Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Blaðsíða 26
34 * FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 Afmæli dv Haraldur Friðriksson Haraldur Friöriksson bakarameist- ari, Sunnubraut 18, Kópavogi, verö- ur fimmtugur á morgun. Starfsferill Haraldur fæddist í Vestmannaeyj- um en flutti ungur meö foreldrum sínum á Eyrarbakka, síðan á Selfoss og loks í Kópavoginn 1953 þar sem hann hefur átt heima síðan. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1961, sveinsprófi í bakaraiðn 1969 og hlaut meistararéttindi í iðninni 1985. Haraldur hóf störf í bakaríi fóður síns, Bakaríi Friðriks Haraldssonar, 1962. Hann gerðist meðeigandi í fyr- irtækinu 1974 og hefur rekið það síðan með föður sínum sem sam- eignarfélag. Haraldur hefur tekið virkan þátt í félagsmálum. Hann starfaði í skátafélaginu Kópum um árabil og var þar félagsforingi og stóð að stofnun Hjálparsveitar skáta í Kópavogi 1969 og var fyrsti formað- ur sveitarinnar. Hann sat í stjóm Labak - Landssambands bakara- meistara 1983-90 og var formaður samtakanna 1985-90, átti sæti í stjóm Landssambands iðnaðar- manna 1987-91 og hefur verið félagi í Rotaryklúbbi Kópavogs frá 1990. Fjölskylda Haraidur kvæntist 15.3.1969 Ás- rúnu Davíðsdóttur, f. 24.11.1946, söngkennara og skrifstofustjóra við Söngskólann í Reykjavík. Hún er dóttir Davíðs Áskelssonar, kennara í Kópavogi, og Guöbjargar Krist- jánsdóttur húsmóöur sem bæði eru látin. Systkini Haralds eru Finnur Þór Friðriksson, f. 7.6.1951, flugmaður hjá Atlanta, búsettur á Sauðár- króki, kvæntur Jóhönnu Björns- dóttur skrifstofumanni og em dæt- ur þeirra Steina Margrét nemi og Rúna Birna nemi; Dröfn Huid Frið- riksdóttir, f. 29.2.1960, tækniteikn- ari í London, gift AmþóriÞórðar- syni, verkfræðingi hjá Evrópubank- anum í London, og em börn þeirra Ásrún Lára nemi, Friðrik Þór nemi ogKatrín, nýfædd. Foreldrar Haralds eru Friðrik Haraldsson, f. 9.8.1922, bakara- meistari í Kópavogi, og Steina MargrétFinnsdóttir, f. 10.6.1926, húsmóðir. Ætt Albróðir Friðriks er Rúrik Har- aldsson leikari. Hálfsystir Haralds, samfeðra, var Unnur, móðir Frið- riks Sigurbjörnssonar, skrifstofu- stjóra HÍ, föður Þorvalds fornleifa- fræðings og útvarpsfréttamanns; móðir Áslaugar Sigurbjömsdóttur, móður Sigurbjöms Magnússonar lögmanns, og móðir dr. phil. Bjöms Sigurbjömssonar, forstjóra sameig- inlegra deilda FAO og IAFA í Vín. Friörik er sonur Haralds, kaup- manns og trésmiðs í Vestmannaeyj- um, Sigurðssonar, b. í Butru í Fljóts- hlíð, Ólafssonar, b. í Tjamarkoti, Sigurðssonar. Móðir Haralds var Guðbjörg Sigurðardóttir. Móðir Guðbjargar var Ingibjörg, systir Tómasar Fjölnismanns, langafa Helga yfirlæknis, föður Tómasar yfirlæknis og Ragnhildar, fyrrv. al- þingismanns, en Tómas var einnig afi Jóns Helgasonar biskups og Áif- heiðar, ömmu Sigurðar prófessors og Páls ráðuneytistjóra Líndal, föð- ur Bjöms bankastjóra og Þórhildar Líndal, umboðsmanns barna. Ingi- björg var dóttir Sæmundar, b. í Ey- vindarholti, Ögmundssonar, prests á Krossi, bróður Böðvars, prests í Holtaþingum, föður Þorvalds, prests í Holti, langafa Sigríðar, móð- ur Vigdísar forseta. Ögmundur var sonur Presta-Högna á Breiðabóls- stað, Sigurðssonar. Móðir Sæmund- ar var Salvör Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns