Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 88. TBL. 87. ÁRG. Reuters Þýski Ríkis- dagurinn endurvígður ÞÝSKA þingið var formlega flutt frá Bonn til Berlínar í gær er gamla þinghúsið þar, Ríkisdagur- inn eða Reichstag, var tekið í notkun eftir endurnýjun og breytingar, sem kostuðu rúmlega 23 milljarða ísl. kr. I ræðu, sem Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, flutti við athöfnina lýsti hann yfir tilkomu nýs „Berlínarlýðveldis" og sagði, að nágrannar Þjóðverja hefðu ekk- ert að óttast þótt þýska ríkis- stjórnin væri nú aftur sest að í hinni gömlu höfuðborg keisar- anna, nasista og kommúnista. Þýskaland væri lýðræðisríki, sem Iegði áherslu á góða samvinnu við nágranna sína. ■ BerlínarlýðveIdi/28 Aldamótavandinn Herinn við öllu búinn New York. The Daily Telegraph. í HELSTU borgum í Banda- ríkjunum er verið að koma upp leynilegum stjórnstöðvum og ganga frá áætlunum um að kalla út vopnaða hermenn af ótta við, að aldamótaveiran svokallaða valdi verulegri rösk- un í samfélaginu. Er þá meðal annars átt við víðtækt raf- magnsleysi, sem hefði síðan áhrif um allt þjóðfélagið. í New York eru stjómstöðv- arnar, sem kosta næstum 900 millj. ísl. kr., næstum fullbúnar en þær geta hýst um 100 æðstu embættismenn borgarinnar. I Ohio eru stjórnstöðvarnar í neðanjarðarbyrgi og þær verða einnig neðanjarðar í Los Ang- eles. Þótt stjómvöld í Bandaríkj- unum geri ekki mikið úr vand- anum þá eru margir á öðra máli og vilja því búa sig undir það versta. Olíulampar og við- arofnar eru uppseldir á sumum svæðum og sumir era þegar farnir að viða að sér þurrmat. ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Serbar hafa smalað saman um 840.000 manns á fímm stöðum í Kosovo Búist við miklum flótta- mannastraumi næstu daga Skopje, Washington, Moskvu. Reuters. ÓTTAST er, að allt að 840.000 manns verði rekin frá Kosovo á næstu tíu dögum, en þessu fólki hafa Serbar smalað saman á nokkram stöðum í héraðinu og halda því í gíslingu með stórskota- liðsvopnum. Ekki er vitað hvað orð- ið hefur um mikinn fjölda albanskra karlmanna, á bilinu 100-600.000, en þeir hafa ekki komið með fjölskyld- um sínum tii nágrannalandanna. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í gær, að Rússar myndu ekki leyfa NATO að leggja undir sig Jú- góslavíu en virtist þó sáttfús líka og sagði, að ekki yrðu fleiri rússnesk herskip send inn í Adríahaf. Lindsey Davis, talsmaður Mat- vælahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sagði í Makedóníu í gær, að búist væri við gífurlegum flóttamanna- straumi frá Kosovo á næstu dögum. Serbar væru nú búnir að smala saman um 840.000 manns á nokkrum stöðum í héraðinu og héldu hópunum saman með stór- skotaliðshríð. Talsmaður NATO, Giuseppe Marani hershöfðingi, sýndi í gær kort þar sem fram kem- ur hvar fólkið er niður komið. Eru hóparnir fimm, frá 100.000 manns og upp í fjórðung milljónar. Ekki er vitað um 100-500.000 al- banska karlmenn í Kosovo en þeir hafa ekki skilað sér með fjölskyld- um þeiira, sem flúið hafa landið. Upplýsingar um margar fjöldagraf- ir í landinu vekja illan gran en lík- legast er talið, að Serbar hafi skilið þá flesta frá fjölskyldum sínum, í hvaða tilgangi, sem það var gert. Jeltsín harðorður Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í gær, að Rússar myndu aldrei líða, að NATO gerði Júgóslavíu að bandarísku verndarsvæði. Átti hann síðan um klukkustundarlangt síma- viðtal við Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna, og var þá öllu mild- ari. Skoraði hann á Clinton að leysa Kosovo-deiluna með því að stöðva loftárásir á Júgóslavíu og hvatti til viðræðna um víðtækt sjálfræði Kosovo innan landamæra Júg- Reuters FLÓTTAMENN frá Kosovo bíða í slagveðursrigningu eftir að fá matarskammtinn sinn. Þeir eru í borginni Kukes í norðurhluta Albanfu en nú er unnið að því að flytja fólkið til annarra hluta landsins. óslavíu. Sagði