Þjóðviljinn - 21.07.1962, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.07.1962, Blaðsíða 1
tl'.**"**" um með virðingu, eins og eðlilegt er, er búið að grafa tvaer miklar holur. Vest- mannaeyingar eru nefniiega að búa sig undir að taka á móti Sogsrafmagni úr landi — úr spennistöð á Ilvolsvelli. Rafmagnskaplinum verður sökkt í sjó og það er víst búið að finna góðan botn alia leið að Klettsvík við Heima- klett. Úr Klettsvíkinni verður kaplinum lyft úr sjó, upp á Heimaklett, og þaðan liggur hann í loftinu yfir á Skans- inn. Ástæðan er sú að ekki þykir nógu góður botn í hafnarmynninu til að hægt sé að taka kapalinn úr sjó við sjálfan Skansinn og því hefur verið gripið til þess ráðs að leggja Ioftlínuna. Á myndinnt sjáum við af Skansinum yfir í Heimaklett og Klettsvík. I forgrunni er iinnur liolan og er verið að fylla hana upp með steyu og járnbindingum, því undirstaða mastranna, sem taka á móti rafmagns- kaplinunt verður að vera traust. Það er Snæfell h.f. seni sér um þessar fram- kvæmdir og eru um 20-manns í vinnu hjá félaginu. (Ljósm. Þjóðv.) '■H-eww® VILIINN Laugardagur 21, júlí 1962 —- 27. árgangur — 161. tölublað. VERKFALLSBROT I NAUSTI * Þjónar í verkfalli i ( * Veitingamaðtir í stimpingum * Hræddir tim „hushóndavaldið^ Á miðnætti í fyrri nótt hófst verkfall framreiðslumanna. Fara þjónarnir fram á að fá ljfeyris- sjóð, hækkun orlofs fyrir þá sem unnið hfa lengi á sama stað, hærri álagningu á helgustu dög- um ársins, en það síðast nefnda er aðalatriðið í kröfum þeirra. Auk þess á að semja um af- greiðsluhætti í veitingahúsunum. Um það atriði hafa samninga- umlcitanir aðallega snúizt til þessa. Veitingamenn gera mik- inn hávaða út af kröfu þessari og hafa við orð að þjónar fari fram á að fá húsbóndavaldið á öllum veitingastöðunum. Sann- leikurinn er sá, að málið snýst um það livort veitingahúsaeig- endur geti sett afgreiðslukassa á barina í húsunum. ef það skað- ar tek.iur þjónanna. Þjónar hafa fyrir sitt íeyti sainþykkt, að setja Úrskurður Fé- lagsdóms fellur ekki í þessari viku Úrskurður Félagsdóms um það hvort löglega sé sagt upp samn- ingum við yfirmenn á bátaflotan- um féll ekki í gær eins og bú- izt hafði verið við. Samkvæmt upplýsingum iormanns dómsins, Hákonar Guðmundssonar, hæsta- réttarritara, er málið enn á und- irbúningsstigi. Það verður tekið fyrir á þriðjudaginn kemur, en ekki er þó víst, að úrskurður falli þann dag. upp þessa kassa, en vilja fá þaö inn í samningana, að heimilt sé að segja þeim upp ef kass- arnir sýna lélegri útkomu fyrir þá þjóna sem í hlut eiga. Veitingamenn véfeng ja verkfallsboðunina Veitingamenn teiljia laíltur á móti verikfall þjóna ólögmætt. Múli sínu til stuðningis benda þeir á það að sáttasemjari hafi fengið ti’.kynninguna um verk- faólið nokkrum ktukikutímum of seint. Þjónar setja það fram á móti, að þó svo hefði verið, væri það aðeins smávægilegur form- galli. Aðalatriðið væri. að Sam- band veitinga- o.g giistihúsaeig- enda, sem er saminingsaðilinn. fékk verkfalsboðiö í tæka tíð. Hitt er svo annað mál, að atvik sem þetta munu hafa komið fyr- ir áður og verið látin kyrr liggja. Þetta mál verður tekíð fyrir í félagsdómi á þriðjudaginn. en þangað til verður þjónaverikfall- inu haildið áfram, ef ekki verður samið. Verkfallsbrot í Nausti Nokkru fy'rir hádegi í gær- morgun voru svo verkialíisverð- ir þjóna mættir á vinnu'stöðun- Framihald á 7. síðu. Greinargerð frá Félagi framreiðslumanna er á 3. síðu. Vestmannaey- | ■ ■ ingar að búa sig j undir að taka á 1 ■ ■ móti