forseta. Móðir Frið- riks var Kristjana Einarsdóttir. Steina er dóttir Finns í Uppsölum, bæjarstarfsmanns í Vestmannaeyj- um, Sigmundssonar, fiskmats- Haraidur Friðriksson. manns í Eyjum, Finnssonar. Móðir Steinu var Þórunn Einarsdóttir. Haraldur biður vini og vanda- menn að samgleðjast þeim hjónum í Lionsheimilinu Lundi við Auð- brekku í Kópavogi á morgun, laug- ardaginn 19.11., kl. 17.00-19.00. Merming_______________________________________________ Pipraðir páfuglar bomir fyrir böm Ungviðið getur glaðst fyrir þessi jól því upp á fat hafa verið færðir pipraðir páfuglar, saltaðir sjófuglar og annað hókmenntalegt góðgæti í bókinni Gamlar vísur handa nýj- um börnum. í bókinni er að fmna fjöldann allan af gömlum vísum og þulum sem hafa verið að falla í gleymsku og dá á öld sjónvarps og tölvuleikja. í vísum þessum er börnunum boöið upp á ferðalag til þeirra tíma þegar afar og ömmur sátu með afkomendum sínum í baðstofum og þuldu upp úr sér romsur fróðleiks í bundnu máli. Án efa munu mörg börn eiga erf- itt með að skilja sumar visumar þar sem þær byggja á gamalli orð- notkun og fjarlægum reynsluheimi íslensks sveitasamfélags. Mun þá reyna á þekkingu og hæfni hinna fullorðnu til að útskýra hin flóknu hugtök og sefja þau í samhengi. Sem dæmi má nefna vísuna um pipraða páfugla en þar er sælurík- inu lýst: „Þar voru á borðum / pipraöir páfuglar, / saltaðir sjófuglar, / mimjan og timjan / og multum salve. / Þar var drukkið primet og klaret / og vín- ið garganus; / gullkistur um gólf dregnar / og gjafir mönnum gefnar; / þeir fóm þaðan fullríkir, / sem þangað komu fátækir." Guðrún Hannesdóttir valdi vísumar og myndskreytti bókina og hefur verkið tekist einstaklega vel. Myndirnar em htskrúðugar og fallegar; vel til þess fallnar að vekja áhuga hama á vísum og þroska með þeim tilfinn- ingu fyrir bundnu máh. Æskhegt heföi þó verið að láta orðskýringar fylgja vísunum því ugglaust munu margir fullorðnir eiga í erfiðleikum með að svala fróðleiksþorsta bamanna án slíkrar aðstoðar. Guðrún á þakkir skildar fyrir þessa bók og er ljóst að hún hefur lagt á sig erfitt ferðalag um vanræktan garð íslenskrar bókmenntasögu. Gamlar vísur handa nýjum börnum Guðrún Hannesdóttir tók saman. Forlagið 1994. 37 bls. Bókmeimtir Kristján Ari Arason L0TTÍ Vinningstölur ,------------ miövikudaqinn: 16. nóvember VINNINQAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING n 6 af 6 2 23.480.000 n 5 af 6 tfl+bónus 1 2.862.855 KH 5 af 6 2 126.147 1 4 af 6 223 1.799 n 3 af 6 Bfl+bónus 807 213 BÓNUSTÖLUR ©@@ Heildarupphæð þessa vlku 50.648.217 áísi, 3.688.217 njyinningur fór til Danmerkur og Noregs UPPtÝSINGAR, SÍMSVARl »1-48,511 LUKKUUMA M1000- TEXTAVARP 451 BIRT UEO FYRIRVAHA OM ÞRENTVILLUR Baldur Jónsson Baldur Jónsson, bóndi í Ysta- hvammi í Aðaldal, er sextugur í dag. Starfsferill Baldur fæddist í Ysta-Hvammi og ólst þar upp í foreldrahúsum við öll almenn sveitastörf. Á unghngsár- unum var hann þrjár vértíðir hjá Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum. Hann stundaði nám við Bændaskól- ann á Hólum frá 1952 og lauk þar búfræðiprófi 1954. Baldur starfaði síðan á búi for- eldra sinna, rak þar félagsbú, ásamt þeim 1959-65 en tók þá við búinu og hefur