Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ DRAUMURINN SEM RÆTTIST Jón Þórarinsson tónskáld var einn þeirra manna sem hvað mest börðust fyrir stofnun Sinfóníuhljómsveitar Islands. Hann var fyrsti stjórnarformaður hljómsveitarinnar og framkvæmdastjóri hennar á árunum 1956-61.1 tilefni af fimmtíu ára afmæli Sin- fóníunnar ræddi Hrafnhildur Hagalín við Jón um sögu hljómsveitarinnar og mótun hennar í gegnum árin. Jón Þórarinsson Morgunblaðia/Golli ISLENSKA þjóðin mun vera eina sjálfstæða menningar- þjóð í heimi, sem ektó hefur á að skipa fastri symfóníuhljóm- sveit Nú er svo komið að þessu máli verður ekki lengur skotið á frest “ Þannig hefst greinargerð samin af Jóni Þórarinssyni árið 1947 sem lögð var til grundvallar frumvarpi til laga um málefni Sinfóníuhljómsveitar Is- lands og rekstrarsjóð hennar árið 1947. Jón var þá nýkominn heim úr námi frá Bandaríkjunum og þótti ástandið í íslenskum tónlistarmálum bágborið. „Ég hafði verið í námi í tónfræði og tónsmíðum í Ameríku frá 1944 til 1947 og stuttu áður en því tímabili lauk datt mér í hug að fá kennara minn, Paul Hindemith, til þess að koma og stjórna tónleikum á Islandi. Þá höfðu verið starfandi hér áhugamannahljómsveitir, Hljóm- sveit Reykjavíkur lengst af, og ég vissi að Hindemith var alvanur að fást við áhugamannasveitir og myndi hafa gaman af þessu. Hann reyndist fús til þess að koma. Ég hringdi þá heim en fékk þær fréttir að nú væri því miður engin hljómsveit starfandi í Reykjavík. Og ég verð að játa að ég fékk nú dálítið olnbogaskot við þess- ar fregnir.“ Jón sigldi heim um haustið og hóf störf á Tónlistardeild Ríkisútvarpsins. Hann segist fljót- lega eftir heimkomuna hafa verið boðinn í mat hjá Hauki Gröndal, sem var einn af tólf postulum Tónlistarfé- lagsins og mikill áhugamaður um hljómsveitarmálin. „Fyrir utan mig var þar aðeins einn gestur, Björn Jónsson kaupmaður, sem síðar varð framkvæmdastjóri Tónlistarfélags- ins. Báðir höfðu þeir spilað í þeim hljómsveitum sem hóað hafði verið saman hér og báðir voru félagar í Tónlistarfélaginu. Og tilgangur þeirra var hreinlega sá að yfirheyra mig um það hvort ég hefði einhverja afstöðu í þessu máli og hvort hægt væri að nota mig til einhvers. Ég var auðvitað fús til þess og það var þá sem ég byrjaði að semja langar og miklar greinargerðir í samráði við Pál ísólfsson sem var yfirmaður minn í útvarpinu.“ í ársbyrjun 1948 byijuðu þeir Jón og Páll á því að leita til Éysteins Jónssonar kennslumálaráðherra og færðu honum eina af greinargerðun- um sem Jón hafði sett saman. Ey- steinn sýndi málinu áhuga og fékk menntamálanefnd neðri deildar til þess að flytja frumvarp um rekstrar- sjóð hljómsveitarinnar. „Það var þá búið að breyta drögunum sem við höfðum gert töluvert mikið en frum- varpið gekk út á það að leggja sér- stakan skatt á bíómiða og sá skattur átti að renna í sjóð sem yrði notaður til þess að koma hljómsveitinni á kreik og halda henni gangandi. Við vorum svo heppnir að við komum að þessu á hárréttum tíma. Island var nýorðið lýðveldi og hægt var að segja með sanni að Islendingar væru líklega eina sjálfstæða menningar- þjóðin í heiminum sem ekki ætti sin- fóníuhljómsveit. Við bentum líka á að Þjóðleikhúsið væri nú að taka til starfa og að þar myndi verða þörf fyrir slíka hljómsveit og að í stærri löndum væru yfirleitt fjórar mis- munandi hljómsveitir starfandi, þ.e. borgarhljómsveitir, ríkishljómsveit- ir, útvarpshljómsveitir og leikhús- hljómsveitir. Vitanlega gætum við ekki hugsað til þess að hafa fjórar slíkar stofnanir starfandi í jafnlitlu landi en hins vegar ættum við að geta rekið eina með sæmilegum myndarskap. En frumvarpið náði þó ekki fram að ganga í þetta sinn.