Þjóðviljinn - 23.05.1963, Blaðsíða 5
Fimmtudagurinn 23. mai 1963
MCÐVILIINN
SfÐA 5
• Svíinn Lasse Haglund setti
um síðustu helgi nýtt Norð-
urlandamet i kringlukasti
56,26 metra. Bætti hann þar
mcð eigið sænskt met um 1,14
metra. Gamla Norðurlanda-
metið átti Finninn Pentti
Repo — 56.03 metra og setti
hann það fyrir þremur árum.
Haglund varð 3. i kúluvarpi á
sama móti, með 14,56 m.
Sigurvegari varð Uddebom
með 16,92 m. Haglund er að-
eins 23 ára gamall. Hann er
risi að vexti: 1,98 m. á hæð
og vegur 104 kiló. Hann er
lögfræðinemi og keppir fyrir
„Hellas" í Stolrkhólmi.
I Los Angeles sigraði Ný-
Sjálendingurinn Peter Snell í
míluhlaupi á 4:00,3. Annar
varð Burleson (USA) á 4:00,8
mínútum. Bob Hayes sigraði
Henry Carr í 220 jarda hlaupi.
Tímarnir voru 20,8 og 20,9
sek. Heimsmethafinn í stang-
arstökki John Pennel, stökk
ekki nema 4,57 metra. Sigur-
vegar varð Ron Morris —
4,88 metra.
• Kapphlaupið um hcimsmet-
ið í sleggjukasti heldur áfram.
1 Fresno (USA) sigraði Rink
Babka með 62,14 m. á undan
Humpery — 61,62 m. Weisig-
er hljóp míluna á 3:59,2 mín.
Sveit Arizona setti heimsmet
í 4x440 jarda boðhlaupi —
3:04,5 mín. Elias Gilbert, sem
hljóp 110 metra grindahlaup
á 13,8 árið 1956, hljóp nú á
13,9 sek.
• Sovézka frjálsíþróttakonan
Tamara Press setti nýtt heims-
met í kringlukasti á móti í
Moskvu sl. laugardag. Nýja
metið er 59,29 m. Bætti hún
þar með gamla mctið, sem
hún átti sjálf, um 31 sm. —
Tamara Press á einnig heims-
met í kúluvarpi kvenna —
18,55 metra.
• Michel Jazy setti nýtt
* franskt met í 1000 m. hlaupi
; á Iaugardag — 2.19,1 mín —
: á vígslumóti nýs íþróttavall-
: ar Real Madrid í höfuðborg
■ Spánar. Á sama móti sigraði
■ Delacour (Frakkl.) í 100 m á
10,6 Ottclina (Italíu) í 200 m.
j," 5 á 20,8 og Pellewaert (Belgíu)
S í 400 m. á 47,2 sek.
: ] Lazar Narodidsky (Sovétr.)
■ náði á laugardag bezta tíma
; ársins til þessa í 3000 metra
: hindrunarhlaupi — 8.43,8
] mín. Annar varð Sokolov —
E 8.44,0 og 3. Ossipov á 8.44,2
■ mín. Narodidski er 26 ára
• gamall.
• Franski ráðherrann, Maur-
ice Herzog, sem fer með í-
þrótta- og æskulýðsmál hefur
lagt eftirfarandi tillögu fyrir
Alþjóða-olympíunefndina: —
Leikirnir verði haldnir í
tvennu lagi. Fyrri hlutinn
verði fólginn i umfangsmikl-
um svæðakeppnum, í líkingu
við Ameríkuleikina og Afríku-
leikina. Urslitafólkið úr þess-
um svæðamótum mætist síð-
an til keppni á olympíuleik-
unum, sem yrðu þá viðráðan-
legri í skipulagningu en nú
er.
