Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
Meiming
Nemendur Söngskólans í Reykjavík sem tóku lokapróf að þessu sinni.
Söngskólinn í Reykjavik:
Aldrei jaf nmargir
lokið lokapróf i
Aldrei í sögu Söngskólans í
Reykjavík hafa jafnmargir nem-
endur tekið lokapróf og á þessu
vori. 120 nemendur stunduðu fullt
nám í vetur og luku fimmtán 8.
stigs prófi, það er lokaprófi úr al-
mennri deild. Þrír nemendur luku
burtfararprófi (Advanced certific-
ate) og þrír nemendur luku söng-
kennaraprófum. Prófdómari að
þessu sinni var Desmond Sergeant
frá Associated Board of the Royal
Schools of Music.
Tónleikar þeirra sem luku próf-
um standa nú yfir og voru fyrstu
tónleikamir síðastliðiö finuntu-
dagskvöld. Alls eru þetta sex tón-
leikar og eru þeir haldnir í íslensku
óperunni og verða þeir síöustu á
miðvikudagskvöld.
Þeir þrír nemendur sem luku
burtfaraprófi, Alda Ingibergsdótt-
ir, Ágústa Sigrún Ágústdóttir og
Harpa Harðardóttir, eru ekki með
tónleika nú. Alda hélt sína tónleika
í mars en Ágústa og Harpa hyggja
á tónleika í haust.
LOGSUÐUTÆKI
MARGAR GERÐIR
argon- og propangas-
mælar
súr- og gasmælar,
tvöfaldar slöngur,
kveikjur,
logsuöugleraugu,
einstreymislokar,
logsuðutæki í settum,
súr- og gaskútar.
t Varahlutaþjónusta.
ÁRVÍK
HF.
AHMÚU I • PÓSTHÓLF 8000-128 REYKJAVÍK • SiMI 687222 • TELEX 3012 • TELEFAX 687295
Myndlist á
listahátíð
Mósaíkverkin á sýningunni 2000 ára litadýrð i Listasafni íslands eru mjög
gömul, þau elstu frá 6.-8. öld eftir Krist.
Verkin eftir hinn fræga myndlistarmann, Joan Míró, eru komin í hús á Kjarv-
alsstöðum og er unnið að uppsetningu þeirra. DV-myndir GVA
í tilefni listahátíðar í Reykjavík
verða um næstu helgi opnaðar merk-
issýningar í flestum sýningarsölum
Reykjavíkurborgar. Rjórar sýningar
eru af erlendum uppruna en íslensk-
ir myndlistarmenn leggja einnig sitt
af mörkum. Erlendu sýningarnar
eru af ólíkum toga og fiölbreyttar.
Á Kjarvalsstöðum er nú verið að
koma fyrir verkum eftir Joan Míró
sem er vafalítið einn frumlegasti og
þekktasti myndlistarmaður tuttug-
ustu aldarinnar. Hann fæddist á
Spáni 1893. Þar hlaut hann hefð-
bundna myndlistarmenntun. Hann
fluttist ungur til Parísar þar sem
hann kynntist súrrealistunum
snemma á þriðja áratugnum. Míró
var hugmyndalega nátengdur þeim
hópi listamanna, þó svo að hann hafi
snemma farið sínar eigin leiðir -
leiddur áfram af óvenju frjóu hug-
myndaflugi. Míró lést 1983.
Sýningin á Kjarvalsstöðum inni-
heldur málverk, teikningar og skúlp-
túra frá seinni árum listamannsins,
það er eftir 1960, og kemur sýningin
frá listasafninu Maeght í Suður-
Frakklandi. Þá má geta þess að
Kjarvalsverk verða einnig til sýnis á
Kjarvalsstöðum. Er um aö ræða verk
úr einkasafni Eyrúnar Guðmunds-
dóttur og Jóns Þorsteinssonar.
Kjarvalsstaðir munu einnig í sam-
starfi við Kringluna efna til yfirlits-
sýningar á verkum eftir yngstu kyn-
slóð íslenskra myndhöggvara þar
sem listamönnum er úthlutað
ákveðnu rými í verslunarmiðstöö-
inni til að glíma við.
Mósaík og búningar
í Lástasafni íslands er ekki síður
merkileg sýning sem kemur frá Jórd-
aníu og Palestínu, nefnist hún Mósa-
ík - búningar og skart. Þessi merki-
lega sýning er í tveimur hlutum,
annars vegar eru sýnd mósaíkverk,
er lánuð hafa verið af þjóðminjasafni
Jórdaníu, en hins vegar búningar og
skart sem koma úr hinu merka
einkasafni frú Widad Kawar í Amm-
an. Verkin á mósaíksýningunni eru
mjög gömul. Elsti hlutinn er verk
sem fundust í Jórdaníu við fomleifa-
uppgröft í byggingum frá býsönskum
tíma, bæði trúarlegum og veraldleg-
um, á fiallinu Nebo. Verk þessi eru
talin vera frá 6.-8. öld eftir Krist.
