Þjóðviljinn - 18.09.1976, Qupperneq 3
Laugardagur 18. september 1976. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3
VERÐHÆKKUN Á KJÖTI FRÁ MÁNUDEGINUM:
Bóndinn fær þriðjungínn
miUiliðimir og rlldð hitt
Þriðjungur þeirrar hækkunar
sem nú verður á landbúnaðaraf-
urðum rennur til bændanna —
hitt, eða 66,15% hirða milliliðir
og rikissjóður i hækkúðum sölu-
skatti.
Þetta kemur fram I fréttatil-
kynningu um búvöruverðs-
hækkunina, sem blaðinu barst i
gærkvöld. Hið nýja verð tekur
gildi frá og með mánudeginum.
Grundvallarverð á kindakjöti
til bænda hækkar um 7,82% að
meðaltali. Kjötkilóið hækkar af
þeirriástæðu um 33,85kr.
Sláturkostnaður hækkar hins
vegar um 30 krónur á kilóið aö
meðaltali og tilfærsla vegna
þess að gæruverð breytist ekki
veldur enn hækkun kjötsins um
9.35 kr. kilóið. Heildsöluverö á
dilkakjöti i 1. gæðaflokki hækk-
ar þvi um 74,00 eöa um 17,5%
Hundraðshluti smásölu-
álagningar hækkar um 1 stig á
sumum vöruflokkum en lækkar
á öðrum tilsvarandi segir i
fréttatilkynningu framleiðslu-
ráðs. T.d. gerir sú hækkun kr.
10.00 á hvert kiló súpukjöts og
þar með hækkar hvert kiló af
súpukjötinu um 100 krónur.
Sundurliöun þessarar hækkunar
litur þannig út:
Bændur fá ............ 33,85 kr.
Milliliðir............ 40.00 kr.
Vegna gæruverðsins.. 9,35 kr.
Rikissjóður........... 16,80 kr.
Sripuð hlutföll eru i verði
annarra kjötflokka. Útsöluverð
breytist á einstökum tegundum
kindakjöts sem hér segir:
Tegund
heildsöluveröið hækkar tilsvar-
andi frá þvi sem var sl. vetur
Læri.
Grundvallarverö nautgripa-
kjöts hækkar nú um 8,1% og
heildsöluverð svipað. Krónutala
álagningar i smásölu á nauta-
kjöti hækkar um 12,6%
Grundvallarverð á kartöflum
hækkar um 10% að meðaltali og
Frá Hækkun
Aður 20.09 ■ %
656 19,5 %
679 16,3 %
729 15,9 %
766 18,4 %
783 18,3 %
þegar islenskar kartöflur voru á
markaði. Smásöluverðið er 12%
lægra en verið hefur á erlendum
kartöflum- i sumar.
Hækkun kostnaðarliða
Skv. fréttatilkynningunni
hækka einstakir liðir verðlags-
grundvallar landbúnaðarafurða
sem hér segir:
Laun bóndans um 8,83%
Kjarnfóöur um 2,3%
Viðhald og fyrning útihúsa um
8,8%
Viðhald girðinga um 20,8%
Kostnaður við vélar um 8,5%
Flutningskostnaður um 11,1%
Vaxtakostnaður um 19,5%
Annar kostnaður
um 20,9%
ótilgreindur
Sviþjóð:
Gífurleg spenna í
kosningabaráttu
STOKKHÓLMI 17/9- Mikil
spenna rikir nú I Sviþjóð vegna
þe ss hve niðurstöður siðustu
skoöanakönnunar sýndu litinn
fylgismun á vinstri flokkunum
annarsvegar og mið- og hægri-
flokkunum hinsvegar. Þær niður-
stöður sýndu að vinstriflokkarnir
höfðu bætt verulega við sig frá
næstu skoöanakönnun á undan.
Mið- og hægriflokkunum urðu
þessi tiðindi mikil vonbrigði og
hefur það valdiö innbyrðis illind-
um i herbúöum þeirra. Veitast
talsmenn hægriflokksins og Þjóð-
arflokksins nú mjög að Falldin,
leiðtoga Miðflokksins, sem þeir
segja að hafi yfirkeyrt sig á
áróðrinum gegn kjarnorkuverun-
um.
Eftir að niðurstöður skoðana-
könnunarinnar urðu kunnar, hafa
mið- og hægriflokkarnir beint
griðarlegum áróðri aö fylgis-
mönnum kristilega flokksins,
smáflokks semstofnaður var 1964,
hefur venjulega fengið 1.5% til
1.8% atkvæða en aldrei komið
manni á þing. Ef liðsmenn þess
flokks snerust nú til fylgis við
borgarflokkana, gæti það riðið
baggamuninn þeim i dag. For-
maður kristilegra sagðist i dag
engan frið hafa haft fyrir upp-
hringingum manna, sem ákærðu
flokk hans fyrir að hindra stjórn-
arskipti. Forustumenn kristilega
flokksins eru margir úr söfnuðum
filadelfiumanna.
