Dagur - Tíminn Reykjavík - 29.01.1997, Blaðsíða 1
Flutningafyrirtækið Þórður Þ.
Þórðarson eða ÞÞÞ, breytti
um rekstrarform í lok árs 1994
og er í dag skráð sem einka-
hlutafélag í eigu barna Þórðar
Þórðarsonar, sem Héraðsdómur
Vesturlands dæmdi í fyrradag
til fangelsisvistar og 40 milljóna
króna sektar vegna skattsvika.
Stjórn félagsins var skipuð
þann 3. mars 1995 og er Þórð-
ur Þ. Þórðarson formaður,
Guðni Þórðarson og Ólafur
Þórðarson eru meðstjórnendur.
Framkvæmdastjóri var sem
fyrr, Þórður Þórðarson, faðir
þeirra stjórnarmanna. Pró-
kúruumboð fyrir ÞÞÞ ehf. hafa
þau Ester Teitsdóttir, eiginkona
Þórðar Þórðarsonar, Þórður
sjálfur og sonur þeirra, Þórður
Þ. Þórðarson. Endurskoðendur
fyrirtækisins eru KPMG end-
urskoðun hf. að Vegmúla 3 í
Reykjavík. Hlutafé fyrirtækisins
er skráð 400 þúsund krónur.
Talsmaður ÞÞÞ sagði í gær
að dómurinn yfir Þórði hefði til
þessa engu breytt um viðskipt-
in. -JBP
Félagsráðgjöf
Ámælisverð
viimubrögð
Stjórn stéttarfélags ís-
lenskra félagsráðgjafa tel-
ur ámæhsvert að Akureyr-
arbær skuli hafa gengið fram
hjá Kristjáni Jósteinssyni, fé-
lagsráðgjafa við ráðningu í
stöðu deildarstjóra atvinnu-
deildar bæjarins. í ályktun
stjórnarinnar segir að Kristján
hafl uppfyllt allar kröfur um
menntun, sem gerðar höfðu
verið í auglýsingu um starfið.
Eigi að síður hafi verið freklega
fram hjá honum gengið. Sá sem
ráðinn hafi verið, sé hins vegar
menntaður iðjuþjálfi og með
fullri virðingu fyrir iðjuþjálfun,
sem sé vissulega nám á há-
skólastigi, eigi hún ekkert skylt
við félagsvísindi. Stjórmn telur
ámælisvert að opinber stofnun
auglýsi eftir fólki með ákveðna
menntun, en sniðgangi það síð-
an við ráðningu.
Böm Þórðar
reka ÞÞÞ
Núverandi og fyrrverandi formenn Alþýðuflokks stinga saman nefjum, eftir að Alþingi kom saman að nýju í gær eftir jólaleyfi. Þingmenn byrjuðu að
ræða utandagskrár um álmál. Sjá bls. 6 M,nd: bg
Aiþýðubandalagið
Verulegar skuldir
og bókhaldsóreiða
Alþýðubandalagið
skuldar yfir
50 milljónir króna,
sem er mun
meira en talið var
Amiðstjórnarfundi Alþýðu-
bandalagsins um helgina
kom fram að skuldir
flokksins nema nú um 51 millj-
ón. „Ég tek við erfiðu búi,“ seg-
ir Heimir Már Péturson fram-
kvæmdastjóri. Hann segir að
mun meiri skuldir en ætlað var
hafi komið í ljós þegar árið
1995 var gert upp. Þá voru Al-
þingiskosningar og kosið til for-
manns í flokknum. Skuldir Al-
þýðubandalagsins hafi verið
taldar um 36 milljónir króna og
því sé mismunurinn talsvert
áfall. Hann segir að „bókhalds-
óreiða" hafi
að hluta vald-
ið því að ekki
var yfirsýn
yfir stöðu
mála. Ekkert
bendi þó til
óheiðarleika í
meðförum
fjár. Heimir
Már segir að
reikningar
flokksins fyrir
árið 1995
hafi verið
sendir til
endurskoð-
enda til að
koma fjármálum á hreint og
búa í haginn fyrir þá stefnu nú-
verandi formanns að bókhald
verði opið og gegnsætt. „Ætlun-
in er að 1996 verði gert upp af
löggiltum endurskoðendum,"
segir Heimir Már, og þar með
hafi Alþýðubandalagið eitt
Heimir Már Péturson framkvæmdastjóri segist taka við
erfiðu búi. Hér er hann á tali við Margréti
Frímannsdóttur og Flosa Eiríksson
stjórnmálaflokka opnað bók-
hald sitt, þótt lög krefjist þess
ekki. „Það tók tfma að vinda of-
an af þessum málum og þetta
er vissulega alvarlegt, en á
þessu ári verða miklar úrbæt-
ur“.
Eignir flokksins eru 13-15
milljónir á móti skuldum, en
Sigfúsarsjóður, sem Alþýðu-
bandalagið nýtur góðs af, á
miklar eignir til viðbótar.
Einar Karl Haraldsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins, neitar að
eiga persónulegan þátt í því
sem Heimir Már kallar bók-
haldsóreiðu. Einar Karl segir
að það hafi verið tillaga hans
við formannsskiptin að Alþýðu-
bandalagið tæki það merkilegt
skref í sögu stjórnmálaflokka
að opna sitt bókhald og láta
löggilta endurskoðendur um að
setja upp reikningana. „Hitt er
ljóst að miklu verri afkoma
Vikublaðsins, árið 1995 en gert
var ráð fyrir, spilar hér mikið
inn í. Það kom okkur mjög á
óvart hvernig Vikublaðið var
statt.“ BÞ
Bls. 3
Milljónir í póstinn
AUGLYSWGADEIDAR fR
551 6270
in