Morgunblaðið - 11.04.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
81. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Serbneskar hersveitir reka Kosovo-Albana að nýju til Albanfu
Hjálparstofnanir búa sig-
undir mikinn fdlksflótta
Morina, Skopje, Brussel, Dresden. Reuters.
STARFSMENN alþjóðlegra hjálp-
arstofnana í Albaníu bjuggu sig
undir mikinn fólksflótta frá Kosovo
í gær eftir að serbnesk yfirvöld
opnuðu aftur landamærin og hófu á
ný að vísa albönskum þorpsbúum
úr héraðinu. Kosovo-Albanar tóku
einnig að safnast saman við
landamærastöð í Makedóníu og
tugir þeirra fóru yfir landamærin í
gær.
Um 2.000 Kosovo-Aibanar fóru í
gærmorgun til Aibaníu um Morina,
helstu landamærastöðina á svæð-
inu, þremur dögum eftir að Serbar
höfðu lokað landamærunum og
rekið tugþúsundir flóttamanna aft-
ur til Kosovo. Aður höfðu hartnær
450.000 manns flúið til nágranna-
ríkja Serbíu og var það mesti fólks-
flótti í Evrópu frá síðari heims-
styrjöldinni.
Flóttamennimir 2.000 komu all-
ir frá bænum Vragolja, um 120 km
frá landamærunum að Albaníu.
Síðar um daginn gengu tugir
manna úr tveimur nágrannabæj-
um Vragolja til Albaníu og sögðu
að nokkrar þúsundir Kosovo-Alb-
ana væru á leiðinni að landamær-
unum.
Flóttamennimir sögðu að serb-
neskir her- og lögreglumenn hefðu
umkringt heimiii þeirra á fostu-
dagsmorgun og skipað þeim að
fara strax úr héraðinu. Lögreglan
hefði áður reynt að flæma þá í
burtu en þeir hefðu neitað að fara.
Fólkið flúði á bílum og dráttar-
vélum og kvaðst hafa séð mann-
lausa bæi á leiðinni og skriðdreka
sem komið hefði verið fyrir í rúst-
um húsa sem serbnesku öryggis-
sveitimar hafa kveikt í.
Allt að 200.000 í felum
í skógunum
Um 50 Kosovo-Albanar komust
einnig til Makedóníu í gær og sögð-
ust hafa gengið eftir jámbrautar-
teinum til að forðast jarðsprengjur
sem Serbar hafa lagt á svæðinu.
Landamærin að Makedóníu höfðu
verið mannlaus frá því á miðviku-
dagskvöld þegar Serbar skipuðu
tugþúsundum flóttamanna þar að
fara aftur til Kosovo.
A einum stað við landamærin
hvarf 30 km bílaröð skyndilega eft-
ir að landamærastöðinni var lokað.
Nokkrir flóttamenn, sem hafa
komist til Makedóníu síðustu daga,
segjast hafa séð mannlausa bíla
sem kveikt hefði verið í á
landamæravegum í Kosovo.
Talsmenn Atlantshafsbandalags-
ins og hjálparstofnana sögðu að
enn væri ekki vitað um afdrif ailt
að 200.000 Kosovo-Albana sem hef-
ur ekld tekist að flýja til nágranna-
ríkjanna. Jamie Shea, talsmaður
NATO, sagði að talið væri að um
150-200.000 Kosovo-búar héldu til
án húsaskjóls í skógum og fjalla-
hlíðum héraðsins.
fbúar Belgrad safnast saman
til að veija brýr
NATO hélt loftárásum sínum
áfram þrátt fyrir viðvaranir Borís
Jeltsíns Rússlandsforseta um að
hemaðaríhlutunin gæti leitt til
þriðju heimsstyrjaldarinnar. Þús-
undir Serba söfnuðust saman á
mikilvægum brúm í Belgrad og
fleiri borgum Serbíu í fyrrakvöld
til að koma í veg fyrir að flugvélar
NATO gætu varpað sprengjum á
þær.
Serbneskir fjölmiðlar sögðu að
fimm sprengjuárásir hefðu verið
gerðar á skotmörk í Belgrad í
fyrradag. Að sögn júgóslavnesku
fréttastofunnar Beta skemmdu
flugvélar NATO einnig sjónvarps-
endurvarpsstöð nálægt Pristina,
höfuðstað Kosovo, þannig að sjón-
varpslaust hefði orðið á stóru
svæði.
