Þjóðviljinn - 05.02.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 05.02.1976, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 5. febrúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11. 10 manna sveit keppir frá hvorri þjóð, og hér er sú íslenska ásamt varamönnum og liðstjóra. Landskeppni viö norðmenn í júdói um helgina: það Svavar vinninginn! Nú er sem á Trúlega biöur Svavar Carles júdókappi landskeppninnar við norðmenn um helgina með óþreyju. Hann fær þar enn eitt tækifæri til þess að kljást við Erik Haugen, en þeir hafa háð marga skemmtilega keppnina og jafnan barist hetjulega. — Það er Svavar sem á vinninginn núna, sagði Eysteinn Þorvaldsson formaður JSÍ á blmf. i gær. — Þeir hafa eigin- lega skipst á um að vinna undanfarið. Haugen hafði það siöast svo að Svavar á leikinn að þessu sinni og er áreiðanlega farinn að biða spenntur. islendingar háðu sina fyrstu iandskeppni i júdói i mars 1974 og var hún gegn norðmönnum. Þá fóru leikar þannig að landinn fékk 7 vinninga, norðmenn 12 og ein glima endaði með jafntefli. A NM i júdó hérlendis i fyrra sendi hvor þjóð fimm þátttak- endur og þar sigraði island 4-1. Að þessu sinni er það 10 manna sveit frá hvorum aðila sem tekur þátt. Þrir islendingar hafa fengið svart belti, þeir Svavar, Viðar Guðjohnsen og Jóhannes Haraldsson. Tveir aðrir, þeir Gisii Þorsteinsson og Halldór Guðbjörnsson, eiga þó stutt i þá sæmd, vantar i raun- inni ekkert nema að gangast undir nauðsyniegt tæknipróf. Enginn vafi er á að lands- keppnin verður skemmtileg á að horfa. l.iðsstjóri islendinga er Naoki Murata, sem verið hefur héi lendis i niu mánuði við þjáif- un iiðs ármenninga, en móts- stjóri verður Eysteinn Þor- valdsson. Keppnin hefst kl. 17.00 á laugardaginn og l'er fram i iþróttáhúsi Kennaraháskolans. — gsp. Sjálandsúrval er væntanlegt hingað í byrjun aprílmán. Hingað til landsins er væntanlegt Sjálandsúrvalið i handknattleik karla, en i þvi eru margir af landsiiðsmönnum dana. Þeir koma hingað I boði Vals og munu leika tvo eða þrjá leiki. Firmakeppni til styrktar K.K.f. Sl. vetur var komið á Firmakeppni i körfubolta (1 á 1) og tóku þátt i henni allir landsliðskandidatarnir. Lauk þeirri keppni með sigri Þóris Magnússonar úr Val. í Firmakeppninni að þessu sinni gefst öllum leikmönnum 1. deildar liða tækifæri til að vera með. Þeir útvega sér sjálfir fyrirtæki til að leika fyrir og nemur greiðslan pr. fyrirtæki kr. 10.000, sem renna Skolamót í körfu Á siðasta vetri var endur- vakin skólakeppni i körfubolta og er fyrirhugað að koma þvi móti á aftur nú. Sent hefur verið bréf þar að lútandi til allra iþróttakennara á landinu, sem kenna i gagn- fræðaskólum eða öðrum æðri skólum, og rann fresturinn til að skila þátttökutilkynningum tilstyrktar landsliði K.K.I., en þar eru mörg verkefni fram- undan. Leikið verður i riðlum, allir við alla, en siðan útslátt- arkeppni i undanúrslitum og úrslitum. Þátttökutilkynning- ar verða að berast til skrif- stofu K.K.l. i tþróttamiðstöð- inni i Laugardal fyrir 6. feb. nk. Hefur öllum þjálfurum i 1. deild verið sent bréf þar að lútandi. út 1. feb. Leikið verður i 2. aldursflokkum: 1. aldursfl. 7., 8. og 9. bekkir grunnskóla. 2. aldursfl. 