• Landslið Brasilíu í knatt-
spyrnu, sem undanfarið hefur
verið á ferðalagi í Evrópu og
Miðjarðarhafslöndum, lauk
keppnisferð sinni um helgina
með landsleikjum í Kairo og
Tel Aviv. Brasilíumennirnir
urðu að Iáta sér nægja 1:0-
sigur yfir Egyptum. Þeir hafa
unnið fjóra, tapað fjórum en
einn varð jafntefli. Þeir skor-
uðu 13 mörk, en 14 voru sett
hjá þeim.
• Evrópumeistarinn í milli-
vikt hnefaleika, Lazlo Papp
frá Ungverjalandi, vann ný-
lega enn einn sigur. Það var
Bandaríkjamaðurinn Randy
Sandy, sem laut í lægra haldi
fyrir Ungverjanum í tíu lota
• Astralski sundflokkurinn,
sem nú er á ferð í Evrópu,
keppti í Stokkhólmi um helg-
ina og hafði yfirburði: 100
m. skriðsund 1) David Dick-
son (Ástralíu) 55,6 sek., 2)
Svensson (Svíþjóð) 56,7 og 3)
Lundin (Svíþjóð) 56,9 sek. 200
m. flugsund 1) Kevin Berry
(Astralíu) 1.00,5 mín. 2) Jern-
berg (Svíþjóð) 1.02,3 mín. 400
m. skriðsund 1) Windle (Ástr-
alíu) 4.29,1 mín. 200 m. 'bak-
sund: 1) Fingelton (Ástralíu)
2.25,8.
Jim Beatty
• Keppni sú sem brezka
knattspyrnusambandið skipu-
leggur fyrir landslið áhuga-
manna frá ýmsum löndum
hélt áfram sl. laugardag.
Keppni þessi er þáttur í 100
ára afmaélishátíðahöldum sam
bandsins. Crslit á Iaugardag:
Sviss—írland 2:2
V.-Þýzkal.—England 1:0
Skotland—Italía 3:1
• Stórhlaupararnir Murray
Halberg (N-Sjálandi) og Jim
Bcatty (USA) kepptu í 5000
metra hlaupi á olympíuleik-
vanginum í Los Angeles sl.
laugardag. Þeir skiptust á um
forystuna allt hlaupið, en þeg-
ar 100 metrar voru eftir tók
Beatty hörkusprett og skildi
olympíumeistarann eftir. Tím-
arnir: Beatty — 13:57,4 mín.
og Halberg — 13:59,2 mínútur.
Heimsmet Vladimir Kuts í
5000 metra hlaupi er 13:35,0
mínútur.
Skíialandsmótinu
er loksins lokið
Happdrætti fyrir
skíðaskála ÍR
Skíðamótinu lauk í gær í Siglufirði, en þá var keppt
í tveim greinum sem eftir voru — stökki og norrænni
tvíkeppni. Keppendur voru allir frá Siglufirði
Úrslit urðu sem hér segir:
Skíðastökk
20 ára og eldri:
Skarphéðinn Guðmundsson 34—
32.5, 147.5
Sveinn Sveinsson 32—32, 144.3
Jónas Ásgeirsson 31.5—32, 139.7
Birgir Guðlaugsson 31—30, 137.5
17—19 ára
Þórhallur Sveinsson 32—30,
132.1
Haukur Jónsson 27.5—28.5,
125.6
Sigurður B. Þorkelsson 25.5—
24, 115.3
15—16 ára:
Bjöm Olsen 25—23.5, 111.7
Sigurjón Erlendsson 22—22,
106.7
Kristján Ö. Jónsson 18—18,
96.5
Norræn tvíkeppni, (samanlagt
stökk og ganga)
Islandsmcistari 20 ára og
eldri:
Sveinn Sveinsson 301.1
Birgir Guðlaugsson 256.9
17—19 ára:
Þórhallur Sveinsson 290.5
Haraldur Erlendsson 249.4
15—16 ára:
Björn Olsen 267.2
Sigurjón Erlendsson 267
Kristján Ö. Jónsson 226.7
Frjálsar íþróttir
E.Ó.P.-mótið með
nýju sniði í ár
E.Ó.P.-mót frjálsíþrótamanna fer að þessu sinni fram
á Melavellinum í Reykjavik 12. og 13. júní n.k. — Þar
Skíðadeild ÍR efnjr nú til
bílhappdrættis til að Ieysa
skuldahnúta í sambandi við
byggingu skíðaskála félagsins
í Hamragili.
