Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988.
49
Með 11. - cxd4 hefði svartur jafnað
taflið fullkomlega en það er kannski
ekki svo mikið afrek gegn varfæmis-
legri byrjun hvíts. Vandi svarts felst
í því að reyna að fá yfirhöndina með
einhverjum ráðum. Með síðasta leik
sínum tekst Dolmatov að riðla jafn-
væginu en vanmetur færi hvíts.
12. dxc5 Bxc5 13. c4 dxc4
Ekki 13. - bxc4 14. dxc4 d4? vegna
15. Rb3 og vinnur peð.
14. bxc4 b4
Virðist lofa góðu; hvítur á nú stakt
peð á c-línunni og svartur hefur
möguleika á að mynda sér fjarlægan
frelsingja á drottningarvæng. Horfur
í endatafli væru góðar en í miðtafljnu
er staðan ekki eins traust.
15. Rg5! e5 16. Rge4 Rxe4 17. Rxe4 Be7
18. Hfdl Da5 19. c5! Had8 20. f4!
Hvíta sóknin er að taka á sig mynd.
Eftir 20. - exf4 opnast fyrir gin svart-
reita biskupsins og hvítur á ýmsar
leiðir til'að halda taflinu gangandi.
Þó má vel vera að þetta hafi verið
besti möguleiki svarts.
20. - Dxa2 21. f5!
Hótunin 22. f6 og rífa upp kóngs-
stöðuna er svo öflug að svartur er
nauðbeygður til að fórna skiptamun.
Leikjaröðin 21. - Kh8 22. f6 gxf6 23.
Rd6 Bxd6 24. Dh5! er lítið dæmi um
hætturnar sem leynast í stöðunni.
21. - Hxd3 22. Hxd3 Bc8 23. Rd6 Bxd6
24. Hxd6 Ra6 25. c6
Svartur á ekkert svar við fram-
skriði frelsingjans á c-línunni.
25. - Bxf5 26. c7 Rb7 27. Hxa6 Db3 28.
Hac6 Bc8 29. Bxe5 Dd5 30. Bd4 Rd6 31.
Hlc5
- og svartur gafst upp.
Polgar-systur
Fáir keppendur hafa vakið meiri
athygli en ungversku skáksysturnar
Zsuzsa, Zsófia og Júdit Polgar. Zsuz-
sa er elst þeirra, 18 ára gömul, og er
þriðja stigahæsta skákkona heims.
Hinar eru 13 og 11 ára gamlar og
augljóslega engu síður bráðefnilegar.
„Lítil dama í kjallaranum fórnar
drottningu", er yfirskrift greinar 111-
uga Jökulssonar í mótsblaðinu sem
út kemur eftir hverja umferð. Illugi
vísar þar til skákar Zsófíu Polgar við
Færeyinginn Apol. Zsófia tefldi skák-
ina snyrtilega og með litlum peðsleik
í 28. leik lagði hún laglega gildru í
vinningsstöðu sem mótherjinn áttaði
sig ekki á. Hér birtist skákin athuga-
semdalaust.
Hvítt: Zsófía Polgar
Svart: Liutjen Apol
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. Bb3 Be7 8.
0-0 Dc7 9. Be3 Rc6 10. f4 Bd7 11. Df3
Hc8 12. f5 Rxd4 13. Bxd4 e5 14. Be3
Bc6 15. Dg3 Hg8 16. Bg5 b5 17. Bxf6
Bxf6 18. Bd5 Bd8 19. f6 g6 20. Bxc6
Dxc6 21. a3 Dd7 22. Dd3 De6 23. Rd5
Hc4 24. c3 Kd7 25. a4 Bc7 26. axb5 axb5
27. Ha7 Hb8
abcdefgh
28. h3 h5 29. Dxc4! bxc4 30. Rxc7
- Svarta drottningin er mát úti á
miðju borði! Svartur gafst upp.
-JLÁ
þrjú kvöld þannig: Kristmundur Þorsteinsson 145
sæti stig 4. Óskar Karlsson -
1. Sigurður Sverrisson - Þorsteinn Þorsteinsson 125
Árni Bjarnason 183 5. Björgvin Víglundsson -
2. Hannes. R. Jónsson - Einar Sigurðsson 110
Þórarinn Sófusson 156 6. Guðni Þorsteinsson -
3. Erla Sigurjónsdóttir - Sigurður B. Þorsteinson 97
Matreiðslumaður
og starfsfólk í eldhús óskast nú þegar til starfa við
Hótel Egilsbúð, Neskaupstað.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ingvason í
síma 97-71323, heimasími 97-71608.
Nám í uppeldisgreinum
fyrir verkmenntakennara
á framhaldsskólastigi.