“ Jón segir margar ástæður liggja þar að baki. Málið hafi til að mynda ekki verið nógu vel undirbúið meðal þingmanna. „Þarna voru gamlir og virðulegir þingmenn sem sögðust vera búnir að lifa alla ævi án þess að leggja stórfé í svona nokkuð. Jónas frá Hriflu skrifaði til dæmis grein í Mánudagsblaðið þar sem hann sagði meðal annars að þessi strákur þarna, sem var ég, vildi ráða fjörutíu em- bættismenn til þess að syngja fyrir þjóðina! Það var augljóst að menn höfðu ekki nægilegar forsendur til þess að skilja út á hvað þetta gekk og féll nú málið niður um sinn.“ Orrahríð í útvarpsráði Haustið 1949 komst svo aftur skriður á hljómsveitarmálið. Jón Þórarinsson, tónlistarfulltrúi Rítós- útvarpsins, lagði áherslu á í útvarps- ráði fjórða október að „gangskör verði gerð að því að koma tónlistar- málum útvarpsins í betra horf‘. Jak- ob Benediktsson var formaður út- varpsráðs og var hann velvijjaður málinu en við af honum tók Olafur Jóhannesson, síðar forsætisráð- herra, en hann snerist andvígur gegn því. „Við hann átti ég hörðustu rimmu sem ég hef átt við nokkum mann því hann var einstaklega rök- fastur og fylginn sér. Við vildum að útvarpið tæki af skarið með því að taka forystu í fyrstu tilrauninni við að setja á stofn sinfóníuhljómsveit. Vissulega hafði Ólafur frambærileg rök þar sem útvarpið var í fjársvelti og það fé sem það hafði til ráðstöfun- ar í dagskrárkostnað var skorið við nögl. Við vorum auðvitað að heimta óeðlilega stóran hluta af því. En samt sem áður fór það svo að við höfðum þetta í gegn. Við Páll ísólfs- son komumst að þeirri niðurstöðu í samráði við Jónas Þorbergsson út- varpsstjóra að útvarpið yrði að láta til skarar skríða til að sanna að þetta væri hægt og sjá svo til hvort ekki fengjust opinberir styrkir í kjölfarið. Fyrsta skrefið í þessa átt var stigið seint á árinu 1949. Þá fengum við það samþykkt í útvarpsráði að ráða fjóra útlenda hljóðfæraleikara til að hægt væri að manna rétt skipaða hljóm- sveit. Það var einn flautuleikari, einn óbóleikari, einn fagottleikari og einn hornleikari og eftir harða baráttu var samþykkt að tilraunin yrði gerð í fjóra og hálfan mánuð. Hún byggðist auðvitað mikið á því að hljóðfæra- leikararnir myndu slá af sínum eðli- legu kaupkröfum í von um að hægt væri að sannfæra menn um að hljómsveitin væri bráðnauðsynleg. í öllum þessum slag í útvarpsráði var ævinlega lögð rík áhersla á það að þegar reynslutímabilinu lyki yrði út- varpið laust allra mála og allt félli í sama farveg og verið hafði ef ekki fengjust opinberir styrkir. Fyrri helming ársins 1950 var því ekki vit- að hvort nokkurt framhald yrði á starfsemi hljómsveitarinnar. Þá var það borgarstjórn Reykjavíkur með Gunnar Thoroddsen borgarstjóra i broddi fylkingar sem lagði styrk til starfseminnar og því var hægt að halda henni gangandi út árið 1950. Við þurftum sem sagt ekki að senda útlendingana til baka og gátum tekið upp þráðinn um haustið.“ Fyrstu tónleikarnir Hinn níunda mars árið 1950 voru fyrstu hljómleikar hinnar nýju Sin- fóníuhljómsveitar haldnir í Austur- bæjarbíói. Þeir þóttu takast prýðis- vel og að sögn Jóns virtust þeir ætla að hafa tilætluð áhrif því mörgum kom á óvart hvað hægt væri að gera. „Við fórum nú varlega í prógramm- gerð en eitt af þeim verkum sem leikin voru á tónleikunum var Div- ertimento eftir Haydn. Það var aðal- lega valið til þess að sýna nýju menn- ina sem við vorum með og leyfa þeim að láta ljós sitt skína. Þannig reynd- um við að leggja áherslu á mikilvægi þeirra. Opnun Þjóðleikhússins var einnig mikið tilefni en þá var í fyrsta lagi fluttur sérstakur Hátíðarforleik- ur