Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995
25
DV
Heimasíða Miðheima hf. i Tæknigarði. Notendur hafa fjóra flokka til að velja um; Vefarann, Gráu síðurnar (World
Wide Web), íslenskt líf og Fólk.
Fleira er það sem tölvunotendur
komast ekki upp með á Internetinu.
Ekki er hægt að senda fólki keðju-
bréf eða auglýsingar sem það hefur
ekki beðið um. Róbert bendir á að
hægt er að biðja viðtakendur bréfa
eða skjala að kvitta fyrir sendinguna.
Tölvufundir
framtíðin
En hver er framtíð Internetsins?
Róbert segir að innan skamms tíma
verði flestir tölvunotendur komnir
með hljóðkort og geisladiskadrif,
enda skammt í að slíkir hlutir verði
„standard“-búnaður með tölvum.
„Við erum að tala um búnað sem
nefnist voice-mail og býður upp á tjá-
skipti í tali og tónum um Internetið.
Þetta er mjög vinsælt nú þegar í
Bandaríkjunum," segir Róbert.
Enn fremur verður þess ekki langt
að bíöa að tölvunotendur heimsálfa
á milli getið séð hvor annan á skján-
um og haft samskipti þannig. Hér er
átt við video-conferencing eða tölvu-
fundi. Miðað við stöðu tæknimála á
íslandi í dag er þetta ekki hægt þar
sem Internetið fer til íslands á einni
128 Kb línu um gervihnött. Hraðvirk-
ari og betri línu með meiri bandvídd
vanti og telja Arnþór og Róbert að
forráðamenn Pósts og síma verði að
fara „að vakna til lífsins".
„Þetta er stóra málið. Ef við ætlum
að vera með í þróuninni verðum við
að vera með núna. Það verður ekki
aftur snúið. Þróunin er svo hörð að
við verðum alltaf langt á eftir ef við
afhöfumst ekkert. Það dettur engum
í hug að horfa á beina útsendingu á
Interneti af tónleikum Rolling Stones
með 1-2 ramma á sekúndu í svart-
hvítu,“ segir Arnþór.
Róbert segir að hefði verið gerð
könnun fyrir einu ári síðan hefði
varla nema 1% svarenda vitað hvað
Internet væri. í dag myndi hlutfallið
verða allt annað og hærra.
„Það eiga mun fleiri eftir að nýta
sér Internetið og notkunin á eftir aö
verða margfalt ódýrari,“ segir Ró-
bert.
í víking í annað sinn
Arnþór segir aö nú sé tækifæri fyr-
ir þjóðina „að leggjast í víking í ann-
að sinn“. Internet væri að verða
helsti vaxtarbroddurinn í atvinnulíf-
inu með tengingu við helstu atvinnu-
greinamar. Möguleikar á viðskipt-
um við útlönd væm óteljandi í gegn-
um netið. Jafnframt gætu fyrirtæki
aukið viðskipti sín innanlands með
því að bjóða þjónustu sína á Inter-
neti. Dæmi um slíkt er Bóksala stúd-
enta. Hún var fyrsta íslenska versl-
unin til að hagnýta sér Internetið.
Þar geta tölvunotendur keypt bækur,
hvar sem þeir em staddir á landinu,
svo ekki sé minnst á námsmenn er-
lendis.
Annað dæmi um notkunarmögu-
leika innanlands á Intemetinu er
Alþingi. Nú eru allar upplýsingar um
núverandi þingmál og frumvörp
komnar á netið auk upplýsinga um
alla þingmenn með myndum og
ræðusýnishornum með hverjum
þeirra.
Skjámynd sem blasir við þeim sem ná sambandi við upplýsingabanka
Hvíta hússins i Washington um Veraldarvefinn á Interneti.
Tækni - tölvur
Windows 95
með Intemet
Windows 95 er næsta meiri hátt-
ar uppfærslan af Windows forrit-
unum og er væntanleg í sumar.
Nú er orðið ljóst að Microsoft ætlar
að láta Mosaik-hugbúnað fyrir Int-
ernet-tengingu fylgja með. Óhætt
er að segja að mikil eftirvænting
hefur ríkt eftir næstu útgáfu
Windows alveg frá því 3.1 var
hleypt af stokkunum fyrir nokkr-
um árum.
