Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 6
22 MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 Tækxii - tölvur Forsenda margmiðlunar: Fjórhraða geisladiska- drif hrí ðlækka í verði Forsenda fyrir margmiðlun á tölvu er að hafa gott geisladiskadrif. Flest drif í dag eru tveggja hraða en þau sem veita bestu myndgæðin eru íjór- hraöadrif. Fyrir ári kostuðu slík drif rúmlega 100 þúsund krónur en í dag má fá fjórhraða geisladiskadrif á tæpar 30 þúsund krónur. Meðal söluaðila er Tæknibær viö Aðalstræti í Reykjavík. Maron Brynjarsson hjá Tæknibæ sagði í samtali við DV að fjórhraðadrifin væru fullkomnari með svokölluðum IDE-stjómanda, þ.e. þau koma sem annar eöa þriðji harði diskur. Það var IDE-tæknin sem lækkaði drifin í verði. Tæknibær þjónustar eingöngu PC-tölvur. „Tveggja hraða drifin verða í fullu gildi vel fram á næsta ár en íjór- hraðadrifin eru framtíðin. Með þeim er t.d. hægt að keyra upp kvikmynd- ir á tölvum. Það er alveg eins og að horfa á bíó, myndgæði eru fullkomin. í dag má fá yfir 100 titla af kvikmynd- um á geisladiski," segir Maron. Fyrir ári vom það einkum fyrir- tæki og stofnanir sem notuðu fiór- hraðadrif. Sökum kostnaður gat hinn almenni tölvunotandi ekki leyft sér slíkan munað. í dag kosta algeng- ustu drifin, tveggja hraða, um 15 þúsund krónur, kostuðu um 40 þús- und fyrir 1 ári. Maron telur að þau muni ekki lækka meira í verði heldur eigi fiórhraðadrif eftir að lækka enn frekar. Verðið fer reyndar eftir framleiö- andanum. NEC-drif eru dýrust en ódýrust frá Mitsumi og Plextor, svo helstu framleiðendur séu nefndir. Geisladiskadrif eru aukabúnaður með tölvum í dag. Maron spáir því að eftir aðeins sex mánuði verði ein- göngu geisladiskadrif látin fylgja með tölvum sem staðalbúnaður, eða standard-búnaöur. Dæmi um slíkt má þegar finna í Bandaríkjunum. „Fjórhraöadrifin eru mjög hag- kvæm fyrir tölvunotandann. Hann þarf ekki að vera með þessa stóru hörðu diska heldur munu tiltölulega lítil stýriforrit koma þar í staðinn. Forritið sjálft mun keyra á geisla- diskinum," segir Maron Brynjars- son. Fyrir eigendur Macintosh-tölva skal þess getið að fiórhraðadrif eru ekki komin á markaö hérlendis. Valdimar Óskarsson hjá Apple- umboðinu sagði að eins og staðan væri í dag væri ekki þörf fyrir fiór- hraðadrif þar sem fiöldi geisladiska í slík drif væri takmarkaður. Þörfin yrði ekki fyrir hendi fyrr en í fyrsta lagi eftir hálft ár. Tvíhraðadrif eru algengust í Mac- intosh-tölvum í dag og sagði Valdi- mar þau duga álíka vel og fiórhraða- drifin miðað við algengasta hugbún- aðinn í dag. Athuganir í fagtímarit- um sýndu þá niðurstöðu. Valdimar tók undir það að geisla- diskadrif myndu lækka í verði í nán- ustu framtíð. „Þetta á eftir að lækka í verði bara vegna allra tölvuleikjanna á diskl- ingum. Þeir seljast meira því nú er ekki hægt að afrita neitt. Verðið helst niðri þar sem selst meira magn. Þá kaupir fólk oftar geisladrif sem aftur hefur í för með sér lækkandi verð,“ sagði Valdimar. Út er komið nýtt forrit fyrir hasarblaðaunnendur. Forritið er framleitt af Berkeley Systems, þeim hinum sömu og framleiddu After Dark forritið. Hér að ofan má sjá skjámyndir (screen posters) úr forritinu frá Marvel Comics, hasarblaðaútgefandanum fræga í Bandarikjunum, sem gefur m.a. út Spider Man, Hulk og X-Men. Myndirnar er hægt að nota sem bakgrunn í stað þess hefðbundna sem er á Macintosh eða PC-tölvum. Um er að ræða einar 20 mismun- andi myndir. Að ofan má sjá tvær þeirra, Hulk og hinn illræmda Sabertooth. Frýnilegir piltar, ekki satt! 0FWB incorporated Hammer diskar hafa verib í fararbroddi frá upphafi FWB diskarnir fást í ýmsum útfærslun, allt frá ódýrum og öruggum diskum fyrir almenn einkanot, upp í 17,6 GB