Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 7

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 7
7 drápu þá á annan grimmlegan hátt.1) Thúlítar voru sjálfsagt íbúar Noregs eða Skandínavíu. Ur sögunum þekkjum við og ýmsa blót- siði af líku tagi, svo sem að rista blóðörn og annað þess konar. Og það er ekkert líklegra en að henda börn á spjótsoddum megi telja þar til. Halldór Hermannsson. Athugasemd um fiðlarann í ðómkirkjunni í Niðarósi- í endi greinar minnar i síðustu Árbók um íslenzku fiðluna, gat eg þess, að meðal hinna fornu, úthöggnu steinmynda í Niðaróss-dóm- kirkju væri mynd af manni, er léki með boga á strengjahljóðfæri, sem virtist vera 'líkt íslenzku fiðlunni, og kvað steinfiðlara þennan þess verðan, að honum yrði nánari gaumur gefinn. Nú í haust, 10. sept., sýndi séra Bjarni Þorsteinsson á Siglufirði mér þá velvild, að senda mér grein eftir Erik Eggen lektor, prent- aða í Aftenposten í Kristianiu 31. júlí í sumar, og er greinin um steinmynd þessa. Höf. vitnar í fiðlu-lýsingu séra Bjarna og þykir hún koma svo vel heim við steinmyndina, »að á því virðist enginn vafi geta verið, að hér sé um sama hljóðfærið að ræða« (»at der synes ingen tvil at være mulig med hensyn til identiteten«). — Hann tek- ur það fram, að margt virðist benda á, að hljóðfærið, sem sýnt er með inyndinni, sé norskt og ekki sérstaklega íslenzkt. Á þeim tím- um, sem myndin er frá (12. öld), var fiðlan forna algengt hljóðfæri í Noregi og víðar, og þótt ekki séu til myndir af henni, nema þá þessi, né glöggar lýsingar, telur hann fullvist, að hún hljóti að hafa verið þessu lík. Svipur mannsins, sem er á myndinni, þykir hon- um einkennilega norskur, helzt austnorskur eða þrænzkur. Með greininni er allskýr mynd af steinkarlinum; mér þykir hún þó ekki, né heldur ummæli höfundarins, taka af allan efa um það, hvort hér sé utn öidungis sarnskonar fiðlu að ræða og þá er hér þekkist, en meiri líkur þykja mér nú en áður til þess, að hér sé um fornan fiðlara að ræða og að fiðla karls sé harla lík íslenzku fiðl- unni. Ekki get jeg talið það ósennilegt, að fiðlari þessi sje ekki sjerstaklega íslenzkur; enda ætla jeg að fáir landar vorir hafi gerst til þess að ganga með gígju eða fara með fiðlu meðal manna í Noregi. M. Þ. *) Procopius, De bello gothico II. bók, lö. kap.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.