10. bekkur og aðrir æðri skólar nema H.l. Ef mikil þátttaka verður i mótinu verður leikið i riðlum i héruðum landsins. úrslita- leikir verða siðan háðir sem forleikir að landsleikjum tslands og Portugal i körfu- bolta i byrjun april. K.K.I. sér um alla framkvæmd mótsins. Sigurvegarar i fyrra voru Menntask. i Hamrahlið og Laugalækjarsk. i Reykjavik Breska OL-liðið er geysisterkt Breska OL-liðið sem mun leika við isl. landsliðið á laugardag og sunnudag er mjög sterkt. I liðinu eru 7 englendingar og 5 skotar, allflestir með marga landsleiki að baki. Liðið er skipað eftirtöldum leik- mönnum: John Belk: 19 ára gamall fram- herji. Belk er hér að leika sina fyrstu landsleiki. Hæð 189 cm. Wiliie Canieron: Risinn i liðinu, 208 cm á hæð. Cameron hefur ver- ið fastur maður i skoska landslið- inu og Bretlandseyjaúrvali sl. ár. Hann hefur leikið 52 landsleiki fyrir Skotlandi og 13 fyrir Bret- iand. Jimmy Carmichael: 26 ára gamall bakvörður. Hefur leikið 23 landsleiki fyrir Skotland og 7 leiki með Bretlandseyjaúrvali. Hæð 183 cm. Mike Fiudfield: 29 ára gamall framherji. Hefur leikið 35 lands- leiki fyrir England auk 5 leikja fyrir Bretland. Hann hefur verið fastur maður i enska liðinu und- anfarin ár, og hefur leikið flesta landsleiki af öllum fyrir England. Hæð 190 cm. Martin Hall: 24 ára gamall framherji. Hefur leikið 8 lands- leiki fyrir England. Hæð 196 cm Steve Latham: 26 ára gamall framherji. Latham hefur leikið 31 landsleik fyrir England. Hæð 201 cm. Kcn McAlpine: Miðherji. Hann hefur leikið 26 landsleiki fyrir Skotlandi og 5 fyrir Bretland. Hæð 197 cm. Bill Mclnnes: Aldursforseti liðsins og fyrirliði þess, þrítugur að aldri. Hann hefur leikið 93 landsleiki fyrir Skotland og 31 fyrir Bretland og er hvorttveggja landsleikjamet. Hæð 192 cm. Paul Philip: 22 ára gamall bak- vörður. Hann hefur aldrei leikið Framhald á 14. siðu Birgir örn reynir að varna Kristni Jörundssyni 1R, fyrirliða lands- liðsins að skora, en i þctta sinn tókst það ekki. Tekst Birgi að stöðva bretana um helgina? Birgir Örn leikur með landsliðinu eftir 6 ára hlé og ætlar síðan að hætta í vor Aldursforseti islenska lands- liðsins er Birgir Örn Birgis úr Ar- manni. Aðspurður sagði Birgir að liann hafi leikið sinn fyrsta lands- leik 1959 við dani, þá 16 ára gam- all og verið yngsti leikmaður sem leikið hefur i liðinu ásamt Podda i ÍR (Þorsteini Hallgrimssyni). Birgir minnist leiksins sem skeinmtilegs og spennandi leiks og hann liafi verið mikil reynsla fyrir alla islensku leikmennina. Sjálfur segist Birgir hafa komið vel frá ieiknum, þó svo að hann hafi ekki unnist, en tapið var ekki stórt, þvi hann endaði 41—38 fyrir danina. Næstu 11 árin var Birgir fastur i landsliðinu og lék alls 32 leiki meö þvi, en siðasti leikurinn þá var gegn dönum 1970 hér i Reykjavik. Birgir hefur staðið i toppbarátt- unni i tslandsmótinu með Ar- manni og hafa þeir oft verið ná- lægt þvi að sigra i 1. deildinni. en þó minnist Birgir úrslitanna 1972 og '73 sérstaklega, þvi þá hafa þeir verið næst þvi að sigra. 1972 töpuðu þeir úrslitaleik á þvi að einn ármenninga sló i netið. sem er ólöglegt. og var dæmd karfa og tapaðist leikurinn með 1 stigs mun. Ári siðar stóð svo Simon Ólafsson i vitaskotslinu eftir að leiktima var lokið. en eitt stig skildi liðin að og gat Simon fært ármenningum hinn langþráða tit- il með þvi að hitta úr báðum skot- unum, en honum mistókst og KR- ingar hrósuðu happi. Birgir sagði að ef ármenning- um tækist að sigra i mótinu i ár. en allar likur eru nú á þvi, þá mvndi hann hætta og væri gott að enda langan keppnisferil með sigri i íslandsmóti og endurkomu i landsliðið eftir langa fjarveru. G.Jóh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.