Vísir - 05.06.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 05.06.1963, Blaðsíða 1
„Það er indælt að starfa með Framsóknarflokknum. Hann er róttækur og góður" sagði Einar Olgeirsson á Alþingi í janúar s.l. 'OSKÖP BKu 5leuc<4CfMe okkae lopnih mmm nyja vinstristjorn Atkvæði sem greitt er Framsóknar- flokknum við þessar kosningar jafngildir atkvæði :il kommúnista. Það eru engar ýkjur. Það er staðreynd. Ef stjórnarand- staðan ber sigur af hólmi munu þeir Einar Olgeirsson og Eysteinn Jónsson mynda nýja vinstri stjóm. Það er jafn víst og dagur fylgir nóttu Lítum á hvemig tvíburasamstarf kommúnista og framsóknar hefir verið á síðustu missemm. Látum staðreyndimar tala. 1) Á Alþingi í vetur mærði Einar Olgeirsson mjög Framsóknarflokkinn og sagði í ræðulok: „Framsóknarflokkurinn er nú róttækur og góður og það er indælt að starfa með honum. All frá 1924 minn- ist ég þess ekki að svo gott hafi verið að starfa með honum“. 2) Skömmu áður en Berlínarmúrinn var reistur gisti Þórarinn Þórarinsson rit- stjóri Austur Berlín í boði Ulbrichts. í grein í Tímanum um förina sagði hann: Hér er ég meðal vina. 3) Á þingi Alþýðusambandsins 1960 gengu Framsóknarmenn í lið með komm- únistum og hindruðu með ólögum að stærsta stétt landsins, verzlunarfólk, fengi inngöngu í samtökin. 4) Eftir að Félagsdómur hafði ógilt þetta framferði hindraði Framsóknarmenn enn í samblæstri við kommúnista að verzlun- arfólk fengi frumstæðustu mannréttindi, atkvæðisrétt, á þinginu í fyrra. 5) Árið 1958 studdu Framsóknarmenn kommúnista til meirihlutavalds í ASÍ, sem þeir síðan notuðu til þess að brjóta rétt á verzlunarfólki og efla til verkfaila á næstu árum. 6) Á Alþingi 1960 sameinuðust Fram- sóknarmenn og kommúnistar um tillögu um grunnlínur landhelginnar. Nú vilja báðir flokkarnir rifta í sameiningu land- helgissamningnum frá 1960. 7) Síðast en ekki sízt stjórnuðu Fram- sóknarmenn og kommúnistar landinu í tvö ár, 1956—1958 í beztu samvinnu og eindrægni. Þá sagði Hermann: Samhent- ari stjórn hefir aldrei setið á íslandi. Þetta sýnir að Framsóknarmönnum er ekki treystandi. Þegar á ríður eiga þeir og kommún- istar eina sál. Þess vegna brýtur fylgi við Framhald á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.