Dagur - 29.07.2000, Blaðsíða 10
10 - LAUGARDAGVR 29. JÚLÍ 2000
FRÉTTIR
HLutur unglinga í hesta-
íþróttum fer vaxandi
Um 400 keppendur eru
skráðir til keppni á ís-
laudsmótínu í hesta-
íþróttum á Melgerðis-
nielum í Eyjafirði.
Hestamannafélögin á Norðurlandi
standa fyrir Islandsmóti í hestaí-
þróttum á Melgerðismelum í Eyja-
firði um helgina. I mótaskrá segir
m.a. að ekki sé auðvelt að halda ís-
landsmót í kjölfar nýliðins Lands-
móts en enginn beygur sé í Norð-
lendingum. Nauðsynlegt sé að
horfa til meiri leikgleði inn í hesta-
mótin, en ekki sé hægt að leikgleð-
in komi frá mótshöldurum eða
öðrum, hún verði að koma frá
þátttakendum sjálfum. Síðan segir
mótstjórinn, Reynir Hjartarson á
Brávöllum, m.a.: „Eg get ekki látið
hjá líða að koma með áminningu
til þeirra sem lögin skapa, þ.e. til
þeirra sem hafa sótt landsþing
undanfarin ár. Það er ófært þegar
líður að Islandsmóti hvert ár að
hringt sé ffam og aftur um allt
land til þess að spyija sérfræðinga
hvað hver Iagagrein þýði og hvern-
ig eigi að túlka hana, og fá síðan
misvísandi svör. Lögin og reglurn-
ar eiga að vera það skiljanlegar að
hver einstaklingur geti skilið án
þess að leita sér aðstoðar. Þarna er
verk að vinna“, segir Reynir Hjart-
arson.
Iþróttamennska í hestaíþróttum
er ekki mjög gamalt fyrirbrigði. Að-
almunurinn á þessu og gæðinga-
keppni er sá að í hestaíþróttum
gildir árangur parsins, þ.e. hest og
knapa, svo í einhveijum tilfellum e
það ekki endilega besti hesturinn
sem sigrar ef knapinn stendur sig
síður. Því reynir mun meira á
Rut Skúladóttir, frá hestamannafélaginu Mána í Keflavík, í keppni í tölti á Kelk frá Laufási. - mynoir: gg
knapann. í keppni í hestaíþróttum
má knapinn aðeins ríða einum
hesti í hverri grein, en í gæðinga-
keppni getur hann notað 4 til 5
hesta. í hestaíþróttum reynir
meira á knapa og hest í tækni-
keppni.
„Það eru um 400 keppendur
skráðir til þessa móts sem er nokk-
uð gott, en lakara þegar mótið fer
fram á höfuðborgarsvæðinu.
Keppt er í fimm flokkum barna og
unglinga og í tveimur flokkum
fullorðinna. Keppni barna og ungl-
inga er að verða stöðugt stærri
hluti þessa íslandsmóts í hestaí-
þróttum," segir Reynir. „Hér á
Melgerðismelum er keppt á tveim-
ur völlum sitt hvoru meginn við
hæðina og er mun meiri áhugi á
keppni bama og unglinga sem sýn-
Játvarður Ingvarsson frá hesta-
mannafélaginu Herði úr Mosfells-
bæ á jarpskjóttum Nagla frá Árbæ.
ir okkur hver þróunin er en kring-
um þá keppni virðist vera miklu
meiri spenna. Það fylgir líka böm-
unum „heilt úthald“, þ.e. foreldrar,
systkini o.fl. sem síðan sitja í
brekkunum og hvetja „sinn
mann“. I gær var íjölskylda að
keppa hér sem kom frá Þingvöll-
um. Hestur stúlkunnar heltist, en
þá lét sá fullorðni stúlkuna hafa
sinn hest og dró sig út úr keppn-
inni. Það er gaman að þessu og
sýnir okkur hvaða sess bama- og
unglingakeppnin er að öðlast. Það
var ekki síður ánægjulegt við þetta
að þarna fór einn fremsti reiðmað-
ur landsins, Tómas Ragnarsson í
Reykjavík," segir Reynir ennfrem-
ur.
Konurnar eru að verða ráðandi
sem knapar, en annars staðar en á
Islandi hefur reiðmennska fyrst og
ffemst verið kvennasport. I yngstu
flokkunum eru það stúlkurnar
sem ráða og gefa karlmönnunum
ekkert eftir í þessu fremur en
öðru. Auk tölts er keppt í fjór-
gangi, fimmgangi, fimi, hindrun-
arstökki, gæðingaskeiði, 140
metra skeiði og 250 metra skeiði.
- GG
Tvo frímerkjasöfn þau bestu
SIGUEÐUR H.
