Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1986, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1986, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 1986. Flokksþing Alþýðnflokksins í Hveragerðl: Jón Baldvin endurkjörinn formaður með 98% atkvæða „Þessi kosning hefur staðfest að það er meiri eining og meiri sam- staða í okkar flokki en nokkru sinni áður. Alþýðuflokkurinn er í skrið- þungri sókn sem ekki verður stöðv- uð héðan af,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson eftir að hann hafði verið endurkjörinn formaður Al- þýðuflokksins á Hótel örk í Hvera- gerði um helgina. Jón Baldvin hlaut 215 atkvæði af 219 greiddum eða 98,2 prósent at> kvæða. Ámundi Ámundason og Skjöldur Stefánsson hlutu eitt at- kvæði hvor. Tveir seðlar voru auðir. Endurkosning Jóhönnu Sigurð- ardóttur í embætti varaformanns var enn glæsilegri. Jóhanna hlaut 220 atkvæði af 221 eða 99,5 prósent at- kvæða. Birgir Dýrfjörð fékk eitt atkvæði. Ámi Gunnarsson var kjörinn rit- ari með 99,1 prósent atkvæða, Geir Gunnlaugsson gjaldkeri með 95,5 prósent atkvæða og Sjöfii Sigur- bjömsdóttir formaður framkvæmda- stjómar með 87 prósent átkvæða. -KMU Jón Baldvin Hannibalsson ræðir við BJ-mennina Vilhjálm Þorsteinsson, Stefán Benediktsson, Karl Th. Birgis- son og Guömund Einarsson á þingi Alþýðuflokksins. DV-myndir Brynjar Gauti Við megum mjóg vel við okkar hlut una - segir Guðmundur Einarsson, áður þingflokksformaður BJ „Þetta þing hefur staðfest þá stað- hæfingu okkar að Alþýðuflokkurinn hefði breyst á síðustu árum í að verða fijálslyndur umbótaflokkur í þá átt sem við teljum að hér þurfi,“ sagði Guðmundur Einarsson, fyrr- verandi formaður þingflokks Bandalags jafiiaðarmanna, að loknu flokksþingi Alþýðuflokksins í gær- kvöldi. „Þetta sýna náttúrlega niðurstöð- ur þingsins í ályktunum þar sem til dæmis mál eins og þriðja stjóm- sýslustigið, sem hefur verið áherslu- mál hjá Bandalagi jafnaðarmanna, er inni í þessum samþykktum. Ég vil nefria að í samþykktum um verkalýðs- og kjaramál er talað um samninga á vinnustöðum sem eina leið til þess að auka sveigjanleika í baráttu verkalýðshreyfingar. önnur mál, sem Bandalagið lagði áherslu á á sínum tíma, eins og fisk- markaðir, jöfiiun atkvæðisréttar og reglur gegn hagsmunaárekstrum em öll inni í ályktunum þingsins. Þannig að í fljótu bragði, án þess að ég hafi beinlínis gert debet og kredit, sýnist mér þau mál vera hér öll nema líklega beint kjör forsætis- ráðherra, sem ekki var ástæða til að reikna með, og þjóðfundur. En þau mál sem Bandalagið hefur haft á oddinum em hér öll á ferðinni nema þessi tvö. Mér sýnist að okkar menn, þar sem þeir vom í framboði til fram- kvæmdastjómar og flokksstjómar, hafi fengið alveg glimrandi kosn- ingu, verið með allra hæstu at- kvæðatölur. Þannig að við megum mjög vel við okkar hlut una,“ sagði Guðmundur Einarsson. -KMU Þjóðaratkvæði um einn lífeyrissjóð „Við næstu kosningar til Alþingis skal fara fram þjóðaratkvæða- greiðsla um hvort koma eigi á fót einum sameiginlegum lífeyrissjóði fyrir alla landsmenn," segir í sam- þykkt þingsins. „Við það skal miðað að hinn sam- eiginlegi lífeyrissjóður allra lands- manna taki til starfa í ársbyrjun 1991 og leysi þá núverandi lífeyris- sjóðakerfi af hólmi,“ segir ennfrem- m. Jóhanna Sigurðardóttir mælti fyr- ir tillögunni fyrir hönd meirihluta félags- og menningarmálanefndar. ítarleg greinargerð fylgdi með. Andstaða kom fram gegn þessari tillögu frá verkalýðsleiðtogum innan flokksins. Jón Karlsson á Sauðár- króki var þar fremstur í flokki. Taldi hann hugmyndina um einn lífeyris- sjóð óraunhæfa og í andstöðu við stefriu verkalýðshreyfingarinnar. Tillagan var samþykkt án mótat- kvæða. -KMU Kvóti á kynin „Við kjör í allar stofhanir flokks- ins, þar sem kjósa skal tvo eða fleiri ftdltrúa í einu, skal hvort kyn eiga rétt til að minnsta kosti 40 prósent fulltrúa, svo framarlega sem nægi- lega margir eru í framboði.