rafmagni j úr landi Úti á Skan.sinum sem Vestmannaeyingar tala alltaf P|oovil|inn ótta síður Vegna pappírsskorts er Þjóð- viljinn átta síður í dag eins og í gær. Á morgun verður tólf síðna blað, en átta síður aftur fyrstu daga næstu viku. Vonir standa til að 12 síðna pappír veröi kominn um miðja vikuna. Ávísðnafalsaramir frá Akureyri enn á ferðinni Aðfaranótt föstudagsins í fyrri viku var stolig 4 tékkeyðubliið- um frá manni nokkrum hér í bæ. Tók hann eftir þjófnaðinum á Iaugardag og kærði þá tvo menn, sem hann grunaði um aö vera Landburður miðunum Blaðinu barst í gær eftirfarandi frétt frá Fiski- félagi íslands: Ágæt síldveiði var s.l. sólarhring fyrir Austfjörðum. Var vitað um afla 94 skipa með samtals 85. 630 mál og tunnur. Aðalveiðisvæðið var á svipuðum slóðum og í gær, en einnig fékkst góður afli á svaíðinu milli Dalatanga og Norðfjarð- arliorns 2—6 mílur undan landi og í mynni Reyð- arfjarðar. Veður var gctt. Ægir var á Kolbeins- eyjarvsæðinu. austan Siglufirði í gær — Jákob Jaikobsson, leiðangurs- stjóri á Æ)gi Lsendi frá ,sér fréttatiIikymning'U í gær og taldi horfur á ve.itv.r óg norðursvæð- i.nu. fara batnandi og iíkur lyrir góðri veiði á þessu svæði á næst- unni. Spá hans virðist vera að rætast, því að í kvöld fékk Víðir II 1700 tunnur 70—80 mílur norður af Rifstanga. Þegar síö- asl fréttist var vitað um' 4 skip, sem kastað höfðu á þessum slóö- um, en það voru Gísli lóðs, Leó, Guðm. Þórðar.son og Akraborg. Fleiri ski.p v- rú á þessum slóö- um og þarna var vaðandi "síld. Víðir II skýrði frá því á leiðinni í land. að hann hefði i’undið torf- ur nær landi, en sú sild óð ekki. Svæðið fyrir Austfjörðum hefur færst tö.Vuvert norðar og i kvöld voru skip að veiðum u.þ.b. 45 mílur aust-norð-austur af Langa- nesi. Þarna veiddist ágæt söltun- arsí’.d og - sem fyrr er hún feitari og betri eftir því sem norðar dregur. Mikið annríki er nú á Austfjarðahöínum og þess vegna sterkar líkur fyrir því, að mikið af síldinni sem veiðist út af Rifstanga og Langanesi berist til Siglufjarðar og verði söltuð þar. Saltað var í milli 2 og 3 þús. tunnur á Siglufirði síðastliðinn sálaiihring. SR fókik 3 þús. mál til bræðslu, en Rauðka urn 10 þús. Fraimíhaid á 6. síðu. valda að honum. Menn þessio fundust á þriðjiulagskvöldið og voru þeir þá búnir að fylla úí alla tckkana og selja þá. Hefuc rannsóknarlögreglan nú fengið í- hendur þrjá þeirra og eru þeic samtals 11 þús. að upphæð. Á miðvikudagsmorgun var svo hringt frá Sparisjóðnum Pundinu til rannsóknarlögreglunnar og sagt að þangað heíði komið á mánudag maður, sem nefndi sigl Þórarinn Magnússon frá Siglu- íirði, og lagði hann inn 2000 krón-r ur og fékk tékkhefti. Á mið- vikudagsmorguninn urðu þeir í sparisjóðnum þess hins vegaP varir, að inn fóru að kcma fals- aðar ávísanir úr þessu tékkhefti, Kom í ljós við rannsókn að héí voru sörnu menn að verki og höfðu stolið hinu heftinu og hafði annar þeirra lagt pening- ana inn í Pundið og logið til nafns. I tékkhefti þetta vantafl 15 eyðublöð og hafa aðeins þrjú þeirra komið inn, samtais að upphæö 3200 krónur. Númerin á eyðublöðunum í tékkhefti þessu- voru 15751 til 15800. Hafa þjóf- arnir skrifað ávísanirnar út með alls konar nöfnum og innstæðu- númerum. Menn þeir, sem hér voru að verki eru gamalkunnir ávísana- lalsarar. Eru það þeir sömu, sem teknir voru í vor fyrir ávísana- fölsun á Akureyri. Heita þeir F.ggert Sí.gurðsscn. Akranesi,. og Stefán Gí'.ðmundsson, Hát'nar- firði. j

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.