Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1987, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987. Fréttir_______________________________________________________________________________________________dv Jón Baldvin Hannibalsson krafinn skýringa á skattframtali: Taldi ekki fram tekjur frá stjómarskrárnefnd „Ástæðan fyrir því að þessi þóknun fyrir störf í stjómarskrárnefnd vai’ ekki talin fram var sú að í báðum til- vikum er um að ræða sama launageið- anda, það er að segja fjármálaráðu- neytið. Ég taldi ekki fram sjálíúr í þetta skiptið, það gerði endurskoð- andi,“ sagði Jón Baldvin Hannibals- son, formaður Alþýðuflokksins, í samtali við DV. Jón var spurður um orsakir þess að hann gaf ekki upp til skatts tekjur þær sem hann aflaði eitt árið með störfum sínum í stjórnar- skrámefnd og hvort sú „yfirsjón" væri sambærileg við „yfirsjón" þá er Albert Guðmundsson, fyrrverandi ráðherra, var staðinn að og galt fyrir með ráð- herradómi sínum. „Ég setti mína launaseðla í hendum- ar á endurskoðanda og gekk út frá því sem gefnu að launaseðillinn frá fjármálaráðuneytinu væri heildar- laun. Mér var síðar sagt, að því er varðar aðra meðlimi stjómarskrár- nefndarinnar, að þetta hafi líka hent í þeirra tilviki. Þetta er skýringin sem ég hef á þessu,“ sagði Jón Baldvin. „Það sem hefúr verið borið á Albert Guðmundsson er að hann hafi tekið við afsláttargreiðslum frá Hafskip hf. fyrir farmflutninga sem vom greiddir af öðrum aðila, ríkisstofnuninni ÁTVR og í annan stað - og þar vitna ég til orða fjármálaráðherra nú - þá er sett fram það sakarefni að ferðalag það sem hann fór til Nissa hafi verið greitt af Hafskip hf. og einnig af ríkis- sjóði. Að því er varðar afsláttargreiðsl- una þá eru svör Alberts á þá leið að hann hafi lagt fjárhæðina inn á sinn einkareikning. Fjármálaráðherra seg- ir sakarefnið nú vera það, að þrátt fyrir viðskiptavenjur ætti þessi afslátt- argreiðsla að fara til ríkisstofnana. Ég fæ því ekki séð að þetta tvennt sé sambærilegt, að því er varðar efnisat- riði,“ sagði Jón Baldvin. - Lagðir þú ekki saman launaseðla þína og barst saman við heildarlaunin sem þú fékkst uppgefin í fjármálaráðu- neytinu? „Stjómarskámefndin er eina laun- aða nefndin sem ég starfaði í og að því leyti er framtal mitt ákaflega einf- alt, það er þingfararkaupið eitt að þessu viðbættu á þessu umrædda ári. Það sem ég gerði var ósköp einfaldlega að ég gerði ráð fyrir því, enda hafði verið svo áður, að launaseðill fjár- málaráðuneytisins væri gefinn upp í heild fyrir allar launagreiðslur. Þetta var athugunarleysi," sagði Jón Bald- vin Hannibalsson. -ój Þorsteinn Pálsson, nýskipaður iðnaðarráðherra, fylgist glaðhlakkalegur með þegar Páll Kr. Pálsson, for- stjóri Iðntæknistofnunar, afhendir viðurkenningarskjöl fyrir námskeiðið Vöxtur og velgengni í Iðntæknistofnun í gær. DV-mynd Brynjar Gauti Fyrsta embættisverk nýskipaðs iðnaðarráðherra Þorsteinn Pálsson, fjármálaráð- herra og nýskipaður iðnaðarráðherra, sinnti sínu fyrsta embættisverki opin- berlega, sem iðnaðarráðherra, er hann var viðstaddur lokaútskrift námskeið- isins „Vöxtur og velgengni" í Iðn- tæknistofnun í feær. Námskeið þetta er hluti af verkefhi Iðntæknistofúunar, „Framleiðniátak í iðnaði“, sem hmndið var af stokkun- um í tíð forvera Þorsteins, Alberts Guðmundssonar. Markmiðið með framleiðniátakinu er að gera almenn- ing og iðnfyrirtæki meðvitaðri lun mikilvægi þess að auka framleiðni í íslensku atvinnulífi. „Framleiðniaukning er raunar alger forsenda þess að góðærið sem svo oft er talað um, skili sér,“ sagði Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðntæknistofnunar, m.a. við lokaútskriftina. 15 framkvæmdastjórar iðnfyrirtækja voru útskrifaðir af námskeiðinu sem staðið hefur yfir síðastliðna 18 mán- uði. Létu þeir mjög vel af námskeiðinu og er talið að afrakstur þess megi nú þegar sjá f starfsemi fyrirtækja þeirra. -ES Póstmenn sömdu í nótt Samningar tókust milli póstmanna og samninganeftidar ríkisins í nótt. Verkfalli póstmanna, sem hófst á miðnætti, var þvi frestað áður en það fór að hafa nein óhrif. Að sögn Indriða H. Þorlákssonar, formanns samninganefúdar ríkisins, er kjarasamningurinn svipaður þeim sera gerður var við Starfsinannafélag ríkisstofriana nú nýlega. Samningurinn gengur mjög jafnt yfir alla hópa póstmanna en þó fa bréfberar örlítið meira en aðrir. -ES Pósturinn flokkaöur f gær, þegar menn bjuggu sig undir verkfall. Samning- ar tókust hins vegar I nótt, þannig að póstburður verður með eðlilegum hætti. DV-mynd Brynjar. DV-mynd KAE. La Scotto í Reykjavík Einhver þekktasta og fjölhæfasta óperusöngkona vorra tima, Renata Scotto, kom til landsins í gær. Við komuna voru henni afhentir blómvendir og bækur um ísland en klukkan 17 á iaugardag fá íslenskir söngunnendur að hlýða á rómaða rödd hennar á tónleikum í Háskólabíói. Starfsmaður Eimskips féll íft,öic+r' Klessti Rennilegur Porscho 924 með lykli í kveikjulási er freistandi. Sú var raunin er einn af starfsmönnum Eimkips átti að renna einum slíkum örstutta leið af bíl og leggja í Eim- skipafélagsportið í Hafúarfirði. Starfsmaðurinn réð ekki við bens- ínfótinn og reyndi gripinn með ófyrirsjáanlegum afleiðin tætti af stað með bros á vör ið stirðnaði þegar Porsche stöðvaðist á grindverki þar hjá. Eimskipafélagið hefur lofað að bæta tjónið. Bíllinn er frá 1978 og kostar tæp 400 þúsund. -EIR Dældaður Porsche í Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.