sem Páll hafði samið og í opnunai’- sýningunni sjálfri, Nýjársnóttinni eftir Indriða G. Einarsson, var frum- samin tónlist eftir Árna Björnsson. Hljómsveitin gerði þetta kvöld því að miklu meiri viðburði en ella hefði orðið. Seinna um vorið kom svo sænska óperan hingað með Brúð- kaup Fígarós eftir Mozart og var það ein alskemmtilegasta óperusýning sem sýnd hefur verið í Reykjavík. Með þeim kom ágætur hljómsveitar- stjóri sem lagði sig t líma við að fága hljómsveitina og hefla af henni van- kanta og gekk það mjög vel. Þetta og fleira varð til þess að mörgum varð ljóst að þama væri komið nýtt afl sem ekki var hægt að leiða hjá sér.“ Styrkur kom frá borginni árið 1950 og ári síðar kom Alþingi með sitt framlag, sem þá var prósenta af skemmtanaskatti. „Síðan hefur þetta nú haldist og má segja stjórn- málamönnum til hróss að þeir hafa aldrei brugðist í því eins og vel hefði getað orðið fyrstu árin. Það sem kannski var erfiðast á þessum fyrstu árum þegar ég var stjórnarformaður og síðan framkvæmdastjóri var verðbólgan. Við gerðum áætlanir í samræmi við fjárveitingar en þegar kom að því að borga var upphæðin alltaf mitóu hærri og því vantaði iðu- lega upp á. Þetta var auðvitað svipað hjá flestum opinberum stofnunum á þessum árum.“ Allir kallaðir til Á íyrstu árum Sinfóníunnar var ekki hægt að manna hljómsveitina eingöngu með faglærðum tónlistar- mönnum. Allir sem vettlingi gátu valdið voru því kallaðir til og hljóm- sveitin var skipuð jafnt sjálflærðum sem faglærðum. Jón segir breyting- arnar miklar frá því að þetta var. „Nú eru haldin mjög ströng og stundum jafnvel sársaukafull hæfn- ispróf því faglærðu fyrsta flokks tónlistarfóltó hefur fjölgað gríðar- lega. Nú eru um áttatíu fastráðnir hljóðfæraleikarar í Sinfóníunni en á þessum fyrstu árum voru þeir ekki nema fjörutíu. I þá daga var mikill skortur á blásurum, einkum tréblás- urum. Tónlistarfélagið hafði reynt að gera átak í því að bæta úr þessu með því að styrkja þrjá menn til náms á tréblásturshljóðfæri. Þetta voru þeir Árni Bjömsson á flautu, Andrés Kol- beinsson á óbó og Egill Jónsson á klarinett. Þessir menn komu auðvit- að í góðar þarfir þegar heim kom. Flautuleikarar voru ekki aðrir til en Ámi til að byrja með nema einn mað- ur sem hafði lært af sjálfum sér í Lúðrasveitinni. Andrés Kolbeinsson var eini óbóleikarinn og fagottleikari var enginn þangað til við fengum manninn frá Þýskalandi. Reyndar höfðum við útvegað honum Jan Moravec fagott en hann var frægur fyrir að spila á hvað sem var og varð hann fagottleikari á mjög skömmum tíma.“ Hljómsveitin hafði fyrst aðsetur í Austurbæjarbíói en síðan í Þjóðleik- húsinu og upphaflega var æft í gamla útvarpssalnum í Landssímahúsinu. Það var svo af sérstökum ástæðum sem hljómsveitin missti það æfinga- húsnæði. „Þegar Aram Khatchatur- ian kom hingað til lands til að stjórna hljómsveitinni á tvennum tónleikum árið 1951 þá var svo mikið slagverk í verkunum hans að dömurnar sem unnu hjá símanum á næstu hæð fyrir neðan kvörtuðu yfir okkur. Við vor- um svo reknir þaðan út í kjölfarið. Þá leigðum við Gúttó sem stóð þar sem bflastæði þingmanna er núna. Þar var dálítill salur með pínulitlu sviði sem ekki kom okkur nú að neinu gagni. Og þar héldum við aldrei tón- leika.