Miklar vangaveltur hafa verið
um stýrikerfið nýja og þ.á m.
hvernig Microsoft ætlar að bregð-
ast viö hinum geysimikla áhuga á
Interneti. Nú nýlega keypti Micro-
soft réttindi af fyrirtækinu Spy-
Glass til þess að láta Mosaik forrit
fylgja með. Sem kunnugt er er
Mosaik notað til að hafa aðgang að
þeim hluta Internetsins sem geng-
ur undir nafninu World Wide Web,
eða Veraldarvefnum. Óhætt er að
halda því fram aö þetta framtak
Microsoft auki enn áhugann á Int-
ernetinu og mikilvægi þess meðal
hins almenna tölvunotanda.
IBM hefur meö RAMAC Arrey andiúppsetningumafRAID-5tækj-
„íjölskyldunni" kyrrnt til sögunnar um, þ.e. RAMAC Array 9394 sem
nýja kynslóð beintengdra geymsl- er með innbyggðri stýrieiningu og
umiðla þar sem notaðir eru hrað- RAMAC Array 9391 sem tengist
virkir RAID-5 disklingar. Þessum 3990 stýrieiningu. Bajði tækin eru
búnaði er ætlað að mæta auknum hugvitsamlega hannaðir skúffu-
kröfum viðskiptaiífsins um vinnslu rekkar með háþróuðum, sjálfstæð-
semtreystaþarfáallansólarhring- um RAID-5 disklingum sem hver
inn. um sig fær afl frá sérstökum RISC-
RAMAC Arrey „fjölskyldan" örgjörvum.
samanstendur af tveimur mismun-
Skrifstofuforritið
Vaskhugi
Vaskhugi sér um alla helstu þætti skrifstofuvinnu.
Auk sölukerfis og fjárhagsbókhalds hefur Vaskhugi
launabókhald og verkefnabókhald, sér um pantanir,
birgðir, viðskiptamenn (eða félagsmenn), lánsút-
reikninga, víxlaútprentanir og margt fleira. Allir
þættirnir vinna sem ein heild og þarf því aldrei að
tvífæra neitt. Engar takmarkanir eru á færslufjölda.
Vaskhugi er lausn á skriffinnskunni. í árslok (eða
hvenær sem er) prentar hann sölusögu, efnahags-
reikning, rekstrarreikning fyrir hvaða tímabil sem
er og ótal aðrar skýrslur.
Fimm ára reynsla - Þúsund notendur
Hagstætt verð - Góð þjónusta.
^V^^Vaskhugi hf.
Grensásvegi 13 - Sími 568-2680
Optiskir diskar Data segulbönd
ENDURSKRIFANLEGIR DC-6XXX 1/4"
3,5" - 5,25" STÆRÐ 1 28-650 MB DC-600 TIL DC-6250
PASSAR í ALLAR GERÐIR STÆRÐ 60-525MB
OPTICAL DRIFA FYRIR ALLAR 5,25" STÖÐVAR
Data segulbönd
DC-9XXX 1/4"
DC-91 20 TIL DC-9250
STÆRÐ 1 ,2-2,5 GB
FYRIR IBM AS-400 O.FL.
Data segulbönd
DAT - 4mm
HS 60-120M
STÆRÐ 1 ,3-2,6 GB
FYRIR DAT STÖÐVAR
DlSKLINGAR
3,5" OG 5,25"
Allar stærðir
OG GERÐIR
SUÐURLANDSBRAUT 46, 3. HÆÐ - 108 REYKJAVÍK SÍMI 581-1022 FAX 581-1033
----------------------------------------------------------------------
BÆÐI
ÓDÝRT OG
data segulbönd
DAT - 8MM
HS 1 1 2M
STÆRÐ 2,5 - 5 GB
FYRIR EXAB 8MM DRIF
DATA SEGULBÖND
DC 2120 QIC
DC-21 20 QIC FORM
STÆRÐ 60 - 1 20MB