Skíðaskáliinn í Hamragrli er
einn glæsjlegasti og smekkleg-
asti skíðaskáli landsins. ÍR-
ingar hafa unnið mjög mynd-
arlegt sjálfboðaliðsstarf við
byggingu skálans, en óhjá-
kvæmilega hlýtur slíkt mann-
virki að kosta mikið í beinum
fjárútlátum. Ágóðanum af
happdrættinu verður varið til
að greiða byggingaskuldir
skálans, og ganga frá honum
endanlega.
Vinningurinn í happdrættinu
er glæsilegur bíll — Renault
R 8. 148 þús. króna virði. Hver
miði kostar 100 krónur. en að-
eins eru gefnir út 6000 miðar.
Dregið verður á þjóðhátíðar-
daginn 17. júní.
í þessu ti'lefni er það rifjað
upp að það var einmitt skíða-
deild ÍR sem efndi til fyrsta
bílhappdrættis hér á landi.
Það var árið 1938, er ÍR
keypiti Kolviðarhól. Bílhapp-
drættið var algjört nýmæli og
vakti mikla athyglj. Vinning-
urinn var Chrysler-bíll, og
hver miði kostaði eina krónu
en 30 þúsund miðar voru gefn-
ir út.
Renault-bíllinn, sem nú er í
happdrættinu. stendur við
Lækjartorg á Hótel Heklu-
grunninum Íþróttasíðan hvet-
ur lesendur sína til að kaupa
miða og styrkja gott íþrótta-
málefni.
Alúðarþakkir fyrir góðar óskir, munnlegar og skrif-
legar, gjafir og heimsóknir vegna sjötugsafmælis míns
25. apríl s.l.
Heill ykkur öllum.
GUÐGEIR JÓNSSON, bókbindari.
Meistarafélag húsasmiða
sem nú eru liðin 20 ár frá fyrsta E.Ó.P.-mótinu og 70
ár frá fæðingardegi Erlendar heitins Péturssonar (sem
var 30. maí), hefur Frjálsíþróttadeild KR ákveðið að
vanda sérstaklega til mótsins að þessu sinni.
1 því skyni hefur deildin
fengið samþykki FRÍ til þess að
breyta nokkuð fyrirkomulagi
mótsins — með það fyrir aug-
um að vekja almennan áhuga
fyrir vel skipulagðri frjáls-
íþróttakeppni, sem gæti þá
jafnframt orðið lærdómsríkur
undirbúningur fyrir væntanlega
landskeppni við Dani i júlí n.k.
Til þess að auka spennu og
eftirvæntingu áformar deildin
að gera mótið nú að stiga-
keppni þar sem 2 aðilar senda
2 beztu menn sína í hverja
grein, alveg á sama hátt og í
landskeppni.
Að vísu hefur þetta verið
reynt áður með keppni Reykja-
víkur gegn „Landinu". en þar
sem slík keppni hefði reynzt
harla ójöfn nú sem fyrr, kom
helzt til greina að KR reyndi
nú að keppa við allt landið, þ.
e.a.s. 2 beztu KR-ingarnir í
hverri grein gegn 2 beztu í-
þróttamönnum frá öllum öðr-
um félögum í landinu.
f fljótu bragði kann sumum
að finnast sem hér sé teflt í
nokkra tvísýnu, en við nánari
athugun og lauslegan útreikn-
ing kemur í ljós, að möguleik-
ar beggja liða eru svipaðir sé
miðað við afrekin frá s.l. ári.
