Dagur - 05.09.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 05.09.1992, Blaðsíða 3
Laugardagur 5. september 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Hagræðingarsjóður: Sveitarfélögin fá svör á mánudag Stjóm Hagræðingarsjóðs tekur, á fundi sínum á mánudag, afstöðu til umsókna 23 sveitar- félaga um úthlutun fiskveiði- heimilda úr sjóðnum. AIIs hef- ur Hagræðingarsjóður 3000 tonn til skipta milli sveitarfé- laga en heildarkvóti sjóðsins er 12.000 tonn. Ef saman eru taldar beiðnir sveitarfélaganna óska þau eftir 10.000 tonnum þannig að augljóslega fá marg- ir minna en þeir vildu. Umsóknir sveitarfélaganna voru teknar fyrir á stjórnarfundi í Hagræðingarsjóði í vikunni. Ákveðið var að fresta því að taka afstöðu og nota tímann til að skoða betur hvernig túlka skuli þær reglur sem settar eru fyrir úthlutun til sveitarélaga. Að sögn Hinriks Greipssonar, starfs- manns Hagræðingarsjóðs, hefði stjórn sjóðsins strax getað útilok- að all mörg sveitarfélaganna þar sem þau uppfylli greinilega ekki skilmálana. í reglugerðinni um úthlutun úr Hagræðingarsjóði segir að skil- yrði fyrir aðstoð sjóðsins til sveit- arfélaga sé að sala fiskiskips eða -skipa hafi valdið slíkum straum- hvörfum í atvinnumálum við- komandi byggðarlags að fyrir- sjáanleg sé veruleg fækkun starfa heimamanna í útgerð og fisk- vinnslu á atvinnusóknarsvæði byggðarlagsins. Jafnfram sé það skilyrði að fyrirsjáanlegt sé að ekki séu í boði önnur störf á við- komandi atvinnusóknarsvæði og byggðaröskun af þeim sökum yfirvofandi. „Þetta eru menn að fá nánari útlistanir á hvernig beri að túlka. En ég held að menn séu að líta til skamms tíma, þ.e. ekki skoða þróunina hjá sveitarfélögunum mjög langt aftur í tímann," sagði Hinrik. JÓH Kirkjan að Kvíabekk 100 ára: Hátíðarmessa á sunnudag - að viðstöddum vígslubiskupi Kirkjan að Kvíabekk í Ólafs- firði er 100 ára á þessu ári og í tilefni þess verður hátíðar- messa í kirkjunni á sunnudag þar sem vígslubiskupinn, sr. Bolli Gústavsson, mun predika og einnig verður boðið upp á fjölbreytta tónlist í messunni. Að lokinni messu verður kirkjugestum boðið til kaffi- drykkju. Kvíabekkjarkirkja var byggð 1889 en fauk skömmu eftir ára- mótin 1892 en var endurbyggð á því ári. Á þessu aldartímabili hafa í tvígang farið fram nokkr- ar endurbætur á kirkjunni en hún þarf nú mikilla endurbóta við. Kirkjan er ekki sérstök safnaðar- kirkja heldur önnur af tveimur safnaðarkirkjum Ólafsfjarðar- sóknar en síðustu fjögur árin hef- ur söfnuðurinn í Ólafsfirði staðið í miklum stórræðum. Á 75 ára afmæli Ólafsfjarðarkirkju í fyrra var teiknuð ný kirkja, tekið hefur verið í notkun nýtt safnaðar- heimili og nýtt pípuorgel. Nýrri kirkju í Ólafsfirði hefur enn ekki verið valinn staður, en sóknarpresturinn, sr. Svavar A. Jónsson, segir að óskastaðsetning sé á núverandi vegi að sundlaug- inni. Bæjartjörnin yrði þá stækk- uð í suður í átt að kirkjunni og hún yrði þá umflotin vatni á tvo vegu. Staðsetning kirkju er hins vegar mjög viðkvæmt mál eins og reynslan hefur sýnt bæði á ísa- firði og við Víghól í Kópavogi. Sr. Svavar segir að brottfluttir Ólafsfirðingar séu mjög fúsir til að tjá sig um málið þótt það brenni síst á þeim. GG Endurnýjun mjólkurtanka í Eyjafirði: Förum okkur hægt og öflum upplýsinga frá framleiðendum - segir Ólafur Jónsson, dýralæknir hjá Mjólkursamlagi KEA „Við höfum skrifað fram- leiðendum tanka víðsvegar og umboðsaðilar hér á landi hafa komið norður og átt fund með okkur og fulltrúum bænda. Tímamörkin eru um áramótin 1995-1996, en eftir það verður bannað að nota freonefnið R- 12, sem er í kælikerfum flestra mjólkurtanka hér,“ sagði Ólafur Jónsson, dýralæknir hjá Mjólkursamlagi KEA. „í um helmingi