Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Blaðsíða 8
Laugardagur 16. nóvember 1996 - VIII MINNINGARGREINAR Jonas Sigurgeirsson Jónas Sigurgeirsson var fæddur að Helluvaði í Mý- vatnssveit hinn 4. desem- ber 1901. Hann lést á Sjúkra- húsi Húsavíkur hinn 18. þessa mánaðar. Foreldrar hans voru: Sigurgeir Jónsson, bóndi, Helluvaði, fæddur 21. aprfl 1876, dáinn 2. mars 1951, og Sólveig Sigurðardótt- ir, fædd 30. mars 1871, dáin 8. desember 1964. Jónas kvænt- ist 20. júh' 1929 Hólmfríði ís- feldsdóttur frá Kálfaströnd í Mývatnssveit sem fædd var 16. júlí 1907, dáin 22. ágúst 1996. Þau hjón bjuggu allan sinn bú- skap á Helluvaði og þar var heimili þeirra til dauðadags. Börn þeirra eru: 1) Þórhild- ur Arnfríður, fædd 1. júní 1930. Maður hennar: Guð- mundur Kristinn Gunnarsson, fæddur 30 ágúst 1930 og eru þau búsett á Akureyri. Dætur þeirra: Kristín Hólmfríður, fædd 21. september 1954 og Elín Gunnhildur, fædd 21. nóv- ember 1959. 2) Elín Inga, fædd 29. október 1934. Maður hennar Jón Aðalsteinn Jóns- son, fæddur 9. janúar 1925 og er heimili þeirra að Laugum í Suður-Þingejjarsýslu. Synir þeirra: Hinrik Már, fæddur 29. nóvember 1967 og Friðrik Þór, fæddur 4. nóvember 1972. Dóttir Elínar Ingu með Reyni Jónassyni: Bryndís Arna Reynisdóttir, fædd 19 septem- ber 1961. 3) Sólveig Guðrún, fædd 2. júní 1938. Maður hennar: Þor- kell Pétursson, fæddur 17. maí 1936, dáinn 20. maí 1996. Heimili þeirra hefur verið á Húsavík í rúma tvo áratugi. Börn þeirra: Hólmfríður, fædd 1. júh' 1958, Regína, fædd 16. september 1959 og Jónas, fæddur 28. október 1961. 4) Sigurgeir Jónasson, fæddur 22. október 1946, heima á Helluvaði. 5) Ingólfur ísfeld, fæddur 3. aprfl 1948. Eigin- kona hans Anna Dóra Snæ- björnsdóttir, fædd 3. október 1952 og búa þau á Helluvaði. Börn þeirra. Brynja, fædd 3. maí 1970, Snæbjörn Ingi, fæddur 7. apríl 1974, Halldór, fæddur 17. júlí 1978, Sólveig, fædd 28. janúar 1985 og Jónas Þór, fæddur 9. júní 1987. Útför hans verður gerð í dag, 26. október, kl 14 frá Skútu- staðakirkju. Hverjum manni, sem lifir langa ævi og býr til hinsta dags á ætt- arleifð sinni og fæðingarstað, hlýtur að vera það mikill ham- ingjuauki að lifa í sátt við sam- ferðamenn sína og umhveríl. Þegar ég vil minnast tengdaföð- ur míns með nokkrum orðum og lít yfir æviferil hans, finnst mér þetta vera eitt af því sem honum hlotnaðist flestum mönnum fremur. Eins og fram kemur hér að ofan var hann fæddur Mývetningur og forfeð- ur hans og mæður í næstu ætt- liði ólu þar einnig aldur sinn. Hlutskipti hans varð einnig að að eyða ævi sinni í Mývatns- sveit, búa þar búi sínu og taka jafnframt virkan þátt í fjöl- breyttu félags- og menningarlífi sem í meira en heila öld hefur verið aðalsmerki sveitarinnar. Hann varð þriðji ættliðurinn sem sat jörðina Helluvað, á undan honum faðir hans Sigur- geir, en hann tók við af sínum föður, Jóni Hinrikssyni, skáldi. og nafnkunnum manni. Ilann kom á barnsaldri í Mývatns- sveit, byggði upp nýbýli, Stöng, á heiðinni vestan sveitarinnar þar sem enn er búið góðu búi, var þríkvæntur en missti tvær fyrri konur sínar. Á miðjum aldri gafst honum kostur á að búa að Hólum í Eyjafirði en undi ekki þrengslum Eyjafjarð- ardalsins, kaus heldur víðáttur Mývatnssveitar og heiðanna og öræfanna umhverfis hana. Þá flutti hann að Helluvaði 1878 og átti þar heima til dánardæg- urs 