Þjóðviljinn - 03.03.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.03.1977, Blaðsíða 1
UOWIUINN Fimmtudagur 3. mars 1977 — 42. árg. — 51. tbl. Grikkir brjóta bryggju á Reydarfirði Sama skipið keyrði tvisvar á bryggiuna 1 fyrrakvöld keyröi griskt flutningaskip á bryggjuna á ReyÐarfirði og stórskemmdi bryggjuna og skipið verulega. Er reynt var að koma skipinu aftur að bryggju i gærkvöldi keyrði það enn á bryggjuna, nú hitt hornið og stórskemmdi hana. Skipið var að sækja loönumjöl til Reyöar- fjaröar. Blaðið hafði samband við fréttaritara sinn á Reyöarfirölog sagðist honum svo frá: — Þetta er griskt skip, 10 þús. tonn, Alia Korn Pogress, hingað komið til þess aö sækja loönu- mjöl. Þegar það ætlaöi aö leggj- ast hér að bryggjunni á 11. tlman- um I gærkvöldi vildi svo illa til, aö það rann af talsverðri ferð beint á bryggjuna meö þeim afleiðing- um, að steyptur og járnvarinn viðlegukantur brotnaði og þil, sem rekið er niður meö bryggj- unni beyglaöist og brotnaði, ekki mikið aö vísu, en ailveruleg 'skemmd er þó á bryggjunni. Framhald á 14. siðu Krafla: Félag starfsfólks i veitingahúsum: Stjórnarlistinn beið lægri hlut í gær og i fyrradag fóru fram kosningar, allsherjaratkvæða- greiðsla, um stjórn og trúnaðar- mannaráð i Félagi starfsfólks i veitingahúsum. Fram komu tveir listar, A-listi stjórnar- og trúnaðarmannaráðs og B-listi Kristins Hrólfssonar og fleiri. Kosningu lauk i gærkvöld og fór talning fram strax. A kjör- skrá voru 472. A-listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs hlaut 119 atkvæði, en B-listi aut 165 at- kvæði. Efsti maöur B-listans er Kristinn Hrólfsson og verður hann nú formaður félagsins. Stjórnarskipti fara fram á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður i þessum mánuði. Sjómannasambandið: Uppsögn samninga fyrir 15. mars A sambandsstjórnarfundi Sjó- mannasambands Islands sem haldinn var miövikudaginn 23. feb., var einróma samþykkt að beina þeim tilmælum til aðildar- félaga Sjómannasambandsins og annara félaga sem færu með mál- efni sjómanna, að þau segðu upp gildandi kjarasamningum fyrir 15. mars næstkomandi. Núgildandi kjarasamningur sem staðfestir voru með lögum i september 1976 renna úr gildi 15. mai næstkomandi; ef honum er ekki sagt upp með 2ja mánaða fyrirvara framiengist hann um eitt ár. Búist vid breytingu upp úr næstu helgi segir Axel Björnsson, jarðeðlisfrœðingur Nú fer að liöa að þeim tlma sem talið er sennilegt að einhverra verulegra breytinga verði vart við Kröflu. Af þvf tiiefni hafði biaðið tai af Axel Björnssyni hjá Orkustofnun og spuröihann hvort nokkuð hefði gerst, fom breytti þessu áliti. Axel Björnsson sagði aö við Kröflu væri ekkert nýtt að gerast umfram það, sem veriö hefði. Landið rís þarna ennþá og skjálftum fer frekar fjölgandi, þannig að við búumst við þvi enn sem fyrr að eitthvað muni gerast þarna eftir nokkra daga, það er að segja að annað hvort taki land- ið aftur skyndilega að slga eins og slðast og það komist hreyfing þarna á hraunhvikuna eða aö eitt- hvað annað eigi sér stað. En hvaö muni ske vitum við ekkert frekar en áöur, sagði Axel Björnsson. Við vitum