu koma í heimsókn norður og dvelja hjá sínu samstarfssöfnuðum. Skipulögð verður dagskrá og gagnkvæm kynni. Heimsóknir kirkjukóra: I októ- berlok er síðan ráðgert að Kirkju- kórar að norðan komi í heimsókn suður og eigi helgi með kórfélögum syðra. Ollum þessum samskiptum mun ljúka með guðsþjónustu eða helgistund. A næsta ári er ákveðið að eldri borgarar að norðan heimsæki söfn- uði syðra og kirkjukórar að sunnan komi norður. Prófastarnir, sr. Bragi og sr. Guðni Þór Ólafsson á Melstað, hafa boðið hvor öðrum, með fylgdarliði, að sitja sem gestir á Héraðsfundum á þessu ári. Héraðsfundur verður haldinn á Hvammstanga 31. ágúst og í Garðabæ 28. september. Allir aðstandendur þessa sam- starfsverkefnis lýsa góðum vænt- ingum um árangursríkt samstarf og ekki veita af eftir þær þrenging- ar, sem kirkjan hefur mátt þola á liðnum mánuðum. Morgunblaðið/Árni Helgason NEMENDUR 4. bekkjar Grunnskólans í Stykkishólmi sungu lög frá Afríku og klæddu sig í samræmi við það. Árshátíð Grunn- skólans í Stykkishólmi Stykkishólmi - Árshátíð Grunn- skólans í Stykkishólmi var haldin 28.og 29. mars sl. Árshátíðin var tvískipt. Fyrst komu yngri bekkirnir fram og skemmtu fyrra kvöldið en þeir eldri seinna kvöldið. Kennararnir reyna að fá sem flesta nemendur upp á sviðið og er það greinilega auðveldara hjá þeim yngri. Eins og svo oft áður var gaman að fylgjast með yngstu nemendunum því þeir voru svo einlægir og lifðu sig inn í hlutverkin. Dagskráin var fjölbreytt. Seinna kvöldið var boðið upp á kökuhlaðborð og komu nemendur 7. og 10. bekkjar með meðlætið. Skemmtanirnar vuor mjög vel sóttar og er talið að um 500 manns hafi komið hvert kvöldið. Ágóðinn af árshátíðinni fer i ferðasjóð 10. bekkjar sem er að fara til Egtved í Danmörku í skólalok og skíða- ferðalag hjá 7. bekk sem fer í Bláfjöll. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal ÞRÖSTUR Ólafssn stjórnarformaður íslensks markaðar hf., t.v., afhendir Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra fjárframlag til uppgræðslu. T.h. er Logi Ulfarsson framkvæmdasljóri. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands Framúrskarandi fyrirtækjum veitt- ar viðurkenningar Hellu - Á aðalfundi Samtaka sunn- lenskra sveitarfélaga, sem haldinn var nýlega á Hvolsvelli, voru viður- kenningarskjöl veitt til nokkurra eftirlitsskyldra aðila, sem skarað hafa framúr á sviði heilbrigðis- og umhverfismála. Viðurkenningarnar voru veittar í tengslum við verkefn- ið ,,Hreint Suðurland“. I flokki hótela og veitingahúsa hlaut Hótel Edda á Kirkjubæjar- klaustri viðurkenningu, í flokki gistihúsa í Ferðaþjónustu bænda þau Ragnheiður Björgvinsdóttir og Hörður Kristinsson á Hunkubökk- um í Skaftárhreppi, í flokki sund- lauga hlutu viðurkenningu Sigriður Vilhjálmsdóttir og Már Sigurðsson fyrir sundlaugina hjá Geysi í Bisk- upstungum, í flokki tjaldsvæða Ólöf Benediktsdóttir fyrir tjaldsvæðið Kirkjubæ II í Skaftárhreppi, í flokki matvöruverslana matvörudeild Kaupfélags Árnesinga á Selfossi. Á sviði umhverfismála hlaut Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. viðurkenningu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands fyrir forgöngu í þróun