Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1985, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIЗVISIR 120. TBL. - 75. og 11. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. MAÍ1985. Albert Guðmundsson f jármálaráðherra: ÞORSTEINN BREGST STEFNU FLOKKSINS „Eg llt svo á að formaðurinn hafi brugðist stefnu flokksins ef hann ætl- ar að bera fram frumvöip um eigna- skatt og skylduspamað,” sagði Al- bert Guðmundsson fjármálaráö- herra við DV í morgun. ef hann ber f ram f rumvörp um eignaskatt og skylduspamað Hann var einnig spurður að því hvort hann myndi sætta sig viö það að aðrir úr stjórnarliðinu myndu bera fram frumvörp um skyldu- spamað og eignaskatt í sambandi við lausn húsnæðismála. Þorsteinn Pálsson segir að ef Albert vilji ekki gera þaö þá muni bara einhver annar gera það.” Eg vil ekkert um þetta segja meira. Eg ætla ekki aö ræða við formann Sjálfstæöisflokks- ins í gegnum blöðin. Eg ætla fyrst aö heyra hann sjálfan segja mér þetta,” sagðiAlbert. Albert var spurður að því hvort sjá einnig bls. 3 og baksíðu hann liti ekki á það sem vantraust ef svo færi að frumvörp af þessu tagi yrðu borin fram af öðrum en fjár- málaráðherra. Um það vildi Albert ekki heldur tjá sig að svo stöddu. APH. Harmleikurinn íBrussel: 41 maður stunginn inn til dauða Að minnsta kosti 41 maöur fórst og 350 særðust í blóðbaöinu í Brussel sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur horfðu á í beinni útsendingu í gærkvöldi. Eitt líkanna að minnsta kosti hafði merki eftir hnífstungu. Fréttaritari DV í Belgíu segir að líkum hafi verið hrúgað upp fyrir utan leikvanginn áður en ákveðiö hafi verið að láta Juventus og Liverpool leika þennan úrslitaieik í Evrópubikarkeppni félagsliða. „Maður settist fyrir framan sjónvarpið til að horfa á skemmtilega knattspymu og varð vitni að blóð- baöi,” sagði Ellert B. Schram, vara- forseti Knattspymusambands Evrópu. „Það verður einhver dreginn til ábyrgðar fyrir þetta, hvort sem það verða félögin eða áhangendur lið- anna.” Blóðbaöið varð þegar breskir stuöningsmenn Liverpool þrýstusér í gegnum múrvegg yfir í stæði áhang- enda Juventus. Margir dóu þegar þeir urðu undir múrveggnum aörir voru kramdir undir fótum múgsins, og stungusár fundust á einu líkanna. -ÞóG. —sjáeinnigbls.8 ogíþróttasíður Harmleikurinn í Brussel: fjöldi Uka í stcedum knattspyrnu- vallarins. Fjörutíu og einn madur lét lífid. Símamynd í morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.