RAID stæöu meö innbyggbu afritunarkerfi, sniöið aö þungri myndavinnslu, fyrir netstjóra og tryggir umfram allt hámarks gagnaöryggi. FWB býöur upp á SCSI-1, SCSI-2, SCSI-Wide og Fast and Wide SCSI-2 lausnir sem sem henta hverjum og einum. Einnig eru til skiptidiskar, Tape og DAT afritunarstöövar. Aleuiev TECHNOLOGY Frá SUm/m. bjóðast ýmsar uppfærslur fyrir Macintosh vélar, meðal annars: • 80MHz hröðunarspjöld fyrir Power Macintosh 6100 og 7100: 16.942,- • 256KB skyndiminni fyrir Power Mac 6100 og 7100, gefur allt ab 48% hraöaaukningu: 22.166,- • Hröðunarspjöld fyrir Macintosh Quadra og Centris: 16.942,- • Allt ab 50MHZ fyrir Macintosh llfx og 28MHz fyrir llsi. vs 'ashlar- Ashlar Vellum CAD forrit í tvívíÖu og þrívíbu umhverfi, fyrir Macintosh, Power Macintosh og Windows umhverfi í PC. PowerDraw ENGINEERED SOFTWARE CAD forrit í tvívíbu umhverfi, fyrir Macintosh & Power Macintosh. PowerDraw gefur 1 þér öflugann og hagkvæmann valkost. iyn Minniseiningar með lífstíðarábyrgð fyrir: • Macintosh vélar, t.d. Power Mac, Quadra, Centris, LC, PowerBook & netstjóra. • Einnig fyrir yfir 70 tegundir PC-véla. MEMORYINTERNATIONAL • Ýmsar tegundir laserprentara fyrir bæöi PC vélar og Macintosh. ÍSB^fífX#! 3* t/* x 3 Ui tn O O Ul Ut tö Ó> OO Ul o í>. o o Delrina komiö meðWin- FaxPRO 4.0 Delrina Corp., einn stærsti tölvufaxtækj aframleiðandi heims, he'fur sett á markað nýtt tölvufaxtæki sem nefnist Win- FaxPRO 4.0. Helstu kostir tækis- ins eru að það er einfalt í notkun, jafnt fyrir byrjendur sem vana tölvunotendur. Allt viðmót mið- ast við að gera faxsendingar ein- faldari og öruggari en um leið öflugri með möguleikum á send- ingu á hópa og á ákveðnum tim- um. Einnig eru möguleikar á að senda skjöl, t.d. Word beint á milli staða sem Word-skjal (*.doc), lesa inn ASCI-texta, mót- taka eða skanna inn skjöl og beita síðan OCR-tækni við að lesa texta inn til meðhöndlunar síðar. Um- boðsaðili Delrina á íslandi er Hugbúnaður hf. í Kópavogi. Forritið Kap- ellán fyrir presta Sr. Axel Árnason að Tröð í Gnúpveijahreppi hefur í félagi við bróður sinn Árna Árnason tölvunarfræðing hannað forritið Kapellán. Kapellán er ætlaður fyrir sóknarpresta og gefur for- ritið möguleika á að skrá helgi- hald, prestsverk, prenta út skýrslur til Hagstofunnar og biskups. Auk þess fylgir með leg- staðaskrá fyrir alla kirkjugarða viðkomandi prestakafis. Forritið vinnur bæði á Macintosh og PC- tölvum. Þeir bræður hafa stofnað sér- stakt fyrirtæki, Ábótann sf„ um gerð og sölu Kapelláns. Forritiö er komið í notkun hjá um 40 prestum um allt land. Axel og Árni hafa unnið fleiri forrit, m.a. fyrir læknastofur og lítil bóka- söfn. Flæðirit á Cor- elFIOW CorelFLOW er nýtt forrit frá Corel Corp. til gerðar flæðirita, skipurita, netteikninga, vinnu- flæðirita o.fl. Meö pakkanum fylgja rúmlega 2 þúsund „drag and drop“ tákn, 1 þúsund klippi- myndir, 1 þúsund ljósmyndir og 100 leturgerðir. Hugbúnaður hf. í Kópavogi er umboðsaðili fyrir Corel Corp. Optical-drif frá Fujitsu Fujitsu mun í næsta mánuði setja á markaðinn nýtt utaná- liggjandi Optical-drif sem nefnist DynaMO 230 en Fujitsu er braut- ryðjandi í gerð 3,5 tommu Optic- al-drifa. Um er að ræöa eitt minnsta og hraðvirkasta drif sem skrifar og les í það óendanlega. Ðisklingarnir sem notaðir eru í drifin geta geymt allt að 230 Mb. Þetta er kostur fyrir þá sera þurfa að geyma plássfrekar skrár og geta sótt og breytt þeim með lít- illi fyrirhöfn, t.d. auglýsingastof- ur, tryggingafélög og lifeyrissjóö- ir. DynaMO 230 er tengjanlegt við PC-tölvur, Apple, lítil Windows fyrir Workgroup og sömuleiðis Unix vinnustöðvar. Uraboösaðili Fujitsu á íslandi er B.Ó.G. heild- verslun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.