síðan stimdað blandaðan bú- skap í Ysta-Hvammi. Baldur starfaði í ungmennafélagi sveitarinnar, starfar í búnaðarfé- laginu, var einn stofnenda og sat í stjómhestamannafélagsinsÞjálfa ' um skeið og hefur setið í stjórn Li- onsklúbbsins. Fjölskylda Kona Baldurs er Fanney Helga- dóttir, f. 1930, húsfreyja. Hún er dóttir Helga Gunnlaugssonar, b. á Hafursstöðum í Öxarfirði, og Krist- ínar Gamalíusdóttur húsfreyju. Stjúpbörn Baldurs eru Sigríður Helga, f. 1957, prestsfrú á Skinna- stað í Öxarfirði, gift Eiríki Jóhanns- syni, presti þar og á hún tvö böm; Hálfdán Svanur, f. 1958, b. á Bjarna- stöðum í Öxarfirði, kvæntur Ehnu Maríusdóttur, húsfreyju og bónda, ogeigaþrjúbörn. Börn Baldurs og Fanneyjar em Kristín, f. 1960, húsmóðir og sjúkra- liðanemi, búsett á Húsavík, gift Kristjám Halldórssyni, starfsmanni hjá Pósti og síma, og eiga þau þrjú böm; Sigþóra Oddný, f. 1964, starfs- maður Eimskipafélags íslands á Akureyri; Böðvar, f. 1967, b. í Heið- argarði en kona hans er Lára Pálmadóttir, búfræðikandídat og fuhtrúi Landgræðslunnar. Systkini Baldurs: Ásta, f. 29.3. 1926, saumakona á Húsavík, gift Hermanni Aðalsteinssyni og eigá þau fimm börn; Oddný, f. 9.4.1927, saumakona á Seltjamamesi, var gift Sigþóri Guðnasyni sem lést 1962 og em böm þeirra fjögur; Valgerð- ur, f. 1.11.1928, húsfreyja á Héðins- höföa á Tjörnesi, gift Jónasi Bjarna- syni og eiga þau fimm börn; Aðal- björg, f. 8.3.1930, húsfreyja að Litlu- reykjum í Reykjahverfi, gift Sig- tryggi Ámasyni og eiga þau íjögur Baldur Jónsson. böm; Helga, f. 9.1.1932, húsfreyja í Lækjarhvammi í Aðaldal, gift Gísla Kristjánssyni og eiga þau sex böm; Þórólfur, f. 4.5.1941, smiður á Há- nefsstöðum í Svarfaðardal, kvæntur Þorbjörgu Alfreðsdóttur og eiga þau þrjúbörn. Foreldrar Baldurs voru Jón Gunnlaugsson, f. 7.10.1901, d. 22.3. 1974, b. í Ysta-Hvammi, og k.h., Guð- rún Gísladóttir, f. 7.6.1903, hús- freyja. Baldur verður að heiman á afmæl- isdaginn. S veinhildur Vilhjálmsdóttir, Hlíðargötu 33, Neskaupstað. Ingunn Sigmundsdóttir, Hjallaseli 55, Reykiavík. 70 ára Þorsteinn Sigurvaldason, Meðalholti 19, Reyiyavík. Eirikur Jónsson, Einhundi 6E, Akureyri. Ingibergur Grímsson, Langholtsvegi 155, Reykjavík, Rafnhildur Arnadóttir, Sunnubraut 17, Akranesi. 60 ára Garðar Gíslason, Álfaskeiði 56, Hafnarfirði. Ásmundur Markús Helgason, Ásholti 6, Reykjavík. . Hafsteinn Þorbergsson, Ránargötu 11, Akureyri, ' Hörður Sigursteinsson, Breiðvangi 16, Hafnarfirði. Hörðureraðheiman. Bergur Jónsson, Hverfisgötu33, ' Hafnarfirði. Bergurtekurá ■ mótigestumað Hiallahrauni 13,Hafnarfirði, laugardaginn 19.11. eftirkl. 50 ára Jóna Bjarnadóttir, Kúrlandi 22, Reykjavik. Sigríður Pálsdóttir, Eyrarbraut 22, Stokkseyri. Sigríður Guðmundsdóttir, Hjahabrekku 16, Kópavogi. Þorsteinn Páll Gústafsson, Miðfelii I, Fellahreppi. 40 ára Sturla Snæbjörn Þórðarson, Arnarheiöi 29, Hveragerði. Svanhvít Magnúsdóttir, Bamaskólanum aö Skógum, Austur-Eyjafjallahreppi. Guðrún Bjamey Bjarnadóttir, Hjallabraut94, Hafnarfirði. Bjami Þorvaldsson, Klausturhvamroi 10, Hafnarfiröi. Sigurður Björnsson, Njörvasundi 19, Reykjavík. Guðrún Brynja Sigurðardóttir, Tjamarlundi 11C, Akureyii. María Alfreðsdóttir, Steinageröi 8, Húsavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.