Tölvumál - 01.11.1987, Blaðsíða 8

Tölvumál - 01.11.1987, Blaðsíða 8
ÁLAGNINGU SÖLUSKATTS Á HUGBUNAÐ BREYTT ÚR 25% í 10% Eins og fram kom í síðasta hefti TÖLVUMÁLA hefur nefnd á vegum Skýrslutæknifélagsins starfað ötullega að þvi að spyrna gegn álagningu söluskatts á hugbúnað. Nefndina skipa: Hjörtur Hjartar frá stjórn SÍ, Lúðvik Friðriksson hjá Rafreikni h.f. og Vilhjálmur Þorsteinsson hjá fsl. forritaþróun h.f. Nefndin átti nokkra fundi með fulltrúum Fjármálaráðuneytis þar sem lögð voru fram itrekuð rökstudd mótmæli við álagningu söluskatts á hugbúnað. Þegar ljóst varð að ekki yrði hvikað frá þeirri stefnu stjórnvalda að leggja söluskatt á hugbúnað og þar að auki væri það bjargföst trú manna hjá rikisskattstjóra að "fjöldaframleiddur" hug- búnaður hafi aldrei verið undanþeginn söluskatti, hefði átt að bera 25% skatt allan timann, urðu aðilar sammála um að nefndin skyldi skila skriflegri tillögu til ráðuneytisins um hvernig söluskattsálagningu á hugbúnað yrði best háttað. Fyrir hönd Skýrslutæknifélags íslands lagði nefndin siðan fram tillögu til Fjármálaráðuneytisins. Skýrslutæknifélag íslands og Félag isl. iðnrekenda hafði i millitíðinni boðað til fundar til að kynna stöðuna i sölu- skattsmálunum og ræða áframhaldandi aðgerðir. Fundurinn var haldinn i Norræna húsinu 7. október. Hjörtur Hjartar setti fundinn. Vilhjálmur Þorsteinsson kynnti efnið og lagði fram afrit af bréfi frá Fjármálaráðu- neytinu, sem borist hafði Skýrslutæknifélaginu þennan sama dag. Bréfið, sem birtist hér á eftir er dags. 6. september og var sent öllum skattstjórum: "Ráðuneytið hefur haft til athugunar erindi hugbúnaðar- fyrirtækja innan Skýrslutæknifélags íslands varðandi reglur um innheimtu söluskatts af hugbúnaði o.fl. Erindi þetta er skrifað i framhaldi af dreifibréfi ráðuneytisins frá 9. þ.m. varðandi söluskatt af tölvum og tölvuþjónustu. í ljós hefur m.a. komið að við sölu á hugbúnaði er mjög örðugt að greina á milli þess sem telst sérhannaður hugbúnaður og þess sem telst staðlaður hugbúnaður. Af þessum sökum hefur ráðuneytið ákveðið að eftirfarandi reglur skuli gilda um söluskatt og sérstakan söluskatt af 8

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.