“ Að sögn Jóns voru haldnir margir tónleikar í Austurbæjarbíói á þessum fyrstu árum og tónleikar Tónlistarfélagsins voru haldnir þar. „Ég held að hljómsveitin hafi alls ekki hljómað verr í Austurbæjarbíói en í Háskólabíói en það varð auðvitað aðeins rýmra um hana eftir að hún flutti þó það muni nú kannski ekki nema um það bil tvö hundruð sætum í sal. Þegar Háskólabíó var byggt undir forystu dr. Alexanders Jó- hannessonar var beinlínis gert ráð fyrir því að þar yrði heimili hljóm- sveitarinnar og lagt í töluverðan kostnað þar að lútandi. En þegar menn þekkja annað betra þá finnst mönnum Háskólabíó ekki gott tón- leikahús. Nú er loksins að rætast úr húsnæðiseklu hljómsveitarinnar og búið að gefa út stórar yfirlýsingar. Ég er reyndar ekki alveg sáttur við þá stefnu sem málið hefur tekið en hef haft vit á að þegja um það því síst vildi ég tefja fyrir því að Sinfóníu- hljómsveitin fengi loksins þak yfir höfuðið. Ég fagna því að málið sé nú loksins að komast í höfn.“ Sinfóníuhljómsveit Islands Á fyrstu árum Sinfóníunnar voru þríi’ starfsmenn á skrifstofu: Fram- kvæmdastjóri í fullu starfi, ritari í hálfu starfi og skrifstofustjóri einnig í hálfu starfi. Þegar Jón tók við starfi framkvæmdastjóra tók hann á leigu tvö lítil risherbergi á Ránargötu en þar varð fljótlega of þröngt og varla hægt að halda þar stjórnarfundi. Stjómsýslan flutti því fljótlega á Skólavörðustíg 12 og þar hafði hún aðsetur til ársins 1961 þegar útvarp- ið tók hljómsveitina aftur að sér. ,Á árunum áður en ég tók við framkvæmdastjórastarfmu var hljómsveitin búin að vera undir út- varpinu í tvö ár en í lok þess tímabils munaði litlu að hún lognaðist út af. Frá haustmánuðum 1955 og fram yf- ir áramót lá hún alveg niðri. Þá vildi okkur það til happs að Friðrik Dana- konungur kom hingað í heimsókn. Þar sem hann var talinn músíkalskur maður og hafði sjálfur stundum stjórnað dönsku Tívolíhljómsveitinni þótti nauðsynlegt að endurvekja Sin- fóníuhljómsveitina. Það var gert að frumkvæði Bjama Benediktssonar, sem þá var menntamálaráðherra. Var hún þá aftur gerð að sjálfstæðri stofnun með sína sérstöku stjórn sem hét Hljómsveitarráð og var Ragnar Jónsson í Smára formaður þess. Eitt af því fyrsta sem ég gerði eftir að ég tók við framkvæmda- stjórastarfmu var að skrifa forsætis- ráðuneytinu bréf og fá leyfí til þess að hljómsveitin, sem áður var bara kölluð Sinfóníuhljómsveitin, mætti heita Sinfóníuhljómsveit íslands. Og til þess að undirstrika það að eitt- hvað væri meint með þessu var fitjað upp á þeirri nýjung að fara í ferðir út á land. Við fómm varlega af stað, flugum til Akureyrar og fómm það- an í bíl norður í Mývatnssveit. Fyrstu tónleikarnir utan Reykjavík- ur vom haldnir í Skjólbrekku í Mývatnssveit og síðan á Akureyri sama dag. Þama var troðfullt út úr dyrum og þakklátustu áheyrendur sem ég hef fyrir hitt. Á þessum fimm ámm sem ég starfaði sem fram- kvæmdastjóri var farið í langar ferð- ir út á land á hverju ári, ýmist til Vestfjarða eða Norður- og Austur- lands. Þá var ekki búið að finna út að fólk ætti að fá dagpeninga í svona ferðum heldur bara mat og einhvern stað að sofa á. Þetta var því tiltölu- lega ódýrt fyrir hljómsveitina og varð til þess að landsbyggðarmenn hættu að hnjóðyrðast út í hana. Ég man eftir því að ég hitti þingmenn sums staðar sem höfðu verið þverir í þessu máli og játuðu sig alveg sigr- aða þegar komið var í þeirra heima- þorp. Landsbyggðarfólki fannst að þetta væri til marks um að litið væri til þeirra." Á tíu ára afmæli hljómsveitarinn- ar segir Jón að hljómsveitin hafi ver- ið búin að halda tónleika á fjörutíu stöðum utan Reykjavíkur. ,A þess- um tíma vom félagsheimilin að rísa út um allt land og við höfðum því síst verri aðstöðu til að spila þar en hér í Reykjavík. Annað nýmæli varð feiki- lega vinsælt og stækkaði hóp áheyr- enda til mikilla muna en það vora konsertuppfærslur á ópemm. Við byrjuðum á því í Austurbæjarbíói með II Trovatore og tónleikarnir vom endurteknir fjómm eða fimm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.