Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1986, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1986, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 1986. 31 Endurkjöri Jóns Baldvins, sem formanns Alþýðuflokksins, fagnað. Jóhanna Sigurðardóttir fagnar endurkjöri til varaformanns. Hún hlaut 99,5 prósent atkvæða. Þingið einkenndist af eindrægni og samstöðu sagði Jón Baldvin Hannibalsson við þingslrt „Þau mál, sem við höfum sett hér á oddinn, eru merk. Og það verður mikið verk hjá okkur á næstunni að koma þessum málefaum áleiðis til þjóðarinnar. Frá og með lokum þessa þings er kosningabarátta okk- ar hafin," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins, í lokaræðu sinni á flokks- þinginu í Hveragerði í gærkvöldi. „Stóru málin, sem hér voru lögð fyrir, voru tillögur okkar um nýtt skattakerfi, tillögur okkar um einn lifeyrissjóð fyrir alla landsmenn, til- lögur okkar um nýjar leiðir i húsnæðismálum, bæði hvað varðar fjármögnun til húsnæðismálanna og eins lánafyrirgreiðslu, tillögur okkar um valdatilfærslu til landsbyggðar- manna, þar sem þingið tók afdráttar- lausa afstöðu til þriðja stjómsýslu- stigsins. Það skal játað að undirbúningur fyrir þingið að tillögugeið um nýja atvinnustefhu var ekki nægjanlega vandaður. Þau mál þurfum við að hafa til frekari úrvinnslu á næst- unni. Tillögur okkar um samræmda launastefnu og ályktun okkar um kjaramálin og um samskipti okkar við verkalýðshreyfinguna og nauð- syn á breyttum vinnubrögðum og starfsháttum, skipulagi, verkalýðs- hreyfingarinnar.“ Stóru málin í kosningabarátt- unni „Allt eru þetta mál sem varða alla þjóðina. Allt eru þetta mál sem eru af því tagi að þau verða stóru málin í kosningabaráttunni og þetta eru mál af því tagi sem eru áleitin við fólk. Þau knýja fólk til afstöðu. Annaðhvort eru menn með þessum málum eða á móti. Út frá sjónarmiði fjöimiðlamanns, eða fréttafríks, þá kann hann að hafa sagt: Þetta þing var tíðindalítið. Hér voru engar mannfómir. Hér var út af fyrir sig enginn sem beið ósigur eða vann sigur. Þingið þótti ekki tíðindum sæta í þeim skilningi. Kannski brennur það til tíðinda að flokksþing Alþýðuflokksins er tíðindalaust af þessum vígstöðvum. Vegna þess að það einkenndist auð- vitað mjög áberandi af eindrægni og samstöðu." Kvennabylting i Alþýðu- fiokknum „Mér sýnist, og hef nú ekki langa reynslu af því að sækja flokksþing Alþýðuflokksins, að þetta þing hafi einkennst mjög af því að það hafi átt sér stað kvennabylting í Al- þýðuflokknum. Það er líka athyglisvert að þetta þinghald hefur auðvitað einkennst af sveitarstjórnarbyltingunni, sem gerðist í vor, vegna þess að hér em á þinginu mjög margir af þeim ungu og rösku mönnum, sem komið hafa til starfa fyrir Alþýðuflokkinn í sveitarstjómum. Þetta var fjölmennnasta þing í sögu Alþýðuflokksins. Ef við lítum til baka yfir þessa daga þá held ég að setningarat- höfnin verði mönnum lengi minnis- stæð. Hún vakti eftirvæntingu. Hún var söguleg." Stórmerkur pólitískur atburð- ur „Þegar við lítum fram í tímann þá verður þessa þings fyrst og fremst minnst fyrir það að á þessu þingi gerðist sá stórmerki pólitíski at- burður að jafnaðarmenn sameinuð- ust, að Bandalag jafiiaðarmanna gekk til liðs við okkur undir einu merki jafnaðarmanna, sem er gleði- legasta og ánægjulegasta afrnælis- gjöfin, sem Alþýðuflokknum og jafiiaðarstefnunni var færð á þessu 70 ára afmæli. Ég læt í ljós þá von að þeim nýju liðsmönnum, sem nú sóttu sitt fyrsta þing á vegum Alþýðuflokksins, hafi fúndist þinghaldið staðfesta það að þeir hafi tekið rétta ákvörðun. Þeim var vel tekið. Og það fer ekkert á milli mála að þeir settu sitt svipmót á þingið. Þeir höfðu afdrátt- arlaus áhrif á niðurstöður okkar og ályktanir í þýðingarmiklum málum. Það var eins og við var að búast og það var eins og vera bar.