Búist við miljón manns á minningarfundinn um Maó
Þögn 800 miljóna í
þrj ár mínútur
PEKING 17/9 NTB-Reuter —
Gert er ráð fyrir að svo aö segja
öll kinverska þjóöin, 800 miljónir
manna, muni taka þátt I þriggja
minútna þögn með morgninum I
muiningu hins látna formanns
Kommúnistaflokks Kina, Maó
Tse-túngs.Um miljón manns mun
að likindum safnast saman i mið-
borginni I Peking og umhverfis
Torg hins hinineska friðar, til
þe ss að taka þátt I fjöldafundi,
þar sem hinn látni leiðtogi veröur
hylltur. Haft cr eftir kinverskri
Norskir deila um
veiðirétt útlendinga
ÞRANDHEIMI 17/9 NTB -I
hönd farandi útfærsla
uorskrar fiskveiöilögsögu I
200 milur virðist ætla að
valda innbyrðis deilum milli
norskra fiskimanna, miðað
við það sem fram kom á
landsfundi Norska fiski-
mannasambandsins i Þránd-
heimi i dag. Eru þaö hugsanl.
veiöiréttindi annarra rikja
innan hinnar nýju lögsögu,
' er ósamkomulagi valdá.
Fiskimennirnir frá Norð-
ur-Noregi vilja sem minnst
sjá af útlendingum innan
nýju lögsögunnar og telja
nauðsynlegt að takmarka
veiðar þeirra þar sem mest
til verndar fiskistofnunum.
Hinsvegar veiöa vesturnorsk-
ir fiskimenn yfir helming
afla sins innan 200-milna
fiskveiðilögsögu annarra
rikja, og óttast þeir að veiði-
réttindi þeirra þar verði
skert i hlutfalli við skerðing-
ar á veiðiréttindum útlend-
inga út af Norður-Noregi.
heimild að þetta veröi einhver
mesti fjöidafundur sögunnar.
Lik Maós hefur legið á viö-
hafnarbörum þangað til i dag i
Alþýðuhöllinni iPeking, og hafa á
þeim tima um 350.000 manns
komið að börunum. Atta sorgar-
dögum eftir formanninn lýkur
með minningarfundinum mikla á
morgun.en hann veröur haldinn i
Forboðnu borginni svokölluðu,
sem fræg er frá fomu fari. Eng-
um útlendingum hefur verið boðiö
til minningarfundarins og út-
lendingum veröur ekki heldur
hlevpt nær Torgi hins himneska
Framhald á bls. 14.
Svona litur Albert Guömundsson stórkaupmaður, knattspyrnu-
inaður og alþingismaður, út i augum Halldórs Péturssonar list-
málara.
Yfirlitssýning á verkum
Halldórs Péturssonar
í fyrradag var opnuð að
Kjarvalsstöðum, yfirlitssýning
á verkum Halldórs Péturssonar
listmálara. Sýndar eru 83
myndir af öllum tegundum og
geröum, en Halldór er sem
alþjóð veit afar fjölhæfur
málari.
Halldór Pétursson er fæddur i
Reykjavik 26. sept. 1916 og
stundaði listnám bæði hér
heima og i Kaupmannahöfn og
New York. Halldór hélt sina
fyrstu sýningu hér á landi 1952
og hefur oft haldið sýningar hér
heima siðan, en auk þess hefur
hann sýnt i Bandarikjunum,
Austurriki, Tékkóslóvakiu og á
Italiu.
Finnska stjórnin fallin
Ósamkomulag út af fjárlögum ástœðan
HELSINKI 17/9 NTB-Reuter —
Martti Miettunen, forsætisráö-
herra Finnlands, lýsti þvi yfir I
dag að hann myndi biðjast lausn-
ar fyrir sig og rlkisstjórn slna.
Kveðst Miettunen taka þetta til
bragðs vegna þess, að stjórnar-
flokkunum hafi mistekist að ná
samkoinulagi um ýmsa þætti
fjárlaga. Stjórn Miettunens hefur
setiö siðan i desember siðastliðn-
um og eiga ráöherra i hcnni þrlr
stórir stjórnmálaflokkar, sóslat-
demókratar, Lýðræðisbandalag-
ið, þar sem kommúnistar eru
sterkasti aöilinn, og Miðflokkur-
inn. Auk þess eiga hlut að stjórn-
inni tveir smáflokkar, Frjálslyndi
þjóðarflokkurinn og Sænski
þjóðarflokkurinn.
Það var Urho Kekkonen forseti,
sem mestan þátt átti i að koma
stjórninni saman. Helstu ágrein-
ingsefni stjórnarflokkanna nú eru
ráðstafanir til að ráða bót á at-
vinnuleysi i byggingariðnaðinum
og fjárveitingar til landbúnaðar-
mála. Samdráttur hefur verið i
byggingariðnaðinum, og krefst
Lýðræðisbandalagiö meiri fjár-
veitinga til hans en hinir flokk-
arnir vilja samþykkja. A hinn
bóginn vilja sósialdemókratar aö
takmörk séu sett fyrir efnahags-
legum stuöningi rikisins við land-
búnaðinn, en á það má Miðflokk-
urinn, flokkur þeirra Kekkonens
og Miettunens beggja, ekki heyra
minnst, enda er aðalfylgi hans
meðal bænda.