hann, að Rússai1 væru reiðubúnir að bera sáttarorð á milli og myndu ekki senda fieiri herskip að Balkanskaga. Árásir NATO í gær beindust fyrst og fremst að verksmiðjum og ok'u- hreinsunarstöðvum og geta Júgósla- var ekki lengur hreinsað neina olíu í landinu að mati sérfræðinga. Flytja þeir inn um tvo þriðju allrar hi’áolíu og er NATO nú að kanna leiðir til að stöðva olíusölu til landsins. Stjómvöld í Svartfjallalandi era nú að kanna ásakanir um, að serbneskir hermenn hafi rekið fólk af albönskum upprana, sem bjó f þremur þorpum innan landamæra Svartfjallalands, burt frá heimilum sínum. Ef rétt er þá er þetta í fyrsta sinn, sem ráðist er gegn Albönum, sem þar búa. Adnan Merovci, aðstoðarmaður hins hófsama leiðtoga Kosovo-Alb- ana, Ibrahims Rugova, kom til Makedóníu í gær með leyfi júgóslavneskra stjórnvalda og sagði við komuna, að Rugova væri fangi Serba í Pristina. Sagði hann það rangt, sem Serbar segðu, að Rug- ova hefði hvatt til, að loftárásum yrði hætt skilyrðislaust. Hann hefði þvert á móti lagt áherslu á, að Serb- ar fiyttu fyrst her sinn frá Kosovo. Sagði Merovci, að Rugova hefði ver- ið fluttur á fund Milosevic en það hefði aðeins verið gert í áróðurs- skyni og ekki verið rætt um eitt eða neitt. Talsmaður Kofi Annans, fram- kvæmdastjóra SÞ, sagði í gær að hann myndi fara til Moskvu undir mánaðarlok til að ræða Kosovo-deil- una að ósk Rússa. ■ Sjá á bls. 30, 31 og 32. Skýringar NATO á dauða óbreyttra borgara í tveimur árásum í síðustu viku Töldu að herbil- ar væru á ferð Brussel. Reuters. FRAM kom á fréttamannafundi í Brassel í gær, að hugsanlegt væri, að óbreyttir borgarar hefðu fallið í tveimur árásum NATO-flugvéla á skotmörk skammt frá Djakovica í Kosovo á miðvikudag í síðustu viku. Flugmennirnir hefðu þó talið sig vera að ráðast á hernaðarleg skotmörk og margt væri enn mjög óljóst í þessu máli. Daniel Leaf, foringi í bandaríska flughernum, sagði, að upplýsingar um þennan atburð bentu til, að í fyrri árásinni fyrir norðan Dja- kovica hefði verið um að ræða „hemaðarlegt skotmark" þar sem farartækin hefðu verið notuð við að brenna hús og allt benti til, að í seinni lestinni hefðu líka verið her- bílar. Sagði Leaf, að málið væri mjög flókið og hugsanlega fengist aldrei endanleg skýring á því. Leaf sagði, að í fyrri árásinni hefðu flugmennirnir varpað níu, 500 punda, leysistýrðum sprengj- um, annars vegar á lest, sem flug- maðurinn taldi vera herbíla, og hins vegar á farartæki, sem vora inni í garði stórrar, hálfmánalag- aðrar byggingar. Sagði hann, að sprengingarnar, sem fylgt hefðu þeirri árás, bentu til, að eldsneyti hefði verið geymt í byggingunni þótt það væri ekki vitað. I síðari árásinni, suðaustur af Djakovica, hefði verið ráðist á fremstu vagn- ana í langri lest, sem í voru meira en eitt hundrað farartæki. Sáu herbfla með sjónaukum Sagði Leaf, að flugmennimir hefðu verið vissir um, að þarna væra hervagnar á ferð, m.a. vegna þess hve þeir vora stórir og fóra hratt yfir. Auk þess hefðu þeir fengið um það upplýsingar frá AWACS-könnunarflugvélum, að skotmarkið væri hernaðarlegt. Flugmennirnir hefðu þó ekki gert aðra árás af ótta við, að óbreyttir borgarar væra einnig á ferð þama en flugmenn á A-10-vélum, sem fara hægar yfir, hefðu staðfest það með því að nota sjónauka, að her- vagnar væra í lestinni. Vegna þessa atburðar leyfðu Serbar erlendum fréttamönnum að fara til Kosovo en þó ekki fyrr en daginn eftir. Að sögn Serba féllu um 80 óbreyttir borgarar en frétta- mennirnir sáu aðeins 20 og virtust sum líkin ekki bera þess merki að hafa orðið fyi’ir sprengjum, heldur vélbyssuskothríð. Leaf nefndi einnig, að flóttafólk, sem komið væri til Albaníu, hefði sagt fulltrúum ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, að flugvélar í lágflugi hefðu ráðist á lestina en NATO-vélamar voru í 15.000 feta hæð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.