Frú Widad Kawar sem lánað hefur
búningana og skartið byrjaði að
safna búningum og skarti kvenna
þegar á sjötta áratugnum en þá
sýndu fáir áhuga á þessari hefð sem
hefur gengið kynslóð fram af kyn-
slóð. Þó að búningamir, sem hér
verða sýndir, séu ekki eldri en frá
19. öld sýna þeir vel hefðina sem gekk
kynslóð fram af kynslóð. Búningam-
ir em ekki sýndir sem þjóðhátta-
fræðileg fyrirbæri heldur sem hsta-
verk.
Listasafn íslands hefur einnig í
samvinnu við Lástahátíð og Gallerí
11 boðið heimsþekktiun frönskum
listamanni, Daniel Buren, að vinna
útilistaverk við Gallerí 11 og Lásta-
safniö. Verkið nefnist Staðsetning,
framsetning, tilfærsla - staðbundið
verk. Buren, sem kom fram á sjónar-
svið á hinum róttæku tímum í kring-
um 1968, hefur ávallt unnið þannig
að þungjamiðja verksins er sam-
hengið milli umhverfisins og verks-
ins sjálfs. Buren hefur unnið verk sín
í samvinnu við listasöfn víða um
heim og er einn eftirsóttasti lista-
maður Frakka í dag.
Fjórða sýningin af erlendum upp-
runa er sýning sænska listamanns-
ins Bjöm Bmsewitz í Lástasafni ASÍ.
Bjöm er einn þekktasti myndlistar-
maður Svía og hefur haldið fiölda
einkasýninga úti um allan heim. Á
sýningu hans hér verða teikningar
unnar á síðustu ámm og hefur sýn-
ingunni verið lýst sem þroskasögu
ungs manns í myndum og vakið
mikla athygli.
Hjörleifur og Kristján
Framlag Félags íslenskra mynd-
listarmanna til listahátíðar verður
yfirhtssýning á verkum Hjörleifs
Sigurðssonar og verður sýningin
bæöi í Norræna húsinu og FIM-
salnum. Hjörleifur er einn af fmm-
heijum íslensks módemisma í
myndhst og tók þátt í þeim sýningum
í upphafi sjötta áratugarins er mörk-
uöu tímamót í myndhstarsögu ís-
lands. Elstu verkin á sýningunni em
frá 1949ogþau nýjustu frá þessu ári.
í Listasafni Siguijóns verður opn-
uð sýning á æskuverkum Siguijóns
Ólafssonar. Em flestar teikningarn-
ar gjöf til safnisins og hafa aldrei
verið sýndar áður. Annars býður
Lástasafn Siguijóns upp á fiölbreytta
dagskrá flesta daga meðan hstahátíð
stendur yfir.
í Ásmundarsal verður sýning sem
hefur yfirskriftina Arkitektinn sem
hönnuður. Er það Arkitektafélag ís-
lands sem stendur að þessari sýn-
ingu og fiallar hún um hönnun í
starfi arkitekta. Tilgangur sýningar-
innar er að varpa ljósi á sköpunar-
verk íslenskra arkitekta á þessu
sviði. Sýnd verða húsgögn og lampar
auk annarra nytjahluta er spanna
yfir aha sögu íslenskra arkitekta frá
Rögnvaldi Ólafssyni og Guðjóni
Samúelssyni til vorra daga.
Nýleg verk eftir Kristjón Davíðsson
verða sýnd í Nýhöfn, auk þess sem
bók um hann kemur út
Síðast en ekki síst bera að geta sýn-
ingar á verkum Kristjáns Davíðsson-
ar í Nýhöfn. Er um að ræða tæplega
tuttugu ný málverk eftir einn virt-
asta hstamann þjóðarinnar. Sýning-
in er öðrum þræði haldin tíl að
heiðra hstamanninn á 75 ára afmæh
hans. í tílefni sýningarinnar munu
Nýhöfn og bókaútgáfan Mál og
menning gefa út vandaða bók um
hstamanninn með ritgerð um hann,
htmyndum ag nýjustu verkum hans
og svo úrvah verka frá 35 ára tíma-
bih.
Eins og sjá má af þessari upptaln-
ingu verður mikh gróska í myndhst
í borginni meðan á hstahátíð stendur
og óhætt að segja að hver sýning sé
mikih viðburður og fiölbreytnin slík
að allir ættu að finna eitthvað fyrir
sinnsmekk. -HK