“ Þessi tillaga var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta á flokks- þinginu en eftir miklar umræður og málamiðlunartillögu, sem takmark- ar gildistímann við tvö ár, eða til næsta flokksþings. Andstæðingar „kvótaskiptíngar" miUi kynja töldu hana vera skerð- ingu á frelsi og lýðræði. Fylgismenn tfllögunnar sögðu hana hins vegar iUa nauðsyn. Kvótaskiptingin gildir um kjör í framkvæmdastjóm og flokksstjóm, fræðsluráð, fjármálaráð, verkalýðs- málanefnd og um kjör í starfshópa. -KMU Fiamkvæmdastjóm: Sjöfn og María flest atkvæði Flokksþingið kaus fjórar konur í framkvæmdastjóm flokksins en þijá karla. Kona var kosin formaður, Sjöfii Sigurbjömsdóttir. Hlaut hún 198 atkvæði af 227. Guðríður Þor- steinsdóttir hlaut 8 atkvæði. í kjöri um aðra stjómarmenn hlaut María Kjartansdóttir flest atkvæði, 173. Hún er dóttir Kjartans Jó- hannssonar, fyrrverandi formanns. Guðríður Þoi-steinsdóttir hlaut næstflest atkvæði, 152. Jón Sæ- mundur Siguijónsson hlaut 147 atkvæði, Siguijón Valdimarsson, sem kemur úr Bandalagi jafnaðar- manna, 142 atkvæði, Guðfinna Vigfúsdóttir 135 atkvæði og Sigþór Jóhannsson 135 atkvæði. Helmingur framkvæmdastjómar er kjörinn beint af kjördæmaráðum flokksins. -KMU Ragnheiður Björk efst Ragnheiður Björk Guðmunds- dóttir, sem skipaði þriðja sæti lista Alþýðuflokksins við borgarstjómar- kosningamar í Reykjavík í vor, hlaut flest atkvæði í kjöri til flokks- stjómar Alþýðuflokksins. Ragnheið- ur Björk hlaut 202 atkvæði. í fimm efstu sætum höfnuðu fjórar konur. Eini karlmaðurinn, sem náði að verða meðal fimm efetu, var Magnús H. Magnússon úr Vest- mannaeyjum, fyrrverandi ráðherra. Athygh vakti einnig að þeir þrír menn úr Bandalagi jafiiaðarmanna, sem vom í kjöri, náðu allir inn. Það vom þeir Vilhjálmur Þorsteinsson, Jón Bragi Bjamason og Karl Th. Birgisson. Alls vom 80 manns í kjöri um 30 sæti. Eftirtaldir hlutu kosningu í flokksstjóm: 1. Ragnheiður Björk Guðmd. 202. 2. Helga Kr. Möller 186. 3. Magnús H. Magnússon 174. 4. Jóna Ósk Guðjónsdóttir 170. 5. Rannveig Guðmundsdóttir 169. 6. Guðmundur Ámi Stefanss. 168. 7. Gylfi Þ. Gíslason 161. 8. Guðmundur Oddsson 154. 9. Jón Bragi Bjamason 152. 10. Stefan Gunnarsson 151. 11. Vilhjálmur Þorsteinsson 151. 12. Guðríður Elíasdóttir 141. 13. Elín Harðardóttir 137. 14. Maríanna Friðjónsdóttir 136. 15. Jón Baldur Lorange 132. 16. Karl Th. Birgisson 128. 17. Valgerður Guðmundsd. 124. 18. Bjöm Friðfinnsson 124. 19. Haukur Helgason 119. 20. Davíð Bjömsson 117. 21. Birgir Dýrfjörð 115. 22. Kristín Ölafedóttir 109. 23. Ásgerður Bjamadóttir 109. 24. Helgi Skúli Kjartansson 106. 25. Sighvatur Björgvinsson 105. 26. Tryggvi Harðarson 99. 27. Guðrún Ólafedóttir 98. 28. Sigurður E. Guðmundsson 96. 29. Kristín Viggósdóttir 96. 30. Viðar Scheving 93. -KMU Þriðja stjómsýslustigið Þingmenn ekki í bankaráðum „Flokksþing Alþýðuflokksins lýsir sig samþykkt þeirri meginstefhu sem ffarn kemur í ályktun þingflokks Alþýðuflokksins frá 25. mars 1985 þar sem þeirri skoðun er lýst að stjómsýslustigin eigi að vera þijú.“ Svo segir í ályktun sem samþykkt var um sveitarstjómarmál. Þar segir ennfremur. „Áhersla verði lögð á sjálfetæði stjómsýslueininga þannig að ekki bætist við millistig sem yrði aðeins fjárfrekt bákn. Markmiðið með þessari breytingu er að færa vald frá ríki og embættis- mannakerfi til kjörinna fúlltrúa heima í héraði." -KMU „Ennfremur er lögð áhersla á strangar reglur um hagsmunaá- rekstra er efli traust þegnanna á stjómkerfinu. Beint lýðræði er einn- ig forsenda heilbrigðari stjómar- hátta. Stjómkerfi landsins á að vinna í þágu fólksins en ekki vald- hafa,“ segir í stjómmálaályktun. í stefiiuskrá var þessum setningum bætt inn: „Alþýðuflokkurinn vill: Aðskilja peningavald og pólitískt vald. Að þingmenn séu ekki í stjómum banka og sparisjóða." -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.