1921. Afkomendur hans mynda stóran ættboga og eru þar á meðal þjóðkunnir ein- staklingar. Sem dæmi þar um má nefna þá bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni, Helgu Jóns- dóttur, stjórnarformann Lands- virkjunar og Jón Stefánsson, organista Langholtssafnaðar. Mörgum þessara ættmenna er gefinn áhugi á söng og tónlist og hæfileikar á því sviði auk þess er fólk þar margt vel íþróttum búið. Þótt Helluvað sé í alfaraleið með hringveginn við túnfótinn, er jörðin í raun heiðarbýli þar sem land hennar liggur allt á Mývatnsheiði. Segja má að lýs- ing hennar komi fram í stuttu máli í þessum orðum úr Jarða- bók Árna og Páls: “Engjar öngvar, nema nokkuð litlar í sömu hólmum í Laxá, sem hún spillir með landbroti og sands- áburði. Úthagarnir góðir og miklir.” Áður en ræktun á nú- tímavísu kom til sögunnar var heyskapur torsóttur og sein- tekinn. í vorharðindum varð því oft tvísýn barátta að bjarga bústofni heimilisins. í tímarit- inu “Heima er best,” júmhefti 1987, er viðtal við Jónas þar sem hann lýsir því greinargóð- an hátt hvernig slflct gekk til á nafntoguðu harðindavori 1916. í síðasta samtalinu sem við hjónin áttum við hann á sjúkra- húsinu, nokkrum dögum fyrir andlát hans, lýsti hann því glögglega hvernig hann, dreng- urinn 9 ára að aldri, lagði föð- ur sínum lið við samskonar að- stæður á hörðu vori 1910. Mér finnst atvikið glöggt dæmi þess hversu hann hélt skírri hugsun og traustu minni til hins síðasta og um þá lífsbaráttu sem hann ólst upp við. í áðurnefndu tíma- ritsviðtali kemur fram að þeir erfiðleikar sem lýst hefur verið hafi orðið honum hvatning til að búa sig undir að rækta tún og tryggja heyöflun með því að fara til náms á Bændaskólanum á Hvanneyri. Þar var hann tvo vetur, 1920 - 1921 og 1921 - 1922. Samgöngur voru þá með þeim hætti að haustið 1920 fór hann gangandi frá Akureyri til Hvanneyrar og vorið eftir heim með sama hætti og þeim útúr- dúr að koma við á Hólum í Hjaltadal. Skólastjóri var þá Halldór Vilhjálmsson og hann minntist hans sem mikilhæfs stjórnanda er var fullur áhuga að nemendur hefðu sem mest út úr skólavist sinni. Sagt er að á námstíma Jónasar að Hvann- eyri hafi danskur maður komið þar að leikfimikennslu. Honum hafi þótt hæfileikar Jónasar á því sviði svo ótvíræðir að hann bóndi, Helluvaði hafi stungið upp á því að hann færi til Danmerkur í nám sem íþróttakennari. Ekki varð af því, Jónas fylgdi eftir þeirri fyr- irætlan að búa sig undir bónda- starf í heimasveit sinni. Þar tóku við ýmis verkefni sem auð- veldara var sinna fyrir þann sem óbundinn var af búi og börnum. Má þar til nefna fjár- geymslu á Austurfjöllum. Þangað tíðkaðist að reka geldfé að vorlagi, jafnvel um mánað- armót mars-apríl, til að létta á fóðrum heima fyrir og losa hús- pláss til nota á sauðburði. Féð nýtti sér nýgræðing sem kom snemma upp í mellöndum eða uppgrónum hraunum. Nauð- synlegt var talið að gæslumenn fylgdu hjörðunum því hætta var á að kindur færust í krapablám og hópnum varð að halda til haga á ákveðnum svæðum. Annað verkefni voru eftirleitir síðla hausts um hina víðáttu- miklu afrétti Mývetninga, eink- um Austurfjöll. Jónas valdist til þeirra starfa sem ungur maður, léttfær til gangs og þá þegar kunnugur leitarsvæðunum þar sem hann fór í sínar fyrstu göngin sem drengur innan við fermingu. Útbúnaður þessara manna, sem lögðu að baki leið- ir