mjólkurtanka, sem eru bandarískir, er ílátið sjálft mjög gott og það þolir þann þrýsting sem R-22 er keyrt á. í þessum tönkum komum við því líklega til með að skipta um kæli- eininguna, en hinn helming tank- anna, sem eru sænskir, verðum við að endurnýja. Síðarnefndu tankarnir eru í flestum tilfellum hjá minni mjólkurframleiðend- um,“ sagði Ólafur. Vegna þess að ekki væri búið að leita tilboða frá framleiðend- um mjólkurtankanna sagðist Ólafur ekki geta sagt til um hve mikil fjárfesting yrði hjá hverj- um mjólkurframleiðanda, en skjóta mætti á 5-700 þúsund krónur. „Ég veit til þess að í Flóanum hafa menn verið að skipta út mjólkurtönkum, en við viljum fara okkur hægar í þessu og kynna okkur markaðinn betur. Við eigum jafnvel von á full- trúum fleiri framleiðenda á næst- unni,“ sagði Ólafur. Hann lét þess getið að mjólk- Félagsstofnun stúdenta á Akureyri: Þriðju stúdenta- garðarnir boðnir út - verklok ákveðin 10. ágúst 1993 Óskað hefur verið eftir tilboð- um í byggingu stúdentagarða við Klettastíg en það verður þriðja húsið sem Félagsstofnun stúdenta á Akureyri byggir til þeirra nota. Húsið verður samtals um 450 fermetrar - þar af verður hluti þess á tveimur hæðum - auk frí- standandi hjóla- og sorpgeymslu. Þak hússins verður pappalagt og húsið einangrað að utan. Frá og með nk. mánudegi verða útboðsgögn seld á Verk- fræðistofu Norðurlands hf. en þau verða síðan opnuð á hádegi þriðjudaginn 15. september nk. Verklok eru ákveðin þann 10. ágúst 1993. GT urtankar á samlagssvæði Mjólk- ursamlags KEA væru komnir til ára sinna og því væru töluvert tíðar bilanir í þeim. Þó svo að bann við notkun freonefnisins R- 12 hefði ekki komið til, þá hefðu bændur hvort sem er þurft að fara að huga að endurnýjun mjólkurtankanna. óþh Ferðakaupstefna Vestur-Norðurlanda haldin á Akureyri 23.-26. september 1992 Ferðakaupstefna Vestur-Norðurlanda verður haldin á Akureyri dagana 23.-26. september nœstkomandi. Gert er ráð fyrir að um 200 ferða- heildsalar frá 25 þjóðlöndum komi á kaupstefn- una og að um það bil 130 aðilar í ferða- þjónustu frá íslandi, Fœreyjum og Grœnlandi verði þar með sýningarbása og kynni ferða- möguleika í hverju landi fyrir sig. Athygli auglýsenda er vakin á því að Dagur verður með veglegt aukablað tileinkað kaup- stefnunni. Blaðið verður prentað í stóru upplagi og mun m.a. liggja frammi á kaupstefnunni. Útgáfudagur er 23. september nk. Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í blaðinu eru hvattirtil að hafa samband við auglýsingadeild hið fyrsta og eigi síðar en miðvikudaginn 16. september nk. Strandgötu 31 • 600 Akureyri Sími 24222 • Fax 27639 KYNNING Um helgina kynnnm við starfsemi Tölvufræðslunnar á komandi mánuðum t. d.: Skrifstofiitækni og bókhaldsnámskeið ásamt fjölda annarra námskeiða. Opið hús 4., 5. og 6. september Komið við hjá okkur á Furuvöllum 5 eða hringið í síma 27899. Greiðslukjör við allra hæfi. Vísa-Eurocard Nám hjá okkur er „náiii sein nýtisU 1 fyrsta siim á íslandi: Kynning á WordPerfect fyrir Windows á íslensku (sjá Sjónvarpsdagslerá). Tölvufræðslan Akureycl Furuvöllum 5, Akureyri, sími 27899. 24 MYNDA FILMA FYLGIR HVERRI FRAMKÖLLUN 24 mynda filma er innifalin i verðinu. GERIÐ VERÐSAMANBURÐ REGNBOGA FRAMKÖLLUN Óskum eftir filmumóttökustöðum utan Akureyrar. Uppl. í síma 96-27422 Nýja Filmuhúsið, Hafnarstræti 106, Akurjeyri. Sími: 27422. Filmumóttökustaðir: Esso-nesti Tryggvabraut, Veganesti v/Hörgárbraut, KEA Byggðavegi 98, Brynja Aðalstræti 3, Radíóvinnustofan Kaupangi, Esja Norðurgötu 8, Rafland Sunnuhlíð, Síða Kjalarsíðu 1, Sæland Móasíðu 1. KEA verslun Ólafsfirði. Sólrún, verslun, Öldugötu 18 Árskógssandi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.