heldur ekki nákvæm- lega hvenær þessari viðkvæmu hæð er náð. Það leit þannig út aö þaö mundi veröa núna fyrstu dag- ana I mars, og hvort þaö veröur núna um helgina eöa eftir hana um það er dálltiö erfitt að segja. En trúlegt er þó, að breytingin eigi sér ekki stað fyrr en upp úr helginni. Kannski veröur þaö heldur seinna en viö reiknuöum meö nú fyrir nokkrum dögum. Þótt skjálftunum hafi fjölgaö, — þeir eru milli 20 og 30 á sólar- hring, — þá hefur styrkleiki þeirra ekki vaxiö —mhg V er ðhækkanaskriða skeUur yfir Síðustu dagana hefur borist hver tilkynningin á fætur annarri um verðhækkanir á margskonar vörum. Fyrstu hækkanirnar voru á bú- vöru, 5-7 af hundraöi. Þá bárust fréttir um hækkanir á strætis- vagnafargjöldum um 23% að meöaltali. Kaffi hækkar um 26,3% ódýrasti kaffipakkinn kostaöi áður 293 kr. en kostar nú 370 kr. Olia til húsahitunar og fiski- skipa hækkar úr 28 kr. hver lltri i 30 kr. hver Iitri, eða um 7%. Olla á bila hækkar um 5% úr 38 kr. hver litri I 40 kr. hver litri. mPMATTUR t'imAMUPS Linuritiö sýnir kaupmátt launa. t leiðara blaðsins I dag er fjallað um kaupmáltarþróun launanna undanfarna áratugi. VL-málin i hœstarétti: Allir hæstaréttardómarar víkja Nýir dómarar þegar settir. Ástæda: Aðild Þórs Heimis Vilhjálmssonar að VL-málunum Guðmundur Ingvi Halldór Jón Unnsteinn Þorsteinn Eftir þingfestingu VL-málsins gegn Þjóöviljanum I hæstarétti i gærmorgun kvaddi forseti hæstaréttar, Magnús Torfason, lögmenn málsaöila, þá Inga R. Helgason hrl. og Gunnar Guðmundsson hrl., á sinn fund. Tjáði hann þeim að fyrsta VL-- málið i hæstarétti yrði tekiö til flutnings 22. mars næstkomandi og væri þaö máliö VL-ingar gegn Olfari Þormóössyni. Jafn- framt tilkynnti forseti réttarins aö allir reglulegir dómendur réttarins, Magnús Torfason, Benedikt Sigurjónsson, Björn Sveinbjörnsson, Armann Snævarr, Logi Einarsson og Þór Heimir Vilhjálmsson hefðu ákveðið af sjálfsdáðum aö vlkja sæti i þessum málum og heföu aörir fimm menn veriö kvaddir til þess aö vera dómar- ar i þeim málum. Hefði dóms- málaráðuneytið sett eftirtalda menn I þennan nýja hæstarétt skv. tillögum hæstaréttar: Halldór Þorbjörnsson, yfirsaka- dómara I Reykjavik, borgar- fógetana Unnstein Beck og Þorstein Thorarensen og hæsta- réttarlögmennina Guðmund Ingva Sigurösson og Jón Finns- son. Astæöan til þess aö hæsta- réttardómararnir kjósa aö vikja sæti er aö sjálfsögöu aöild eins þeirra Þórs Heimis Vilhjálms- sonar að öllum VL-málunum. Þjóðviljinn ræddi i gær við Inga R. Helgason hrl. af þessu tilefni. Kvað Ingi þetta ekki hafa komið sér á óvart. Það hefði legiö I loftinu allt frá því að Þór Heimir var skipaöur i hæstaréttað svona hlyti að fara. Eg sá ekki ástæðu til þess að gera um þetta kröfu, enda nú komiö á daginn aö hinir reglu- legu dómendur réttarins hafa vikiö sæti fyrir eigin ákvöröun um leiö og fyrsta málið kemur til flutnings. Um hina nýju dómendur sem settir hafa verið er það nýmæli að starfandi hæstaréttarlög- menn skuli kvaddir til þessara starfa. Ég met þessa menn alla mikils og tel þá hæfa dómendur, sagöi Ingi R. Helgason.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.