Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 19
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
19
Menning___________Menning__________Menning Menning
Ekki segi ég að sýningin „Reykja-
vík i myndlist" sé versta listsýning
sem haldin hefur verið að Kjarvals-
stöðum. En hún er með þeim verri,
svo mikið er víst.
Enda varla nema von þegar farið
er af stað ón nauðsynlegrar fyrir-
hyggju. I auglýsingu var öllum
starfandi listamönnum boðið að
senda inn „Reykjavíkurmyndir", ón
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
frekari forskriftar eða skýringar ó
því hvað ótt væri við. Þannig var
listamönnum í lófa lagið að senda
inn eldrauðar afstraktmyndir undir
nafninu „Sólarlag við Ástarbraut"
eða eitthvað í þó veru. Sem þeir og
gerðu, eins og sýningin er til vitnis
um.
Sá vitnisburður bendir einnig til
þess að þegar til kastanna kom hafi
dómnefndin ekki heldur gert upp við
sig hvers konar sýningu hún vildi
setja saman. Því vita áhorfendur
ekki heldur hvers konar sýningu
þeir eru að horfa á.
Öllu ægir saman
Þama ægir sem sagt öllu saman,
myndum af gömlum húsum (Ágúst
Petersen, Ámi Elfar, Einar Gari-
baldi, Ingveldur Gísladóttir, Jón
Ágústsson, Tryggvi Ámason, Öm
Þór), myndir af náttúm umhverfis
höfúðborgina (Elín Magnúsdóttir,
Guðrún Tryggvadóttir, Jóhannes
Geir, Jömndur Pálsson, Kristín Þor-
kelsdóttir o.fl.), einhvers konar
atvinnulífsmyndir, sem tengjast
Reykjavík misjafhlega vel (Eggert
Magnússon, Sigurður Þórir Sigurðs-
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:....91-31815/686915
AKUREYRI:......96-21715/23515
BORGARNES:............93-7618
BLÖNDUÓS:........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:........96-71489
HÚSAVÍK:.......96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:..........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:. 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI:.......97-8303
interRerrt
í reiðileysi
son), og loks er þama fjöldi verka
sem em afskaplega laustengd við
Reykjavík, svo ekki sé meira sagt,
t.d. „Hús málara" eftir Daða Guð-
bjömsson, fólksmyndir eftir Einar
Hákonarson, ljóðrænt konseptverk
eftir Gylfa Gíslason, heilmikið
skúlptúrferlíki eftir Helga Gíslason,
„borgarendur“ eftir Margréti Jóns-
dóttur, andlit eftir Sigrúnu Gísla-
dóttur og rekaviðarskúlptúrar eftir
Sæmund Valdimarsson. Er þá ýmis-
legt sérkennilegt enn ótalið.
Slagsíða
í þessu kraðaki öllu leynast að
vísu nokkur ágæt verk, sjá til dæm-
is dimmóskul'egar landslagsmyndir
Elínar Magnúsdóttur, hressilega
málaðar tjaldamyndir Erlu B. Axels-
dóttur og nokkurra ára gömul
málverk Jóhannesar Geirs, en um-
rædd verk em þama í algjöru reiði-
leysi.
Vissulega var fiill ástæða til að
efha til veglegrar sýningar á Reykja-
víkurmyndum íslenskra listamanna
á sjálfu afmælisárinu en þá hefði
þurft að búa stórum betur um hnút-
ana en hér hefur verið gert.
Mestur fengur hefði verið í
Reykjavíkursýningu með sögulegum
formerkjum, þ.e. með myndum lista-
manna allt frá Jóni Helgasyni
biskupi til Tolla. Þar er af nógu að
taka.
Það verður sem sagt ansi mikil
slagsíða á Kjarvalsstöðum það sem
eftir lifir sumars.
-ai
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.
HJÚLALEGUR, DRIFLEGUR
I AMERiSKAR JFPPABIFREIÐAR
JEPPAEIGENDUR NOTA AÐEINS ÞAÐ BESTA -
AMERÍSKT Í AMERÍSKA JEPPA
Póstsendum um allt land
OG PAKKDOSIR
Vélsmiðja
Laufbrekku 2, 200 Kóp. S-641745.
Smíðum færibönd, rækjudælur, fiskþvottakör,
hillurekka og borð á hjólum úr ryðfríu stáli,
einnig margt fleira. Smíðum einnig handrið á svalir og stiga. Það er opið hjá okkur mánudag
- föstudags frá 8-12 og 13-17.