Nám í uppeldis- og kennslufráeðum til kennslurétt-
inda fyrir verkmenntakennara á framhaldsskólastigi
hefst við Kennaraháskóla Islands haustið 1988.
Umsækjendur skulu hafa lokið tilskildu námi í sér-
grein sinni.
Námið fullnægir ákvæðum laga nr. 48/1986 um
embættisgengi kennara og skólastjóra og samsvarar
eins árs námi eða 30 einingum.
Náminu verður skipt á tvö ár til að auðvelda þeim
sem starfa við kennslu að stunda námið. Inntaka
miðast við 30 nemendur.
Námið hefst með námskeiði dagana 26. til 31. ágúst
1U88 að báðum dögum meðtöldum og lýkur í júní
1990.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Kenn-
araháskólans við Stakkahlíð.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1988.
Rektor
KENNARA:
HÁSKÓLI
ÍSLANDS
DV
íþróttapistill
Bylting í
körf\inni
Nú er farið að síga á seinni hluta
vetrar og það styttist óðfluga í að
inniíþróttir víki fyrir þeim íþrótta-
greinum sem keppt er í utandyra.
Vertíð knattspyrnumanna nálgast
óðum og ekki eru nema nokkrir
dagar þar til Reykjavíkurmótið í
knattspyrnu hefst. Reykjavíkur-
mótið hefur ætíð virkað á mig sem
sterk áminning um komu vorsins
og svo er eflaust með fleiri. Þeir eru
margir sem eru á þeirri skoðun að
knattspyrnutímabilið verði venju
fremur skemmtilegt í sumar og er
vonandi að þeir spádómar rætist,
öllum til ánægju.
Breytingar á næsta
keppnistímabili
Mikið fjör hefur verið í inni-
íþróttunum í vetur og þá kannski
helst í handboltanum. Búast má við
aö fjörið aukist verulega næsta vet-
ur og er þá aöallega átt við hand-
boltann og körfuboltann. Sem
kunnugt er munu íslenskar hand-
boltastjörnur, sem leikið hafa
erlendis svo árum skipthyleika hér
heima næsta vetur og er hér aðal-
lega átt við þá Pál Ólafsson og
Alfreð Gíslason sem báðir munu
leika í röndóttum búningi vest-
urbæinga næsta vetur. íslandsmó-
tið næsta vetur ætti því að geta
orðið mjög skemmtilegt en eitt er
þó það atriði sem kollvarpað gæti
þessum draumum í einni svipan.
Það er að sjálfsögðu sá möguleiki
að íslenska landsliðinu takist illa
upp í Seoul og nái þar ekki einu
af sex efstu sætunum. Þá yrðu okk-
ar menn að taka þátt í b-keppninni
fimm mánuðum eftir ólympíuleik-
ana og hugsa menn auðvitað með
hryllingi til þessa möguleika. En
ef allt gengur eölilega fyrir sig á
þessi staðá ekki að geta litið dags-
ins ljós en hafa ber í huga að þegar
keppt er viö bestu landslið heims
geta óvæntir hlutir alltaf gerst og
því er bjartsýni í miklu óhófi ekki
það besta veganesti sem landsliðið
getur hugsað sér til Seoul.
Bylting ætti að eiga sér stað
í körfuknattleiknum næsta
vetur
Mönnum ber saman um það að
körfuknattleikurinn hafi verið í
daufasta lagi í vetur og ég tek und-
ir það. Ekki eru mörg ár síðan að
áhugi almennings á körfuknatt-
leiknum var mjög mikill og áhorf-
endur fylltu íþróttahúsin. Þá léku
hér erlendir leikmenn sem vöktu
jafnan mikla athygli. Mjög miklar
líkur eru á því að erlendir leik-
menn muni leika hér með öllum
liðunum í úrvalsdeildinni næsta
vetur en endanleg ákvöröun verð-
ur tekin á ársþingi Körfuknatt-
leikssambandsins í vor. Mér er sagt
að mikill meirihluti körfuknatt-
leiksmanna sé búinn að gera upp
.hug sinn og að vera erlendra leik-
manna verði örugglega samþykkt
á ársþinginu. Sá er þetta ritar
fylgdist vel með körfunni þegar
erlendu leikmennirnir léku hér um
árið og það voru skemmtilegir
tímar. Verði erlendu leikmennirnir
samþykktir verður vandi félag-
anna mikill þegar farið verður að
velja leikmennina fyrir næsta
keppnistímabil.