umhverfismála á Suðurlandi. í umsögn eftirlitsins segir að áhersla sé lögð á fyrir- byggjandi mengunarvarnir, mót- taka spilliefna til förgunar og flokk- Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Rúllubaggaplast sem er urðað á Sorpstöðinni, en það verður síðar grafið upp og flutt til endanlegrar förgunar eða endurvinnslu. un á úrgangsefnum og merkingar á gámasvæðum séu til fyrirmyndar, auk góðrar þjónustu við neytendur í þessum málaflokki. Morgunblaðið/Theodór BJÖSSI smiður að leggja síðustu hönd á trébekkinn sinn við Hyrnuna í Borgarnesi. Fellur sjaldan verk úr hendi Borgarnesi - Hann slær ekki vindhöggin hann Björn Guð- mundsson, kallaður Bjössi smið- ur, þótt hann sé orðinn 85 ára gamall og fluttur í þjónustuíbúð- ir aldraðra í Borgarnesi. Hann er óþreytandi að betrumbæta umhverfi sitt. Þegar hann átti heima í gamla bænum niðri við sjó byggði hann í frístundum upp leiktækjavöll á Vesturnesi, við heimili sitt, sín- um, sem hlaut nafnið Bjössaróló og var víðfrægur enda einn sér- stæðasti leikvöllur á landinu og er hann enn við lýði. Eftir að Bjössi flutti í þjónustu- íbúðir aldraðra sem eru í fjölbýl- ishúsi norðan við Hyrnuna, fór hann fljótlega að smíða bekki og smáhýsi á stærð við dúkkuhús, þar fyrir utan. Nú hefur hann fært út kvíarnar og þegar ljós- myndari Morgunblaðsins kom að honum nýverið var hann að ljúka við smíði trébekkjar gegnt Hyrn- unni. Kvaðst hann hafa fengið leyfi hjá starfsmönnunum í áhaldahúsi bæjarins (Borgar- byggðar) til að setja bekkinn þarna upp. Kvaðst hann reyndar hafa sett hann upp fyrr um daginn en þá hefðu veðurguðirnir minnt ræki- Iega á að þeir væru lifandi svo hann hefði þurft að festa bekkinn betur þegar lægði. Sagði Bjössi að fólk þyrfti að hafa trébekki til að silja á, það væri engum bjóðandi að sitja á blikkbekkjum eða grjóthörðum steinkubböld- um. íslenskur markaður hf. Gaf milljón til að stækka Hagavatn Keflavík - „Þetta er kærkomið og jafnframt fyrsta framlagið sem veitt er til þessa verkefnis og ég vona að fleiri eigi eftir að fylgja í kjölfarið,“ sagði Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri þegar hann tók við framlagi frá íslenskum markaði hf., einni milljón, til stuðnings upp- græðslu á örfoka landsvæðum. Á aðalfundi íslensks markaðar var ákveðið að styrkja Landgræðslu ríkisins með fyrrgreindu fjárfram- lagi sem best væri varið til að stækka Hagavatn í Árnessýslu sunnan Langjökuls. Við þetta tækifæri kom fram að sérfræðingar landgræðslunnar teldu að stækkun Hagavatns væri árangursríkasta aðferðin til að hefta sandok frá auðnum sunnan Langjökuls. Þar væru einhver stærstu uppblásturssvæði landsins og vegna ágangs sandfoks frá Hagavatni hefðu tilraunir með upp- græðslu þar reynst árangurslitlar. Sveinn Runólfsson sagði að vatn- ið hefði grafið sér nýtt útfall og hefði farið ört minkandi á und- anförnum árum. Jökulleirinn á botni þess væri uppspretta mikils sandfoks og gróðureyðingar. Ætl- unin væri að stífla útfallið og hækka vatnsborðið til fyrra horfs. Hagavatn væri nú um 5 ferkíló- metrar en yrði 13 og væri áætlaður kostnaður við verkið um 25 milljón- ir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.