Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER1982. 11 Menning Menning Menning íleit að...? Bragi Ásgeirsson opnaði mál- verkasýningu 25. september að Kjar- valsstöðum og sýnir þar 88 mynd- verk. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22. Síðasti sýningardagur er 10. okt. Sérstæður listamaður Bragi Ásgeirsson hefur um langt árabil haft nokkra sérstöðu í íslensku málverki. Hann hefur ekki aðeins í listsköpun sinni notað hefðbundna tækni heldur í ljósi nýrra möguleika sett inn á myndflötinn ólika hvers- dagslega hluti sem hann hefur gjarn- an fundið, og eru skráðir ákveðinni reynslu og flokkast að öllum jafnaði undir drasl. Listamaðurinn notaði síðan þessa hluti til að byggja upp persónuleg, táknfræðileg kerfi. I þessum myndum kom einnig fram fádæma þekking á ólíkum efnum og tækni sem undirstrikað hafa hans persónulegastíl. / tvennt Listamaöurinn sýnir nú 88 ný myndverk að Kjarvalsstöðum. Það fyrsta sem maöur tekur eftir hér á sýningunni er hve hún er sundurslit- in og verkin innbyrðis ólik. En með nokkurri einföldun getum viö þó sagt að sýningin skiptist í tvennt: abstraction og fígúratífar myndir. Það er þó ekki aö undra því listamað- Á stríðudanslnn (Tango Jalousio), 1981-82. urinn hefur oft þrætt einstigið milli þessara vegg ja myndmála. Abstraktmyndimar hér á sýningunni bera þó fyrst og fremst vott um ákveðna leit og efnisrann- sóknir hjá listamanninum. Vart getum við talað hér um neinar at- hyglisverðar niðurstöður; þó er víst að „slettimyndimar” gefa til kynna ákveðna möguleika (sérstaklega hvað varðar efni tré og sement?) sem gaman væri að sjá í stærri hlut- föllum og ítarlegri úrvinnslu. Myndlist Gunnar B. Kvaran fígúrur En fígúrumyndirnar aftur á móti vitna umfram allt um listræna reynslu og þekkingu. Hér teiknar Bragi konur og fugla þar sem ná- kvæm og skýr línan er sem andsvar við hrjúfu yfirborði flatarins. Það er sem hin tæra lína magni upp efnis- kennd myndarinnar og þessi hrjúfi Fuglinn ífjömnni, 1981—82. Ljóam. GBK. flötur ali af sér hina hreinu línu. Þessar myndir sýna vel hvernig listaverk njóta reynslu fyrri verka. En þýöir það þá að listamaöurinn eigi auðvelt með að skapa og fram- kvæma þessi verk? I raun fær áhorf- andinn það á tilfinninguna þegar hann skoðar sýningu Braga að myndirnar séu unnar átakalaust. Það virðist sem ekki sé tekist á við að umbreyta eða þvinga áfram mynd- málið. Eða er það nægilegt að setja aðeins fígúrur inn í ákveðið kerfi sem listamaðurinn hefur skapað? Það er því sem figúrurnar skorti ákveðna umfjöllun eða úrvinnslu svo þær verði ekki eingöngu söguleg endurtekning eða laglegt handbragð. Myndimar bera ekki í sér þá sköp- unar- og endumýjunargleði sem við finnum oft í eldri „samhrúgunar- myndum” listamannsins. Hér eru það frekar ljóðrænar stemmningar sem hafa tekið við af hinu djúpa hversdagslega táknmáli. En biöum við, látum okkur sjá, því Bragi er eflaust einn af hæfileika- meiri listamönnum hériendis, eins og kemur skemmtilega fram, þegar hann afslappað dregur upp og litar verkið „Ástríðudans (Tango Jalou- sie)”!! GBK Hverfisteinar Rafdrifnir hverfisteinar 220 volt. Steinninn snýst 120 snúninga á mín. í báðar áttir. Verðkr. 1.728, — m/söluskatti. Sendum hvert á land sem er. Máð % SBSf BE B g | . / ™ isr ss m ' 7r VÉLAVERSLUN / Ármúli 8-105 Reykjavik - Simi 8-5840. VÖRUFLUTNINGA ÞJÓNUSTA FYRIR ÖLL BYGGÐARLÖG Á SUÐUR- NESJUM hefur flutt þjónustu sína á Vöruflutninga- miðstöðina Borgartúni 21, Reykjavík. Sími 10440. Tekið á móti pöntunum í síma 92-7071 og 92-7202. Nú er tækifæríð að eignast nýjan bíi á mjög hagstæðum greiðslukjörum FIAT125 P er búin flestum þeim þægindum sem miklu dýrari bílar státaaf, við bendum á vandaða innróttingu, tvöfait hemiakerfi. Halogen Ijós, rafknúna rúðusprautu, upphitaða afturrúðu og svo mætti lengi telja. FÍA T125 Per mikill bill á ótrúlega hagstœðu verði. AÐEINS KR. 99.800.- Þú færð mikið fyrir peningana og FÍA T þjónustu í kaupbæti. Getum tekið notaða bila upp ínýja. Verð án ryðvarnar miðað við gengi 1/10 '82. OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-16 OPIÐ SUNNUDAG KL. 13-16. FÍAT 127 SPECIAL FÍ AT — PANDA-bíllinn, seldibill Evrópu mörg undanfarin ár og ekkiað ástœðulausu. Við höfum ekki annað eftírspum tíl þessa, enda hefur þessi sárstaki bill eitt mesta endursöluverð hér á íslandi. hlú á verði ,sem onginn getur staðist, aðains KR. 109.500.- sem er öðruvísi, með sérstaklega frumlega innréttíngu tíl fjölbreyttra nota t.d. sæti fyrir S fullorðna eða svefnpláss fyrir tvo og má líka breyta í sendiferðabil feða aftursætinu i bamarúm). Þú ert ekki i vanda á FÍATPANDA. VERÐ AÐEINS KR. 109.500.- F I ÍAlTl Egill Vilhjálmsson hf. Smiójuvegi 4 Kóp. Simi 77200 Sími 77720

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.