Kindaskrokkurinn beið
bestu vítaskyttunnar
Það var á margan hátt stórkost-
legur tími þegar erlendu leikmenn-
irnir léku hér um árið. Margir
muna örugglega eftir Curtis Carter,
sem oft var nefndur Trukkurinn,
og Jimmy Rogers sem lék með Ár-
manni. Þeir voru fyrstu erlendu
leikmennirnir sem hér léku. Og
þeir sem muna eftir þessum köpp-
um muna örugglega vel eftir
hnefaleikaatriði þeirra í Laugar-
dalshöllinni. Þar börðust þeir og
Umsjón
Stefán Kristjánsson
létu hnefana tala. Myndina hér að
ofan, sem er frá þessum átökum,
tók Bjarnleifur Bjarnleifsson. í þá
daga var mikið um dýrðir á körfu-
boltaleikjum. Halldór Einarsson,
betur þekktur sem Henson, fann
upp á ýmsum skemmtilegum atrið-
um og lengi verður í minnum haft
þegar hann lét áhorfendur keppa í
vítakeppni og verðlaunin voru
spengilegur kindaskrokkur sem
hékk við enda vallarins og beið sig-
urvegarans. Auk Halldórs voru
margir hugmyndaríkir menn í
kringum körfuna og vonandi tekst
félögunum að virkja þessá menn á
ný næsta vetur. Það myndi án
nokkurs vafa lífga enn frekar upp
á þessa skemmtilegu íþrótt sem
hefur verið á sorglega lágu plani
undanfarin ár.
Margir höfðu meiri áhuga á
kvenfólkinu en körfunni
Ég hef áður sagt að það er mikil-
vægt að vanda sig vel þegar fariö
verður að velja þá leikmenn sem
koma til með að leika hér næsta
vetur. Þess voru dæmi hér áður
fyrr að „gölluð eintök“ bárust til
landsins og slíkt má ekki endur-
taka sig. Sumir leikmannanna
höfðu miklu meiri áhuga á stelpun-
um í Hollywood en körfuboltanum
og sumar stelpurnar höfðu líka
miklu meiri áhuga á þessum er-
lendu leikmönnum en körfunni.
Hjá sumum leikmannanna voru
eiturlyf meðhöndluð og slíkt má
aldrei endurtaka sig. Eg held að
menn hafi lært mikið á þessum
árum og muni ekki brenna sig á
sama eldi sem þá olli mörgum sár-
um.
Merkileg ráðstefna
- íþróttir og auglýsingar
Um helgina er á dagskrá í íþrótta-
miöstöðinni í Laugardal mjög
merkileg ráðstefna sem ber yfir-
skriftina íþróttir og auglýsingar.
Ráðstefnan er ætluð forsvars-
mönnum íþróttafélága og samtaka
þeirra, forsvarsmönnum fyrir-
tækja, bæjar- og sveitarfélaga og
þeim sem starfa að ferðamálum. I
fréttatilkynningu, sem send var
fjölmiölum, segir að umræða síð-
ustu misseri hafi leitt í ljós að full
þörf sé á ráðstefnu af þessu tagi og
fréttir síðustu daga af samstarfi
íþróttahreydingarinnar og fyrir-
tækja í landinu hafi rennt enn
frekari stoðum undir nauðsyn þess
að þeir sem eru í forsvari innan
íþróttahrej'fingarinnar og hjá fyr-
irtækjum hittist og beri saman
bækur sínar enda sjái þessir aðilar
sér hag í því að nýta íþróttirnar til
þess að auglýsa vöru og þjónustu.
Um árabil hafa þeir sem starfað
hafa við Qáröflun hjá íþróttafélög-
um og samböndum stundað mikið
betlistarf. Nú í dag er staðan hins
vegar orðin þannig að þeir sem
þurfa að auglýsa vöru sína eða
þjónustu eru farnir að líta á félög
og sambönd innan íþróttahreyfing-
arinnar sem mjög vænlegan
markað. Breytt viðhorf hafa tekið
sér bólfestu í hugum manna og ég
held að í því felist umtalsverður
hagur fyrir báða aðila.
Á ráðstefnunni. sem hófst í morg-
un. laugardag, klukkan níu og
lýkur klukkan fimm í dag, eru
mörg þekkt nöfn á mælendaskrá.
Má þar nefna ráðherrana Matthías
Á. Mathiesen og Birgi ísleif (?unn-
arsson, Davíð Scheving Thor-
steinsson. Einar Einarsson,
fulltrúa frá sjónvarpinu og Stöð 2,
formenn stærstu sérsambandanna
og marga fleiri. Ráðstefnustjóri er
Jón Ásgeirsson, fyrrum íþróttaf-
réttamaöur.
Stefón Kristjánsson
• Ein frægasta og besta iþróttamynd sem tekin hefur verið. Það gekk mikið á í körfuknattleiknum hér um
árið þegar erlendu leikmennirnir léku með íslenskum liðum. DV-mynd Bjarnleifur Bjarnleifsson