Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Blaðsíða 1
 *ígM| . : ■ ' ■ ■ ■■ .■.■ k 'r /; í-$i ^ Kjarvalsstaðir: September/Septem Á laugardag kl. 16.00 verður opnuð að Kjarvalsstöðum yfirlitssýning sem ber yfirskriftina September/S- eptem. Þar gefur að líta úrval verka frá September-sýningunum 1947- 1952 og Septem-sýningunum 1974- 1990. Haustið 1947 efndu tíu listamenn til sýningar í Reykjavík sem bar heit- ið September-sýning og dró nafn sitt af þeim mánuði þegar hún var opn- uð. í inngangi í sýningarskrá var þeirri skoðun andmælt að listin ætti að líkja eftir veruleikanum heldur ætti að skapa listaverk, nýjan, sjálf- stæðan veruleika. Efnið, sagan, fyr- irmyndin eru eitt, hstaverkið annað, segir ennfremur í ávarpi hópsins. í þessum hópi listamanna voru annars vegar þeir sem komu heim frá námi í Bandaríkjunum í lok stríðsins, Jóhannes Jóhannesson, Kjartan Guðjónsson, Kristján Dav- íðsson, Valtýr Pétursson og hins veg- ar listamenn, sem fram komu í ís- lenskri myndiist á fjórða áratugnum: Þorvaldur Skúlason, Siguijón Ólafs- son, Nína Tryggvadóttir, Snorri Ar- inbjarnar og Gunnlaugur Scheving auk þess sýndi Tove Ólafsson, eigin- kona Sigurjóns. Slík hópmyndun var nýlunda í ís- lenskri hst og nánari tildrög þess að efnt var til sýningarinnar var að þá hstamenn, sem komu heim í lok stríðsins, skorti vettvang til að sýna verk sín. Enginn þeirra var meðlim- ur í félagi íslenskra myndhstar- manna og áttu þeir því í raun htla möguleika á að sýna á sýningum fé- lagsins. Ennfremur var það að Þor- valdur, Sigurjón, Snorri, Gunnlaug- ur og Nína áttu í raun mun meira sameiginlegt með þessum ungu mönnum en þeim sem voru ráðandi í Félagi íslenskra myndlistarmanna. September-sýninguna má þess vegna skoða sem beina afleiðingu þeirra andstæðna sem komnar voru upp í íslenskri myndlist milli þeirra sem gerðu þá kröfu að hstin skyldi gera mynd af veruleikanum sam- kvæmt klassískri hefð um rökrétta heild milli tíma, myndrýmis og allra einstakra þátta myndefnisins og þeirra skoðunar, sem var ööru frem- ur grundvöhur September-hópsins, að hstamaðurinn ætti að skapa hst sem væri nýr veruleiki sem notið yrði á eigin forsendum og hefði sín sérstöku lögmál. Þessi skoðun var öðru fremur sam- nefnari hópsins því þar fyrir utan var um að ræða listamenn sem voru ólíkir um margt. Sýningarhópurinn Septem var stofnaöur árið 1974 og voru félagarn- ir margir þeir sömu og höfðu tekið þátt í September-sýningunum eins og Þorvaldur Skúlason, Valtýr Pét- ursson, Kristján Davíðssson, Jó- hannes Jóhannesson, Karl Kvaran, Steinþór Sigurðsson og Jóhannes Jóhannesson eru meðal þeirra (istamanna sem eiga verk á yfirlitssýningunni September/Septem. Guðmunda Andrésdóttir auk Sigur- sem gestur. Auk þess var Steinþór hann hafði frá því um 1960 lagt stund jóns Ólafssonar, sem kaus að sýna Sigurðsson meðlimur í hópnun, en á abstraktmyndir í ljóörænum stíl. Fjölþjóðlegur kvartett leikur i Duushúsi á sunnudagskvöld. Heiti potturinn: Islenskur djass og suður-amerísk tónlist Á sunnudagskvöld mun fjölþjóð- legur kvartett franska bandeo- neónleikarans Ohvier Manoury halda tónleika í Heita pottinum í Duushúsi við Fischersund. Olivier Manoury hefur um langt árabil leikiö argentínskan tangó vítt og breitt um Evrópu og einnig í Buenos Aires, en er búsettur í París. Þótt hann sé þekktastur sem tangóleikari á bandeoneón, sem er nokkurs konar harmóníka, hefur hann einnig spilað djasstónhst og á sunnudagskvöldið verður leikin blanda af djassi og suður-amerískri tónhst. Kvartettinn mun spha lög eftir þá Ohvier Manoury, Tómas R. Einarsson og úrugvæska píanó- leikarann Enrique Pascual. Með Ohvier Manoury spila kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson, hinn hohenski en hér búandi Marteen van der Valk á trommur og kóngatrommur og píanóleikarinn Kjartan Valde- marsson. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30. Norræna húsið: Fyrirlestrar um mál- efni Finnlands-Svía Fulltrúar frá landsmálaþingi Finn- lands-Svía eru í heimsókn í Reykja- vík þessa dagana. Gestimir eru Jan Rosqvist og Ralf Nordgren, varafor- setar þingsins, Christian Brandt rit- ari og Dag Lindberg vararitari. Rosq- vist starfar hjá hehbrigöisstofnun- inni Folkhálsan, Nordgren er rithöf- undur og lektor, Brandt er þingmað- ur og skrifstofustjóri þingsins og Lindberg starfar aðahega aö byggða- og menntamálum. Með heimsókninni vhja fuhtrúarn- ir stuðla að betri kynnum og sam- skiptum við íslendinga og kynna málefni og stöðu Finnlands-Svía. Þeir munu m.a. hitta Guörúnu Helgadóttur, forseta Sameinaðs Al- þingis, og heimsækja menntamála- ráðuneytið. Á sunnudag verður síðan dagskrá í Norræna húsinu þar sem fluttir verða stuttir fyrirlestrar um málefni Finnlands-Svía. Fjahað verður um störf og verkefni landsmálaþingsins og sagt frá ýmsum staðreyndum varðandi Finnlands-Svía. Auk þess flytur Ralf Nordgren frumsamin ljóð og ljóð eftir aðra höfunda. Tónlist verður flutt og sýnd verður kvik- mynd. Landsmálaþingið hefur starfað frá árinu 1919 og það gætir hagsmuna sænskumælandi íbúa Finnlands en þeir eru um þijú hundruð þúsund. Þingið kemur saman árlega. Þing- menn eru 75 frá sex stjórnmálaflokk- um. Stærsti flokkurinn er Sænski þjóðarflokkurinn en Sænski sósíal- demókrataflokkurinn fylgir fast á eftir. Fluttir verða stuttir fyrirlestrar um málefni Finnlands-Svia.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.