Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 27. MAI 1987. FRÁ HÉRAÐSSKÓLANUM Á LAUGARVATNI Umsóknarfrestur um skólavist er til 30. júní. í skólan- um eru 8. og 9. bekkur grunnskóla. Stórbætt íþrótta- aðstaða. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 99-6112 Smáauglýsingadeild verður opin sem hér segir: Miðvikudag 27. maí frá kl. 9-22.00 Fimmtudag 28. maí, uppstigningardag, LOKAÐ. Föstudaginn 29. maí frá kl.9-22.00. Athugið. Auglýsing, sem birtast á í laugardags- blaðinu, verður að hafa borist auglýsingadeild fyrir kl. 17.00 föstudag. Smáauglýsingadeild, Þverholti 11 - Sími 91-27022. RÍKIS SPÍTALAR LAUSAR STÖÐUR BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD LANDSPÍTALANS Vegna opnunar unglingageðdeildar Landspítalans óskast eftirtalið starfsfólk: Meðferðarfulltrúar. Starfið er fólgið í að annast börn og unglinga með geðrænar truflanir. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið uppeldisfræðilegu námi sem svarar til B.A. prófs, svo sem kennaraprófi, prófi í sálarfræði, félagvísindum eða uppeldisfræði. Unnið er í vaktavinnu. Hjúkrunarfræðingur og hjúkrunardeildarstjóri á göngudeild. Sérmenntun í geðhjúkrun eða annað sérnám, t.d. í félagshjúkrun, uppeldis- og kennslu- fræöi eða stjórnun, æskileg. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 8 46 11. Reykjavík, 25. maí 1987. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar stööur við framhaldsskóla: Við Menntaskólann í Kópavogi staöa aðstoðarskóla- meistara. Við Flensborgarskóla í Hafnarfirói kennarastöður í dönsku, félagsfræði og vélritun. Við Verkmenntaskólann á Akureyri kennarastöður í stærðfræði, tölvufræði, ensku, sögu og félagsfræði, íslensku, sálar- og uppeldisfræði, rafeindagreinum, vélfræðigreinum og námsráðgjöf. Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi kennara- stöður í þýsku og viðskiptagreinum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 13. júní næstkomandi. Stundakennara vantar að Menntaskólanum á Akur- eyri í dönsku, ensku, félagsfræði, heimspeki, sögu, sálarfræói, stærðfræði og þjóðhagfræði. Verkmenntaskóla Akureyrar í ýmsum greinum á heil- brigðissviði, hússtjórnarsviði, tæknisviði og viðskipta- sviði. Umsóknir um stundakennslu skal senda til viðkom- andi skóla sem gefa allar nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur til 13. júní næstkomandi. Menntamálaráðuneytið. Menning i>v Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir - Mæst á miðri leið & Halastjama, bómull og íslensk ull, 1985-87 DV-mynd GVA Ljósberar Sýning Ingibjargar Styrgerðar að Kjarvalsstöðum Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir, sem nú sýnir á austurgangi Kjarvals- staða, er án efa einn ágætasti fulltrúi hinnar konstrúktífu hefðar í íslenskri textíllist. Þar á ég við að hún gerir enga tilraun til þess að setja af stað rökræna atburðarás í myndrænu rými, er áhugalítil um tilraunir með ólík efni og kærir sig kollótta um táknmál. Listakonan vefur einfáldlega úr • nokkrum frumþáttum myndlistar: sjálfum myndfletinum, beinni (og endaiausri) línunni og litnum. Meira að segja lætur hún sér nægja einn lita- tón og tilbrigði um hann. Ingibjörg Styrgerður byggir verk sín síðan upp af markvissri rökvísi. Veftir hennar (10 að tölu) eru flestar óreglu- legar í laginu og er gott samræmi milli lögunar þeirra og línanna sem þekja myndflötinn, það er, lögun Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson hverrar veftar ákvarðar að mestu ferli línanna innan hennar. Hvorttveggja ítrekar síðan tvívídd flatarins og hlut- lægni. Þar með eru form og „inntak" orðin eitt og óaðskiljanleg í verkum sem ekki gera neinar sérstakar kröfur til áhorfandans. Þá hafa þau sterka nánd. Eða eins og bandaríski listamaður- inn Frank Stella sagði um málverk sín sem hugsanlega hafa haft einhver áhrif á Ingibjörgu Styrgerði: What you see is what you see. Þó er kannski meira að gerast í veft- um listakonunnar heldur en Stella karlinn hefði gúterað. Á stöku stað rýfur hún samsvörun útlína og innri línanna með ófyrirséðum tilbrigðum auk þess sem henni tekst að gera hveija veft að sérrtökum ljósbera með hárfínu samspili blæbrigða. Þannig situr Ingibjörg Styrgerður sitt sérstaka fangamark á þessar þokkafullu veftir. -ai Álagaprinsar Þórdís A. Sigurðardóttir í Gallerí Gangskör Þórdís A. Sigurðardóttir hefur á sínum stutta ferli fengist við óvenju mörg efni: textíl, grástein, stein- steypu, jám, tré, pappírsmassa, vír, bómullargresjur, svo fátt eitt sé nefht. Þessar tilraunir með efni eru út af fyrir sig vottur um lofsverða fram- takssemi hjá ungum listamanni sem nýsloppinn er úr skóla. Þó má ævin- lega gæta sín á því að taka ekki MyndJist Aðalsteinn Ingólfsson efnistilraunir fyrir sjálfa sköpunina, þær em leið til sköpunar. Á lítilli sýningu sinni í Gallerí Gangskör sýnir Þórdís á sér óvenju margar hliðar. Mest sláandi er skúlptúrþykkni það sem hún nefhir „Leiðir" en í því er meira en tylft ílangra skúlptúra með lituðum kúf- um. Þessir kúfar em tilbrigði um fjögur ólík form úr steypu eða tré, eina óreglulega samloku, lítið útskorið stykki og svo jámvír sem vafinn er með ýmsum hætti utan um og út frá þessum samsettu einingum. Minna þessi verk á þann grófa, litríka skúlptúr sem komið hefur fram á sjónarsviðið í kjölfar nýrra viðhorfa í málverkinu. Öll þessi tilbrigði um skúlptúrstef, sem einnig em útlistuð í fremur óspennandi teikningum allt um kring, em alls ekki óskemmtilegar fingraæfingar. Hins vegar er meira slátur í stærri verkum listakonunnar sem finna má í innri sal. Þau em búin til úr pappamössum, bómull, jámvír o.fl. og standa á löng- um jámstöngum upp úr grágrýt- iskubbum. Þessir skúlptúrar, sem flestir kall- ast „ÁIagaprinsar“, em gerðir út frá tótemískum eða táknrænum for- sendum, fremur en fórmrænum, það er, þeim er ætlað að hafa frumstæða kynngi fremur en að opinbera form- ræna nýsköpun. Þótt ég sé ekki alveg sáttur við allt það sem Þórdís gerir við þessa „prinsa“ sína, til dæmis fer óþarflega mikið fyrir sundurgerð í þeim, þá tekst henni líka að koma manni á óvart með sniðugum samsetningum. -ai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.