ÞORSTEINS-
SON
SKRIFAR
Dómnefndin á frímerkjasýning-
unum á Kjarvalsstöðum störfum
sínum í gær. Á sýningunni
DÍEX-2000, þar sem aðeins voru
íslensk söfn, voru veittar þrjár
gullmedalíur ásamt heiðursverð-
launum, átta stór, gyllt silfur og
þar af tvö sem einnig fengu heið-
ursverðlaun. Eitt gyllt silfur, eitt
stórt silfur og tvö silfur. Önnur
söfn í þessum hluta voru ekki
dæmd. Á sýningunni NORDJU-
NEX-2000 voru veitt sex gyllt
silfur ásamt heiðursverðlaunum,
fimm stór silfur, tólf silfur, níu
silfruð brons og ellefu brons-
medalíur. I flokknum silfur voru
veitt ein uppörvunarverðlaun og
með silfruðu bronsi voru veitt
tvenn slík verðlaun.
Hæðstu stigatölu hjá dóm-
nefndinni á DÍEX-200, fengu
þeir Heinrich Schiiling fyrir safn
sitt „Erlendir komustimplar á ís-
lenskum pósti" og Sigurður R.
Pétursson fyrir safn sitt „íslensk
bréfspjöld 1879-1920“. Þetta
voru án alls vafa tvö bestu söfn-
in á sýningunni, en auk þess
fengu þau heiðursverðlaun.
Stigafjöldi hvers um sig voru 88
af 100 mögulegum. Strax á eftir
kemur svo Þór Þorsteins með 86
stig fyrir safn sitt „Islensk gjalda-
og söfnunarmerki og stimplar".
Einnig fékk hann gull og heið-
ursverðlaun.
Stóru gylltu silfurmedalíurnar
fengu svo: Hjalti Jóhannesson
með 83 stig og heiðursverðlaun.
fyrir „Antika- og Lapidarstimpl-
ar“. Roland Daebel með 82 stig
fyrir „Póstflutningar með skip-
um, frá/til og um Island". Wern-
er Stöwahse með 82 stig og
heiðursverðlaun fyrir „Island -
Skildingar og auramerki, spor-
öskjulaga mynd“. Wolfgang Holz
með 82 stig fyrir „Island - núm-
erastimplar" og 80 stig fyrir „Is-
land, skipspóstur og komu-
stimplar. Kurt Bliese með 81 stig
fyrir „Póstbréfsefni Islands
1879-1903“. Gerhard Múller
með 80 stig fyrir „Island í seinni
heimstyrjöldinni“. Torben Jen-
sen með 80 stig fyrir „Island,
Kristján X.
Frímerkjasýningin á Kjarvalsstöð-
um hefur vakið nokkra athygli fyrir
frímerki frá Búlgaríu þar sem á
stóð „Ingibjörg 8 ára.“ í Ijós kom
að um var að ræða teikningu eftir
Ingibjörgu Davíðsdóttur frá 1982
eins og fram kom í blaðinu í gær.
Hér má sjá Ingibjörgu við opnun
sýningarinnar og frímerkið um-
rædda er á innfelldu myndinni.
einnig Jón Egilsson fyrir „Hafn-
ar(jörður“ með 65 stig.
Gyllt silfur hlaut Rúnar Þór
Stefánsson með 77 stig og heið-
ursverðlaun fyrir „Island á seinni
stríðsárunum. Stórt silfur hlaut
Werner Stöwahse með 72 stig-
um fyrir „Tveggja konunga út-
gáfan". Silfur hlaut Sveinn Ingi
Sveinsson fyrir „Islenskir núm-
erastimplar" með 68 stig og
Unglingarnir stóðu sig vel
Unglingarnir á NORDJUNEX-
2000m stóðu sig einnig með af-
brigðum vel. Sex gyilt silfur og
heiðursverðlaun fengu í næst
elsta flokki 18-19 ára. Marie
Strálfors, 83 stig fyrir „Notkun
hesta“ og Lisbeth Frandsen með
80 stig fyrir „Friðrik konungur
IX“. Einnig Tuukka Laakso, með
81 stig fyrir „Litlu hringstimpl-
arnir finsku". I næsta flokki, 16-
17 ára fengu Sofia Karlson með
80 stig fyrir „Bókahilla æsku
minnar" og Jessica Sellberg 80
stig fyrir „Sígild tónskáld". I
yngsta hópnum, allt að 15 ára,
hlaut svo Lena Paulsen 81 stig
fyrir safn sitt frá Tékkóslóvakíu.
Fimm fengu stórt silfur með 75
til 78 stig, þar af einn í yngsta
flokki. Tólf fengu silfur með 70
til 74 stig og ein uppörvunar-
verðlaun. Islandssafn Mikkel OI-
sen frá Danmörku fékk 68 stig
og silfrað brons ásamt uppörv-
unarverðlaunum.
I söfnum unglinganna er mikil
breidd ótakmarkað hugmynda-
flug, sem gerir frímerkjasöfnuna
þess virði að sinna henni.