er mældust jafnvel í hund- ruðum kílómetra, mundi nú þykja harla frumstæður og að- stæður aðrar sem þeim voru búnar. Þannig áttu Jónas og fé- lagi hans sér eitt sinn náttstað í Eyvindarkofa í Herðubreiðar- lindum. Ferðamenn, sem nú skoða hreysið og heyra um þetta tilvik, trúa því vart að tveir fullvaxnir menn hafi getað komið sér þar fyrir. Enn skaf nefnt að Jónas stundaði plægingar í sveitinni, ferðaðist milli bæja með hesta og plóg og braut land fyrir bændur. Slíkt var algengur háttur á að þoka áleiðis ræktun túna áður en vélvæðing seinni tíma kom til sögunnar. Hinn 20. júlí 1929 gekk hann að eiga Hólmfríði ísfeldsdóttur sem var elst fjögurra barna hjónanna ísfelds Einarssonar, bónda á Kálfaströnd í Mývatns- sveit og Elínar Helgu Halldórs- dóttur, konu hans. Útlit var fyr- ir að ungu hjónin mundu leita sér búsetu utan sveitarinnar en Sigurgeir, faðir Jónasar, gekkst fyrir því að þau fengu hluta Helluvaðs til ábúðar. Þar varð síðan heimili þeirra til æviloka og stóð það eins og hjónaband þeirra í 67 ár. 1930 var ráðist í tvær stórar framkvæmdir, byggt steinsteypt íbúðarhús og heim- ilisrafstöð við ána sem streymir í túnfætinum. Að því stóðu auk ungu hjónanna, systkini Jónas- ar og foreldrar hans. Húsið sem enn stendur, orðið gamalt og lúið, þætti enn í dag rúm- gott fyrir eina fjölskyldu. Ekki var þó svo að þau hjónin og börn þeirra væru einu íbúarn- ir. Þar var einnig um áratuga- skeið heimili Sigríðar, systur Jónasar, og Gísla Árnasonar, eiginmanns hennar og fjögurra barna þeirra. Þau Gísli og Sig- ríður eru nú bæði látin en voru á sínum hluta jarðarinnar til æviloka sambýlisfólk Jónasar og Hólmfríðar. Gömlu hjónin, Sigurgeir og Sólveig áttu þar samastað uns yfir lauk og með þeim hélt heimili Guðrún, elsta dóttir þeirra. Þriðja systirin, Anna, og eiginmaður hennar, Þórður Friðbjarnarson húsa- smiður, áttu þar einnig heimili í nokkur ár um og fyrir 1940. Enn skal nefnt að Árni, sonur Gísla og Sigríðar, og eiginkona hans, ída Þorgeirsdóttir, bjuggu þar árin 1950 - 1954. Þröng- býli þætti þetta nú á dögum en hefur án efa stuðlað að sterkum fjölskyldutengslum og sam- kennd sem áberandi er meðal afkomenda þeirra Jónasar og Hólmfríðar. Helluvað mun aldrei hafa talist til góðbýla í Mývatnssveit og meðan ræktun og véltækni nútímans var ekki komin til sögunnar útheimti það ómælt erfiði að sjá þar tveimur eða þremur fjölskyldum farborða. Sérstaklega var heyskapur tímafrekur og erfiður þar sem sækja varð á dreifða sfægju- bletti víðsvegar um heiðina í landi jarðarinnar. í samræmi við það sem segir hér fyrr í sambandi við skólavist Jónasar á Hvanneyri sá hann mætavel þá möguleika er ný véltækni færði bændum landsins við styrjaldarlok. Þegar árið 1946 keypti hann heimilisdráttarvél, fvrstur bænda í Mývatnssveit. Á sama tíma tóku bændur þar í sveit og Reykjadal höndum saman á Ræktunarsambandinu Smára. í slóð jarðvinnslutækja þess breiddust ný tún bænda út yfir mýrar og móa á næstu árum. Átti það ekki hvað síst við á Helluvaði enda ræktunar- skilyrði góð í þurru mólendi heiðarinnar. Árangurinn varð sá að í áðurnefndu tímaritsvið- tali tekur Jónas svo til orða að hið eina sem hann geti montað sig af sé að verða fyrstur bænda í Mývatnssveit til að taka allan heyskap af ræktuðu landi. Hvað heyöflun varðar lá hans hlutur heldur ekki eftir að hagnýta þær tækninýjungar