“ Flokkur á breytingaskeiði „Við förum héðan sameinuð, sann- færð um það að við höfum unnið gott starf, og í baráttuskapi, reiðu- búin til þess að fylgja niðurstöðum þingsins fast eftir í þeirri kosninga- baráttu sem framundan er. Við höfum haldið þetta þing undir þessu kjörorði: ísland fyrir alla. í huga okkar er að það hafa orðið miklar breytingar á Alþýðuflokkn- um á undanfömum árum. Það fer ekkert á milli mála að Alþýðuflokk- urinn er, þrátt fyrir háan aldur, að ganga í endumýjun lífdaganna. Hann er á breytingaskeiði. Hann er í vexti. Og það hefur mikið gerst frá því að við héldum frá seinasta flokks- þingi með spuminguna: Hverjir eiga Island? Þetta hefúr verið geysilega ánægjulegt tímabil. Sjálfum finnst mér að þetta starf, sem við höfum unnið, hafi borið jafh- vel ríkulegri ávöxt heldur en við þorðum að vona í upphafi og ég er alveg sannfærður um það að við höfum nú öll þau vopn í höndum sem við þurfum til þess að vinna jafiivel ennþá stærri sigra í komandi kosn- ingum,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson. -KMU Málamiðlun um kvótakeifið Deilur urðu um fiskveiðikvótann á flokksþinginu. Niðurstaðan varð málamiðlun sem felst í ályktun um sjávarútvegsmál. í henni segir meðal annars: „Vemdun og skynsamleg nýting auðlinda hafeins gerir kröfu til markvissrar stjómunar fiskveiða, annaðhvort með því að takmarka stærð fiskveiðiflotans og veiðihæfni hans eða með því að takmarka sókn eða afla hvers veiðiskips. Augljósir gallar á núverandi kvótakerfi kalla á endurskoðun þess. Alþýðuflokkurinn leggur áherslu á að hagsmunasamtök sjávarútvegs- ins og ríkisvaldið taki þegar að vinna að sh'Vri endurskoðun til að finna nýtt stjómkerfi en ella verður Alþingi að höggva á hnútinn og sníða af þá vankanta sem kvótakerf- inu fylgja. Alþýðuflokkurinn sér fram á að komið verði á fót fiskmörkuðum og leggur áherslu á að vandað verði til undirbúnings og fylgst vel með fram- kvæmdinni svo að ekki hljótist af óheppileg atvinnuröskun." -KMU Undanþágu- lausan virðis- aukaskatt Flokksþing Alþýðuflokksins ályktaði að taka bæri upp und- anþágulausan virðisaukaskatt. Hinum tekjulágu ætti að bæta upp hækkun á matvöruverði með hækkun á bótum almannabygg- inga. Afhema bæri tekjuskatt af launatekjum, koma á stað- greiðslukerfi útsvara, skatt- leggja vaxtatekjur og hagnað af sölu verðbréfa. Ennfremur að koma á tímabundnum, stig- hækkandi stóreignaskatti af öllum eignum. -KMU Óbreytt stefna í vamarmálum Tillaga um endurskoðun varnar- samningsins náði ekki fram að ganga á flokksþingi Alþýðuflokks- ins. Jón Baldvin Hannibalsson lagði til að henni yrði vísað til þingflokks og flokksstjómar og var það sam- þykkt. í stjómmálaályktun þingsins segir: „Flokksþingið ítrekar að fylgt verði óbreyttri stefhu að því er varð- ar vamar- og öryggishagsmuni íslenska lýðveldisins og undirstrikar að íslensk utanríkisstefna á að ein- kennast af reisn, íslensku frumkvæði og fúllkomnu jafiiræði í samskiptum við bandalagsþjóðir okkar. Flokks- þingið telur að lýðræðisöflunum beri skylda til að auka samstöðu sína og efla sameiginlegt öryggiskerfi sitt og bendir á að styrkur lýðræðisins hlýt- ur að vera sú forsenda, sem lýðræðis- ríkin ganga út frá, þegar gengið er til gagnkvæmra samninga um af- vopnun, samdrátt heria, takmarkan- ir á tilraunum með ný vopnakerfi og ömggt eftirlit með vígbúnaði." -KMU Kynferðisaf- brot gagnvarf bömum „Flokksþing Alþýðuflokksins skorar á stjómvöld að taka til gagngerrar endurskoðunar við- urlög við kynferðisafbrotum gagnvart bömum og meðferð slíkra mála með það fyrir augum að tryggja sem best að slíkir af- brotamenn endurtaki ekki þessi alvarlegu brot sem oftast eyði- leggja líf og framtíð fómarlamba þeirra.“ Svo segir í samþykkt sem gerð var að tillögu Helgu Möller, Valgerðar Guðmundsdóttur, Ásthildar Þorsteinsdóttur, Guð- ríðar Þorsteinsdóttur og fleiri. -KMU Fjórblöðungur malar gull „Leggja þau nú drjúgan skerf til flokksstarfeins," em orð gjaldkera Alþýðuflokksins, Geirs A. Gunn- laugssonar, um Blað hf., útgáfufélag Alþýðublaðsins, og Alprent hf., sem annast setningu Alþýðublaðsins. „Ekki ber þó að skilja orð mín svo að ég telji að fundin hafi verið upp einhver eilífðarvél er mali flokknum gull. Forsenda þess að rekstur fyrir- tækjanna haldi áfram að skila flokknum arði í einu eða öðm formi er að rekstri þeirra verði ekki íþyngt umfram getu, rekstrarlegt sjálfetæði þeirra verði tryggt og flokksmenn beini viðskiptum sínum í auknum mæli til þeirra,“ segir gjaldkerinn. Veruleg aukning varð á veltu flokksins. Heildartekjur flokkssjóðs á reikningstímabilinu urðu 8,7 millj- ónir króna. Tekjur umfram gjöld námu um 850 þúsund krónum. Eldri skuldir vegna Alþýðublaðs- ins, sem flokksmenn em í ábyrgð fyrir, nema 9,4 milljónum króna. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.