Og hvoru megin sem sigurinn
lendir. ætti að vera óhætt að
fullyrða, að bessi nýstárlega
keppni geti orðið jöfn og
spennandi og bað er vitanlega
fyrir mestu.
Verður nú greipt nánar frá
fyrirkomulagi mótsins:
1) Keppt verður í öllum
landsliðsgreinum, nema einni
(10 km hlaupi) eða samtals í 19
greinum, þar af 9 fyrri daginn
og 10 síðari daginn.
2) Stig reiknast á sama hátt
og f landskeppni. bannig að
fyrsti maður fær 5 stig, 2.
maður 3 stig, 3. maður 2 stig
og 4. maður 1 stig, en í boð-
hlaupum verður stigagjöfin
5—2.
4) Þar sem búast má við því
að allmargir íþróttamenn utan
af landi verði valdir í „pressu-
liðið“, hefur Frjálsíþróttadeild
KR ókveðið, að kosta ferðir
þeirra til og frá Reykjavík.
5) Röð keppnisgreinanna
hvorn dag verður sem hér
segir:
12. júní
400 m. grindahlaup. Kúlu-
varp, Hástökk, 200 m. hlaup,
800 m. hlaup, Spjótkast, Lang-
stökk, 5000 m. hlaup, 4x100 m.
boðhlaup,
13. júní
110 m. hrindahlaup, Stangar-
stökk, Kringlukast, 100 m.
hlaup, 1500 m. hlaup, Þrístökk,
400 m. hlaup, Sleggjukast. 3
km hindrunarhlaup. 4x400 m.
boðhlaup.
Fyrri daginn verður auk þess
keppt í 100 m. hlaupi kvenna
utan stigakeppninnar, þannig
að keppnisgreinar verði jafn
margar hvorn dag.
Hefur skipulagi mótsins nú
verið iýst í höfuðdráttum — og
væntir deildin þess að lokum,
að keppnin geti orðið jöfn og
drengileg — og þannig sam-
boðin minningu hins látna
formanns — KR, Erlendar Ó.
Péturssonar.
Sjö nýir knatt-
spyrnuþjálfarar
Eftirtaldir þjálfarar hafa ný-
lega lokið prófum II. stigs
fyrir knattspyrnuþjálfara:
Bergsteinn Pálsson, Eggert
Jóhannesson, Einar Hjartar-
son, Elías Hergeirsson. Guðm.
Guðmundsson, Sölvi Öskarsson,
Þorðvarður Björnsson.
Kennari var Karl Guðmunds-
son, en prófdómari Reynir
Karlsson.
Almennur félagsfundur verður haldinn í Baðstofu
iðnaðarmanna í dag (fimmtudag) 23. mai 1963 kl.
14.00.
DAGSKRÁ:
1. Ný reglugerð fyrir húsasmíðameistara.
2. Önnur félagsmál.
STJÓRNIN.
TILBOÐ
óskast í nokkrar vöru-, fólks- og jeppabifreiðir sem
verða til sýnis í porti Vita- og hafnarmálaskrifstofunn-
ar við Seljaveg föstudaginn 24. maí kl. 13—15. —
Ennfremur óskast tilboð í steypuhrærivélar, loftpress-
ur, benzínhreyfla, vatnsdælur, 60—70 tonn af brota-
járni o. fl., sem verður til sýnis við Áhaldahús Vita-
og hafnarmálaskrifstofunnar við Kársnesbraut í Fosa-
vogi á sama tíma.
Tilboðin verða opnuð á Ránargötu 18, laugardaginn
25. maí kl. 10 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RlKISINS.
Vináttutengsl íslands og Rúmeníu
Aðalfundur
Vináttutengsla Islands og Rúmeníu verður haldinn í
Breiðfirðingabúð uppi, föstudaginn 24. maí n.k. klu'kk-
an 9 e.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
FÉLAGAR FJÖLMENNIÐ. Stjórnin.