sem fram komu. Nú á síðustu árum þegar kúabú er fyrir löngu aflagt og kvóti hefur skert fjárstofn má segja að við hagstæð skilyrði taki heyskapur ekki mikið fleiri daga en mánuði áður með gömlu lagi. Annar þáttur búskaparins sem færði þeim hjónum stundir erfiðis og andvöku var umönn- un lambfjár á sauðburði. Kom þar til bæði hin þingeyska hefð að láta fé bera á húsi og fylgjast með því dag og nótt og að auki sú staðreynd að Sigurgeir, faðir Jónasar var einn kunnasti ljár- ræktarmaður landsins. Hafði hann frá ungum aldri stundað kynbætur á fjárstofni sínum og Jónas hélt því starfi ótrauður áfram. Slíkur kynbættur íjár- stofn er vafalítið viðkvæmari fyrir því ef eitthvað fer úrskeið- is við burð ánna og grundvöllur kynbótastarfs er að skrásett séu foreldri hvers einstaklings í hjörðinni. Hlutur Hólmfríðar í þessu efni var ekki öllu minni því að sérgrein hennar var að liðsinna þeim ám sem áttu í erfiðleikum með burð. Fyrir slíkan íjárræktarmann sem Jónas var það áreiðanlega erf- ið lífsreynsla þegar hann, kom- inn yfir áttrætt, varð að sæta niðurskurði á bústofninum vegna riðuveiki. Því áfalli tók hann með þeirri karlmennsku og rósemi sem honum var lag- in. Jónas sóttist ekki eftir veg- tyllum eða trúnaðarstörfum en engu að síður komu nokkur í hans hlut. í samræmi við það sem áður segir, kom nær af sjálfu sér að hann var um ára- tuga skeið formaður Fjárrækt- arfélags Mývatnssveitar. Rót- gróinn áhugi margra mý- vetnskra bænda á þessu sviði sá til þess að starfi því fylgdu nokkur umsvif. Mest mæddi þó á honum þegar fram fóru fjár- skipti í sveitinni allri vegna mæðiveiki 1945. Þá voru ekki allir bændur sáttir við að sjá á eftir bústofni súium á blóðvöll- inn. Sigurgeir, faðir hans, var um langan aldur formaður sóknar- nefndar Skútustaðakirkju og kom nær af sjálfu sér að emb- ættið gekk í arf til sonarins. Fyrr en það varð hafði hann tekið við reikningshaldi kirkj- unnar og sinnti hann hvoru tveggja fram á elhár. Fyrst rætt er um Skútustaðakirkju verður að geta þátttöku hans í kirkjukór hennar. Þar söng hann í 70 ár, seinast þá jólum 1987 við skírn sonarsonar og nafna. Enn er ótalið það sem senni- lega var umsvifamest af slíkum aukastörfum hans, að annast rekstur Sparisjóðs Mývetninga í 35 ár. Sjóðurinn var stofnaður 1945 og þótt annar maður muni hafa átt hugmyndina að því var Jónasi þegar í upphafi falin stjórn hans, umsjón með útlánum og reikningshald. Af- greiðsla var á heimili þeirra hjóna og kom þá af sjálfu sér að margir áttu erindi í Helluvað. Ekki var það helst á þeim tíma dags sem nú er afgreiðslutími peningastofnana heldur um kvöld og helgar. Sérstaklega er börnum þeirra hjóna það minn- isstætt hve gamlaársdagur gat verið ónæðissamur því að margir þurftu að ganga frá sín- um málum um áramót. Bættist ös sú ofan á annríki bóndans í fjárhúsum vegna yfirstandandi fengitíðar. Húsmóðirin fór ekki heldur varhluta af hinni dag- legu gestakomu því að sjálfsagt þótti að bjóða sérhverjum góð- gerðir og setjast niður með þeim sem þiggja vildu. Einn þáttur í fari Jónasar sem skylt er að minnast var hjálpsemi hans við þá sveitunga sína sem af einhverjum ástæð- um áttu í erfiðleikum með hey- skap. Efalaust hefur hann átt auðvelt með að setja sig í spor þeirra er horfðu fram á vetur með skertan lieyfeng og að öðr-

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.