Skýjað var yfir Júgóslavíu í gær
og NATO varð því að hætta við
nokkrar árásarferðir en þó var
gerð árás á útvarpsturn nálægt
Pristina.
Rússar „bjartsýnni" á
friðarsamkomulag
Georgí Mamedov, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Rússlands, sagði eft-
ir fund með ráðherrum sjö helstu
iðnríkja heims í Þýskalandi í gær
að hann væri „bjartsýnni“ en áður
á að Serbar myndu fallast á að
hleypa hersveitum NATO inn í
Kosovo til að koma á friði í hérað-
inu.
Mamedov bætti þó við að slíkt
samkomulag myndi ekki nást nema
NATO hætti loftárásunum á Júgó-
slavíu. „Fyrsta skrefið er að binda
enda á sprengjuárásimar og fá
stjómvöld í Belgrad til að sam-
þykkja hermennina."
Mamedov sagði ekkert um hvers
vegna hann væri nú bjartsýnni á að
Serbar féllust á erlent herlið í
Kosovo, en þeir hafa ekki léð máls
á því til þessa.
Þýska tímaritið Der Spiegel
hafði í gær eftir Ibrahim Rugova,
hófsömum leiðtoga Kosovo-Albana,
að Serbar hefðu þvingað hann til
viðræðna við Slobodan Milosevic,
forseta Júgóslavíu, á dögunum.
Viðræðunum hafði verið lýst sem
tilraun af hálfu Serba til að frið-
mælast við Kosovo-Albana. Að
sögn Rugova hafa Serbar haldið
honum í stofufangelsi í Pristina og
meinað honum að fara þaðan með
fjölskyldu sinni.
Kosovo-
Albanar
vígbúast
Kukes. The Daily Telegraph.
FRELSISHER Kosovo (KCA)
hefur flutt þúsundir nýrra liðs-
manna að vígjum sínum við landa-
mæri Albaníu og Serbíu og býr sig
undir sókn gegn serbnesku her-
sveitunum í Kosovo.
Ungt fólk af báðum kynjum var
flutt frá bæjum í Albaníu að landa-
mærunum eftir að átök höfðu
blossað þar upp milli Serba og liðs-
manna KCA á fóstudag. Einn af yf-
irmönnum Frelsishersins sagði að
uppreisnarhreyfingin berðist enn í
Kosovo til að verja íbúana en þyrfti
á fleiri vopnum að halda.
Þetta eru mestu liðsflutningar
Frelsishersins frá því árásir NATO
á Júgóslavíu hófust. Þúsundir
nýrra liðsmanna hreyfingarinnar
voru fluttar frá höfuðstöðvum
hennar í Albaníu. „Þetta er fólk frá
Þýskalandi, Bretlandi og allri Evr-
ópu,“ sagði einn ungu mannanna.
„Eg þekki mann sem er Kosovo-
Albani en hefur búið í Þýskalandi
alla ævina. Hann er nú kominn
hingað til að berjast."
Serbar vara Albana
við stríði
Serbar sökuðu stjómvöld í Alb-
aníu um „árás að fyrra bragði" með
því að aðstoða Frelsisherinn við að
koma liðsmönnum hans til Kosovo.
Þeir vöruðu við því að samstarf Al-
baníustjómar og „skjólstæðinga
hennar í hryðjuverkahópunum“
gæti orðið til þess að átökin
breiddust út um Balkanskaga.
---------♦♦♦-----
Tyrkir ráð-
ast á Kúrda
Diyarbakir. Reuters.
TYRKNESKAR hersveitir hafa
drepið 44 kúrdíska skæruliða í
mikilli sókn inn á yfirráðasvæði
Kúrda í norðurhluta Iraks, að sögn
tyrkneski-a embættismanna í gær.
Atta tyrkneskir hermenn hafa
fallið í átökunum, sem hófust í
fyrrinótt. Embættismennimir
sögðu að um 5.000 hermenn tækju
þátt í árásunum, auk Cobra-þyrlna
og F-16 ormstuþotna, sem smíðað-
ar vom í Bandaríkjunum.
Fimmtán Kúrdar vom teknir til
fanga og tyrknesku hermennirnir
slógu varðhring um átakasvæðið til
að koma í veg fyrir að skæmliðarn-
ir gætu flúið til írans.
íslensk
telja
meiri réttinda á heimili
en í skóla
Zonta
býr ómæJ4
aila4
VILL HELST
ATASTÍVERK-
SMIÐJUNNI
B
HEILÖG CSföS A KROSSGÖTUM